Morgunblaðið - 30.08.1994, Síða 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 30. ÁGÚST 1994
MORGUNBLAÐIÐ
_____________________LISTIR
Alltaf nóg að gera
NICHOLAS Milton fiðluleikari og Nína Margrét Grímsdóttir
píanóleikari.
*
Listasafn Siguijóns Olafssonar
Lokatónleikar
sumarsins I
.
Hlín Pétursdóttir, sópr-
an, er komin með starfs-
samninga við óperuhús
í Sviss og Þýskalandi
fyrir næstu þrjú árín.
Anna Sveinbjarnar-
dóttir ræddi við söng-
konuna þegar hún heim-
sótti ísland nýverið.
Hlín lýkur prófi frá óperudeild
tónlistarháskólans í Hamborg í lok
þessa árs og er þegar komin með
samninga til ársins 1997. Henni var
boðið að syngja á árlegri ráðstefnu
óperustjóra frá Þýskalandi, Sviss og
Austurríki í Mannheim í júní sl. og
fékk þá boð um prufusöng í Bem,
Kaiserlautern og Stuttgart. Eftir
prafusöngin fékk hún samning á
öllum stöðunum þremur.
Hlín segir að það komi fyrir að
einum og einum nemenda úr tónlist-
arháskólanum í Hamborg sé boðið á
þessa árlegu ráðstefnu, en einnig
komi umboðsmenn frá Zentrale
Biihnen-, Film- und Femsehvermittl-
ung stundum í skólann og leiti að
fólki og bjóði því á ráðstefnuna.
Hlín hafði vakið athygli fyrir þátt-
töku í óperuuppfærslu á vegum skól-
ans á Brottnáminu úr kvennabúrinu
eftir Mozart og fengið jákvæða um-
fjöllun í þýskum dagblöðum. í gagn-
rýni Hamburger Abendblatt segir
m.a. að Hlín og annar söngvari, Jens
Larsen, beri af í uppfærslunni og í
Taz Hamburg að hún sýni frábæra
túlkun í hlutverki Blonde og heilli
áheyrendur með hreinum og geisl-
andi sóprantónum.
Að sögn Hlínar þurfti hún að
syngja fyrir yfirmenn skrifstofunnar
í höfuðstöðvunum í Frankfurt ásamt
fólki frá Þýskalandi, Sviss, Austur-
ríki og fleiri löndum. Alls sendi skrif-
Útvarpsþátt-
ur frumfhitt-
ur í Regn-
boganum
ÚTVARPSÞÁTTURINN Guð er
góður eftir Þorstein J. Vilhjálmsson
verður framfluttur í kvikmyndahús-
inu Regboganum fimmtudaginn 1.
september nk. Þetta er í fyrsta
skipti á íslandi sem þetta er gert
og er tilefnið stofnun Hljóðmynda-
verkstæðis Rásar 2.
Þátturinn er um hjónin Kristján
og Jóhönnu. Þau sitja inni í stofu
heima hjá sér og eru að rifja upp
atburði í lífi sínu með aðstoð segul-
bandstækis.
Á eftir frumflutningnum klukkan
17.00 verður þátturinn leikinn fjór-
um sinnum fyrir almenning, klukk-
an 19.00, 20.00, 21.00 og 22.00.
Þannig verður hægt að kaupa sig
inn á hann eins og hefðbundna
kvikmyndasýningu.
IJLPIJR
Útigallar, smekkbuxur
jogginggallar, flauels
og gallabuxur, smekk-
buxur o.f.l. Ný sending.
Bamafataverslunin
Bláskjár
Suðurlandsbraut 52
S: 37 600
stofan 15 söngvara á
ráðstefnuna í ár og var
Hlín önnur af tveimur
nemendum frá hennar
skóla sem var boðið.
Sviðsöryggi og
góður söngur
Að sögn Hlínar er
það mjög upp og ofan
hvort söngvarar fá síð-
an samning eftir að
hafa komið fram á ráð-
stefnunni. Hún bendir
á að þó að umboðs-
skrifstofan telji fólk til-
búið geti óperustjór-
amir verið á annarri
skoðun. Söngvararnir
þurfi að sýna sviðsöryggi og góðan
söng á örfáum mínútum eða þeim
tíma sem tekur að flytja tvær aríur.
