Morgunblaðið - 10.08.1994, Side 32
32 MIÐVIKUDAGUR 10. ÁGÚST 1994
MORGUNBLAÐIÐ
Græðandi sólarvörur
Biddu um Banana Boat
hraðvirkasta
dökksólbrúnkukremið
#4
ef þú vilt dekksta
sólbrúnkutóninn.
n Sólbrúnkufestandi Banana Boat
AfterSun, 3 stærðir. Verð frá kr. 295,-.
□ Banana Boat barnasólvarnarsprey #15.
□ Banana Boat barnasólvarnarsalvi fyrir
eyru og nef. Sólvörn #29.
□ lim 40 tegundir Banana Boat sólkrema
og olía með sólvörn frá #0 til #50.
□ Banana Boat 99,7% hreint Aloe Vera gel,
40-60% ódýrara en önnur Aloe gel.
An spírulínu, án tilbúinna lyktarefna og
annarra ertandi ofnæmisvalda.
Biddu um Banana Boat í öllum heilsubúðum
utan Reykjavíkur, sólbaðsstofum, snyrtivöru-
verslunum oa apótekum. Banana Boat E-gel
fæst líka hjá Samtökum psoriasis og exem-
sjúklinga.
Heilsuval, Barónsstíg 20, ^626275.
Barnaföt á stórlækkuðu
verði. Barnafataverslunin
Bláskjár
Suðurlandsbraut 52
Betra verð hjá
Budget
BOaleigubílar
um allan heim
Sími 91-880-880
s fax 91 -881 -881
Ég sendi öllum, er glöddu mig á 70 ára afmœl-
inu þann 3. ágúst ’94, innilegar þakkir.
Megi þeir vœttir, er veröld skópu, blessa ykkur
og vernda um alla framtíÖ.
Ingimar Sigurðsson,
járnsmiður.
Elskulegri fjölskyldu minni og fjölmörgum
góÖum vinum, sem heimsóttu mig á afmœlis-
daginn minn 1. ágúst, þakka ég af alhug, svo
og allar gjafirnar, blómin og símskeytin.
Lifiö heil.
Kœr kveöja.
Margrét Erlendsdóttir Schram.
Det Nedvendige Seminarium
I" n A M IMArlfl ■ GETUR ENN TEKIÐ INN 3 ÍSLENSKA
i/dVlIIIUl K.U NEMENDUR ÞANN 1. SEPT. 1994
4ra ára alþjóðlegt, nútíma kennaranám, sem veitir réttindi til kennslu í mörg-
um skólum og uppeldisstofnunum í Evrópu og þriðja heiminum.
Námið er:
• 1 ár með alþjóðlegu námsefni, innifalin er 4ra mánaða námsferð til Asíu.
e 1 ár námsefni innanlands, innifalin er 6 mán. þátttaka í dönsku atvinnulífi.
• 2ja ára fagnám, innifalið er 2x6 mánaða starfsnám í grunnskóla og öðrum
skólum innanlands og utan.
Eftir útskrift tekur við eins árs vinna í skóla í Afríku.
Allir nemendur búa í skólanum. Kynningarfundur um skólann verð-
ur haldinn í Lestrarsal Borgarbókasafnsins, Þingholtsstræti 27,
Rvík, sunnudaginn 14. ágúst kl. 14.00. Ef þú hefur áhuga, hringdu
í síma 90 45 65 91 40 45 eða sendu símbréf 90 45 66 11 50 61.
Det Nedvendige Seminarium, DK - 6990 Ulfborg.
IDAG
VELVAKANDI
Svarað í síma 691100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags
Ánægð vegna
skilvísi
KONA ein labbaði inn í
verslunina Gallerí á
Laugaveginum og varð
fyrir því óhappi að gleyma
þar poka í mátunarklefa.
Tveimur klst. síðar áttar
hún sig á þessum mistök-
um og hringir í verslunina
og hafði þá ein afgreiðslu-
stúlkan tekið pokann frá.
Vildi konan koma fram
þökkum til afgreiðslu-
stúlkunnar.
