Morgunblaðið - 30.08.1994, Qupperneq 1
64 SIÐUR B
195. TBL. 82. ÁRG.
ÞRIÐJUDAGUR 30. ÁGÚST 1994 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Vill nýja
friðar-
áætlun
Pale. Reuter.
RADOVAN Karadzic, leiðtogi
Bosníu-Serba, hvetur til þess að leit-
að verði nýrra lausna á Bosníu-deil-
unni eftir að Bosníu-Serbar höfnuðu
nýjustu friðaráætluninni með mikl-
um meirihluta atkvæða í þjóðarat-
kvæði um helgina.
„Við viljum að skiptingu landsins
verði breytt,“ sagði Karadzic. Við
viljum nýja friðarráðstefnu, nýjar
friðarumleitanir. “
Þegar helmingur atkvæðanna
hafði verið taiinn voru 90% kjósenda
andvíg friðaráætluninni. Fimm ríki,
sem hafa beitt sér fyrir áætluninni,
hyggjast hunsa þjóðaratkvæðið eins
og milligöngumenn Sameinuðu þjóð-
anna og Evrópusambandsins ætluðu
sér í maí í fyrra þegar Bosníu-
Serbar höfnuðu annarri friðaráætl-
un. Bosníu-Serbar náðu þá sínu fram
og binda nú vonir við að nýja áætlun-
in komist ekki heldur í framkvæmd.
■ Allt að 200% kjörsókn/16
------♦----------
Ólympíu-
aldar
minnst
HÁTÍÐARHÖLD hófust í París í
gær í tilefni aldarafmælis Alþjóða-
ólympíunefndarinnar sem stofnuð
var 1894 í Sorbonne-háskólanum
að frumkvæði franska barónsins
Pierre de Coubertin. Af því tilefni
var hlaupið með ólympíueld um
París í gær og vár myndin tekin
við upphaf hlaupsins við Eiffel-
turninn. Kyndilberi er bandaríski
grindahlauparinn Edwin Moses
sem varð ólympíumeistari 1976
og 1984.
Reuter
N-Irar bjartsýnir á sögulegt vopnahlé
IRA sag’ður
íhuga „áætl-
un án vopna
Belfast. Reuter, The Daily Telegraph.
MIKIL bjartsýni ríkti á Norður-írlandi í gær um að vænta mætti sögulegr-
ar yfirlýsingar Irska lýðveldishersins, IRA, um vopnahlé, sem yrði stærsta
skref sem stigið hafi verið til friðar í aldaríjórðung. Gerry Adams, leið-
togi Sinn Fein, stjórnmálaarms IRA, sagði í yfirlýsingu í gær, að hann
hefði fundað með oddamönnum hersins og gaf í skyn að hann hefði þar
mælt með vopnahléi. Haft hefur verið eftir talsmanni IRA að samtökin
athugi nú möguleika á „áætlun án vopna“ og hvort þau geti unnið að
sameiningu írlands á stjórnmálavettvangi eingöngu.
Vopnahlé sem IRA lýsti yfir 1972
og 1975 leiddu til ófullnægjandi
samningaviðræðna við bresku
stjórnina og heiftarlegra gagnásak-
ana. Talsmenn hersins sögðu
vopnahlésyfirlýsingar jafngilda
uppgjöf og 1978 sögðu þeir að sam-
tökin væru reiðubúin fyrir „langt
stríð.“ Að undanskildum þriggja
daga vopnahléum á jólum lýstu
samtökin ekki aftur yfir hléi fyrr
en í apríl á þessu ári, en það entist
einungis í þijá daga.
Óvíst um stuðning
harðlínumanna
Adams hefur að undanfömu sagst
bjartsýnn á að friður væri innan
seilingar, en á sunnudag lét hann í
ljós væntingar um enn frekari til-
slakanir af hálfu bresku stjómarinn-
ar áður en hægt yrði að semja um
frið.
Óvíst er hvort Adams nýtur stuðn-
ings harðlínumanna innan IRA, sem
telja að vopnahléð 1975 hafi veikt
stöðu samtakanna vemlega. Enn-
fremur benda fréttaskýrendur á, -að
Adams taki talsverða áhættu sjálfur
lýsi hann yfir vopnahléi. Fari það
út um þúfur og samtökin sem hann
leiðir grípi aftur til vopna verði staða
hans orðin mjög veik.
Kínveijar og Bandaríkjamenn undirrita nýjan viðskiptasamning
Agreimngi um mann-
réttindamál ýtt til hliðar
Peking. Reuter.
