Morgunblaðið - 28.08.1994, Síða 20
20 SUNNUDAGUR 28. ÁGÚST 1994
MORGUNBLAÐIÐ
KVIKMYNDIR/SAMBÍÓIN OG HÁSKÓLABÍÓ sýna nú kvikmyndina True
Lies með Arnold Schwartzenegger og Jamie Lee Curtis í aðalhlutverkum.
Leikstjóri er James Cameron.
Arftaki Bond
Upphafsárunum í Banda-
ríkjunum varði Arnold í við-
skipta- og markaðsfræðinám
við háskólann í Wisconsin
og hann hefur nýtt sér þá
menntun með góðum árangri
og ávaxtað sitt pund ríku-
lega í fasteignaviðskiptum
og með fjárfestingum og
þátttöku í skemmtanaiðnað-
inum. Ásamt Bruce Willis
og Sylvester Stallone á hann
veitingahúskeðjuna Planet
Hollywood sem um þessar
mundir er að opna nýtt útibú
í París.
Hann og eiginkona hans,
Maria Shriver, systurdóttir
John F. Kennedy eiga þrjú
börn og þótt Arnold sé orð-
inn bandarískur ríkisborgari
gleymir hann ekki rótum sín-
um í Ölpunum og er sagður
hjala við börnin sín á þýsku
og syngja fyrir þau vöggu-
vísur á móðurmáli sínu, lönd-
um sínum til óblandinnar
ánægju og gleði.
í hjónabands-
erfiðleikum
HARRY Tasker (Arnold Schwartzenegger) lifir tvöföldu lífí.
Konan hans, Helen (Jamie Lee Curtis) veit ekki sem er að
Harry hennar er alþjóðlegur njósnari fyrir leynilegustu leyni-
þjónustu í heimi, Omega Sector. Hann talar sex tungumál,
er með háskólapróf í kjarneðlisfræði og í huga kjarnorkuv-
æddra hryðjuverkamanna og annars alþjóðlegs glæpalýðs er
hann ógnvaldur númer 1. Hann er svo góður í faginu að
Helen, sem hann er búinn að vera giftur í 15 ár, heldur að
hann sé sölumannsblók hjá tölvufyrirtæki, og þegar hún á
erfitt með svefn biður hún Harry að segja sér hvemig hafi
verið í vinnunni, sem hann er alltaf með hugann við. Þá
minnist Harry ekki á að hann hafi drepið tvo hryðjuverka-
menn fyrir hádegi og einn eftir kaffi heldur spinnur upp
lygasögu um sölu á viðskiptahugbúnaði sem svæfir frúna á
svipstundu. Af því að Harry er svo annars hugar og óspenn-
andi er Helen orðinn leið á honum og þrá'r spennu, ævintýri
og tilbreytingu. Þess vegna fellur hún kylliflöt fyrir flagara
sem gefur sig út fyrir að vera hjálparþurfí njósnari í stöð-
ugri lífshættu. Þá er hjónabandið í uppnámi og Harry í vanda
en af því að hann er svo lélegur í mannlegum samskiptum
en svo góður í ráðabruggi og njósnum þá bregst hann við á
þann eina hátt sem hann kann og notar sína sérstöku hæfi-
leika til þess að bjarga hjónabandinu áður en hann fer aftur
í vinnuna og snýr sér að því að bjarga heiminum frá glötun.
Eftir að True Lies var
frumsýnd fyrr í sumar
hefur Harry Tasker iðulega
verið líkt við James Bond og
ekki að ástæðulausu. Skyld-
leikinn er undirstrikaður í
upphafsatriði myndarinnar
þar sem Amold kemur úr
kafí að baki víglínu óvin-
anna, í smóking undir blaut-
búningnum, alveg eins og
Sean Connery í Goldfinger.
Því miður fyrir 007 er þó
vandséð að Cubby Broccoli
og félagar, sem nú eru að
fara af stað með nýja James
Bond mynd með Pierce
Brosnan í aðalhlutverki, eiga
möguleika í samkeppninni
við Amold og James Camer-
on og nýjustu afurð þeirra.
True Lies er uppfull af
ótrúlegum áhættuatriðum,
eltingaleikjum á Harrier-þot-
um og hestbaki, tæknibrell-
um, spennu og húmor og
blandan féll áhorfendum á
forsýningu myndarinnar í
Reykjavík nýlega svo vel í
geð að troðfullur salur af
fullorðnu og hálffullorðnu
fólki hegðaði sér eins og
krakkar á Roy Rogers mynd
fyrir 20-30 árum.
