Morgunblaðið - 10.08.1994, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 10.08.1994, Qupperneq 2
2 MIÐVIKUDAGUR 10. ÁGÚST 1994 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR 58 skip svipt veiði- leyfi í síðustu viku SJÁVARÚTVEGSRÁÐUNEYTIÐ svipti 58 skip veiðileyfi 5. ágúst sl. sem höfðu aflað fram yfír úthlutaðar veiðiheimildir þessa árs og meira en 5% fyrirfram af heimildum næsta fiskveiðiárs. Fimmtán af þessum skipum eru enn án veiðileyfis en útgerðir hinna skipanna hafa keypt kvóta og fært yfír á skip sín. Um 20 önnur skip eru enn án veiðileyfis vegna sviptinga sl. vetur. Þannig liggja um 35 skip nú bundin við bryggju svipt veiðileyfi. Að sögn Þórðar Eyþórssonar hjá sjávarútvegsráðuneyt- inu er líklegt að enn fleiri skip verði svipt veiðileyfi á næstu dögum. Útgerðir hafa ótakmarkaðan tíma til að laga sín mál og færa til sín kvóta en að sögn Þórðar er skammt eftir af 'þessu fiskveiðiári og óvíst hvort menn telji brýna ástæðu til þess fyrir næsta fisk- veiðiár sem hefst 1. september nk. Svipt vegna ufsa og ýsu Þórður segir að mjög mismunandi sé hve mikið skipin hafí veitt fram yfír heimildir. Það sé allt frá nokkr- um kílóum upp í nokkra tugi tonna. 58 skip voru svipt veiðileyfi 5. ágúst sl. og þar af voru margar sviptingar vegna rælquveiða og jafnvel fyrir veiðar umfram kvóta af ufsa og ýsu sem þó er talið að nóg sé til af. Heimilt er að veiða fyrirfram 5% af kvóta næsta fískveiðiárs. Engin við- urlög önnur eru við því að fara fram yfír þann afla en veiðileyfíssvipting og umframveiðarnar hafa ekki áhrif á úthlutun á kvóta næsta fískveiði- árs. Útgerðirnar þurfa þó að greiða fyrir andvirði hins ólöglega afla í lok fískveiðiársins. Þórður ætlar að útgerðir skipa sem veiða þorsk umfram kvóta geti verið í vanda staddar ætli þær að laga sína stöðu núna því afar erfitt sé að fá þorskkvóta keyptan eða leigðan. Hann segir að það sem hafi verið veitt fram yfir kvóta sé ekki mikið að magni og almennt sé ekki meira um sviptingar en hafi verið áður. Það langt sé liðið á fískveiðiárið að eðlilegt sé að menn séu búnir að nýta sínar heim- ildir. Sumir sinni ekki veiðileyfis- sviptingu núna og taki sér sumarfrí fram.að nýju fískveiðiári. Grafið fyrir húsi Hæsta- réttar VINNA við grunn nýbyggingar Hæstaréttar Islands á horni Lindargötu og Ingólfsstrætis hefur staðið yfir að undanförnu. Nú hefur verið grafið niður á klöpp, sem fleyga þarf úr áður en verkinu er fram haldið. Upp- steypa hússins hefur nú verið boðin út og verða tilboð í verk- ið opnuð síðar í þessum mán- uði. Þegar fyrst var ákv'eðið að ráðast í byggingu hússins gerðu áætlanir ráð fyrir að taka mætti það fullbúið í notkun á næsta ári, en þá eru liðin 75 ár frá því að Hæstiréttur íslands tók til starfa. Vegna tafa, sem urðu á framkvæmdum þegar deilur risu um staðsetningu hússins, er nú talið líklegt að húsið verði fullbúið ári síðar, eða um mitt ár 1996. Morgunblaðið/Þorkell Sjálfstæðisflokkur- inn í Reykjavík Prófkjör 28.-29. október FULLTRÚARÁÐ sjálfstæðisfélag- anna í Reykjavík samþykkti sam- hljóða og án umræðna á fundi sín- um á Hótei Sögu í gærkvöldi að halda prófkjör vegna alþingskosn- inganna, sem haldnar verða næsta vor. Prófkjörið verður haldið 28.