Morgunblaðið - 30.08.1994, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
ÞRIÐJUDAGUR 30. ÁGÚST 1994 31
EIRIKUR KRISTOFERSSON
hæfa togarann, svo að þetta var í
rauninni slysaskot. En það hafði
mikil og góð áhrif. Erlendu togar-
arnir hættu ekki á að reyna að
komast undan okkur lengi eftir
þetta. Það var altalað meðal skip-
stjóranna að íslensku varðskips-
mennirnir væru hin mestu fól og
fantar; þarna hefðu þeir ekki hikað
við að skjóta á þýska togarann
miðjan!"
Sjötugur var Eiríkur talinn
óvinnufær, eins og nú er siðvenja,
þótt hann væri enn við hestaheilsu
og ætti ólifuð meira en þrjátíu ár.
Hann settist þó ekki í helgan stein,
þótt hann hætti hjá Gæslunni; eitt
sinn fór hann með togara til Þýska-
lands, tvívegis sigldi hann erlendum
fragtskipum út á land; hann lét sig
meira að segja hafa það að vera
kontóristi á fasteignasölu hálfan
daginn.
Þetta síðasta skeið ævinnar tekur
Eiríkur að sinna í ríkum mæli and-
legum málefnum, en honum var
gefin sterk skyggnigáfa í vöggu-
gjöf. Á miðilsfundi hjá Hafsteini
Björnssyni birtist honum framliðinn
læknir, Magnús Jóhannsson að
nafni, og bauð honum að hafa sam-
band við sig eins oft og hann vildi.
Eiríkur þáði boðið og tók að biðja
lækninn að hjálpa fólki, sem átti
við veikindi að stríða - með ótrú-
lega góðum árangri.
Fólk leitaði til hans unnvörpum,
sérstaklega árin sem hann dvaldi á
Hrafnistu. Náttborð hans var jafn-
an þakið minnismiðum með nöfnum
þeirra, sem hann hafði verið beðinn
um að biðja fyrir. „Ég tala við guð
og góðar verur á hveiju kvöldi,“
sagði hann. „Ég bið fyrir þeim, sem
óskað hafa eftir hjálp Magnúsar
læknis, og það hefur lánast vel í
mörgum tilvikum."
Eiríkur taldi að sér væri ætlað
að lifa útkomu nýrrar bókar um
sig, sem sá dagsins ljós í fyrra, en
síðan ekki söguna meir. Og hann
reyndist sannspár, eins og svo oft
áður. Honum þótti vænt um, hve
bókinni var vel tekið. Ég færði hon-
um jafnharðan gleðifregnir af góð-
um dómum og mikilli sölu; og hann
sagði mér í staðinn skemmtilegar
sögur af viðbrögðum vistmanna og
starfsfólks á Hrafnistu. „Nú er illt
í efni,“ sagði hann eitt sinn, en var
grunsamlega íbygginn á svip og
sposkur. „Ein af eftirlætis stúlkun-
um mínum kom til mín áðan gust-
mikil í fasi og glóandi af reiði.
„Réttast væri að ég hirti þig, Eirík-
ur,“ sagði hún. „Þú ert búinn að
gera stelpurnar hérna ódauðlegar í
þessari bókarnefnu þinni, en minn-
ist ekki einu orði á mig; ég sem
hef baðað þig og dekrað við þig í
mörg ár!“
Ég heimsótti Eirík síðast á af-
mælisdegi hans, 5. ágúst síðastlið-
inn. Hann var þá sárlasinn; hafði
ekki haldið niðri mat í fjóra sólar-
hringa og var með sáran verk fyrir
bijósti. Engu að síður spjallaði hann
við mig og spaugaði, eins og hann
var vanur. „Eg lofaði góðri vinkonu
minni hér á Hrafnistu um daginn
að ég skyldi heimsækja hana um
leið og ég væri allur,“ sagði hann.
„Hún fagnaði því, en spurði síðan,
hvernig hún gæti vitað að það væri
ég, sem til hennar kæmi, ef hún
yrði vör við eitthvað. „Ég ætla að
pota í naflann á þér,“ sagði ég; og
hún fór að skellihlæja.“
„Gamanmál eru nauðsynleg,"
sagði hann öðru sinni, „en að baki
þeim býr alvara lífs og dauða. Það
vitum við sjómennirnir betur en
aðrir.“
Um leið og ég votta aðstandend-
um dýpstu samúð, kveð ég Eirík
Kristófersson hinstu kveðju með
þakklæti fyrir of stutt en ógleyman-
leg kynni og ósk um vellíðan í nýrri
veröldi „Ég óttast ekki dauðann,“
sagði hann, „þvert á móti hlakka
ég til að fá að fara. Þá lýkur hér-
vistardögum mínum. Og annað líf
tekur við.“
Kveðja frá Skipsljórafélagi
íslands
Sextánda ágúst sl. andaðist Eirík-
ur Kristófersson skipherra, 102 ára
að aldri.