Myndin sem kostaði 120
milljónir dollara (8,5 millj-
arða) í framleiðslu borgaði
sig upp á nokkram vikum í
Bandaríkjunum og með að-
stoð vinar síns James Camer-
on hefur Amoid Schwartzen-
egger þannig tekist að end-
urreisa orðspor sitt, sem lét
mikið á sjá með myndinni
um Síðustu hasarhetjuna
sem hlaut svo dræmar undir-
tektir í fyrra að margir létu
óskhyggjuna teyma sig í
ógöngur og lýstu því yfir að
Amold væri búinn að vera.
True Lies er í raun og
veru enn ein Hollywood-
myndin sem er endurgerð
evrópskrar kvikmyndar, al-
veg eins og Sommersby, Int-
ersection, Assassin og fleiri
og fleiri. Fyrirmyndin hét La
Totale og var gerð í Frakk-
landi árið 1991.
Arnold sá hana: „Mér
fannst myndin góð og sagan
gæfí mikla möguleika á að
gera úr henni stórmynd,
gamansama og rómantíska
hasarmynd. Mér datt í hug
að Jim Cameron hefði áhuga
á hugmyndinni og hann féll
fyrir henni,“ segir Arnold og
það er ekki skrýtið að honum
hafi dottið Cameron í hug
því saman gerðu þeir mynd-
irnar Terminator og Termin-
ator 2: Judgement Day, sem
hlutu frábærar viðtökur
áhorfenda jafnt og gagnrýn-
enda. „Við Jim höfðum oft
rætt um að gera einhvem
tímann saman mynd sem
væri eitthvað meira en has-
armynd. Sú mynd er True
Lies, hún er eitthvað aiveg
nýtt,“ segir Arnold. Þannig
að James Cameron settist
niður og skrifaði sjálfur
handritið að True Lies eins
og að öðrum myndum sínum
og segist ekki hafa notað La
Totale nema til að gefa sér
innblástur. Þess végna er
hann einn kallaður höfundur
handrits. Cameron hefur orð
á sér fyrr að vera allra leik-
stjóra eyðslusamastur en
jafnframt er talið næsta víst
að hann bregðist ekki fjár-
festum sínum og skili þeim
miklum arði og sú staðreynd
hefur gert hann nánast sjálf-
stæðan í Hoilywood, fjár-
málamenn keppast um að fá
að koma nærri þeim myndum
sem hann vinnur að, ekki
síst þegar Schwartzeiiegger
er í aðalhlutverki.
True Lies er sjötta mynd
James Cameron. Að þeirri
fyrstu undanskilinni, Pir-
hana2, hafa allar fengið góða
dóma og skilað miklum arði.
Viðskiptafræðingnr og vöðvafjall
ÞEGAR Amold Schwartz-
enegger var 17 ára
gamall vaxtarræktarkappi
heima í Granz í Austurríki
spurði umboðsmaður at-
vinnuvaxtarræktarmanna
hann hvað hann vildi verða
þegar hann yrði stór. „Ég
ætla að búa í Bandaríkjun-
um, leika í kvikmyndum,
eignast blokk og verða kvik-
myndaframleiðandi," svar-
aði strákurinn. I dag er Am-
old orðinn bandarískur ríkis-
borgari, fær 15 milljónir dala
(rúman milljarð) fyrir að
leika í hverri kvikmynd, á
fasteignir og hlutabréf fyrir
milljarða, er giftur inn í
Kennedy-fjölskylduna og
ræður því sem hann vill ráða
í Hollywood. Repúblíkanar
eru meira að segja farnir að
bera í hann víurnar að gefa
kost á sér til ríkisstjórakjörs
í Kaliforníu. Arnold er út-
lærður viðskiptafræðingur,
markaðssetning er hans fag
og hann sýnir fólki það sem
það vill sjá.
Arnold Schwartzenegger
fæddist í Graz í Austurríki
fyrir 46 árum, fór ungur að
stunda vaxtarrækt og náði
frábæram árangri enda játar
hann sjálfur fúslega að hafa
tekið stera kvölds og morgna
en segir að það hafí ekki
haft nein áhrif því allir hinir
hafí gert það sama.
Tvítugur að aldri varð
hann Herra alheimur í fyrsta
skipti og á áralöngum
keppnisferli í vaxtarrækt
vann hann alls 13 alþjóðlega
titla, fleiri en nokkur vaxt-
arræktarmaður í sögunni. Á
hátindi þess ferils fluttist
hann til Bandaríkjanna og
1975 kom hann fram í vaxt-
arræktarmyndinni Pumping
Iron, sem opnaði honum leið
í sjónvarp.
