Morgunblaðið - 28.08.1994, Page 34
34 SUNNUDAGUR 28. ÁGÚST 1994
I DAG
MORGUNBLAÐIÐ
UTSALA
HELDUR ÁFRAM.
ÓDÝRT FYRIR SKÓLANN.
Le Caf,
glansgallar nr. 2 til 14,
verð kr. 2.990.
Le Caf,
tvöfaldir íþróttagaOar. Nokkrir Otir.
Nr. 2 til 16. Verð frá kr. 3.490.
Nr. S til XXXL Verð frá kr. 4.490.
Indoor Court,
alhliða innanhússskór, fyrir leikfimina,
handboltann, blakið, innanhússfótboltann
o.fl. Nr. 31 til 45. Verð kr. 1.990
Puma Cross Trainer,
mjög sterkir leðurskór með púða í hæl.
Tflvalinn í skólann. Nr. 35 til 42.
Áður kr. 6.560. Frábært verð kr. 2.490.
Bómullarhettupeysur,
nr. M tO XXL. Verð kr. 1.790.
Buxur nr. S til XL.
Verð kr. 1.590.
Litir grátt og blátt.
Brooks Lightning,
svartir körfuboltaskór með
púða í hæl. Nr. 40 til 47. Áður kr. 7.490.
Verð nú kr. 4.990.
hvítir, dúnmjúkir leðurskór með púða í hæl.
Góður í leikfími, eróbikk eða á götuna.
Nr. 35 til 42. Áður kr. 5.980.
Verð nú kr. 3.990.
Annað t.d:
Skólabakpokar kr. 1.990
T-bolir frá kr. 490
Barnaskór með riflás kr. 590
Stuttbuxur frá kr. 590 o.fl. o.fl.
Ath. 10% afsláttur af öllum
öðrum vörum verslunarinnar
Póstsendum
SPORTVÖRUVERSLUNIN
SPARTA
Laugavegi 49-101 ReykJavfK - sfmi 12024
Umsjón Guöm. I’ á I I
Arnarson
MEÐ 10 spila tromplit þar
sem vörnin á KlOx er þekkt
öryggisspilamennska að
spila fyrst út háspili blinds,
t.d. gosanum með Gxxx á
móti ÁD9xxx. Þannig má
ráða við KlOx í millihönd.
í spilinu hér að neðan ætti
sagnhafi hins vegar að
hafna svíningunni í trompi
og spurningin er: Hvers
vegna?
Vestur gefur; NS á
hættu. Sveitakeppni.
Norður
♦
V
♦
♦
Vestur Austur
♦ G954 4
V Á952
♦ K7
* G103 +
Suður ♦ ÁD8632 ¥ G ♦ G82 ♦ KD4
Vestur Norður Austur Suður
1 hjarta Pass Pass 2 spaðar
Pass 3 spaðar Pass 4 spaðar
Pass Pass Pass
Útspih Ijjartakóngur.
Sagnhafí drepur á hjarta-
ás og spilar spaðagosa. Aust-
ur lætur sjöuna, nokkum
veginn fumlaust. Nú má
færa góð rök fyrir því að
besta spilamennskan sé að
stinga upp ás. Hver eru þau
rök? Setjum fram nokkrar
tillögur:
a. Vestur opnaði og er því
líklegri til að eiga spaða-
kónginn.
Vissulega, en það er samt
rúm fyrir spaðakóng í aust-
ur.
b. Austur sýndi engin við-
brögð við spaðagosanum.
Gott hjá honum, en þú
hefur sýnt sexlit í sögnunum,
svo veit að hann má alls ekk
leggja frá Kx eðá KlOx.
Norður ♦ G954 V Á952 ♦ K7 ♦ G103
Vestur Austur
♦ K ♦ 107
¥ KD1063 1 y 874
♦ D106 111111 ♦ Á9543
♦ Á952 ♦ 876
Suður ♦ ÁD8632 ¥ G ♦ G82 ♦ KD4
c. Vestur sagði pass við
opnun félaga síns á hjarta,
sem hann hefði ekki gert
bæði með spaðakóng og tíg-
ulás!
Alveg laukrétt! Sagnhafi
hefur efni á að gefa slag á
tromp ef hann tapar ekki
tveimur á tígul. Komi í ljós
að austur eigi spaðakóng, er
öruggt að vestur á tígulás.
COSPER
VELVAKANDI
Svarar í síma 691100 frá 10-12 og 14-16
frá mánudegi til föstudags
Orðsending frá
Kattholti
ÞAÐ ERU vinsamleg til-
mæli forráðamanna
Kattholts að allir þeir
sem týnt hafa köttum
hafi samband við Katt-
holt og leiti að sínu dýr.
Mjög mörg dýr eru nú í
óskilum þar og ekki er
hægt að vista þau í mjög
langan tíma. Vitji þeirra
enginn verða þau aflífuð.
Tapað/fundið
Peysa fannst
SVÖRT-, rauð- og hvít-
munstruð barnapeysa
fannst í beijalautu við
gamla Þingvallaveginn.
Upplýsingar í síma
13742 eftir kl. 19.
Myndavél tapaðist
YASICA MF2 myndavél
tapaðist í skemmtis-
kokkinu sl. sunnudag á
túninu við Lækjargötu.
Skilvís fínnandi vinsam-
lega hafi samband í síma
92-46663.
Skeiðklukka
fannst
BLÁ skeiðklukka fannst
nýlega í miðbæ Reykja-
víkur. Eigandinn má
vitja hennar í síma
651659.
