Morgunblaðið - 28.08.1994, Side 24

Morgunblaðið - 28.08.1994, Side 24
24 SUNNUDAGUR 28. ÁGÚST 1994 MININIINGAR MORGUNBLAÐIÐ + Eiginmaður minn og faðir okkar, EINAR EINARSSON frá Urriðafossi, Hraunbæ 15, Reykjavik, andaðist á heimili sínu þann 26. ágúst. Halldóra Jónsdóttir og börn. Faðir okkar og tengdafaðir, EIRÍKUR KRISTÓFERSSON fyrrverandi skipherra, verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju þriðjudaginn 30. ágúst kl. 15.00. Bergljót Eiriksdóttir, Jakobina S. Sigurðardóttir, Eiríkur Eiriksson, Sigríður Aðalsteinsdóttir og aðrir aðstandendur. + Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og tengdasonur, SIGURÐUR ÖRN HJÁLMTÝSSON, Fannafold 10, Reykjavík, sem lést í Landspítalanum 20. ágúst sl., verður jarðsunginn frá Garðakirkju miðvikudaginn 31. ágúst kl. 14.00. Erna Árnadóttir Mathiesen, Árni Matthías Sigurðsson, Eygló Hauksdóttir, Valgerður Sigurðardóttir, Friðbjörn Björnsson, Hjálmtýr Sigurðsson, Helga G. Guðmundsdóttir, Hrafnhildur Sigurðardóttir, Lárus Bjarnason, Svava E. Mathiesen, barnabörn og barnabarnabörn. + Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, VILBOGI MAGNÚSSON, sem lést 21. ágúst sl., verður jarðsung- inn frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 30. ágúst nk. kl. 15.00. Rósa Viggósdóttir, Viggó Vilbogason, Sesselja Gfsladóttir, María Vilbogadóttir, Einar Kr. Friðriksson, Jóhann Vilbogason, Þórdís Gunnarsdóttir, Guðlaug Vilbogadóttir og barnabörn. + Hjartkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HAFSTEINN HJARTARSON fyrrverandi lögregluþjónn, Stóragerði 10, Reykjavik, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 30. ágúst kl. 13.30. Jórunn S. Sveinbjörnsdóttir, Tómas Hafsteinsson, Ewa María Grobelny Hilda Hafsteinsdóttir, Hjördís Hafsteinsdóttir, Magnús Ágústsson, Sigurlaug Hrafnkelsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐJÓN GUNNLAUGSSON, Víðilundi 13, Akureyri, sem lést laugardaginn 20. ágúst, verður jarðsunginn frá Akur- eyrarkirkju mánudaginn 29. ágúst kl. 13.30. Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Heimahlynningu Akur- eyrar. Upplýsingar á sölustöðum minningarkorta Krabbameins- félags Akureyrar. Guðrún Jónsdóttir, Jón Trausti Guðjónsson, Þórdís Guðmundsdóttir, Gunnsteinn Guðjónsson, Anna Guðjónsdóttir, Jón Gísli Grétarsson, Jóhann Guðjónsson, Magnús Guðjónsson, Ragnheiður Sigurgeirsdóttir, Ingvar Guðjónsson, barnabörn og barnabarnabörn. GERÐUR BERGS- DÓTTIR GÍSLASON + Gerður Bergs- dóttir Gíslason fæddist 21. apríl 1943 í Reykjavík. Hún andaðist í Landspítalanum að kvöldi fimmtudags- ins 18. ágúst 1994. Foreldrar Gerðar eru þau Ingibjörg Gíslason og Bergur G. Gislason. Gerður átti fjórar systur, Þóru, Ragnheiði, Bergljótu og Ásu. Gerður ólst upp í foreldrahúsum á Laufásvegi 64 í Reykjavík. Að loknu hefðbundnu námi hér heima stundaði hún nám i Eng- landi og Sviss. Að því loknu starfaði hún við skrifstofustörf, fyrst hjá Slippfélaginu og síðan hjá Útvegsbankanum. Hinn 17. september 1966 giftist Gerður Gísla Gestssyni og eignuðust þau tvö börn, Ragnheiði árið 1969 og Berg árið 1970. Þau hjónin stofnuðu tvö fyrirtæki, Víðsjá kvikmyndagerð árið 1968 og Ljósmyndavörur hf. árið 1974, og starfaði Gerður sem skrifstofusljóri beggja fyrir- tækjanna til dauðadags. Utför Gerðar fer fram frá Dómkirkj- unni mánudaginn 29. ágúst,. