Morgunblaðið - 13.07.1994, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 13.07.1994, Qupperneq 21
20 MIÐVIKUDAGUR 13. JÚU 1994 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Haraldur Sveinsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 691100. Auglýsingar: 691111. Askriftir: 691122. SÍMBRÉF: Ritstjórn 691329, frétt- ir 691181, íþróttir 691156, sérblöð 691222, auglýsingar 691110, skrif- stofa 681811, gjaldkeri 691115. Áskriftargjald 1.400 kr. á mánuði innan- lands. í lausasölu 125 kr. eintakið. ÁRAN GURSLÍTILL LEIÐTOGAFUND- UR í NAPÓLÍ * Arlegum fundi leiðtoga sjö helstu iðnríkja heims, sem að þessu sinni var haldinn í Napólí á Ítalíu, lauk án þess að nokkuð samkomulag næðist um aðgerðir til að styrkja stöðu dollarans. Gengi Bandaríkjadollars hefur ekki verið lægra gagnvart jeni í hálfa öld og ekki lægra gagnvart þýska markinu í tæp tvö ár. Lýstu fjármálaráðherrar ríkjanna því yfir, að þeir teldu hina miklu lækkun ekki í samræmi við stöðuna í efnahagsmál- um, sem almennt væri traust, og teldu þeir því ekki ástæðu til aðgerða að sinni. Til að auka traust fjármálamarkaða ákváðu fjármálaráð- herrar ríkjanna sjö, Bandaríkjanna, Kanada, Japans, Bret- lands, Frakklands, Þýskalands og Ítalíu, í staðinn að halda fleiri sameiginlega fundi. Þeir hittast nú tvisvar á ári en munu væntanlega eiga fjóra fundi saman í framtíðinni. í kjölfar fundarins hélt dollarinn áfram að lækka á peninga- mörkuðum en þó ekki jafn mikið og óttast hafði verið. Það varð heldur ekki úr að leiðtogarnir samþykktu ályktun um upphaf frekari viðræðna um aukið frelsi í alþjóðaviðskipt- um nú þegar Uruguay-lotu GATT-viðræðnanna er lokið. Bill Clinton, Bandaríkjaforseti, hafði skömmu áður en Napólífund- urinn hófst, hvatt til að næsta skref yrði að afnema höft á viðskiptum með t.d. fjármálaþjónustu og samskiptatækni. Sú tillaga hlaut hins vegar ekki hljómgrunn og var vísað frá með þeim rökum að slíkar yfirlýsingar gætu stefnt stað- festingu GATT-samkomulagsins í voða. Voru það ekki síst Frakkar sem lögðust gegn tillögu Clintons. Þá spillti það fyr- ir hversu seint Bandaríkjaforseti lagði fram hugmyndir sínar. í staðinn ályktuðu leiðtogarnir á almennari nótum um mikil- vægi þess að halda áfram að opna markaði og lýstu því form- lega yfir að þeir myndu berjast fyrir staðfestingu samkomu- lagsins fyrir áramót. Það gefur hins vegur ástæðu til bjartsýni, að enginn lagð- ist efnislega gegn tillögunni enda hafa leiðtogar flestra vest- rænna ríkja gert sér grein fyrir þeirri staðreynd að frjálsari alþjóðaviðskipti eru öllum í hag til lengri tíma litið. Tilraunir undanfarinna ára til að vernda eigin markaði, s.s. gagnvart innflutningi á japönskum tæknivörum og bifreiðum, hafa reynst haldlitlar og í raun stuðlað að því að hinar vernduðu atvinnugreinar verða enn síður í stakk búnar til að takast á við samkeppni. Viðskiptahöftin grafa því undan framtíðar velmegun Vesturlanda. Nú þegar þurfa vestræn iðnríki að mæta sífellt harðnandi samkeppni frá fleiri Asíuríkjum en Japan á sviði tæknilegrar framleiðslu og má þar nefna sem dæmi Tævan og Suður- Kóreu. í