-29. október næstkomandi. Prófkjör sjálfstæðismanna í Reykjavík verður opið öllum full- gildum flokksmönnum í borginni, 16 ára og eldri, og öðrum þeim, sem kosningarétt eiga í borginni á kjör- dag og fylla út beiðni um inngöngu í flokkinn fyrir lok kjördags. Skordýralíf með líflegasta móti Morgunblaðið/Júlíus GEITUNGAR kjósa að gera sér bú í skjóli í grónum görðum. Ein þeirra þriggja tegunda, sem fest hafa rætur hér á landi, gerir sér þó einnig bú úti í náttúrunni. AÐ SÖGN Erlings Ólafssonar, skor- dýrafræðings hjá Náttúrufræðistofn- un, hefur skordýralíf verið með líflegasta móti í sumar, m.a. vegna hlýinda. Hann segir að það segi þó ekkert um horfurnar næsta sumar, það sé flóknara mál en svo, fari m.a. eftir veðri í vetur og næsta vor. Erling segir að í sumar hafi orðið bullandi uppsveifla í þeim þremur geit- ungastofnum sem hér hafa fest rætur. Hann segir að þeir séu alls staðar, t.d. mjög mikið á höfuðborgar- svæðinu og verði fólk alltaf öðru hvoru fyrir óþægindum vegna þeirra. Erling hefur gert talsvert af því að eyða geit- ungabúum í görðum, enda seg- ir hann fólk helst ekki vilja hafa þetta við dyrnar hjá sér. Erling segir að ein tegund geitunga geri sér bú úti í nátt- úrunni, hinar tvær kjósi skjólið í gróðursælum görðum. Á höf- uðborgarsvæðinu séu þeir nán- ast alls staðar, en dálítið mis- þétt. Þeir eru mikið í grónum görðum í Kópavogi og Garðabæ og í austurhluta Reykjavíkur, í hverfum sem liggja að Elliða- árdalnum og Fossvogsdalnum, Laugarnesi, Vogum, Sundum og Teigum. Hann segir að þeir hafi verið mikið í Vesturbænum fyrir nokkrum árum en þeir hafi heldur fært sig austur á bóginn. Þeir séu síður í nýjum hverfum, enda taki 10-20 ár að rækta upp gróna og skjol- góða garða. Erling segir aðspurður að geitungar verði hér til fram- búðar, þeir hafi verið hér í 15-20 ár og þróuninni verði ekki snúið við héðan af. „Við verðum bara að læra að lifa með þeim eins og aðrar þjóð- ir,“ segir Erling. Tilboði Electro- lux var hafnað BORGARRÁÐ hafnaði í gær tilboði Electrolux vegna fyrirhugaðrar bygging- ar íþróttahúss fyrir heimsmeistarakeppnina í handknattleik. Sigrún Magnús- dóttir, borgarfulltrúi R-listans, sagði að tilboðið hefði þótt með öllu óað- gengilegt. Jens Ingólfsson, framkvæmdastjóri Arnarhúsa hf., sem er um- boðsaðili Electrolux á íslandi, segir að um misskilning sé að ræða, ekki hafí verið um eiginlegt tilboð að ræða og að forsvarsmönnum Electrolux sé mjög í mun að koma til móts við óskir Reykjavíkurborgar. Sigrún Magnúsdóttir sagði að tii- boðið hefði ekki verið í nokkru sam- ræmi við það sem áður hafði verið greint frá, það er kaupleigutilboð til 20-25 ára með 5% vöxtum. „Ástæð- an fyrir því að borgin tók þátt í þess- um viðræðum var kostatilboð Electrolux um að reisa og reka hér hús og við töldum ekki annað fært en að ræða þann möguleika, enda góður kostur. En tilboðið sem barst hljóðaði upp á lán til tíu ára með 8,5% vöxtum,“ segir Sigrún. Aðspurð hvemig skýra mætti þessa breytingu sagði Sigrún að margar deildir væru innan Electrolux, kannski hefði ekki verið rætt nægilega vel við fjármála- deild fyrirtækisins og þegar hún hefði komið að málinu til þess að gera endanlegt tilboð hefði ekki reynst vilji fyrir fyrrgreindum skilmáium. 