BANDARÍKIN og Kína undirrituðu í gær víðtæk-
an samning í Peking um aukin og bætt viðskipti
ríkjanna fram á næstu öld. Ron Brown, viðskipta-
ráðherra Bandaríkjanna, tjáði gestgjöfum sínum
að stjórnvöld í Washington væru áfjáð í að bæta
samskiptin nú þegar búið væri að ýta til hliðar
ágreiningi um mannréttindi sem upp kæmi á
hverju ári. Li Peng, forsætisráðherra Kína, sem
talinn er bera mikla ábyrgð á fjöldamorðum kín-
verska hersins á Torgi hins himneska friðar 1989,
var einnig bjartsýnn. „Við höfum beðið þess lengi
að þér kæmuð til Kína,“ sagði hann.
Li sagðist vona að heimsókn Browns yrði til
að auka vináttu og samstarf þjóðanna. Deilur um
mannréttindamál, einkum hlutskipti pólitískra
andófsmanna í Kína og þjóðfrelsissinna í Tíbet,
hafa eitrað samskipti ríkjanna um árabil en í maí
sl. fór að rofa til er stjprn Bills Clintons forseta
ákvað að reyna að skilja á milli mannréttinda og
viðskipta. Þá var ákveðið að Kína fengi áfram
að njóta svonefndra bestu kjara á bandarískum
markaði.
Hótað gagnaðgerðum
Brown og Wu Yi, viðskiptaráðherra Kína, und-
irrituðu samninginn en skömmu áður hafði Wu
hótað Bandaríkjamönnum að gripið yrði til gagn-
ráðstafana ef ekki fengjust betri kjör fyrir vefnað-
arvörur Kínveija á Bandaríkjamarkaði. Jafnframt
krafðist Wu þess að Bandaríkjamenn hættu að
tefja fyrir inngöngu Kína í alþjóðasamkomulagið
um tolla- og viðskiptamál, GATT, en þeir hafa
sett hörð skilyrði fyrir henni. Ella myndu Kínveij-
ar ekki standa við skuldbindingar í eldri viðskipta-
samningum sínum, að sögn Wu. Brown lét þetta
ekki á sig fá en sagði gestgjafa sína „tjá sig
skýrt og skilmerkilega". Hann sagði ágreininginn
blikna þegar hugað væri að bjartri framtíð í sam-
skiptum ríkjanna en Kína væri ekki enn reiðu-
búið að ganga í GATT.
Með samningi ríkjanna tveggja er stefnt að
aukinni samvinnu á ýmsum sviðum, s.s. í fjarskipt-
um, flugi, bílaframleiðslu og þjónustugreinum.
Einnig verður samstarf eflt í viðskiptum og stjórn-
un og skipst verður á upplýsingum um lagaleg efni.
Danmörk
Nyrup
boðar til
kosninga
Kaupmannahöfn. Reuter.
POUL Nyrup Rasmussen, for-
sætisráðherra Danmerkur, skýrði
frá því í gær að efnt yrði til þing-
kosninga 21. september. Tilkynn-
ing hans kom ekki á óvart þar sem
miklar vangaveltur hafa verið um
að Nyrup myndi flýta kosningun-
um sem að réttu lagi áttu að verða
í desember. Fjögurra flokka sam-
steypustjórn jafnaðarmannsins
Nyrups hefur átt erfitt uppdráttar
í skoðanakönnunum en á hinn bóg-
inn hefur Sósíalíski þjóðarflokkur-
inn, SF, bætt stöðu sína.
Talið er að Ny-
rup vilji reyna að
nýta sér að efna-
hagur Dana er í
flestu tilliti góður
og reyna að rétta
hlut stjórnarinnar
í stuttri en snarpri
kosningabaráttu.
Auk þess hefur SF
látið í það skína
að til greina komi
að mynda stjórn
með jafnaðarmönnum eftir kosn-
ingar og getur því verið að Nyrup
haldi stjórnarforystu þótt stjórnar-
flokkarnir verði fyrir einhveijum
skrokkskjóðum.
Vill halda áfram
„Stjórnin vill halda áfram starfi
sínu við að auka hagvöxt og draga
úr atvinnuleysi, ásamt því að við-
halda félagslegu velferðarkerfi og
bættu umhverfi svo að allir lands-
menn geti lifað betra lífi,“ sagði
ráðherrann á fréttamannafundi.
Uffe Ellemann-Jensen, leiðtogi
Venstre, var vígreifur. „Baráttan
verður rnilli rauðrar blokkar og
blárrar blokkar en við viíjum að
hún verði heiðarleg," sagði hann.
Nyrup
Rasmusseu
■ Jafnaðarmemi/27