Morgunblaðið - 10.08.1994, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 10.08.1994, Qupperneq 4
4 MIÐVIKUDAGUR 10. ÁGÚST 1994 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Stýrimaðurinn á Hágangi II látinn laus og aðeins kærður fyrir að hindra með valdi opinbera starfsmenn við embættisverk Sýnir best hvað þeir hafa veikan málstað ANTON Ingvason 1. stýrimaður á Hágangi II var látinn laus úr gæsluvarð- haldi eftir hádegi í gær þegar honum hafði verið birt ákæra ríkissaksóknar- ans í Troms og Finnmörku, en Anton er sakaður um að hafa hindrað með valdi opinbera starfsmenn við að framkvæma embættisverk. Upphaflega var Anton hnepptur í varðhald vegna gruns um að hann hefði með notkun skotvopns reynt að valda mönnunum líkamstjóni, og sagði Friðrik Arngríms- son lögfræðingur útgerðar Hágangs II í samtali við Morgunblaðið það vera mjög jákvætt að ákæran hljóðaði ekki upp á að Anton hefði ætlað að valda mönnunum líkamstjóni. Anton sagði að hann liti á þetta mál sem einn stóran brandara og norsk stjómvöld væru eingöngu að beita fyrir sig lögreglunni í Tromsö til að leysa úr klúðri sem norska strandgæslan hefði komið sér í með því að handtaka íslenskan sjómann í stað þess að færa skipið til hafnar og ákæra það fyrir ólöglegar veiðar. Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráð- herra um málsmeðferð Norðmanna Mikið áfall fyrir norsk stjórnvöld Bjöldi erlendra skipa í Síldarsmugunni ÞORSTEINN Pálsson sjávarútvegs- ráðherra segir, að málsmeðferð Norðmanna vegna Hágangs II. hafí leitt í ljós, að norsk löggjöf væri þess eðlis að Norðmenn treystu sér ekki til að ákæra skip fyrir veiðar innan vemdarsvæðisins við Sval- barða. „Þeirra eigin löggjöf gefur þeim ekki tilefni til þess að beita valdi gagnvart skipum sem eru að veiðum á svæðinu og það er mikið áfall fyrir norsk stjómvöld í stöð- unni, að það skuli koma fram með þessum hætti. Með þessu er ég þó ekki að kveða upp úr með einhveija endanlega niðurstöðu varðandi mat á þjóðréttariegri niðurstöðu í mál- inu,“ sagði sjávarútvegsráðherra í samtali við Morgunblaðið. Haft var eftir Jens Evensen fyrr- verandi viðskipta- og hafréttarráð- herra Norðmanna í Morgunblaðinu í gær, að hann legði til, að annaðhvort norska ríkisstjómin eða sú íslenska taki fmmkvæði að viðræðum um lausn Svalbarðadeilunnar, og sagðist Þorsteinn Pálsson vona, að norsk stjómvöld myndu gera það. Þau hefðu ekki hafnað viðræðum en heldur ekki sagt með bemm orðum, að þau séu Engin loðna fundiná vestur- svæðinu LEITARFERÐ loðnuskipsins Hákonar ÞH inn á vestursvæð- ið svokallaða með sérstöku leyfi sjávarútvegsráðuneytis- ins reyndist árangurslaus. Oddgeir Jóhannsson skipstjóri sagði í samtali við Morgun- blaðið að skipið hafí verið á svæðinu í um tvo sólarhringa en þar hafí hvergi sést til loðnu. Afar dræm veiði Upplýsingar Félags ís- lenskra fískmjölsframleiðenda bera með sér að loðnuveiðar hafa verið mjög dræmar að undanförnu. Um helgina var aðeins rúmum 2.700 tonnum landað og skiptist sá afii auk þess á 16 skip. Algengt var að skip lönduðu slöttum innan við hundrað tonnum en mest- um afla landaði Guðmundur Ólafur ÓF á Ólafsfirði, 389 tonnum. tilbúin til að taka upp þráðinn. Síldin stærsta málið „Við höfum alltaf sagt að við vild- um gjarnan eiga samtöl við norsk stjómvöld og í sumar fóru fram embættismannaviðræður, sem fyrst og fremst voru til könnunar á stöðu mála, en það var engum dyrum lokað þar. Það er ljóst, að við þurfum að leysa ýmis mál við Norðmenn og þar á meðal þessi varðandi Svalbarða og Smuguna, en stærsta málið, sem við þurfum að