Morgunblaðið - 10.08.1994, Side 14
14 MIÐVIKUDAGUR 10. ÁGÚST 1994
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Fininvest rak
leynisjóð til
mútugreiðslna
Mílanó. Reuter.
ÍTALSKA stórfyrirtækið Fininvest, sem er í eigu fjölskyldu forsætisráð-
herra landsins, Silvios Berlusconis, rak sérstakan sjóð til þess að standa
straum af leynilegum greiðslum, höfðu ítalskar fréttastofur í gær eftir
Paolo Berlusconi, bróður Silvios. Paolo er nú í stofufangelsi vegna gruns
um að hafa, fyrir hönd Fininvest, staðið fyrir mútugreiðslum til skattalög-
reglunnar, og segja fréttastofurnar að hann hafi, við yfirheyrslur hjá
rannsóknardómurum, játað að allt að þrír milljarðar líra hafi verið settir
í sjóðinn.
Dómarar, sem vinna að
rannsókn á spillingarmál-
um, skipuðu fyrir um hand-
töku Paolos, sem er yfir-
maður eignarhaldsfyrir-
tækis Berlusconi-fjölskyld-
unnar, fyrir hálfum mán-
uði, vegna rannsóknar á
meintum mútugreiðslum
stórfyrirtækja, þar á meðal
Fininvest, til skattalögregl-
unnar, í skiptum fyrir
„þægilegri" meðferð.
Lögreglumaður handtekinn
Fréttastofurnar höfðu eftir Paolo
að peninganna, sem lagðir voru í
sjóðinn, hafi verið aflað með
því að lýsa ýmsar eignir,
sem Fininvest seldi, ódýrari
en raunin var, og leggja
mismuninn til hliðar.
Frekari skref í rannsókn-
inni voru tekin í gær, þegar
fyrrum lögreglumaður, Al-
berto Corrado, var handtek-
inn vegna gruns um sam-
særi. Hann var ráðgjafi
Fininvest, og starfaði með
yfirmanni skattadeildar
fyrirtækisins, Salvatore Sciascia,
sem einnig er í varðhaldi vegna
rannsóknarinnar.
Silvio
Berlusconi
Hýðingar
verði
heimilar
Reuter
Mótmæli á Spáni
MÖRG þúsund manns gengu
fylktu liði um götur Bermeo á
norðurströnd Spánar, til þess að
lýsa stuðningi við spænska sjó-
menn, sem eiga í „túnfiskstríði"
við Breta, Frakka og íra. Segjast
spænsku sjómennirnir munu
vernda túnfiskveiðar sínar gegn
reknetaveiðum, jafnvel þótt grípa
þurfi til þess ráðs að skera á net
Breta. Spánverjar veiða á línu og
segja að reknetaveiðar ógni mið-
unum.
Náttúruverndarsamtökin
Greenpeace tilkynntu í gær að þau
myndu senda annað skip á tún-
fiskmiðin á Biscayaflóa. I síðustu
viku sótti franskur varðbátur að
flaggskipi samtakanna, Raibow
Warrior, og segir embættismaður
samtakanna að þau muni ekki láta
deigan síga undan óréttmætum
árásum. Samtökin styðja Spán-
veijana, sem halda því fram, að
bresk, frönsk og írsk skip noti
stærri net en leyfð eru í reglum
Evrópusambandsins.
Los Angeles. The Daily Telegraph.
LAGAFRUMVARP sem heimilar
opinbera hýðingu veggjakrotara er
nú til umræðu á þingi Kaliforníurík-
is í Bandaríkjunum, og nýtur mikils
stuðnings frá almennihgi. Sam-
kvæmt frumvarpinu yrðu veggjak-
rotarar dæmdir til allt að 10 högga
með harðviðarspaða.
Þingmanninum sem lagði frum-
varpið fyrir, Mickey Conroy, hafa
borist rúmlega 1.000 stuðningsbréf,
og hann nýtur vinfengis þeirra sem
voru andvígir afnámi líkamlegra
refsinga í skólum 1986.
Conroy er 66 ára fyrrum félagi í
úrvalssveitum Bandaríkjahers. Hann
samdi frumvarpið eftir að Michael
Fay, 18 ára, var hýddur í Singapore
í maí fyrir að skemma bíla. „Fólk
biður um að við gerum það sem rétt
er,“ sagði Conroy. „Þegar líkamleg-
um refsingum var beitt bjuggum við
í siðuðu samfélagi."
Andstæðingar frumvarpsins segja
það brot á stjórnaskránni, en í átt-
unda viðauka hennar er lagt bann
við grimmilegum og óvenjulegum
refsingum. Auk þess muni það engin
áhrif hafa á meðlimi óaldarflokka,
sem bera ábyrgð á megninu af
veggjakroti í Kalifomíu.
i
I
Ab læra meira
Sunnudagsblaði Morgunblaðins, 28. ágúst nk., fylgir blaðauki sem heitir
Að laera meira. í þessum blaðauka verður fjallað um þá
menntunarmöguleika sem standa munu til boða í vetur, ýmist í dag- eða
kvöldskólum. Leitast verður við að hafa efnisvalið sem fjölbreyttast, allt frá
námskeiðahaldi til æðri menntunarstiga fyrir unga sem aldna.