einfaldari fjöldaframleiðslu streyma svo vörur frá ríkjum á borð við Indland, Indónesíu og Kína inn á vestræna markaði og eftir því sem þau auðgast og tæknivæðast má búast við harðnandi samkeppni frá þeim á fleiri sviðum. Ríkjahópurinn sem fundaði í Napólí getur því varla lengur talist vera samnefnari yfir „helstu iðnríki heims“ þó að sú hafi hugsanlega verið raunin er þessir fundir hófust fyrir tuttugu árum. Að sama skapi eru leiðtogafundirnir ekki leng- ur sá vettvangur þar sem mikilvægustu ákvarðanirnar eru teknar, sem sést kannski best á því að leiðtogarnir létu ákvarð- anir um gengismál og viðskiptastefnu bíða betri tíma. Það hversu „árangurslítill" fundurinn var á sviði efnahagsmála má kannski helst skýra með því hve mikið heimurinn hefur breyst á undanförnum árum. Upphaflega voru iðnríkjafundirnir hugsaðir sem mun óform- legri samkomur en þeir hafa þróast út í að vera og virðist sem leiðtogar ríkjanna sjö telji heppilegt að hverfa aftur til þeirra tíma. Napólífundurinn var um flest mun látlausari en fundir síðustu ára og stefnt er að því að næsti fundur, sem haldinn verður í Halifax í Kanada að ári, verði enn óformlegri. Þar ætla leiðtogarnir að bregðast við breyttum aðstæðum í heiminum og ræða hugsanlega uppstokkun helstu alþjóða- stofnana, sem flestar, s.s. Alþjóðabankinn og Alþjóða gjaldeyr- issjóðurinn, eiga rætur sínar að rekja til eftirstríðsáranna og Kalda stríðsins. Væntanlega verður tilgangur og framtíð leiðtogafundanna einnig til umræðu. Nú þegar er Rússlandsforseti orðinn fasta- gestur á þessum samkomum, sem er vissulega til marks um breyttar áherslur í samstarfinu. Til lengri tíma litið verða lík- lega mun víðtækari breytingar að eiga sér stað ef G-7 fundirn- ir eiga á ný að öðlast þann sess er þeir eitt sinn höfðu. + MANNANAFNALÖGIN ÞAÐ ER oft mikið tilfinningamál hjá foreldrum að gefa barni sínu nafn, sérstaklega þegar barnið á að heita eftir einhveijum. Vandast málið verulega ef nafnið sem verður fyrir valinu er ekki að finna í mannanafnaskrá og hefur ekki unnið sér hefð í íslensku málkerfi. Hvað má barnið heita? Talsverð umræða hefur veríð undanfaríð um mannanafhalögin íslensku í kjölfar þess að foreldrar sex mánaða stúlkubams lýstu eftir —— j konum sem bera nafnið Elsabet. Aslaug Ásgeirsdóttir kynnti sér lögin. Hverjum þykir sinn fugl fag- ur og á þetta orðatiltæki vel við þegar rætt er um nafngjafir barna. Ströng lög gilda hér á landi um hvaða nöfn eru leyfileg og er það hlutverk mannanafnanefndar að skera úr um það. Foreldrar sex mánaða gamallar stúlku hafa undanfarið reynt að fá nefndina til að samþykkja nafnið Elsabet, og bíða þau nú leyfis hennar eftir að hafa tvívegis fengið neitun. Hafa foreldrarnir þurft að leita að ákveðnum fjölda kvenna sem borið hefur nafnið til að uppfylla skilyrði nefndarinnar um að nafnið sé hefðað, en nefndin setti sér vinnureglur fyrir ári síðan sem segja til um á hvern hátt nafn ávinnur sér hefð. Segir Halldór Ármann Sigðurðsson, for- maður hennar, að reglurnar séu til þess að taka af vafa og einnig til þess að nefndin þurfi ekki að taka ákvarðanir byggðar á smekk. Mannanafnalögin voru samþykkt á Alþingi árið 1991 og segir í 2. grein laganna: „Eiginnafn skal vera ís- lenskt eða hafa unnið sér hefð í ís- lensku máli. Það má ekki btjóta í bága við íslenskt málkerfi. Eiginnafn má ekki heldur vera þannig að það geti orðir nafnbera til ama. Hvorki má gefa stúlku karlmannsnafn né dreng kvenmannsnafn. Óheimilt er að gefa barni ættamafn sem eigin- nafn nema hefð sé fyrir því nafni.