Eiríkur fór til sjós þegar á ung-
lingsárum eins og þá var títt og
byijaði sjómennsku sína á skútum
frá Patreksfirði. Hann lauk prófi frá
Stýrimannaskólanum í Reykjavík
1918 og var eftir það stýrimaður
og skipstjóri á ýmsum skipum til
ársins 1924, en eftir það var hann
allan sinn starfsaldur á skipum
Landhelgisgæslunnar, lengst af
skipherra. Hann lét af störfum þar
haustið 1962.
Eiríkur var einn af stofnendum
Skipstjórafélags íslands 16. apríl
1936, og er hann síðasti stofnfélagi
þess sem kveður þennan heim. Hann
var í stjórn félagsins frá 1953 til
1962 og fulltrúi þess á þingum
FFSÍ og í Sjómannadagsráði um
árabil.
Eiríkur sýndi stéttarfélagi sínu
mikla ræktarsemi alla tíð og í eigu
félagsins er nú safn hæstaréttar-
dóma, Sjómannablaðið Víkingur frá
upphafi, hluti af bréfasafni hans og
bestik sem hann notaði í Stýri-
mannaskólanum. Allt eru þetta
ómetanlegir hlutir er stundir liða. Á
fimmtíu ára afmæli Skipstjórafélags
íslands árið 1986 var Eiríkur gerður
að heiðursfélaga þess.
Eiríkur varð þjóðsagnapersóna í
lifanda lífi fyrir ötula framgöngu
sína, hnyttin tilsvör og hyggindi við
landhelgisstörf og björgun skipa.
Þótt kunnur sé hann fyrir fram-
göngu sína í átökunum við Breta,
þegar fiskveiðilögsagan var færð
út í 12 sjómílur 1958, ber þó hæst
aðstoð hans og björgun á skipum
og mönnum, en alls átti hann þátt
í að aðstoða og bjarga 640 skipum,
bátum og áhöfnum þeirra úr sjávar-
háska, þar sem oft var tvísýnt um
líf eða dauða. Fyrir störf sín var
Eiríki sýndur margvíslegur sómi og
sæmdur fjölda heiðursmerkja, ís-
lenskra og erlendra.
Eiríkur hafði dulræna hæfileika
og oft bar fyrir hann það sem ekki
verður skýrt eða skilgreint á venju-
legan hátt úr umhverfinu. Sjálfur
taldi hann að margt af því sem
hann fékk vitneskju um eftir dular-
leiðum hafi komið sér að gagni og
oft ráðið úrslitum um árangur sinn
á sjónum.
Ég, sem þessar línur rita, var svo
heppinn að byija mína sjómennsku
með Eiríki og hans góðu áhöfn á
vs. Þór árið 1956 og hlaut þar mína
fyrstu kennslu í starfí sem ég valdi
mér að ævistarfi. Eiríkur var af-
bragðs góður sjómaður og stjórn-
andi, þar fór saman kapp og reynsla
sem hann lærði að nýta sér í ára-
tuga skipstjórn sinni.
Ég hélt alla tíð sambandi við Ei-
rík og heimsótti hann á Hrafnistu
í Hafnarfirði þar sem hann dvaldi
síðustu árin. Það gladdi hann alltaf
að fá heimsóknir og hann rifjaði oft
upp gamlar minningar frá fyrri
árum, en hann var hafsjór af fróð-
leik og naut þess að segja frá í
góðu tómi.
Það er löng léið að baki frá
Brekkuvelli á Barðaströnd þar sem
lagt var upp 5. ágúst 1892, í Hrafn-
istu þar sem ferðinni lauk 16. ágúst
1994. Þegar ég leit til Eiríks sl. vor
talaði hann um að ævin væri orðin
nokkuð löng og senn færi að stytt-
ast hjá sér í þessu jarðlífi, fyrir sig
væri það eins og að stíga yfir þrö-
skuld, svo sannfærður væri hann
um annað líf. Eiríkur var furðu ern
og hélt virðingu sinni og reisn alla
tíð.