Peim sem áhuga hafa á að auglýsa í þessum blaðauka, er bent á að tekið
er við auglýsingapöntunum til kl. 17.00 mánudaginn 22. ágúst.
Nánari upplýsingar veita Helga Guðmundsdóttir og Petrína Ólafsdóttir,
starfsmenn auglýsingadeildar, í síma 69 1111 eða símbréfi 69 1110.
JtforgtmMfifetfr
- kjarni málsins!
Blab allra landsmanna!
- kjarm malsms!
Skriður á viðræður
um stj órnarmynd-
un í Færejjum
Þórshöfn. Morgunblaðið.
TVEIR stærstu stjórnmálaflokkar
Færeyja, Sambandsflokkurinn og
Fólkaflokkurinn, hófu stjórnar-
myndunarviðræður fyrir alvöru á
mánudag. Er það takmark þeirra
að mynda borgaralega stjórn.
Flokkarnir hafa ræðst við að
undanförnu án árangurs en um
helgina náðist loks samstaða um
lausn stórra ágreiningsmála og
komst við það mikill skriður á við-
ræðurnar.
Ágreiningur um niðurfærslu
launa og hugsanlega umsókn um
aðild að Evrópusambandinu (ESB)
hefur tafið viðræður flokkanna.
Fólkaflokkurinn er hlynntur því að
laun verði lækkuð með lögum um
20% en Sambandsflokkurinn hefur
verið andvígur lagasetningu.
Þá vill Sambandsflokkurinn að
sótt verði um aðild að ESB og við-
ræður við sambandið hafnar um það
efni. Hingað til hefur Fólkaflokkur-
inn verið því andvígur.
Edmund Joensen formaður Sam-
bandsflokksins segir í viðtali við
Dimmalætting að flokkarnir séu i
aðaltriðum sammála um stefnu og
markmið nýrrar stjórnar en vill
ekki tilgreina það nánar um hvað
þeir séu sammála. „Þegar okkar
viðræðum lýkur gerum við boð eft-
ir Verkamannafylkingunni," segir
Joensen. Hann sagðist reikna með
því að ný stjórn sæi dagsins ljós
in’nan viku.
Almennt er efast um að Verka-
mannafylkingin, sem er klofnings-
flokkur úr Javnaðarflokknum, hafl
áhuga á þátttöku í borgaralegri
stjórn. Gerist það ekki geta Sam-
bands- og Fólkaflokkurinn alltaf
leitað til Kristilega fólkaflokksins
og Miðflokksins.
Vill Murdoch styðja
V erkamannaflokkinn?
London. Reuter.
TALSMENN breska Verkamanna-
flokksins vissu vart í hvorn fótinn
þeir áttu að stíga í gær er þeir
voru inntir viðbragða við yfirlýsing-
um fjölmiðlakóngsins Ruperts
Murdochs sem segist geta hugsað
sér að styðja flokkinn.
Forystumenn Verkamanna-
flokksins hafa löngum haft
Murdoch á hornum sér og jafnan
talið hann til helstu óvina flokks-
ins. Kenna þeir honum að miklu
leyti um .að flokkurinn hefur verið
valdalaus í 15 ár, fjandsemi fjöl-
miðla hans ráði þar miklu um.
I nýju viðtali við þýska vikuritið
Der Spiegel segist Murdoch vel
geta hugsað sér að styðja Tony
Blair, nýja leiðtoga Verkamanna-
flokksins. Robin Corbett talsmaður
Verkamannaflokksins í- málefnum
fjölmiðla sagði að ef um stefnu-
breytingu væri að ræða hjá
Murdoch kynni það að koma flokkn-
um vel og draga úr hlutdrægni bre-
skra blaða og sjónvarpsstöðva. Cor-
bett sagðist þó hafa miklar efa-
semdir um að hugur fylgdi máli og
sagðist miklu fremur líta á yfirlýs-
ingu Murdochs sem tækifæris-
mennsku. Hann væri fyrst og
fremst að reyna vernda hagsmuni
fjölmiðlaveldisins, aðlaga sig að
þeim veruleika sem kæmi fram í
skoðanakönnunum þaf sem Verka-
mannaflokkurinn hefði 33,5 pró-
sentustiga fylgisforskot á íhalds-
flokkinn.
í tengslum við fernar síðustu
þingkosningar í Bretlandi hafa fjöl-
miðlar í eigu Murdochs hvatt kjós-
endur til að velja íhaldsflokkinn.
f
I
k