útkljá við þá, er síldin. Um næstu áramót missa Norðmenn yfírráðin yfir þeim málum til Evrópu- sambandsins, fari svo að þeir sam- þykki aðildina, og þar er mjög stórt mál, sem hefði verið æskilegt að ljúka áður en Evrópusambandið tekur þau mál yfir. Það er vont, að þessi mál skuli hafa leitt til þess, að síldarvið- ræður hafa ekki komist á þann skrið sem við hefðum kosið, en ég lít svo á, að það sé norskra stjómvalda að gefa til kynna, hvort þau séu reiðubú- in til viðræðna og þá liggur það fyr- ir af okkar hálfu, að við erum meira en fúsir til að koma til viðræðna," sagði Þorsteinn. JÓN Baldvin Hannibalsson, utan- ríkisráðherra segir að Jens Evensen, fyrrverandi viðskipta- og hafréttarráðherra Norðmanna, sé vitur maður og góðgjam og hann hafí lög að mæla, er hann hvetji norsk stjórnvöld til þess að hefja viðræður við íslendinga strax, um lausn Svalbarðadeilunnar. „Ágreiningsmálin um Smugu og Svalbarða og hagsmunaárekstrar um nýtingu annarra stofna á Norð- ur-Atlantshafinu milli Islands og Noregs, eru öll sama marki brennd: Þau verða ekki leyst með púður- skotum; þau verða ekki leyst með orðaskaki eða skenski; þau verða ekki leyst nema við samningaborð- ið. Það er rétt mat, að sú stað- reynd, að Norðmenn taka skip að veiðum á fískverndarsvæðinu við Svalbarða, en komast að þeirri nið- urstöðu, eftir að hafa velt því máli Réttarhöld yfir Antoni hefjast 1. nóvember næstkomandi. Hann sagði í samtali við Morgunblaðið að í réttarhöldunum myndi hann sanna sakleysi sitt. „Maður sér að þeir eru að draga úr öllu málinu núna. Fyrst var allt- af talað um það af lögreglunni og strandgæslunni að ég hefði beitt riffli, en síðan var það dregið niður í haglabyssu og núna endanlega er talað um að ég hafí hindrað opinberan starfsmann í starfí og það er það eina sem ég er ákærð- ur fyrir. Ég held að þetta sýni best hvað þeir hafa veikan málstað og að þeir eru að búa sér tíl ein- hveija tyliiástæðu,“ sagði hann. Hefur hiklaust með sér haglabyssu Anton sagði að það hefði verið mikil lífsreynsla fyrir mann sem aldrei hefði komið í fangelsi áður að vera haldið í rúmlega þijá sólar- hringa í varðhaldi án þess að vera birt ákæra. Anton er væntanlegur til íslands í dag og sagðist hann fara með Hágangi II næsta túr, en áætlað er að skipið leggi úr höfn næstkomandi mánudags- kvöld. Aðspurður um hvort hann myndi hafa með sér haglabyssu í túrinn sagðist hann hiklaust ætla að gera það. „Það er eina ráðið til að fæla burt einhveija fugla þarna en það er virkilegur óþrifnaður af þessu út um allt skip. Svo eru alls konar fuglar að þvælast þarna líka sem þarf að fæla burtu með einhveijum ráðum," sagði hann. Reyndi ekki á áfrýjunina Friðrik Arngrímsson, lögfræð- ingur Úthafs hf. , sagði að ástæða þess að lögregla í Tromsö hefði áfrýjað fyrri úrskurði norska dóm- arans um að Anton skyldi látinn laus, hefði verið að hún hefði viljað halda Antoni lengur í gæsluvarð- haldi, eða þar til honum hefði ver- ið birt ákæra. Á áfrýjun hefði ekki reynt þar sem ákæran hefði verið birt í gær. upp, að þeir treysti sér ekki til að ákæra fyrir fiskveiðilagabrot, veikir þeirra stöðu,“ sagði ráðherrann í samtali við Morgunblaðið í gær. Jón Baldvin sagði að þetta stað- festi í reynd það sem „við þóttumst áður vita, að þeir vilja forðast að láta reyna á réttarstöðu sína á Sval- barðasvæðinu. Þar er nú kjarni málsins þessi: Norðmenn geta ekki tekið sér rétt á grundvelli Sval- barðasamningsins, en hafnað að standa við skuldbindingar sem samningurinn leggur þeim á herð- ar. Noregur getur ekki byggt laga- forsendur fiskvemdarsamningsins