Morgunblaðið - 30.08.1994, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 30. ÁGÚST 1994 25
AÐSENDAR GREINAR
Um þjónustu-
gjöldbanka
Sölvi Eysteinsson
ÞAÐ ER víst að
bera í bakkafullan
lækinn að ræða um
gjaldskrá þá sem ís-
lenskir bankar hafa
nýlega ákveðið fyrir
þá þjónustu að geyma
fé landsmanna og
greiða það svo til baka
eftir þörfum við-
skiptavinanna gegn
ávísunum þeirra eða
debetkortaúttektum. í
Morgunblaðinu 24.
ágúst er greint frá því
að gíróreikningum
hafi fjölgað mjög upp
á síðkastið þar sem
fólk sætti sig mjög illa við auka-
kostnað af ávísana- og debetkorta-
viðskiptum. Þetta er ef til vill
kjarni málsins. Almenningi finnst
að bankamir eigi að geta haft það
mikinn hag af því að fá peninga
inn í bankana þótt þeir séu skuld-
bundnir til að greiða þá út án fyrir-
vara að þjónustugjöld fyrir færslur
af reikningum séu ekki einungis
Hefur Samkeppnis-
stofnun sagt sitt síðasta
orð um nákvæmlega
sömu gjaldtöku allra
banka? Þannig spyr
Sölvi Eysteinsson í
þessari grein. Ef bank-
arnir mega hafa samráð
af þessu tagi, hvers
vegna mega olíufélögin
það ekki, svo dæmi sé
tekið?
óviturleg, heldur og óréttmæt. Þau
er óviturleg vegna þess að þau
fæla almenning frá bönkunum, en
það ætti öllum lýðum að vera ljóst,
ekki síst bankamönnum, að án
viðskiptavina er lítill grunnur fyrir
rekstri. Bankarnir verða að laða
fé til sín til að geta lánað það út
aftur með hagnaði þeim sem fellst
í vaxtamun. Bankarnir eru hér á
mjög hálum ís því að þeir eru í
bullandi samkeppni við verðbréfa-
sjóði, þ. á m. ríkissjóð lands-
manna, sem draga orðið til sín
stóran hluta af sparnaði almenn-
ings. Bankarnir hafa því ekki efni
á því að fæla almenning burt með
fé sitt. Með gjaldtöku sinni fyrir
ávísana- og debetkortafærslur eru
bankarnir því að grafa sína eigin
gröf. Öll málsmeðferð
í sambandi við inn-
leiðslu debetkortanna
hefur verið eitt alls-
heijarxlúður og er
kominn tími til að
ráðamenn bankanna
viðurkenni þetta og
sjái sig um hönd. I
stað þess að koma á
beingreiðslum með
debetkortum með fyr-
irkomulalgi sem bæði
verslanir og almenn-
ingur gæti sætt sig
við og náð með því
hagræði sem væri
ótrúlega mikið bæði
fyrir almenning og bankana sjálfa,
fara bankarnir leið sem beinir
okkur marga áratugi til fortíðar.
Nú fer almenningur að nota seðla
í vaxandi mæli, sem hlýtur að
vera allra dýrasti miðillinn sem
fyrirfinnst í greiðslukerfi okkar.
Ekki fæ ég séð að talning seðla í
bönkunum sé ódýrari en færslur
á tölvuskjá. Seðlarnir eru dýrir í
framleiðslu og hljóta að vera þjóð-
hagslega miklu óhagkvæmari en
rafeindafærslur. Svo er verið að
reyna að telja fólki trú um að þjón-
ustugjöld bankanna í þessu efni
séu lægri hér en erlendis. Eg leyfi
mér að vefengja þetta. Að minnsta
kosti er það ekki svo í því landi
erlendis sem ég þekki best til,
Englandi. Nú fyrir nokkrum dög-
um tók ég heim með mér úr Nat-
ional Westminster Bank, sem er
einn af fímm stærstu bönkum
Englands, upplýsingar um þjón-
ustugjöld þar. Eftirfarandi er þýð-
ing á upplýsingum um kjör þeirra
sem hafa ávísanareikninga hjá
bankanum: Þeir sem hafa inn-
stæðu á reikningi sínum greiða
engin almenn þjónustugjöld. Ef
reikningurinn er í plús, þarf ekki
að greiða bankanum nein gjöld og
er þá eftirfarandi þjónusta alveg
ókeypis: Beingreiðslur með debet-
korti (Switch). Greiðslur reglu-
bundinna reikninga fyrir hönd við-
skiptavinarins. Notkun hrað-
banka, en flestir hraðbankar geta
líka gefíð upplýsingar um inn-
stæðu á reikningi og tekið við
pöntunum á reikningsyfírlitum og
tékkheftum. Notkun hraðbanka
annarra bankastofnana. Reikn-
ingsyfirlit með reglulegu millibili
eins oft og viðskiptavinurinn vill.