Hlín bætir við að þeir sem útskrifist
frá óperudeild tónlistarháskólans í
Hamborg fái oftast einhveija vinnu
eftir útskrift en fólki þar þyki heil-
mikið til þess koma að hún sé kom-
in með fasta samninga. Sáralítið sé
af lausum stöðum og mikill niður-
skurður sé hjá þýsku leikhúsunum,
t.d. sé ekki ráðið í stöður sem losna.
Hlín segir að hún muni ljúka námi
fyrr en hún ætlaði. Venjan sé að
fólk fái frí þegar svona standi á en
henni hafi verið boðið að taka loka-
prófið milli jóla og nýárs og flytja
þá það efni sem hún er að fást við
fyrir fyrsta samninginn. Það er hiut-
verk Valeneienne í Kátu ekkjunni
og tvö minni hlutverk hjá óperanni
í Bern en Hlín fékk gestasamning
við þá óperu fyrir tímabilið desember
1994 tii júní á næsta ári.
Því næst tekur við tveggja ára
samningur við óperana í Kaiserlaut-
em og er búið að ákveða að hún
fari með hlutverk Despinu í Cosi fan
tutte og Adele í Leðurblökunpi fyrsta
árið. Að lokum gerði Hlín gesta-
samning við óperuna í Stuttgart til
tveggja ára, frá 1994 til 1996, og
mun hún koma fram í hlutverki
Ceprano greifynju í Rigoletto í 15
skipti hvort árið.
Mikil tilhlökkun
„Ég hlakka mikið til
að fara að vinna mína
vinnu. Þegar maður er
í námi er maður að frá
morgni til kvölds og tek-
ur öllum boðum.“ Hlín
segir að hún hafi haft
mikið að gera við tón-
leikahald alveg síðan
hún hóf nám í Hamborg
fyrir tveimur áram. Auk
þess hafi hún verið með
nemendur. Hún segist
vera mjög fegin að hafa
nýtt vel öll tækifæri sem
hún fékk í Hamborg en
glöð að geta nú einbeitt
sér að einu í einu.
Að sögn Hlínar hefur hún náð
samningum við mjög góð óperuhús.
Stærsta hlutverkið er í Bern. Stærsta
óperuhúsið er í Stuttgart og segir
Hlín hlutverkið þar agnarlítið en það
sé byijun. Hún voni að ný tækifæri
komi þegar þessari þriggja ára törn
sé lokið og hún geti haldið áfram
að starfa sem söngkona.
Að sögn Hlínar vildi hún verða
söngkona þegar sem barn. „Þegar
ég var sjö ára fór ég í óperuhús og
hlustaði á Carmen. Þá hugsaði ég
strax, þetta er það eina fyrir mig.“
Þegar hún var að vaxa úr grasi
beindust þó sjónir hennar að öðram
störfum. Um tíma var draumurinn
að verða dýralæknir og lengi var hún
að hugsa um að fara í bókmennta-
fræði og tungumálanám. „Ég ætlaði
að vera skynsöm og fara í Háskóla
íslands en síðan gekk söngurinn vel
og ég fór út í þetta.“
Hlín segir að henni líði mjög vel
í Þýskalandi. Hún sé hálfþýsk og
eigi þar skyldfólk. Samt fái hún allt-
af heimþrá á vorin og verði að kom-
ast til Islands að minnsta kosti einu
sinni á ári. Hún bætir við að það sé
ekki lokkandi að koma hingað eftir
að fá tækifæri til að syngja úti. Þar
sé markaðurinn stærri. Hún vilji
ekki með þessu gera lítið úr íslensku
tónlistarlíf! því að listgæðin séu ekk-
ert meiri í Þýskalandi en hér, þar
sé einfaldlega fleira fólk.
NICHOLAS Milton fiðluleikari og
Nína Margrét Grímsdóttir píanó-
leikari leika í Listasafni Siguijóns
Ólafssonar í kvöld 30. ágúst kl.
