Morgunblaðið - 28.08.1994, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 28.08.1994, Qupperneq 40
40 SUNNUDAGUR 28. ÁGÚST 1994 BIKARKEPPNI KARLAI KNATTSPYRIMU MORGUNBLAÐIÐ Bikarúrslitaleikur KR og Grinda- víkur verður í dag kl. 14 á Laugardalsvelli. Þetta er í 35. skipti sem leikið er til úrslita í bikar- keppni KSÍ. Bikarinn, sem keppt er um, gaf Félag íslenskra gull- smiða árið 1986. Inn á völlinn kostar 1100 krónur í stúku en 700 í stæði. Börn greiða 300 krónur. Miðasalan á Laugardalsvelli opnar kl. 11 í dag. KR sigraði Einherja í fyrstu umferð 5:0, ÍA í sextán liða úrslitum 1:0, Breiðablik í átta liða úrslitum 2:1 og Þór í undanúrslitum 3:0. Grindavík lagði Völsung 4:0 í fyrstu umferð, sigraði síðan FH í sextán liða úrslitum, ÍBV í átta liða úrslitum og Stjörnuna í undanúrslit- um; í öllum tilvikum eftir víta- spyrnukeppni. Aðalgestur KSÍ á leiknum verð- ur Davíð Oddsson forsætis- ráðherra. Hann mun að leik loknum afhenda fyrirliða sigurliðsins sigur- launin. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri í Reykjavík verður sér- stakur gestur KR á bikarúrslita- leiknum. Sérstakur gestur Grind- víkinga á leiknum verður Jón Gunn- ar Stefánsson bæjarstjóri í Grinda- vík. Þjálfari: Varamenn: Lúkas Kostic Albert Sævarsson Lúkas Kostic Sveinn Guðjónsson Páll V. Björnsson Vignir Helgason Jón Freyr Magnússon Ólafur Bjarnason Þjálfari: Varamenn: Hjálmar Hallgrímsson Haukur Bragason Þoretemn Guðjonsson Gunnar Már Gunnarsson Milan Jankovic Guðjón Þórðarson Atli Knútsson Þorsteinn Þorsteinsson Vilhjálmur Vilhjálmsson Hilmar Björnsson Einar Þór Daníelsson Tómas Ingi Tómasson LogiJónsson Magnús Orri Schram Heimir Guðjónsson | James Bett Salic Heimir Porca Ingi Sigurðsson Tryggvi Guðmundsson Sigurður B. Jónsson Izudln Daði Dervic Mjólkurbikarkeppnsn -Úrslit 1994 Hápunktur tímabilsins Reykjavíkurliðið Víkingur er eina liðið sem sigrað hefur í bikar- keppninni sama ár og liðið var í 2. deild. Víkingur hefur tvisvar leik- ið til úrslita sama ár og liðið var í annarri deild, fyrst 1967 er liðið tapaði fyrir KR, og 1971 þegar Víkingur vann Breiðablik. FH lék til úrslita árið 1972 gegn ÍBV, er liðið var í annarri deild, en tapaði 2:0. ■ Jrsl m slitaleikurinn er merkilegt nokk ekki fyrsti úrslitaleikur- inn sem KR og Grindavík leika á þessu ári. I janúar sl. léku þau til úrslita á íslandsmótinu í knatt- spyrnu innanhúss, og sigraði KR með fjórum mörkum gegn tveimur. Rúnar Kristinsson gerði tvö mörk, Tryggvi Guðmundsson og Daði Dervic hin tvö. Fyrir Grindvíkinga skoruðu Grétar Einarsson og Ólafur Ingólfsson. Reykjavíkurliðið hefur ellefu sinnum leikið til úrslita í bik- arkeppninni og sigrað sjö sinnum. Síðast sigraði liðið í keppninni 1967, lagði þá 2. deildarlið Víkings 3:0 í úrslitaleik. Suðurnesjaliðið hefur aftur á móti aldrei leikið til úrslita og aðeins þrisvar sinnum áður komist í sextán liða úrslit. Grindavík er eina liðið af þeim sem leikið hafa til úrslita sem aldrei hefur spilað í fyrstu deild. Liðin sem mætast í dag hafa aðeins