“ Umræðan undanfarið hefur að mestu snúist um skilgreiningu mannanafnanefndar á hvemig nafn ávinnur sér hefð. Þegar lögin voru samþykkt var skipuð þriggja manna nefnd til að skera úr um ágreinings- mál sem upp kæmu. Árið 1993 sagði nefndin af sér og gaf Guðrún Kvar- an, þáverandi formaður, þá skýringu að aðstöðu- leysi væri farið að há störf- um nefndarinnar, en hún hefur hvorki fastan starfs- mann né skrifstofu. Var skipuð ný nefnd og eiga sæti í henni þeir þeir Halldór Armann, dósent í íslensku, Erlendur Jónsson, dósent í heimspeki, og Páll Sigurðs- son, prófessor við lagadeild. Halldór Ármann segir að fyrsta verkefni nýju nefndarinnar hafí verið að skilgreina hvað teldist hefð og hvemig nöfn ynnu sér hefð í íslensku máli. Samkvæmt vinnureglum nefndarinnar telst ungt tökunafn hafa unnið sér hefð ef það fullnægir eftirfarandi skilyrðum: ■ Það er nú borið af a.m.k. 20 íslend- ingum. ■ Það er nú borið af 15-19 íslend- ingum og sá elsti þeirra hefur náð a.m.k. 30 ára aldri. ■ Það er nú borið af 10-14 íslend- ingum og sá elsti þeirra hefur náð a.m.k. 60 ára aldri. ■ Það er nú borið af 5-9 Islendingum og kemur þegar fyrir í manntalinu 1910 (eða fyrr). ■ Það er nú borið af 1-4 íslendingum og kemur þegar fyrir í manntalinu 1845 (eða fyrr). ■ Það er nú ekki borið af neinum Islendingi en kemur þegar fyrir í manntalinu 1845 (eða fyrr) og hefð þess hefur ekki rofnað eftir 1910. I greinargerð sem Halldór Ármann samdi um 2. grein mannanafnalag- anna og hvemig bæri að túlka hana segir að tímamörkin séu að nokkru leyti handahófskennd og ártölin 1910 og 1845 valin því upplýsingar séu aðgengilegastar í þessum tveimur manntölum. Einnig segir í greinargerðinni að það velti mjög á túlkun hefðarákvæðisins hvernig til takist um framkvæmd laganna. „Ef túlkun þess er skýr, tryggir jafnræði og samrýmist almennum skiln- ingi á því hvað geti kallast hefð eru líkur á að almenningur sætti sig við þá úrskurði sem á henni byggjast. Sé túlkun hefðarákvæðisins hins vegar óljós og ósamkvæm sjálfri sér verður aldrei neinn friður um mannanafna- lögin,“ segir í henni. Ekki byggt á smekk Haildór segir að nefndin fari í einu og öllu eftir þessum vinnureglum og að sínu mati hafi tekist vel til að forð- ast að nefndin byggi úrskurði sína á smekk og ríki yfirleitt friður um störf hennar. „Það þýðir ekki að segja við fólk að minn smekkur sé betri en þess,“ segir hann. Persónulega fmnst Halldóri Ár- manni að ekki eigi að setja lög um mannanöfn og í mars á síðasta ári skrifaði hann grein í Morgunblaðið þar sem hann segir mannanafnalögin íslensku vera ólög. „Vald sem getur bannað foreldri að skíra barn sitt ein- hveiju tilteknu nafni á ekki að vera til í lýðræðisþjóðfélagi,“ segir hann í greininni. I júlí var hann skipaður formaður mannanafnanefndar. Hann segir að vera sín í nefndinni hafi ekki breytt skoðun sinni, en á meðan lögin séu í gildi beri að fara eftir þeim. „Það er nánast verið að segja fólki að þau séu ekki nógu góðir foreldrar af því að þau finna ekki nógu gott nafn á barnið,“ segir hann um lögin. „Fólk er að biðja um nöfn vegna þess að þeim þykir þau falleg.