Um Livu
KONA nokkur sem lengi
var búsett í Danmörku
hafði samband við Velvak-
anda um sjónvarpsþáttinn
sem sýndur var í Ríkissjón-
varpinu sl. sunnudag þar
sem sagt var frá ævi revíu-
söngkonunnar Livu Weill.
Hafði hún orðið að þeim
heiðurs aðnjótandi að
kynnast Livu og vildi koma
því á framfæri að sú mynd
sem dregin væri upp af
söngkonunni væri ekki rétt
í þátttunum. Vildi hún
jafnframt koma fram
áskorun til Sjónvarpsins
að sýna einhveijar kvik-
myndir með Livu.
Tapað/fundið
Bíllykill tapaðist
STAKUR lykill með svartri
hettu án kippu tapaðist á
11-sýningu í Háskólabíói
eða fyrir utan bíóið sl.
sunnudagskvöld. Skilvís
fmnandi vinsamlega hafi
samband í síma 628872.
Gallajakki tapaðist
BLÁR gallajakki tapaðist
í Faxafeni sl. föstudag
milli kl. 17-18. í vasa hans
voru lyklar. Skilvís
finnandi vinsamlega hringi
í síma 667358.
Snyrtitaska fannst
STÚLKA ein fékk senda
frá Vestmannaeyjum fyrir
mistök svarta snyrtitösku
með gulum og bleikum
blómum og getur eigandi
haft samband í síma
624881. Þessi sama stúlka
tapaði á þjóðhátíðinni blá-
um gallabuxum og blárri
lopapeysu. Finnandi hafí
samband í sama síma e.
kl. 17.
Ferðataska
tapaðist
BRÚN ferðataska tapaðist
á leiðinni frá Reykjavík að
Hvalfjarðarbotni. Taskan
var í svörtum plastpoka og
hafði hún losnað af þaki
bílsins. Finnandi vinsam-
legast hafí samband í síma
679808.
Hliðartaska
fannst
DÖKKBRÚN hliðartaska
með snyrtidóti í o.fl. fannst
á þjóðvegi 1 áður en af-
leggjarinn að Meðalfells-
vatni í Kjós er ekinn. Upp-
lýsingar í síma 814413.
Gæludýr
Týndur högni
SVARTUR fjögurra mán-
aða högni með hvítan blett
á hálsi og kvið hvarf frá
heimili sínu Njörvasundi
17 sl. sunnudag. Hann er
með hálsól. Geti einhver
gefið upplýsingar, þá vin-
samlega hringi hann í síma
889124.
HÖGNIHREKKVÍSI
„ ELLÍ/ER., 5E<3I ÉQ ! "
BRIPS
Um.sjón Guðm. Páll
Arnarson
LESANDANUM er boðið
að setjast í sæti Bob
Hammans í vestur, og spila
út gegn sjö spöðum: Suður
gefur; allir á hættu.
Norður
4
V
♦
4
Vestur
4 10
4 732
♦ ÁK109765
4 53
Vestur Norður Austur Suður
1 spaði
2 tígiar 4 tíglar* 4 hjörtu 4 grönd
5 hjörtu 7 spaðar Allir pass
* , splinter", þ.e. spaðasamþykkt og einspil
eða eyða í tígii.
Spilið er frá Cavandish-
tvímenningnum í New York
sl. vor, sem Neil Silverman
og Kit Woolsey unnu með
yfirburðum. Sam Lev og Bob
Levin urðu í öðru sæti, og
fyrrum félagi Levins, Gaylor
Kasle, varð þriðji með spilara
að nafni Gatey Hayden sem
makker. í þessu spili var
Kasle í norður. Hefur les-
andinn valið útspilið?
Norður
4 K9753
4 -
♦ 2
4 ÁKG10764
Vestur Austur
4 10 4 86
4 732 IIIIH 4 D109654
♦ ÁK109765 111111 ♦ DG43
4 53 4 9
Suður
4 ÁDG42
4 ÁKG8
♦ 8
4 D82
Hamman kom út með
hjarta. Sem er kannski svo-
lítið langsótt, því þá er hann
að gera ráð fyrir að NS séu
komnir í alslemmu þar sem
tvo ása vantar. Spilið velti
766 IMPum!! (Mótið vannst á
2.171 IMPa.) Kalse og Hayd-
en unnu 239 IMPa, en hefðu
tapað 527 með tígulás út.