einu sinni leikið í bikar- keppninni. Það var árið 1978, er KR lék í 2. deild og Grindavík í þeirri þriðju. KR sigraði með þrem- ur mörkum gegn einu. Liðin léku tvo æfingaleiki snemma í vor og sigraði KR í þeim báðum. Inni á v'ellinum í dag mætast óvenju margir samheijar til lengri eða skemmri tíma. Þjálfar- arnir Lúkas Kostic og Guðjón Þórð- arson unnu bikarinn í fyrra með ÍA, sem og Sigurður Sigursteinsson, sem nú leikur með Grindavík. Einar Þór Daníelsson lék með Grindavík árin áður en hann kom til KR, og Þorsteinn Guðjónsson leikmaður Grindavíkur á að baki 35 meistara- flokksleiki með KR. Tryggvi Guðmundsson og Tómas Ingi Tómasson fyrrum leik- menn ÍBV mæta fyrrum félaga sín- um úr Eyjum, Inga Sigurðssyni, sem nú leikur með Grindavík. Haukur Bragason markvörður Grindavíkur og Heimir Guðjónsson KR-ingur léku saman með KA sum- arið 1990. Morgunblaðið/Sverrir Togast á um bikarinn eftirsóttaBiKARúRsuTALEiKUR karla í knattspyrnu er hapunktur tímabilsins ár hvert. Að þessu slnnl eru það Grlndvíkingar og KR-lngar sem keppa um sigurinn og Evrópusæti að ári, sem gefur góðan pening í aðra hönd. Eins og ávallt mæta liðin til leiks með því hugarfari að sigra og er víst að Þormóður Egilsson, fyrlrliði KR, sem er vinstra megin á myndinni, Milan Jankovic, fyrirliði Grindvíkinga, vilja ekki sleppa takinu á bikarnum. Guðjón Þórðarson þjálfari KR Við sigrum í hörkuleik #Juðjón Þórðarson, þjálfari KR, veit manna best m hvað Það er að vera I bikarúrsötum. Hann tapaði fyrstu þremur leikjum sínum-sem leikmaður ÍA, en síðan fylgdu fimm sigi-ar í kjölfarið og sjötta gullið kom í íyrra, en þá var hann þjálfari Skaga- manna og Lúkas Kostic fyririiði. „Égávon á hörku- leik. Grindavík: er mikið baráttulið með marga góða leikmenn innan sinna raða, en við komum með það eitt að markmiði að sigra. Menn eiga ekki að taka þátt í bikarúrslitaleik nema með slíku hugarfari. Oft, hefur verið þörf en nú er nauðsyn og hjá okkur kemur ekkert annað en sigur til greina.“ : V «yndar hefur umræðan verið á þann veg aö igi að sigra, þó ekki va-ri nema vcgna þess 3ið et* rneð reynda leikmenn í 1. deild, en Grindavík hefur aldrei ieíkíð í efstú deild. Guðjón segir að tal mánna skipti engu og hann segíst ekki hafa áhyggjur af öðrum. „Það fereytir engu hvaða skoðun aðrir hafa. því við höfuin aflið og getuna. l>að setur enga pressu á okkur, þó aðrir segi að við eigum að vinna, og það er ékkert sem setur okkur út aí laginu. Hins vegar er þetta rétta stundin fyrir Vesturbæinga og aðra KR-inga að fjölmenna á leikinn og styðja okkur, jiví þetta verður Vesturbærinn gegn Jandinu og miðunum.