“ Árlega berast mannanafnanefnd um 200 umsóknir um nöfn og er um helmingi þeirra hafnað. Halldór Ármann segir að þetta séu of mörg nöfn og sýni að lögin séu of ströng. Þau eru nú í endurskoðun í dómsmálaráðuneytinu og á Halldór Ármann sæti í nefnd sem það gerir. Hann segir að nefndarmenn vonist til þess að hægt verði að leggja nýtt frumvarp fyrir þingið í haust eða vetur. Býst hann við að lögin verði rýmkuð og hægt verði fyrir ný nöfn af erlendum uppruna að ávinna sér hefð. Mikið tilf inningamál Hin hliðin á málinu eru þeir foreldr- ar sem reynt hafa að fá nöfn sam- þykkt. Eins og gefur að skilja er mik- ið tilfiningamál þegar nýfæddu barni er gefið nafn. Prestar og formenn trúfélaga bijóta lögin þegar þeir skíra barn nafni sem ekki er leyft. Að sögn Ólafs Skúlasonar, biskups íslands, bar talsvert á því í fyrstu að lögin væru brotin, en nú sé prestum almennt kunnugt um þau. Hann segir að eftir sem áður sé hægt að gera barn að kirkjunnar þegn, því hægt sé að skíra barn án nafngjafar. Þá sé ekkert nafn nefnt þegar skírt sé og það komi í hlut Hagstofu íslands að framfylgja því að barni sé gefið nafn innan sex mánaða frá fæðingu. Hörður Hauksson og Elsabet Sig- urðardóttir, foreldrar Elsabetar Ósk- ar, hafa undanfarna þijá mánuði reynt að fá nafn dóttur sinnar sam- þykkt, en til stóð að skíra hana um hvítasunnu. Stúlkan var skírð nýlega, en eftir er að tilkynna nafngift til Hagstofunnar. Á tímabili vantaði ein- ungis eina Elsabetu til að uppfylla skilyrði nefndarinnar og brugðu Hörð- ur og Elsabet á það ráð að fá Morgun- blaðið í lið með sér. Það bar árangur og nú bíða þau eftir að fá nafnið sam- þykkt af mannanafnanefnd. Alls fengu þau ábendingar um 34 konur sem borið hafa nafnið. Þau eru ekki alls kostar ánægð með samskipti sín við nefndina, segja að þau hafí verið lött frekar en hvött til þess að reyna að sanna hefð. „Fólk á ekki að þurfa að standa í þessu,“ segir Hörður. „Maður er ekki að velja nafn á hund.“ Þau telja mikla annmarka á vinnu- reglum nefndarinnar því erfitt sé að fá upplýsingar um nöfn. Hagstofan veiti takmarkaðar upplýsingar, hún megi ekki gefa upplýsingar um hagi fólks. Til dæmis þurfi að liggja fyrir upplýsingar um hvar fólk hafi verið skírt til þess að hægt sé að ganga úr skugga um hvernig nafn sé skráð í kirkjubækur. Hörður segir einnig að upplýsingar Hagstofu séu ófull- nægjandi, ef fólk heiti tveimur nöfn- um þá sé síðara nafnið oft skráð í þjóðskrá sem upphafsstafur. Þarf betri upplýsingar Þeim finnst að nefndin eigi að að- stoða fólk við að fá nöfn samþykkt, en sjálf hafí þau þurft að hafa mikið fyrir þessu. Einnig þurfi mannanafna- nefnd að hafa aðgang að betri upplýs- ingum. Það