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (Valdimar Briem.) Orð verða harla fátækleg nú, þeg- ar við kveðjum ástkæra systur okk- ar. Við minnumst með söknuði sam- verustundanna á heimili foreldra okkar sem voru okkur svo dýrmæt- ar, og síðar á heimili hennar og Gísla. Að hún sé farin frá okkur er erfitt að sætta sig við og mun ininning hennar lifa með okkur. Við biðjum Guð að styðja og styrkja foreldra okkar, Gísla, Ragn- heiði og Berg á þessari stundu. Þóra, Heiða, Bergljót, Ása. Erfitt er að trúa því að hún Gegga frænka mín sé farin frá okkur. Eft- ir situr mikill tómleiki og söknuður. Mamma mín og Gegga voru ekki bara systur heldur allra bestu vin- konur, því var mikill samgangur á milli. Alltaf var jafn gott að koma til hennar. Hún var engum lík, góð og einlæg, mjög hreinskilin og gjaf- mild og þrátt fyrir mikla vinnu var hún besta mamma í heimi. Lærði ég mikið að mannkostum hennar og mun minningin um Geggu lifa með mér um aldur og ævi. Elsku Gísli, Ragga, Beggi, amma og afi, ég bið góðan Guð að styrkja ykkur í þessari miklu sorg. Blessuð sé minning þín, kæra frænka. Þórunn Lára. Gerður Bergsdóttir, mín kæra vinkvona alla tíð frá því í æsku, lést um miðjan ágúst eftir afar erfitt veikinda- stríð. Þvílík hetja hún var verður ógleyman- legt öllum sem hana umgengust. Dugnaður og ósérhlífni voru hennar aðalsmerki og það er því ekki í hennar anda að tína til afrekin. En því meir sem sjúkdómur- inn reyndi á hana því sterkari varð hún allt til síðustu stundar. Leiðir okkar lágu fyrst saman í Miðbæjarbamaskóla, þá sjö ára, ásamt tvíburasystur hennar Berg- ljótu eða Geggu og Bessu eins og þær voru alltaf kallaðar. Við vomm saman öllum stundum, ýmist tvær eða þijár. Mér er afar kær minningin um telpnaár okkar, þau einkenndust af alls konar leikjum og uppátækjum. Við héldum áfram vinskap til hinstu stundar, en á lífsleiðinni bættust við makar og börn, sem öll urðu traustir og góðir vinir. Með sínum manni og besta vini, Gísla Gestssyni, var hún ölium stundum, bæði í starfi og leik, en starfið við fyrirtækið tók mestallan tíma þeirra, enda fjölskyldan afar samstæð og traust. Bömin vom hennar stolt og yndi. Síðustu vikumar reyndi mikið á fjölskylduna, en Gerður létti þeim þennan tíma eins og hægt var. Fyrir örfáum vikum fór hún sárþjáð með Gísla til Skotlands, til þess að vera við útskrift dóttur þeirra úr háskóla. Ekki er langt síðan hún fýlgdi tengdaföður sínum til grafar, sem eflaust reyndist henni afar erfitt. Við áttum saman margar ánægju- stundir og hún var æðrulaus þegar á móti blés. Mínar innilegustu sam- úðarkveðjur til ykkar allra, elsku Gísli, Ragga, Beggi, foreldrar og systur, ég veit að minningin um hana leiðir ykkur áfram veginn. Hekla Smith. Inni í sólskinslandi bernskunnar sé ég fyrir mér stúlknahóp sem var mér mjög að skapi. Þessum ungu meyjum, sem bjuggu með foreldrum sínum á svæðinu kringum Smára- götu og Laufásveg, fylgdi afar nota- legt hispursleysi og hressileiki í tali og framgöngu. Ein í þessum hópi fríðra meyja var Gerður og fylgdi henni í mínum huga ávallt andblær bemskuslóðanna, einhver skemmti- legheit sem erfitt er að skilgreina og henda reiður á, skemmtileg nær- vera og beinskeyttur talsmáti, sem gerði allar samræður skemmtilegar Framleiöum legsteina á hagstæðu verði Opið laugardaga 9-13. Lokað Vegna útfarar GERÐAR BERGSDÓTTUR GÍSLASON, skrifstofustjóra, verða skrifstofur okkar lokaðar mánudaginn 29. ágúst. Verslun í Skipholti 31 verður lokuð milli kl. 12.30 og 16.00. ,.. ... .. Ljosmyndavorur hf., Skipholti31. og gaf þeim tilgang. Þó að leiðir okkar