Morgunblaðið - 28.08.1994, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ
mannsins og játningarnar voru þar
með allar ógildar!
Já, það er ekki öll vitleysan eins,
og það var svo ekki fyrr en árið
1991 að réttað var aftur og í október
í fyrra var maðurinn loks dæmdur
til ævilangs fangelsis fyrir tvö morð.
Morðin voru óhugnanleg, hann
nauðgaði og myrti 12 ára stúlku og
móður hennar að tveimur börnum
viðstöddum, þau voru á þriðja og
fjórða aldursári. Hann viðurkenndi
upprunalega allt að 10 til 12 svipuð
morð víða um Bandaríkin og fjöl-
margar nauðganir.
— Maður þessi valdi sér fórn-
arlömb af kostgæfni, fylgdist með
þeim jafnvel dögum saman. I fram-
komu var hann ljúfur og yfírvegað-
ur. Ekkert nema kurteisin og al-
mennilegheitin. Þegar morðingjar eru
annars vegar geislar oftast af þeim
hatrið og menn skynja að viðkom-
andi er ekki í jafnvægi. Þessi var af
öðru sauðahúsi og það gerði hann
enn hættulegri. Hann lét gjarnan eins
og bíllinn hefði bilað fyrir utan hús
fómarlamba, bankaði upp á og bað
um að mega hringja til móður sinnar.
Að nefna mömmu vann á tortryggni-
múrunum og síðan sló hann viljandi
of margar tölur á símann og lét heyr-
ast að línan væri á tali. Þá sníkti
hann gjaman vatnsglas og var þá
að athuga hvort ekki væri ömggt
að fleiri væm ekki í húsinu. Þegar
hann hafði gengið úr skugga um það
með þessum lymskulega hætti, lét
hann til skarar skríða og nauðgaði
fómarlömbum sínum. Hann var
ævinlega með stóran veiðihníf sem
hann ógnaði fólkinu með og í verstu
tilvikum notaði hann hnífinn, risti
fólkið upp. Það má kannski heita
með ólíkindum að maður þessi skuli
dæmast sakhæfur, en tveir virtir
læknar athuguðu hann og komust
að þeirri niðurstöðu að hann væri
ekki geðveikur. Það var kannski eins
gott, því ef hann hefði verið dæmdur
til hælisvistar hefði sá möguleiki allt-
af verið fyrir hendi að hann yrði úr-
skurðaður heilbrigður og sleppt. Það
má ekki gerast, því hann segir sjálf-
ur að hann muni drepa aftur, fái
hann til þess tækifæri. Því trúi ég
vel, hann segist vera haldinn ilium
anda og það sé andinn sem drepi,
ekki hann sjálfur.
Það hlýtur að taka á taugamar
og draga úr baráttuþreki löggæslu-
manna að standa í svona stappi?
„Auðvitað getur þetta tekið á, ég
hef verið i endalausum handtökum,
t.d. í fíkniefnaheiminum. Það er ekki
fyrr búið að uppræta einn sölumann,
þá er sá næsti kominn. Þetta flæðir
yfir allt. En það þýðir ekki að leggja
ára í bát.
Öryggistilfinning
En hvemig skyldi Ron Steverson
lítast á ástandið hér á landi?
„Fyrst vildi ég svara því til, að ég
hef skoðað þessa fallegu borg ykkar,
bæði á nóttu og degi, og mér líður
vel í Reykjavík. Ekki er hægt að
segja jíað sama á mínum heimaslóð-
um. Astandið í miðbænum gæti að
vísu orðið viðkvæmt eftir að
skemmtistaðimir loka. Þá hef ég
fylgst nokkuð með fíkniefnadeildinni
héma og séð að ástandið hjá ykkur
er nokkuð skaplegt. Ef íslendingum
tekst að koma í veg fyrir aukningu
á eiturlyfjaneyslu úr því sem komið
er, þá em þeir í góðum málum.
Neysla verður seint eða aldrei uppr-
ætt, en ástandið á íslandi er þess
eðlis að það er ekki komið úr böndun-
um,“ segir Steverson.
Og hann heldur áfram: „Ég vildi
einnig að það kæmi fram, að ég hef
hrifíst verulega af landi og þjóð. ís-
land er sannarlega stórkostlegt land,
fólkið yndislegt og náttúran óviðjafn-
anleg. Ég hef reynt að fara svolítið
út á land þótt dagskráin mín leyfí
ekki mikið slíkt. Eg finn fyrir svo
miklum innri friði þegar ég er í ís-
lenskri sveit að ég hef ekki kynnst
öðru eins. Við eiginkonan mín erum
bæði af skosku og írsku bergi brotin
og þótt við höfum ekki komið til
þeirra landa, velti ég því fyrir mér
að einhvers staðar djúpt innra með
mér fínni ég til skyldleikans. Það er
freistandi að ætla það. Fjölskyldan
mín vildi koma með mér til íslands,
en það var okkur fjárhagslega ofviða
í þetta sinn. Á næstu ámm munuin
við þó vitja uppmna okkar í Skot-
landi og Irlandi og þá kemur ekki
annað til greina en að koma við á
íslandi í tvo til þrjá daga.
HÖRÐUR TORFA
haustlitir &
hugsandi fólk
átónleikum í
Borgarleikhúsinu
föstudaginn
2. september
kl.21.00,
stundvíslega.
Umboösskrifstofan RITA,
sfmi & fax 686656,
símboði 984-61324.
SUNNUDAGUR 28. ÁGÚST 1994 15
SIEMENS
ZD Akranes:
Rafþjónusta Sigurdórs
Borgarnes:
Glitnir
Borgarfjörður:
LU Rafstofan Hvítárskála
Hellissandur:
Blómsturvellir
Grundarfjörðun
fy' Guðni Hallgrímsson
Stykkishólmun
Skipavík
Asubúð
ísafjörður:
Póllinn
Hvammstangi:
Skjanni
Sauðárkrókur:
Rafsjá
Torgií
Akureyri:
Ljósgjafim
Húsavík:
öryggi
Þórshöfn:
Norðurraf
Neskaupstaður:
Rafalda
HF 26020
• 900 W - 23 I
Kr. 28.405 stgr.
^5 stgr.
Críptu tækifæríð - takmarkað magn!
HF 26520
• 900 W - 23
• Með grilli
Kr. 37.90!
SMITH & NORLAND
NÓATÚNI 4 • SÍMI 628300
VUjir þú endingu og gæði -
ÁTAK í FITUBRENNSLU
8 vikna námskeið fyrir þær sem vilja losna við aukakíló.
Morgun-, dag- og kvöldtímar. Einfaldar og árangurs-
ríkar æfingar.
Athugið !!! Námskeiðið hefst ð.sept.
Skráning og nánari upplýsingar í síma 65 22 12
HRFSS
IÍKAMSRÆKT OG LJÓS
BÆJARHRAUNI 4/VIÐ KEFLAVlKURVEGINN/SlMI 65 22 12