hafi sýnt sig eftir að fjall- að var um málið í fjölmiðl- um. Friðrik Skúlason, tölvu- fræðingur, sendi Elsabetu og Herði þréf eftir að hann leitaði að nafninu Elsabet í Espólín ættfræðiforriti sínu og fann fjölda kvenna sem báru nafn- ið, bæði í manntali og í kirkjubókum, en mannanafnanefnd hafði ekki fundið þessar konur. Friðrik segir að kirkjubækur og manntöl til ársins 1870 séu til á tölvutæku formi sem mormón- ar unnu upp úr frumheimildum. Hann hafi flett upp í þessum gögnum til að leita að nafninu Elsabet. Fleiri lögðu þeim lið í leitinni að Elsabetu, þeirra á meðal Jón Torfason í Landsbókasafninu og segir Elsabet að hún hefði aldrei getað sannað að hefð væri fyrir nafninu ef þau hefðu ekki fengið þessa hjálp. Einnig hringdi í þau kona, sem gat ekki nafns, og gaf þeim upplýsingar um 13 konur sem heitið höfðu Elsabet. + imiimmuimnmtn Hvorki fastur starfsmaður né skrifstofa 34 ábendingar um nafnið Elsabet íí * * ' X >»• Xt C & tkf X.XHC « xm m«t#s X ** :* 4M: ■<** t ’m* « MIÐVIKUDAGUR 13. JÚLÍ1994 21 Hegðun áhangenda knattspyrnuliða á leikjum er skyndilega í brennidepli ENGAR FÓTBOLTA- BULLUR Á ÍSLANDI Morgunblaðið/RAX Atvik á leik KR og í A hefur vakið upp spurn- ingu um siðgæði á knatt- spyrnuvöllunum. Orri Páll Ormarsson heyrði hljóðið í leikmönnum, stuðningsmönnum og forsvarsmönnum knatt- spyrnuhreyfingarinnar sem neita því að um vandamál sé að ræða. Knattspyma er leikur eld- heitra tilfinninga. Þó mörgum kunni að blöskra ákefðin sem fylgir kapp- leiknum er ljóst að í þær níutíu mín- útur sem hann varir snýst líf leik- manna jafnt sem áhorfenda um hann einan. Hópvitundin tekur völdin. Fólk úr hinum ólíkustu stéttum sam- félagsins kemur saman á vellinum og binst böndum um að styðja við bakið á „sínum mönnum“. Samstað- an verður algjör og jafnvel prúðasta fólk verður uppvíst að því að sleppa fram af sér beislinu. Mistur færist yfir skynsemina og skyndilega em liðin á vellinum orðin tákn skarpra andstæðna, góðs og ills. Rík tilhneig- ing til að réttlæta allar gjörðir síns liðs skýtur upp kollinum. Að sama skapi em flestar hreyfingar and- stæðingsins túlkaðar sem persónuleg árás. Þegar hinsta flaut dómarans gellur hverfur síðan hver í sína átt- ina. Á örskotsstund breytist and- stæðingurinn úr hinu argasta ómenni í vinnufélagann eða nágrannann. Glíman við þá kjaftforu íslendingar hafa til þessa ekki haft miklar áhyggjur af hegðun land- ans á knattspymuvellinum. „Ys og þys út af engu,“ segja margir en fágætt er að fólk telji andlegri hvað þá líkamlegri heilsu sinni ógnað af því að fara á völlinn. Atvik sem átti sér nýverðið stað á leik KR og Akra- ness hefur þó vakið upp þá spurn- ingu hvort siðgæði stuðningsmanna knattspyrnuliða sé að breytast til hins verra? Fjölskylda þjálfara vest- urbæjarliðsins sá þá ástæðu til að víkja úr stúkunni eftir að góðglaðir einstaklingar höfðu veist að þjálfar- anum með ósæmilegu orðtaki. Helgi Daníelsson, formaður stuðn- ingsmannafélags Skagamanna, harmar þá umfjöllun sem átt hefur sér stað í kjölfar atviksins á KR-vell- inum. Hann segist leggja höfuð- áherslu á að stuðningsmenn