Víkveiji skrifar...
Hún var myndarleg opnunarhá-
tíðin hjá Skeljungi í útibúi
fyrirtækisins í efra Breiðholti sl.
laugardag. Shell hefur að undan-
fömu staðið í miklum endurbótum
og uppbyggingu á þessari stöð
sinni og bauð til fjölskylduhátíðar
á laugardag, þar sem boðið var
upp á grillaðar pylsur, kók og
sælgæti, sem kætti yngstu borgar-
ana ekki hvað síst. Þótt húsakynni
nýju stöðvarinnar séu ekki mikil
að flatarmáli, er öllu mjög hagan-
lega komið fyrir og vöruúrval er
með ágætum í verslun fyrirtækis-
ins. Nú hefur einnig verið lagður
nýr vegur frá bensínstöðinni,
tengibraut við Breiðholtsbraut,
sem að er mikil samgöngubót.
xxx
Isíðustu viku var talsvert um
það ijallað í fjölmiðlum að öllum
tilboðum var hafnað við húsbréf-
aútboð, þar sem ávöxtunarkrafa
kaupendanna, lífeyrissjóðanna,
var of há. Sigurður Guðmundsson
greindi frá því, að Húsnæðisstofn-
un héldi sig við 5% vaxtaviðmiðun
ríkisstjórnarinnar og tæki engum
tilboðum þar fyrir ofan. Það vakti
athygli Víkverja, þegar rætt var
við Hrafn Magnússon, fram-
kvæmdastjóra SAL (Sambands
almennra lífeyrissjóða) af þessu
tilefni, að hann sagði að ástæður
þessa væru þær að þeir (þ.e. lífeyr-
issjóðirnir) vildu fá hærri ávöxtun.
Ekki varð betur heyrt, en með
þessu hefðu lífeyrissjóðirnir haft
samráð sín í milli, um það hverrar
Iágmarksávöxtunar þeir krefðust,
sem Víkveiji telur í hæsta máta
óeðlilegt.
xxx
að er undarlegur íjandi, að æ
ofan í æ koma forsvarsmenn
lífeyrissjóðanna í öðru orðinu fram
fyrir hönd eigenda sinna, laun-
þega, í gervi verkalýðsforkólfa, og
krefjast vaxtalækkunar, þar sem
slíkt muni bæta kjör launþeganna,
sem séu skuldum vafnir; en í hinu
orðinu koma sömu menn fram í
gervi fjárfestanna, og sýna líkast
til sitt rétta andlit, þegar þeir gera
allt hvað þeir geta til þess að halda
uppi vaxtastiginu í landinu. Þá er
nú ekki verið að hugsa um hag
hinna skuldsettu heimila í landinu.
Satt best að segja, er Víkverji
hundleiður á þessum tvískinnungi,
sem hlýst af því að menn sitji
beggja vegna borðsins, og telur
að fyrir margt löngu hefði átt að
skilja þarna algjörlega á milli.
xxx
Hustkosningar - ekki haust-
kosningar? Þetta hefur verið
aðalspurning þjóðarinnar í tvær
vikur, eða frá því að forsætisráð-
herra gaf þá yfírlýsingu, að hann
ákvæði innan tveggja vikna, hvort
hann beitti þingrofsheimildinni og
boðað yrði til alþingiskosninga í
haust. Þetta hefur verið eins og
hálfgerður skrípaleikur. Fyrst
voru menn á báðum áttum, og
töldu helmings líkur á því að kos-
ið yrði í haust. í síðustu viku juk-
ust líkurnar á haustkosningum til
muna og flestir voru orðnir sann-
færðir undir helgi, að kosið yrði.
En á mánudag hafði allt breyst á
nýjan leik og forsætisráðherra
sagði líkur á haustkosningum hafa
minnkað, eftir að samstarfsflokk-
urinn í ríkisstjórn hefði lýst ein-
dreginni andstöðu sinni við haust-
kosningar.í gærmorgun voru svo
haustkosningarnar endanlega
blásnar af á ríkisstjómarfundi. Rik-
isstjómin mun því að öllu óbreyttu
sitja fram í apríl á næsta ári.