Morgunblaðið - 28.08.1994, Page 36
36 SUNNUDAGUR 28. ÁGÚST 1994
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Norræn hátíð
um helgina
Norræn alþýðutónlistar-
hátíð var haldin í Reykja-
vík um helgina. Dagskráin
var opnuð í Norræna hús-
inu á föstudag og síðan
var víða komið við yfir
helgina. Lokahátíðin fór
fram á Hótel Sögu og var
vel sótt. Þar sýndu allar
norrænu þjóðirnar
skemmtiatriði, bæði þjóð-
lega tónlist og dans. Há-
tíðin þótti í alla staði mjög
vel heppnuð og vakti lukku
eins og sést á meðfylgj-
andi myndum.
SIGURÐUR Rúnar Jónsson
spilaði á opnuninni í Nor-
ræna húsinu á föstudag.
A'Vv"
Sam Malone á við
getuleysi að stríða
►TED DANSON mun leika Sam
Malone, barþjóninn í Staupasteini,
í einum af sjónvarpsþáttunum
„Frasier" í upphafi næsta leik-
tímabils. Hlustendaþáttur Frasi-
ers fær símhringingu frá áhyggju-
fullum hlustanda, sem segist eiga
við getuleysi að stríða. Sálfræð-
ingurinn hlustar þolinmóður, en
rámar skyndilega í röddina og
hrópar upp yfir sig: „Sam Mal-
one!“ Sam játar sneyptur að hann
eigi í dálitlum erfiðleikum og seg-
ist vona að Frasier geti hjálpað
sér, sem hann og gerir.
ÁRLEG töðu-
gjöld voru haldin
á Hellu um síð-
ustu helgi. Há-
tíðin hófst á
föstudag með
dansleik á
Laugalandi.
Daginn eftir var
boðið upp á
skemmtidagskrá
á Gaddstaðaflöt-
um og gengið á
Heklu. A laugar-
dagskvöldið var
síðan útigrill-
veisla þar sem
fólk gat keypt
eins mikinn mat
og það gat i sig
látið á vægu
SÖLVI Borgar Sighvatsson,
Tinna Erlingsdóttir, Hjördís
Rún Oddsdóttir og Asgeir
Jónsson tylltu sér á grind-
verkið eftir vel útilátna
grillmáltíð.
verði. í framhaldi
af því var varð-
eldur og flug-
eldasýning og
síðan var haldið
á dansleik á
Hellu þar sem
stórsveit
Harmonikkufé-
lags Rangæinga
lék í Hellubíó eða
á Hvolsvöll þar
sem Pláhnetan
spilaði á Hvoli. Á
sunnudeginum
var margt í boði,
meðal annars var
Keldur, einn af
elstu uppistand-
andi bæjum
landsins, til sýnis.
erðbréfin í Hudsucker
ekinu fara hækkandi en
fmiiórarnir faliandi!
Domingo.
Carreras.
Heimsmeistarar í
tenórsöng
Við fyrstu sýn er fátt sem tengir knattspyrnu
og tenórsöng, nema þá kannski þegar menn
eru sparkaðir niður á vellinum. Fyrir heims-
meistarakeppnina í knattspymu á Spáni fyrir
fjórum árum vakti hinsvegar gríðarlega athygli
þegar tenórarnir Luciano Pavarotti, Placido Dom-
ingo og José Carreras héldu sameiginlega tón-
leika í Barcelona með sinfóníuhljómsveit Los
Angeles undir stjóm Zubins Methas. Tugmilljón-
ir horfðu á tónleikana í sjónvarpi og plata með
tónleikaupptökunni varð metsöluplata um heim
allan. Þegar heimsmeistarakeppnin í Bandaríkj-
unum nálgaðist má segja að það hafi verið eðli-
leg ákvörðun að fara af stað með aðra slíka.
Tenóramir þrír sungu svo á Dodgers-ieikvang-
inum í Los Angeles frammi fyrir 56.000 manns
fyrir úrslitaleikinn milli Itala og Brasilíumanna.
Tugmilljónir manna fyldust með tónleikunum í sjónvarpi og
þegar geisladiskurinn kemur út á morgun, er búist við að
handagangur verði í öskjunni.
Ekki er gott að segja hvað það er sem heillar fólk gersam-
lega upp úr skónum, en eflaust hefur sitt að segja að þeir
syngja ýmsar vinsælar aríur aukinheldur sem ýmis lög sem
þeir hafa ekki áður tekið upp heyrast á tónleikunum.
Ólíklegt verður að telja að þeir félagar endurtaki leikinn
á næstu heimsmeistarakeppni, í Frakklandi 1998, enda
verður þá Pavarotti á sjötugsaldri, Carreras fimmtugur
og Domingo nær sextugu.
Ævintýraeyjan
►NORSKI leikarinn Leif Juster gerir ýmislegt
til að hafa ofan af fyrir barnabörnum sínum.
Hann klæddi sig nýlega sem sjóræningja til að
koma þeim á óvart, þegar þau.sigldu til hans á
Neseyjuna í Noregi. Þar er standandi veisla yfir
sumartímann og fjöldi fólks, bæði vinir og ætt-
ingjar, heimsækir hann þangað. Hann er kamp-
akátur yfir öllum þessum heimsóknum, þrátt
fyrir að vera orðinn áttatíu og fjögpirra ára
gamall: „Sumarbústaðurinn á Neseyju er orðinn
hvíldarstaður fjölskyldunnar og ég er meira en
fús að leyfa öllum sem óska þess að dveþ'ast
þar. Fólk kemur og fer að vild og til marks um
það voru tíu manns hér í gæraótt."
HASKOLABIO
SÍMI 22140
Háskólabíó
DANSARAR
úr Þjóðdansafé-
lagi Reylq'avíkur
sýna íslenskan sjó-
mannaræl.
Pavarotti
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
ÞESSIR krakk-
ar kunnu gott
að meta og
brugðu á leik
við undirspil
Harmonikku-
félags Rang-
æinga.
^^GunnS?
Níelsson og
Töðugjöld á Hellu