Skaga- liðsins séu gulir og glaðir á vellinum og hvetji sína menn til dáða. Hann kveðst hafa ímugust á hverskonar níði um dómara og andstæðinga og segir því klárt mál að þeir aðilar sem voru að verki í umræddu atviki hafi ekki verið á vegum stuðningsmanna- félagsins. Helgi kveðst ekki kunna deili á þeim en bendir á að stuðnings- menn Skagaliðsins skipti þúsundum og erfitt sé því að hafa hemil á þeim öllum. Að sögn Helga eru sannir Skagamenn í hvívetna til fyrirmynd- ar á vellinum og því varar hann fólk við að hengja alla áhangendur liðsins fyrir títtnefnt atvik. „Það er víðs- fjærri öllum sannleika að Skaga- menn séu eitthvað verri en aðrir í þessum efnum.“ Til að fyrirbyggja allan misskilning segir Helgi Skaga- menn ekki safnast saman á veitinga- staðnum Ölveri til að drekka frá sér ráð og rænu fyrir leiki liðsins á höf- uðborgarsvæðinu. Þvert á móti komi þeir saman til að mynda stemmningu með því að ræða málin og líta á gamla leiki. Hann segir þennan sið tíðkast víða um lönd og segir það fásinnu að öl sé þar sopið ótæpilega. Helgi segir það gamla sögu og nýja að félög þurfi að glíma við kjaft- fora áhorfendur. Misjafn munnsöfn- uður hafi alltaf fylgt knattspyrnu og muni vafalítið gera áfram hvað sem tautar og raular. Helgi telur slíkt háttalag þó engum til sóma og félögunum beri þvi að gera allt sem í þeirra valdi standi til að halda því í skefjum. Hafsteinn Egilsson, formaður stuðningsmannafélags KR, kveðst ekki hafa orðið var við breytingu á hegðun áhorfenda á knattspyrnu- leikjum í sumar. Hann harmar atvik- ið hvimleiða sem átti sér stað á KR-vellinum en telur það algjöra undantekningu. Hann bindur jafn- framt vonir við að þeir aðilar sem þar áttu hlut að máli læri af reynsl- unni. Hvað KR-inga varðar segir Haf- steinn stuðningsmannafélagið standa traustum fótum. „Við stefn- um að því að gera KR-klúbbinn að fjölskylduklúbbi fyrstir allra liða,“ segir hann og kveður KR leggja höfuðáherslu á að laða fjölskyldufólk á völlinn. Hann segir algengt að KR-fjölskyldur komi saman í KR- heimilinu og snæði fyrir leiki og byggi þannig upp stemmningu. Aldr- ei sé þó hægt að fyrirbyggja að slompaðir einstaklingar slæðist inn á völlinn. Að sögn Hafsteins stóðu KR-ingar frammi fyrir þeirri erfiðu ákvörðun fyrir nokkrum árum að útiloka ákveðinn einstakling frá leikjum félagsins. Hann bendir á að það sé misjafn sauður í mörgu fé og knattspyrnan fari eðlilega ekki varhluta af því. Hafsteinn segir að vandamál af þessu tagi megi oftast rekja til lagsmennsku við Bakkus og umræddur einstaklingur hafi í kjölfar bannsins leitað sér aðstoðar. í dag sé hann nýr og betri maður og hafi á ný tekið sinn sess á vellin- um. „Það má glögglega sjá að við ölum okkar stuðningsmenn vel upp.