Morgunblaðið - 28.08.1994, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 28. ÁGÚST 1994 33
BRÉF TIL BLAÐSIIMS
Kraftaverk - hvað er það?
Frá Eygló Karlsdóttur:
UNDANFARIÐ hafa margir at-
burðir verið að gerast og mig lang-
ar til að hafa orð á því. Einnig
vil ég þakka öllum þeim fyrir sem
stóðu að samkomunni í Kaplakrika
í Hafnarfirði sem var síðastliðið
sunnudagskvöld, og sérstaklega
fannst mér yndislegt að sjá fólk
læknast. Þannig að við getum séð
Guð gera yndislega og mikla hluti
með því að nota Benny Hinn sem
er bara ákveðinn farvegur fyrir
kraft Guðs. Mér fannst samkoman
alveg yndisleg og það var gaman
að sjá svona margt fólk saman-
komið. Og daginn eftir var þáttur-
inn með Hallgrími Thorsteins á
Bylgjunni og þá hringdu margir
inn og einnig Stöð 2 í 19:19, var
merkileg umfjöllun um fólk sem
læknaðist og meira að segja Jóni
Ársæli leið skár í bakinu.
En Guð vill líka mæta þeim sem
urðu vonsviknir, Guð sér það fólk
og vill lækna það, hann gleymir
engum. Guð mætir okkur einnig
þar sem við biðjum í leynum. En
einnig hefur Benny Hinn skrifað
nokkrar bækur en þvi miður eru
þær ekki til á íslensku, en hann
hefur minnst mikið á einn annan
predikara sem hann hefur lært
mikið af. Og til eru bækur á ís-
lensku, með vitnisburðum um
lækningar og kraftaverk sem eru
staðfest af læknum, og þær heita:
Ég trúi á kraftaverk og Ennþá
gerast kraftaverk og höfundurinn
að þeim bókum heitir Kathryn
Kuhlman.
Að lokum við ég minnast á þátt
sem er alltaf sýndur á mánudögum
eftir fréttir á Stöð 2 sem heitir
neyðarlínan 911 þar gerast mý-
mörg kraftaverk. Ég trúi á krafta-
verk.
Drottinn blessi ykkur.
Virðingarfyllst,
EYGLÓ KARLSDÓTTIR,
Hamrabergi 30,
Reykjavík.
Frá land-
námstíð?
Frá Ásgrími S. Björnssyni:
SKARFAKLETTUR heitir þessi
klettur. Hann er á Viðeyjarsundi,
milli Viðeyjarstofu og Klettverk-
smiðjunnar í Laugarnesi. Þessi
mynd var tekin fyrir nokkrum
dögum, meðan sjór flaut enn í
kringum klettinn. í allan vetur
hefur verið fluttur uppgröftur úr
gömlu Reykjavíkurhöfn þarna in-
neftir og sömuleiðis hefur verið
flutt á bílum efni til að verkið
gangi sem best. Það virðist keppi-
kefli ráðamanna að eyðileggja
strandlengju Reykjavíkur. Þessi
klettur hefur verið brim- og boða-
brjótur að minnsta kosti frá landn-
ámstíð, en á að verða sýningagrip-
ur í drullupolli innan hafnarinnar
frá þessum degi, nema Reykvík-
ingar láti ekki bjóða sér þetta og
mótmæli allir sem einn.
ÁSGRÍMUR S. BJÖRNSSON,
Langagerði 116,
Reykjavík.
Gagnasafn
Morgnnblaðsins
Allt efni sem birtist í Morgun-
blaðinu og Lesbók verður
framvegis varðveitt í upplýs-
ingasafni þess. Morgunblaðið
áskilur sér rétt til að ráðstafa
efninu þaðan, hvort sem er
með endurbirtingu eða á ann-
an hátt. Þeir sem afhenda
blaðinu efni til birtingar telj-
ast samþykkja þetta, ef ekki
fylgir fyrirvari hér að lútandi.
JHnrgiiwIbWiiSr
- kjami málsins!
KMARIMSLA
Úrvals-Fólks
5 vidbótar smáhýsi á Beach Floor
á sama ótrúlega lága verðinu
2 íbúðir lausar á hinum glæsilega gististað
Barbacan Sol og örfáar íbúðir á öðrum
gististöðum.
Skemmtidagskrá íslenskra fararstjóra og
sérlegur gestgjafi Úrvals-Fólks.
#ÍRVAL-ÚTSÝN
trygging íyrir gæðum
Ldgmtíla 4: sími 699 300,
Haftiarfiröi: strni 65 23 66, Keflavtk: sfmi 11353,
Selfossi: stmi 21666, Akureyri: sfmi 2 50 00
- og bjá umboðsmöntium um land allt.
ÚTSALA10-60% AFSLATTUR
• Barnaúlpur - verð kr. 3.490 (áður kr. 6.490)
• Fullorðinsdúnúlpur - verð kr. 4.990 (áður kr. 10.750)
• Barnaíþróttagallar - verð frá kr. 2.990 _«
• Fullorðinsíþróttagallar-verðfrákr. 3.990 g^||Ji| w
• Regnfatnaður, íþróttaskór, bolir á mjðg góðu verði SPORTBÚÐIN
Opiö laugardag kl. 10-16. Ármúla 40 • Sími 813555 og 813655