20.30. Á efnisskrá eru eftirtalin
verk: Vorsónatan eftir Ludwig van
Beethoven, Sónata fyrir fiðlu og
píanó eftir Claude Debussy og
Rapsódía nr. 1 fyrir fiðlu og píanó
eftir Béla Bartok.
Ástralsk-franski fiðluleikarinn
Nicholas Milton stundaði tónlist-
arnám við Sydney Conservatorium
og Victorian College of the Arts.
Hann kom til Bandaríkjanna árið
1987 sem gestanemi í boði Michig-
an State University og lauk mast-
ersnámi þar árið 1989. Nicholas
hefur unnið til margra verðlauna
m.a. gullverðlaun í Sleider fiðlu-
keppninni 1989, Naumburg Schol-
arship (1991) frá Juilliard tón-
listarskólanum og Felix Salzer
Technique of Music Award (1994)
frá Mannes College of Music í New
York.
Nicholas hefur komið fram víða
á einleiks- og kammertónleikum
m.a. í Weill hljómleikasalnum í
Camegie Hall og Avery Fischer
Hall í Lincoln Center iistamiðstöð-
inni í New York. Nicholas stundar j
nú doktorsnám í fiðluleik við City i
University of New York en starfar
að auki við Mannes College of
Music og New York Chamber
Symphony.
Nicholas Milton og Nína Mar-
grét hafa starfað saman í eitt ár
og komið víða fram á New York
svæðinu. Þau hafa verið ráðin sem
starfandi dúó (artist-duo-in-resid- j
ence) við Bloomingdale tónlistar-
skólann í New York.
íslensk jazzhátíð að hefjast
RÚREK jazzhátíðin 1994 verður
haldin dagana 4. til 10. september
nk. Heiðursgestur hátíðarinnar
era danski bassasnillingurinn Ni-
els-Henning 0rsted Pedersen og
kona hans Solveig, en þetta er í
níunda skipti sem Niels-Henning
kemur til íslands til tónleikahalds.
Hann leikur ásamt píanistanum
Ole Kock Hansen við opnun Rú-
Rek í útvarpshúsinu og eru ís-
lensk þjóðlög á efnisskránni.
Einnig mun hljómsveit Carls Möll-
ers leika við opnunina og syngur
Ellen Kristjánsdóttir með hljóm-
sveitinni.
Um kvöldið verða tónleikar trí-
ós Niels-Hennings í Súlnasal Hót-
el Sögu og bætist trommarinn
Alex Riel í hópinn. Þetta er sama
tríóið og Niels-Henning lék með
í Norræna húsinu í desember
1977, í fyrsta skipti sem hann
heimsótti ísland. Segja má að
þeir tónleikar hafí orðið upphaf
að hinni nýju jazzvakningu á ís-
landi.
Aðrir tónleikar
Auk tónleika Niels-Henning
verða tónleikar á Hótel Sögu
föstudagskvöldið 8. og laugar-
dagskvöldið 9. september. Á
föstudagskvöld leikur Stórsveit
Rykjavíkur undir stjóm banda-
ríska trommarans Bob Grauso og
samnorræni septettinn Jazz of
C-H-O-R-S. Lokatónleikar RúRek
verða á laugardagskvöld. Þar leik-
ur Tala tríóið tónlist af meiði
heimstónlistarinnar og kvartett
Archie Shepps blæs blúsaðan jazz
jafnt sem klassískan.
Hljómsveit Hilmars Jenssonar,
gítarleikara, ásamt Tim Berne,
leikur í í Tunglinu 6. september
og Mezzoforte ásamt norska saxo-
fónleikaranum Káre Kalve á sama
stað fimmtudagskvöldið 8. sept-
ember. Verður það upphafíð á
heimstónleikaferð þeirra 1994.
Smekkleysa kynnir svo David
Byrne á RúRek, en tvennir tón-
leikar verða með hljómsveit lians
í Háskólabíó, þar sem hann leikur
m.a. gömul Talking Head lög í
bland við nýjar tónsmíðar.