Ég kveð Eirík Kristófersson skip-
herra með söknuði og virðingu, mér
reyndist hann alla tíð sannur dreng-
skaparmaður. Fyrir hönd Skip-
stjórafélags íslands þakka ég sam-
fylgdina og velvilja hans í garð fé-
lagsins. Þar sem góðir menn fara,
þar eru guðs vegir. Aðstandendum
hans votta ég samúð.
Heiðar Kristinsson, formaður
Skipstj órafélags íslands.
í dag verður til moldar borinn frá
Hallgrímskirkju Eiríkur Kristófers-
son, fyrrum skipherra hjá Landhelg-
isgæslunni. Eiríkur var um áraraðir
einn af ötulustu skipherrum Land-
helgisgæslunnar og gætti laga og
réttar íslensku þjóðarinnar á úthaf-
inu með festu og skörungsskap. Ég,
sem þessar línur rita, átti því láni
að fagna að byija mín fyrstu sjó-
mannsspor hjá Landhelgisgæslunni
undir stjórn Eiríks Kristóferssonar
árið 1946 á Óðni litla, eins og hann
var seinna kallaður. Öðinn var tré-
skip, smíðaður á Akureyri 1939 og
mældist 72 tonn. Á þeim tíma var
fiskveiðilandhelgin þijár sjómílur og
tugir erlendra fiskiskipa að veiðum
allt í kringum landið. Þótt vera mín
á Óðni, undir stjóm Eiríks, yrði
ekki löng að þessu sinni, áttum við
seinna meir eftir að sigla mikið sam-
an á varðskipunum Þór og Óðni III.
Eins og ég gat um í upphafi, sýndi
Eiríkur festu og skörungsskap í
starfí sínu sem skipherra. Það var
eitt af einkennum hans að ef hann
kom að erlendu skipi innan íslenskr-
ar landhelgi, og það hafði ekki uppi
þjóðfána sinn, var því tafarlaust
skipað að heisa þjóðfánann. Man
ég ekki til þess í eitt einasta skipti
að það liði langur tími áður en þjóð-
fáni viðkomandi skips væri kominn
að húni.
Eiríkur var trúaður maður og
taldi ýmsar góðar vættir stjórna
aðgerðum sínum, bæði til varnar
landhelginni og björgun manna úr
sjávarháska. Hann var óspar á að
segja okkur yngri mönnunum frá
ýmsum atburðum í starfi sínu sem
tengja mátti hinum ósýnilegu öflum
sem hann taldi sig standa í þakkar-
skuld við vegna margra giftusam-
legra bjargana sem hann hafði átt
þátt í. I daglegri umgengni var Ei-
ríkur hæglátur maður en gat þó
látið hvessa ef honum mislíkaði störf
eða framkoma manna. Það var oft
glatt á hjalla í messanum þegar
menn söfnuðust þar saman yfir
kvöldkaffinu og urðu þess heiðurs
aðnjótandi að hlusta á þá félagana
Eirík skipherra, Kristján Siguijóns-
son yfirvélstjóra og Steingrím Matt-
híasson loftskeytamann ræða sam-
an um lífíð og tilveruna, því þeir
voru oftast á öndverðum meiði, sem
gerði umræðumar enn líflegri. Þar
flugu oft hnyttileg tilsvör milli þess-
ara öldnu kempna, viðstöddum til
mikillar ánægju og urðu ýmis tilsvör
þeirra fleyg um varðskipaflotann.
En allt var þetta græskulaust gam-
an og enginn fór sár úr þessum
umræðum.
Eiríkur var góður sjómaður og
fór vel með skip og skipshöfn þegar
sigldur var krappur sjór. í tóm-
stundum sínum um borð stundaði
hann lestur góðra bóka. Áttu varð-
skipin þá góð bókasöfn sem þeim
hafði áskotnast í gegnum árin frá
velunnurum Landhelgisgæslunnar
sem árlega sendu eina eða fleiri
bækur í safnið. Um borð í þeim
varðskipum sem Eiríkur stjómaði
sá hann um vörslu bókasafnsins og
var vel passað upp á bækurnar og
þær meðhöndlaðar af mikilli um-
hyggju.
Um ævi og lífsstarf Eiríks hafa
verið skrifaðar þtjár bækur og getur
hver sá sem þær les séð hversu lit-
ríkt og afkastamikið æviskeið Eiríks
var.
Um leið og ég votta börnum og
öðrurn aðstandendum Eiríks Kristó-
ferssonar mína innilegustu samúð,
bið ég Guð um að blessa minningu
hinnar öldnu kempu sem nú er horf-
in sjónum.