“ Lúkas Kostic þjálfari UMFG Fallegasta stundin að er sko allt í fínu lagi héma, sérstaklega eftir sigurinn gegn Þrótti á miðvikudaginn," var það fyrsta sem Lúkas Kostic þjálfari Grindvík- inga sagði þegar Morgunblaðið sló á þráðinn til hans. „Við bíðum nú bara spenntir eftir úrslita- leiknum og erum ákveðnir í að hafa mjög gaman af honum. Þetta verður fallegasta stundin í sum- ar,“ sagði Lúkas. Ertu ekkeit hræddur um að það verði spennu- fall hjá strákunum og þetta verði aigjör einstefna? „Það getur orðið spennufall hjá báðum liðum en ég er ekki hræddur um slíkt hjá okkur. Við erum vanir að beijast og hafa fyrir hlutunum og ætlum að gera það í úrslitaleiknum. Ég vona bara að það dugi. Ég held að leikurinn verði skemmtileg- ur og við ætlum alla vega að gera það sem við getum til.að skemmta áhorfendum, bæði þeim sem koma á völlinn og eins hinum sem verða heima fyrir framan sjónvarpið. KR-ingar eru auðvitað sterkari á pappírnum, en leikurinn ræðst ekki þar, heldur á Laugardalsvellinum," sagði Lúkas. Hann sagði undirbúninginn vera eins og fyrir aðra leiki nema hvað leikmenn ætluðu að hittast og borða saman á laugardeginum. „Ég vil helst ekki breyta of mikið útaf venjunni, það getur haft slæm áhrif.“ ÚRSLITALEIKURIIMN íbikar- keppni karla er sá viðburður, sem hæst ber í knattspyrnunni ár hvert. Umgjörðin er önnur og meiri en vegna annarra leikja, viðhöfnin glæsilegri og spennan íhámarki. Leikurinn færir úrslitaiiðunum mikið í aðra hönd, en meistararnir öðlast jafnf ramt þátttökurétt í Evrópukeppni bikarhafa að ári. Knattspyrnan er óútreiknanleg og að margra mati er það helsta ástæðan fyrir vinsældunum. Einstök lið geta verið sigurstrang- legri á pappírnum, en úrslitin verða oft önnur, en talið var, sérstaklega í bikarleikjum að ekki sé talað um bikarúrslitaleiki. Grindavík á óvart Grindvíkingar ætluðu sér stóra hluti á líðandi tímabili og forsvars- menn knattspyrnudeildarinnar sögðu við Morgunblaðið í desember í fyrra að ekki kæmi annað til greina en að komast upp úr 2. deild og draumurinn væri að sigra KR í bikarúrslitum. Þá vissu við- mælendur ekki að möguleikinn yrði fyrir hendi í bikarnum og víst er að Grindvíkingar hafa komið á óvart í bikarkeppninni með því að hafa betur gegn þremur fyrstu deildar félögum. FH, sem er í öðru sæti í 1. deild, tapaði fyrir Grindavík, sem er efst í 2. deild, í 16 liða úrslitum. „Grindavík er skemmtilegt og gott lið á íslenskan mælikvarða, stemmningslið," sagði Hörður Hilmarsson, þjálfari FH, aðspurður um úrslitaleikinn og -liðin. „Barátt- an er góð og mótheijarnir, sem töpuðu fyrir Grindvíkingum í víta- keppni, fundu fyrir því, en í liðinu eru góðir og reyndir leikmenn." KR betra lið Hörður sagði að þó Grindavík væri með gott lið væri KR með betra lið. „Það væri óeðlilegt ef KR sigraði ekki. Það er með miklu betri einstaklinga og betri leikmenn eiga að mynda betra lið. Það eru tvö lið, sem skara fram úr hvað mannskap varðar, Skaginn og KR, en Skagamenn hafa haft „karakt- erinn“ fram yfir. Vonbrigðin hafa verið mikil hjá KR í sumar, en sig- ur í bikarkeppninni getur bætt fyr- ir þau.“ Hörður sagðist eiga von á góðri viðureign. „Þetta getur orðið skemmtilegur leikur og fjörugur og það verður örugglega eitthvað af mörkum. Sem gamall þjálfari Grindavíkur hef ég miklu meiri taugar til liðsins, en með fullri virð- ingu fyrir því á það ekki að eiga möguleika.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.