20 ár koma vel til greina Jens Ingólfsson, umboðsmaður Electrolux, segir að umrædd atriði hafí bara verið sett upp sem dæmi og tvívegis hafi verið tekið fram í bréfinu að ekki væri um endanlegt tilboð að ræða. Þar hafí verið tekið fram að lægri ávöxtunarkrafa og lengri lánstími kæmu til greina. Vel komi til greina af hálfu Electrolux að lána til 20 ára með 6,5% ávöxtun- arkröfu í dönskum krónum, sem séu meðal millibankavextir. Aðrir gjaldmiðlar komi einnig til greina. Jens segir að Electrolux sé tilbúið til að reisa húsið fyrir ákveðna upp- hæð og ábyrgjast að hún standist. Þeir ábyrgist stuttan byggingartíma og að húsið verði tilbúið í tæka tíð. Þá muni fyrirtækið bera ábyrgð á því í 20 ár. Samningar ættu að nást Jens segist hafa rætt við forstjóra Electrolux Credit i gær og að hann sé tilbúinn til að koma til Islands til samningaviðræðna. Bréfið hafi átt að vera viljayfirlýsing um samninga- viðræður og viðbót við þær upplýs- ingar sem embættismenn borgarinn- ar höfðu áður fengið. Jens segir for- svarsmenn Electrolux fullvissa um að hægt sé að finna lausn. Electrol- ux Credit sé i raun að bjóðast til að lána fjármagn með tapi, enda telji forsvarsmennirnir verkefnið hafa mikið auglýsingagildi. „Þess vegna væru það mjög mikil von- brigði ef misskilningur yrði til þess að ekkert yrði úr,“ segir Jens. Óleyfileg- ar laxveið- ar í sjó Vogum. Morgunblaðið. RANNSÓKN á óleyfilegum lax- veiðum í net í sjó í Helguvík og Rafnkelsstaðavík stendur nú yfir á vegum lögreglunnar í Keflavík. Veiðieftirlitsmenn tilkynntu lögreglunni um laxanet á áður- nefndum stöðum aðfaranótt 3. ágúst sl. í Helguvík fannst eitt net með einum laxi í og í Rafn- kelsstaðavík voru tvö net, einnig með laxi í. Höfnin í Helguvík er að hluta til lokuð umferð og ræddu veiði- eftirlitsmenn við vaktmenn þar en þeir vildu ekki kannast við netið. Á bryggjunni fundust hins vegar greinileg ummerki um að gert hefði verið að laxi. Rætt um rétt- mæti þjón- ustugjalda NEYTENDASAMTÖKIN hafa boðið Sambandi íslenskra við- skiptabanka, Sambandi spari- sjóða og viðskiptaráðuneytinu til viðræðna um ágreining um rétt- mæti ýmiss konar þjónustu- gjalda. í bréfi sem Neytendasamtökin hafa sent ofangreindum aðilum segir að samtökin hafí ítrekað bent á það sjónarmið sitt að sú gjaldtaka sem bankar og spari- sjóðir hafi nú tekið upp fyrir ýmiss konar þjónustu sé ýmist verðlögð of hátt eða sé með öllu óeðlileg. Samtökin óska þess að ofangreindir aðilar sendi fulltrúa sína á fund hjá Neytendasam- tökunum áður en gripið verður til ráðstafana til að reyna að hnekkja ákvörðunum um gjald- töku. Neytendasamtökin gefa frest til 15. ágúst til að þekkjast boð- ið eða æskja annars fundartíma. Nýr vegur um Bólstaðarhlíð- arbrekku NÝR VEGUR um Bólstaðarhlíð- arbrekku verður að öllum líkind- um fullfrágenginn og opnaður allri umferð um næstu mánaða- mót, að sögn Einars Gíslasonar umdæmistæknifræðings hjá Vegagerð ríkisins á Sauðárkróki. „Um þessar mundir er verið að keyra burðarlag á vegarbút- inn, sem er 5,4 km á lengd,“ sagði Einar. „Næsta skref er síð- an að leggja svokallað efra burð- arlag á veginn og loks klæðningu yfir efra lagið.“ Einar sagði, að umferð hefði þegar verið hleypt á hluta veg- arins, en stefnt væri að því að opna hann um mánaðamótin. Náttúrulífs- mynd um Þingvallavatn RÍKISSTJÓRNIN samþykkti í gær einnar millj. kr. styrk við gerð náttúrulífsmyndar um Þing- vallavatn sem Valdimar Leifsson kvikmyndagerðarmaður og Einar Örn Stefánsson vinna að. Valdi- mar sagði að gerð myndarinnar væri enn á frumstigi. Áætlaður kostnaður við hana næmi um 20 millj. kr. og sagðist Valdimar hafa sótt um styrki víða til að gera myndina og Ríkissjónvarpið yrði væntanlega meðframleið- andi myndarinnar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.