Gerðar lægju mestan part ævi hennar um ólíkar slóðir var hún þeirrar gerðar að mér reyndist auðvelt að bera til hennar vinar- og þakklætishug alla tið og þá sérstaklega í gegnum einn ánægjulegasta þátt lífs míns þegar við Gísli Gestsson, kvikmyndagerð- armaður, eiginmaður Gerðar, áttum frumkvæði að og unnum að kvik- myndagerð til framgangs skógrækt- armálinu í landinu. Upptendraðir af áhuga réðumst við í það fráleita verkefni að gera tíu sjónvarpsmyndir málstað skóg- ræktar til stuðnings. Það var komið fram í september 1989 þegar Sjón- varpið gaf grænt ljós á að sýna slíka þætti. Næstu 5-6 vikur æddum við nótt sem nýtan dag um landið að taka myndir í hveiju nýtilegu veðri, studdir af Gerði sem ein varð að axla byrðarnar á meðan í fyrirtæki þeirra hjóna, Ljósmyndavörum. Aldrei gerði hún athugasemd nema með jákvæðum formerkjum þegar við vorum endalaust að vinna við frágang myndanna allan veturinn í tíma, sem Gísli hefði þurft að nýta við mikil umsvif hjá fyrirtækinu og lentu með auknum þunga á hennar herðum í staðinn. Aldrei fann ég til þess að séð væri eftir þeim fjármun- um sem varið var til myndanna en allur útlagður kostnaður vegna þeirra var tekinn úr sjóðum, sem Gerður og Gísli höfðu aflað í samein- ingu. Þó að málið sé mér skylt vil ég leyfa mér að fullyrða, að fáir hafa sýnt málefnum skógræktar afdrifa- ríkari stuðning en Gísli og Gerður með þessum myndum. Við Gísli nut- um ávaxtanna af vel heppnuðu starfí, aðallega í gleði sem góðu verki er samfara. Ég hygg að Gerð- ur hafi fyrst og fremst þegið sín laun í þeirri vissu að láta gott af sér leiða en þó kannski ekki síst til að styðja við Gísla sinn sem átti sér sterkari bakhjarl en flestir eigin- menn fá að njóta enda fann ég það oft og heyrði að hann taldi sig ein- stakan gæfumann í hjónabandi sínu og fjölskyldulífi. í Gerði átti hann ekki einasta kærleiksríka, glæsilega eiginkonu og nánastan samstarfs- mann, heldur einnig sinn besta vin sem alltaf gaf honum allt það svig- rúm sem hann þarfnaðist og efaðist ekki um ágæti þess sem hann tók sér fýrir hendur. Mikill harmur er nú kveðinn að vinum mínum Gísla, Bergi og Ragn- heiði, harmur sem fátt getur sefað nema minningar um góða og ham- ingjusama konu. Valdimar Jóhannesson. Er ég hugsa til Gerðar Bergsdótt- ur er mér efst í huga þakklæti, þakk- læti fyrir að hafa átt svo heil- steypta, góða og trygga manneskju að vinkonu. Hún var alltaf reiðubúin til að hlusta, hjálpa og gefa af sjálfri sér, og minnist ég hennar með virðingu og sárum söknuði. Ég og fjölskylda mín vottum Gísla, börnunum og aðstandendum Gerðar innilega samúð okkar. Hanna. Hún Gegga móðursystir okkar er dáin. Það kom okkur í opna skjöldu þegar hún greindist með illkynja sjúkdóm. Hún var svo ákveðin í að ná full- um bata og lét engan bilbug á sér fínna, því hún ætlaði sér að gera svo margt. Þetta þótti okkur systrum svo lýsandi fyrir það hvernig hún Gegga frænka var. En þá var hún svo skyndilega hrifsuð á brott. Við munum ávallt minnast hennar með miklum söknuði. Að loku'm eftir langan, þungan dag, er leið þín öll. Þú sezt á stein við veginn, og horfir skyggnum augum yfir sviðið eitt andartak. Og þú munt minnast þess, að eitt sinn, eitt sinn endur fyrir löngu lagðir þú upp frá þessum sama stað. (Steinn Steinarr.) Elsku Gísli, Ragga, Beggi, afi og amma, við vottum ykkur innilegustu samúð á þessari erfiðu stundu. Ingibjörg og Kristín Sandholt.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.