Ifyrsta kvikmyndahlut-
verkið lét ekki bíða eftir sér
og þrátt fyrir að margir eigi
erfitt með að skilja velgengni
Arnolds, sem sé ekki beinlín-
is óskabarn leiklistargyðj-
unnar, segja margir að Árn-
old hafi svo mikla og óvenju-
lega persónutöfra að varla
hafí nokkru sinni leikið vafí
á að hans biði bæði frægð
og frami. Fyrsta myndin sem
Arnold lék í var mynd eftir
Bob Rafelson, Stay Hungry,
þar sem Jeff Bridges og
Sally Field voru í aðalhlut-
verkum. Fyrir þátt sinn í
henni hlaut hann Golden
Globe verðlaun sem besti
nýliðinn í kvikmyndum.
Síðan hefur ferillinn verið
samfelld sigurganga. Mynd-
irnar tvær um Conan the
Barbarian festu hann í sessi
og stækkuðu aðdáendahóp-
inn og liann hélt áfram að
stækka eftir fyrri Termin-
ator-myndina (1984), Com-
mando, Raw Deal, Predator
og Red Heat. The Running
Man markaði hins vegar
ákveðin tímamót. Ásamt
gamanmyndunum Twins og
Kindergarten Cop, og spenn-
utryllunum Total Recall og
nú síðast Terminator 2, varð
hún til þess að gera Arnold
Schwartzenegger að eftir-
sóttustu kvikmyndastjörnu
heimsins nú um stundir,
stjörnu sem drepur illmenni
í tugatali milli þess sem hún
gerir grín að öðrum en þó
ekki síst sjálfri sér.
HARRY er hins vegar mesti njósnari í heimi og milli þess sem hann stendur
utan á þyrlum dansar hann tangó við hættulega andstæðinga sína.
í eigin æviágripi Camer-
ons er hvergi minnst á Pir-
hana2, heldur er upphaf leik-
stjóraferilsins talið markast
af Terminator árið 1984 og
kannski ekki skrýtið. Næst
var stórgróðamyndin Aliens
(framhaldið af Alien), þá The
Ábyss, sem fyrr var getið,
og þá Terminator 2. Síðast-
nefndu myndirnar þtjár hafa
allar veyið tilnefndar til og
hlotið Óskarsverðlaun fyrir
ýmsar tæknibrellur enda er
sá geiri ær og kýr Camer-
ons, sem lærði eðlisfræði í
háskóla og hóf kvikmynda-
feril sinn sem tæknibrellu-
maður hjá b-myndakóngin-
um Roger Corman.
Cameron á sjálfur mikinn
þátt í þeirri hröðu tækniþró-
un sem orðið hefur í sjón-
hverfingum kvikmyndanna
þann áratug sem hann hefur
starfað sem leikstjóri og á
ásamt bróður sínum 5 skrá-
sett einkaleyfi á ýmsum
tæknilegum útfærslum í
kvikmyndagerð. Að tæknib-
rellunum frátöldum hefur
Cameron jafnan verið hælt
einna mest af gagnrýnend-
um fyrir það að í myndum
hans séu kvenhetjurnar
yfírleitt heilsteyptar og
sjálfstæðar en ekki bara
hjálparlausar blondín-
ur.
Gagnrýnendur eru
hins vegar ekki jafn
einróma um hlutverk
Jamie Lee Curtis
(sem þekkt er úr A
Fish Called Wanda,
Blue Steel, Forever
Young og My Girl) í
Trae Lies. Sumum
þykir lítið í hana
spunnið og telja að í
því atriði myndarinn-
ar þar sem Harry beitir konu
sína aðferðum atvinnugrein-
ar sinnar til þess að komast
að hvort hún haldi fra hjá
honum megi greina megna
kvenfyrirlitningu.
Þetta er þó ekki einróma
álit og í New York Times er
fjallað um hlutverk Jamie
Lee sem enn eitt bitastætt
kvenhlutverk sem James
Cameron hafi skapað og far-
ið lofsamlegum orðum um
leik Jamie Lee Curtis eins
og flesta aðra þætti
myndarinnar.
Auk Schwarzen-
eggers og Jamie
Lee Curtis éra í
helstu hlutverkum
Trae Lies þau Bill
Paxton (Tombstone, One
False Move), gamall vinur
Camerons og samstarfsmað-
ur úr Aliens og Terminator,
sem leikur „spæjarann“ sem
táldregur Helen, Tia Carrere
(Wayne’s World, Rising Sun)
og Art Malik (A Passage to
India, City of Joy, The Living
Daylights) leika skúrkana og
Tom Arnold, eiginmaður
Roseanne Barr, leikur félaga
Harry Taskers
stendur
sig eftir-
minni-
leg.
HELEN Tasker
heldur að Harry
hennar sé óspenn-
andi tölvusölu-
maður.