“ Hafsteinn segir dylgjur alltaf hafa fylgt knattspyrnunni. Mikið sé í húfi og ýmsum brögðum því beitt til að klekkja á andstæðingnum. Hann segir sömu sálmana oft kveðna eins og KR-ingar þekki manna best. Haf- steinn segir það þó heyra undantekn- ingunni til að einhver fari sár af velli. Engar athugasenidir eftirlitsmanns Snorri Finnlaugsson, fram- kvæmdastjóri Knattspyrnusambands íslands, segir sambandið ekki hafa ijallað sérstaklega um atvikið á KR-vellinum þar sem eftirlitsmaður þess hafi ekki séð ástæðu til að gera athugasemd við hegðun áhorfenda. Hann telur enga ástæðu til að hafa áhyggjur af framferði stuðnings- manna knattspyrnuliða því undan- tekningalítið stilli þeir skapi sínu í hóf. Snorri neitar þó ekki að svartir sauðir séu til inn á milli en vísar því alfarið á bug að fótboltabullur fyrir- finnist á íslandi. Snorri telur að stemmning, hróp og köll séu óijúfanlegur hluti af knattspyrnunni. „Án áhorfenda hefðum við engan fótbolta." Hann telur því öllum sem unna knattspyrn- unni skylt að stuðla að jákvæðu hugarfari. Sérstaklega sér Snorri ástæðu til að hlífa dómurum við aðdróttunum. „Sumir virðast einung- is mæta á völlinn til að agnúast út í dómgæslu," segir Snorri og kveður slíkt athæfi hlutaðeigandi síst til framdráttar. Erfitt að útrýma drykkjuskap Snorri telur því miður erfitt að útrýma drykkjuskap á knattspyrnu- völlum. Markvisst sé þó unnið að því af hálfu KSÍ. „Við lútum mjög ströngum alþjóðlegum reglum varð- andi áfengisbönn á landsleikjum,“ segir hann og bendir á að samband- ið hafi hvatt félagslið til að herða eftirlit hvað þetta varðar. Almennt séð segir Snorri að gæsla á knatt- spyrnuleikjum hafi aukist til muna hin síðari ár. Eftirlitsmenn frá KSÍ séu á öllum fjölsóttari leikjum og telji þeir einhveiju ábótavant hiki sambandið ekki við að vanda um við viðkomandi félag. Snorri tekur skýrt fram að hann telji stuðningsmannafélög af hinu góða. Hann kveðst þó ekki sannfærð- ur um að ölknæpur séu réttur vett- vangur upphitunar fyrir leiki. „Knattspyrnan hefur alltaf verið fjöl- skylduíþrótt hér á landi og því teí1"* ég varhugavert að stefna fólki á vín- veitingastaði fyrir leiki.“ Áhorfendur hvetji sína menn Sigurður Jónsson, leikmaður knattspyrnuliðs Skagamanna, var vart af barnsaldri þegar hann stóð fyrst í eldlínunni með liðinu í fyrstu deild. Hann lék einnig um nokkurra ára skeið sem atvinnumaður á Eng- landi. Hann er afar ósáttur við stuðn- ingsmenn félaga sem gera aðsúg að andstæðingnum. „Að mínu mati eiga áhorfendur að einbeita sér að því að hvetja sitt lið. Ódýr skot á andstæð- inginn eru engum til sóma.“ Sigurð- ur bætir síðan við að það sé hveri^. liði þýðingarmikið að hafa hóp stuðn- - ingsmanna sem nota kraftana í þess þágu. Sigurður kveðst ekki sjá fyrir sér bulluvandamál í knattspyrnunni hér á landi í framtíðinni. Hér sé um að ræða margfalt minni stærðir en til að mynda á Englandi þar sem hann þekkir best til. Hann telur að þar stafí vandamálið af uppeldisástæð- um. „Á Englandi eru þetta menn sem láta ekki bara illa á fótboltaleikjum heldur allsstaðar sem þeir eru.“ Sigurður bendir á að knattspyrnsw lið leggi sig í líma við að gera stuðn- ingsmenn sína stolta. Þetta ætti því að sjálfsögðu að vera gagnkvæmt. Hann skorar því á stuðningsmenn allra liða, ekki bara Skagamanna, að eyða kröftunum í að styðja sína menn og láta andstæðingana óá- reitta. jiiiHiiiifmwimiiHiumiiiniiimiiniiiiiiHimii

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.