Kvartett Hilmars Jenssonar
Hilmar Jensson, gítarleikari,
hefur lengi verið í fremstu röð
íslenskra jazzleikara af yngstu
kynslóðinni og enginn annar ís-
lendingur hefur lagt jafn mikla
rækt við hinn nýja fijálsa jazz sem
er kenndur við menn á borð við
John Zom, Bill Frisell og Tim
Berne.
Hann dvaldist síðasta ár í New
York og lék með ýmsum þessara
manna og á RúRek mun hann
leika með Tim Beme altó- og
barrýtonsaxofónleikara, Chris
Speed tenórsaxofón- og klarinett-
leikara og Jim Blake trommuleik-
ara.
Chris Speed og Jim Blake hafa
komið til íslands tvisvar áður og
leikið með Hilmari og Skúla
Sverrissyni bassaleikara. Þeir
hafa einnig leikið undanfarið í
hljómsveit Tim Berne: Tim Ber-
ne’s Bloodcount. Tim Berne hefur
gefið út fjölda geislaplatna undir
eigin nafni og fékk sú síðasta,
Diminutive Mysteries, fjögurra og
hálfrar stjömu dóm í tónlistar-
tímaritinu down beat.
Archie Shepp kvartettinn
Arehie Shepp öðlaðist heims-
frægð er hann hljóðritaði Four for
Trane fyrir Impulse árið 1964. í
gegnum tíðina hefur tónlist Arc-
hie tekið miklum breytingum.
Hann hefur orðið fyrir áhrifum
frá blús og sól tónlist, bíboppi og
Chicagoframúrstefnu. Hann hefur
fyrst og fremst leikið með eigin
hljómsveitum en lék þó um tíma
með Lester Bowie og hefur hljóð-
ritað með m.a. Max Roach, Niels-
Henning og Horace Parlan, sem
er píanisti í kvartetti Archie. Bas-
saleikari kvartettins er Wayne
Dockery og trommari Steve
McCraven.
Stórsveit Reykjavíkur og
Jazz of C-H-O-R-S
Stórsveit Reykjavíkur leikur á
RúRek undir stjórn bandaríska
trommuleikarans og hljómsveitar-
stjórans Bob Grauso útsetningar
eftir hann. Bob Grauso lék um
tíma í Stórsveit bandaríska hers-
ins á Keflavíkurflugvelli og kynnt-
ist þá mörgum íslendingum og
kenndi ýmsum á trommur. Hann
gaf út hljómplötu með Gunnari
Ormslev og félögum þar sem hann
lék sjálfur á trommur.
Jazz of C-H-O-R-S er skipuð
sjö jazzleikuram frá höfuðborgum
Norðurlandanna fimm. Frá Kaup-
mannahöfn koma tenórsaxofón-
leikarinn Fredrik Lundin og gítar-
leikarinn Bjarne Roupé, sem er
þó sænskur en lék um margra ára
skeið með Stórsveit danska út-
varpsins. Frá Helsinki kemur
trommarinn Jukkis Uotila og frá
Osló kemur bassaleikarinn Carl
Morten Iversen. Frá Reykjavík
koma saxofónleikarinn Sigurður
Flosason og píanóleikarinn Eyþór
Gunnarsson, og frá Stokkhólmi
kemur trompetleikarinn Ulf Adá-
ker.
Ókeypis jazzklúbbar og
götujazz
Frá mánudegi til fimmtudags-/
kvölds verður jazz leikinn á Fóget-
anum, Horninu/Djúpinu, Kaffi
Reykjavík og Kringlukránni. Þar
koma fram margir þekktustu
jazzleikarar fslands. Til að lífga
uppá miðbæjarlífið mun hljóm-
sveitin kamivala leika á Ingólfs-
torgi og Stórsveit Rykjavíkur í
Ráðhúsinu.
Tónleikar á RúRek verða um
þijátíu og þeir sem Vilja hlusta á
allt þurfa að borga um 8.000 kr.
Seldir eru sérstakir afsláttarpakk-
ar á alla tónleika nema David
Byrne og Mezzoforte, og kostar
stykkið kr. 5.000. Forsala að-
göngumiða er í Japis, Brautaholti.
Morgunblaðið/Sverrir
Hlín Pétursdóttir