Ávísanahefti, inngreiðsluhefti og
veski eða klemma fyrir reiknings-
yfirlit. Símaþjónusta allan sólar-
hringinn fyrir þá sem hana kjósa.
Viðtalstímar við stjórnendur bank-
ans, t.d. ef viðskiptavinurinn vill
fá ráðleggingar af einhveiju tagi.
Allar venjulegar ráðleggingar og
aðstoð. Sérfræðiaðstoð við fjár-
Fyrir smærri fyrirtæki og heimili
• ASeins kr. 39.900 stgr.
i Verð áður kr. 49.900 stgr.
i Sjálfvirkur faxskynjari.
» FullkomiS símtæki meS skjámynd.
» 8 númera beinvalsminni o.m.fl.
f^SÍNWIRKINN
Símtœlq Hf.
Hátúni 6a, slmi 614040
festingu, eftirlaun og önnur mál.
Þjónustulína bankans — en um
hana er hægt að hringja ókeypis
til að fá svör við spurningum, at-
hugasemdum og kvörtunum sem
útibú viðskiptavinarins hefur ekki
getað greitt nægilega vel úr. Þar
að auki greiðir bankinn vexti af
innstæðum á tékkareikningum og
er þeim bætt við reikninginn í lok
hvers mánaðar. Ef viðskiptavinur-
inn tekur út meira en hann á inni,
þarf hann aftur á móti að greiða
bankanum ákveðið þjónustugjald
auk vaxta og eru þau kjör óhag-
stæðari ef hann hefur ekki til-
kynnt bankanum það fyrirfram. í
flestum tilfellum er þó hægt að
semja við bankann um yfírdráttar-
heimild að ákveðnu marki án þess
að greiða neitt fyrir hana, og þeg-
ar samið hefur verið um hana,
má nota hana eins oft og hver
vill án þess að spyija kóng eða
klerk. Hver var svo að reyna að
telja okkur trú um að þjónusta
erlendra banka væri dýrari en ís-
lenskra? Mér sýnist af þessu að
bankarnir hér gangi ótrúlega langt
í að reyna blekkja almenning um
þjónustugjöld erlendis. Það grát-
broslegasta við þetta er að þeir
skaða sjálfa sig mest en valda al-
menningi um leið ómældum óþæg-
indum. Er nokkur furða þótt bank-
arnir hafí mætt andstöðu við þetta
kerfí bæði í viðskiptaheiminum og
hjá almenningi og að Neytenda-
samtökin hafí látið málið til sín
taka? Að síðustu mætti svo spyija:
Hvar má finna samkeppni á milli
bankanna um þjónustu við al-
menning? Hefur Samkeppnis-
stofnun sagt sitt síðasta orð uin
nákvæmlega sömu gjaldtöku allra
banka fyrir að færa ávísanir og
greiðslur með debetkortum? Ef
bankarnir mega hafa samráð af
þessu tagi, af hveiju mega olíufé-
lögin það ekki, svo að dæmi sé
tekið? Spyr sá sem ekki veit.
Höfundur erkennarí við
Verzlunarskóla íslands.
Fimleikar — byggja upp
líkamann og gefa fallegar
hreyfingar og börn temja
sér holla lifnaóarhœtti
Vetrarstarfið er að fara í fullan gang og
í vetur verður KR með stúlknaflokka frá
5 ára aldri ásamt trompfimleikum.
Skráning og greiðsla staðfestingargjalda
ferframí KR-heimilinu þriðjudaginn 30.
og miðvikudaginn 31. ágúst milli kl. 16 og 19.
Upplýsingar í heimasíma 611247 (Sandra).
Athugið, sama verð og í fyrra!
Stjórn fimleikadeildar KR.
Þessi auglýsing er styrkt af Frísport, Laugavegi 6.
AUGLYSING
UM INNLAUSNARVERÐ
VERÐTRYGGÐRA
SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓÐS
FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ*) Á KR. 10.000,00
1984- 2.fl. 1985- 2.fl.A 1985-2.fl.B 10.09.94-10.03.95 10.09.94- 10.03.95 10.09.94- 10.03.95 kr. 79.152,80 kr. 50.049,40 kr. 27.223,60**)
*) Innlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbætur.
**) Við innlausn fylgi ógjaldfallnir vaxtamiðar spariskírteinis.
Innlausn spariskírteina ríkissjóðs fer fram í afgreiðslu
Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, og liggja þar jafnframt
frammi nánari upplýsingar um skírteinin.
Reykjavík, 30 ágúst 1994.
SEÐLAB ANKIÍSLANDS