á norskri efnahagslögsögu, enda hafa þeir ekki treyst sér til að gera það. Norðmenn verða því að virða þá grundvallarreglu Svalbarða- samningsins, að þeir megi ekki beita mismunun milli aðildarríkja samningsins, en það eru þau tak- FLUGVÉL Landhelgisgæslunnar flaug yfir 37 erlend skip í fyrradag sem voru að síldveiðum í Síldar- smugunni svokölluðu. Samkvæmt upplýsingum Gæslunnar voru skip- in m.a. frá Rússlandi, Úkraínu, Eistlandi, Litháen, Lettlandi og Búlgaríu. Eitt þeirra var að hífa inn um 10-20 tonn af síld í flottrollið þegar Landhelgisgæslan flaug yfir miðin. Skipin voru að veiðum suðaustast í síldarsmugunni í noregshafi norð- austur af Færeyjum. Það skip sem var austast var einungis um 18 sjómílur utan fiskveiðilögsögu Nor- egs. Eftirlitsmenn Gæslunnar reyndu að kalla upp skipin til þess að fá fréttir af aflabrögðum en ekkert þeirra svaraði kalli. Sennilega á makrílveiðum Jakob Jakobsson forstjóri Haf- rannsóknastofnunarinnar hefur það eftir starfsbræðrum sínum frá Fær- mörk sem forræði þeirra yfir Sval- barða var sett, samkvæmt samn- ingnum," sagði Jón Baldvin. Sjálftökurétti hnekkt Hann sagði að vildu Norðmenn forðast að verða dregnir fyrir lög og dóm, þannig að „þessum sjálf- tökurétti þeirra verði hugsanlega hnekkt, þá geta þeir svo best gert það, að þeir bjóði heiðarlega samn- inga, m.a. við Islendinga sem samn- ingsaðildarþjóð, um veiðiheimildir og á þeim grundvelli verði frekari málarekstur látinn niður falla.“ Utanríkisráðherra sagði að það sem íslendingar væru þannig að fara fram á, væri að fá viðurkenn- ingu á eðlilegum rétti sínum, sem aðildarsamningsþjóðar, því deilan stæði ekki út af fyrir sig um rétt Norðmanna til reglusetningar á svæðinu, heldur hitt, að þeim væri eyjum að skipin séu einkum á hött- unum eftir makríl. „Nokkur skip- anna hafa umskipað makrílafla sín- um í flutningaskip í Þórshöfn í Færeyjum og von er á fleiri flutn- ingaskipum þangað,“ segir Jakob. Misjafnt er hve langt makríll gengur í norður milli ára að sögn Jakobs en meginreglan sé að eftir I því sem hlýrra er gangi hann norð- \ ar. „Það er því eðlilegt að makríl sé að finna á þessum slóðum núna.“ Hann bendir á að á hlýviðrisskeiði á árunum 1930-50 hafi makríll veiðst innan íslenskrar landhelgi. Makríllinn hafi aftur á móti horfíð á hafísárunum á 7. áratugnum. Rannsóknarskip Færeyinga mun á morgun fara í suðausturhorn síld- arsmugunnar til að fylgjast með veiðum og aflabrögðum skipanna frá Austur-Evrópu. Nokkur þeirra hafa t.a.m. verið við veiðar norðar- lega í færeyskri landhelgi. óheimilt að mismuna samningsþjóð- um. „Pólitíski vandinn er sá, að Norð- menn telja, að þeir geti ekki opin- berlega gengið til ærlegra samn- inga, sem hljóta að fela í sér mála- miðlun, meðan að kosningabaráttan í aðdraganda þjóðaratkvæða- greiðslunnar um aðildina að ESB er í algleymi. Æskilegt væri að stjómvöld héldu þegjandi og hljóða- laust áfram samningaumleitunum, þótt ég geri mér því miður ekki vonir um niðurstöður fyrr en ein- hvern tíma síðar. Það styðst líka við þau rök, að úthafsveiðiráðstefna Sameinuðu þjóðanna mun væntan- lega einnig halda áfram fram á næsta ár, en hún tengist einnig Smuguveiðunum með beinum hætti,“ sagði Jón Baldvin Hanni- balsson utanríkisráðherra. Morgunblaðið/Halldór B. Nellett TVÖ skipanna í Síldarsmugunni, en flest eru þau gerð út frá fyrrverandi lýðveldum Sovétríkjanna. Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra um ummæli Jens Evensens Agreiningsmálin við Norðmenn ekki leyst með púðurskotum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.