ÞÆR Hrafnhildur Birna Þórsdóttir og Hulda
Björg Jónsdóttir héldu hlutaveltu nýlega og
færðu hjálparsjóði Rauða kross íslands ágóðann
sem varð kr. 1.015.
ÞESSIR krakkar söfnuðu fé til Rauða Kross
íslands til hjálpar í Rúanda. Þórkatla, Andrea,
Þórir og Sandra.
Hlutavelta
Víkverji skrifar...
Sumarhúsum í eigu félagasam-
taka og einstaklinga hefur
fjölgað mjög mikið síðustu áratugi.
Þéttbýlisbúinn, sem kemur sér upp
skjóli í sveitinni og ræktar þar garð-
inn sinn, er að þjóna ríkri þörf fyr-
ir tengsl við land sitt og náttúru
þess.
Nú er svo komið að sumir sveita-
hreppar njóta fasteignaskatta af
hundruðum sumarhýsa. Fasteigna-
skattar af sumarbústöðum eru oft
á tíðum drjúgur hluti af tekjum
viðkomandi sveitarfélaga. Þar sem
Víkveiji þekkir til lætur sveitar-
félagið hins vegar enga, nákvæm-
lega enga þjónustu á móti. Eina
þjónustan eru sorpgámar, sem sér-
stakt gjald er tekið fyrir, til viðbót-
ar fasteignasköttunum.
xxx
Ifyrirspurnatíma á Alþingi í vor
er leið kom fram að „ekki eru
til neinar skilgreiningar á því, hvaða
þjónustu sveitarfélög skuli veita
sumarhúsaeigendum og hvaða
þjónusta er í raun og veru innifalin
í þeim fasteignagjöldum sem
sumarhúsaeigendur greiða til sveit-
arfélaga, en oft á tíðum eru þessi
fasteignagjöld veruiega stór hluti
af tekjum margra sveitarfélaga þar
sem sumarhús eru mörg“, eins og
segir í Alþingistíðindum.
I aprílmánuði 1993 skipaði þá-
verandi félagsmálaráðherra nefnd,
ekki vonum fyrr, til að fara ofan í
rétt sumarhúsaeigenda til þjónustu
í þeim sveitarfélögum sem þeir
greiða fasteignaskatta til. Væntan-
lega liggur þessi skýrsia nú fyrir.
Víkveiji telur það verðugt verkefni
fyrir nýjan félagsmálaráðherra,
sem og þingmenn Reykvíkinga og
Reyknesinga, að finna réttláta
lausn á þessu brýna máli, áður en
gengið verður að kjörborðinu á nýj-
an leik.
Það gengur ekki að skylda fólk
til skattgreiðslna, án þess að nokk-
ur þjónusta komi á móti og án þess
að viðkomandi skattgreiðendur hafi
minnstu áhrif á, hvern veg þessum
tekjum viðkomandi sveitarfélaga er
ráðstafað!
xxx
Guðni Ágústsson alþingismaður
skrifar hressilega grein í Dag-
blaðið. Hún er að hluta til málsvörn
fyrir hátekjumenn, sem greiða'háa
skatta í ríkis- og sveitarsjóði. En
fyrst og fremst herhvöt gegn skatt-
svikurum, sem gera tekjur ríkis og
sveitarfélaga að sínum, þiggja opin-
bera þjónustu án þess að greiða
sinn hlut í henni - og eru „með
fimmtán milljarða í neðanjarðar-
hagkerfinu"!
„Engin þjóð heldur innbyrðis friði
til lengdar séu ekki ein lög og ein
regla og fólkið í landinu sitji við
sama borð“, segir þingmaðurinn.
Víkveiji dagsins gerir ekki athuga-
semd við röksemdir né niðurstöður
greinarhöfundar. Baráttan gegn
skattsvikurum hefur að vísu verið
hert í tíð núverandi ríkisstjórnar frá
því sem var, t.d. í fjármálaráðherr-
atíð Ólafs Ragnars Grímssonar. En
spurningin til þingmannsins er
þessi: Gildir ekki hið sama um ein
lög, eina reglu og að allir lands-
menn sitji við sama borð þegar
vægi atkvæða á í hlut? Er réttlæt-
anlegt að atkvæði Jóns Vestfirðings
hafi þrefalt vægi atkvæðis Jóns
Reykvíkings?
xxx
Víkveiji les í Fjármálatíðindum
Seðlabankans að arðsemi eig-
in fjár íslenzks avinnurekstrar í
heild hafi aðeins verið 1% að meðal-
tali á árabilinu 1988 - 1992. Sam-
bærilegar tölur fyrir atvinnurekstur
í öðrum löndum er víða á bilinu 3
- 5%. Léleg arðsemi íslenzks at-
vinnureksturs fer og saman við al-
mennt bága eiginfjárstöðu fyrir-
tækja. Eiginfjárstaða íslenzkra fyr-
irtækja er að meðatali um 30%
borið saman við nálægt 50% í öðrum
löndum. Þessi veruleiki hrindir fjár-
festum, erlendum sem innlendum,
frá fjárfestingu og þátttöku í at-
vinnurekstri hér á landi. Af þeim
sökum er verðmætasköpun minni,
lífskjör lakari og atvinnuleysi meira
en ella. Það eru brýnir þjóðarhags-
munir, að búa íslenzkum atvinnu-
rekstri sama starfsgrundvöll/arð-
semi og erlendum samkeppnisaðil-
um.