Helgi Hallvarðsson.
INNLAUSNARVERÐ
VAXTAMIÐA VERÐTRYGGÐRA
SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓÐS
Í2.FL.B1985
Hinn 10. september 1994 er átjándi fasti gjalddagi vaxtamiða verðtryggðra
spariskírteina ríkissjóðs í 2. fl. B 1985.
Gegn framvísun vaxtamiða nr. 18 verður frá og með 10. september n.k. greitt sem hér segir:
Vaxtamiði með 50.000 kr. skírteini = kr. 4.491,90
Ofangreind fjárhæð er vextir af höfuðstól spariskírteinanna fyrir tímabilið
10. mars 1994 til 10. september 1994 að viðbættum verðbótum sem fylgja hækkun
sem orðið hefur á lánskjaravísitölu frá grunnvísitölu skírteinanna.
Athygli skal vakin á því að innlausnarfjárhæð vaxtamiða breytist aldrei eftir gjalddaga.
Innlausn vaxtamiða nr. 18 fer fram gegn framvísun þeirra í afgreiðslu Seðlabanka íslands,
Kalkofnsvegi 1, Reykjavík og hefst hinn 12. september 1994.
Reykjavík, 30. ágúst 1994.
SEÐLAB ANKIÍSLANDS
Mciga FLÍSÁR
rr m i rm
M rh ! . uwu 9
P5 11 nnPRir UIVILLU hinia
□E ni □ □jj LLJ
Stórhöfða 17, vtð Gullinbrú,
sími 67 48 44
Bílamarkadurinn
Kopavogi, sími
571800
Renault Clio RN '93, rauður, 5 g., ek. 24
km. V. 820
MMC Canter 3 tonna '87, diesel, 5 g.,
ek. 83 þ. km. Ath. með krana og sturtu.
V. 1.280 þús.
Cherokee Laredo 4.0 L '90, sjólfsk., ek.
88 þ. km., álfelgur, rafm. í rúöum o.fl. V.
1.950 þús. Sk. ód.
Suzuki Sidekick JLX '91, 4ra dyra, rauð-
ur, 5 g.t ek. 61 þ. km., 30" dekk, rafm. í
rúðum o.fl. Fallegur jeppi. V. 1.650 þús.
Honda Civic LSI '92, rauður, sjólfsk., ek.
18 þ. km., rafm. í rúðum o.fl. Toppeintak.
V. 1.180 þús.
Cherokee Laredo 4.0 L '88, blár, sjálfsk.,
ek. 113 þ. km., sóllúga, ólfelgur, m/spili
o.fl. V. 1.550 þús.
Chevrolet Blazer S-10 4.3I '88, sjálfsk.,
ek. 105 þ. Toppeintak. V. 1480 þús.
Daihatsu Feroza special EL-II EFI '90, 5
g., ek. 34 þ. km., hvítur, toppeintak.
V. 1.150 þús.
Fiat Uno 455 '91, 5 dyra, blár, 5 g., ek.
33 þ. km. V. 490 þús.
Ford Orion 1600 CL Sedan '87, rauður
sjálfsk., ek. 100 þ. km. V. 370 þús.
Honda Civic GTI 16v '88, 5 g., ek. 98 þ.
km., sóllúga o.fl. V. 690 þús.
Honda Civic GLI '90, rauður, 5 g., ek. 78 «
þ. km., sóllúga, spoiler o.fl. V. 800 þús.,
sk. ód.
Honda Prelude EXi '92, sjálfsk. m/öllu,
ek. 55 þ. km. V. 1.950 þús.
Honda Civic GL Sport '90, 5 g., ek. 76
þ. km. V. 750 þús.
Isuzu Rodeo LS V6, '91, grænsans.,
sjálfsk., ek. 65 þ., sóllúga, rafm. í öllu,
ólfelgur, útvarp+geislasp. Vandaður jeppi.
V. 2.450 þús. Góð lán.
Mazda 323 F 16v Fastback, 5 dyra, 5 g.,
ek. 52 þ. km., m/öllu. V. 1.150 þús.
Mazda 323 LX '90, 3ja dyra, 5 g., ek. 59
þús. km., álfelgur o.fl. V. 630 þús.
MMC Lancer GLX '89, 5 g., ek. 67 þ.
km., rafm. í rúðum o.fl. V. 690 þús.
MMC L-300 minibus 4x4 '93, 5 g., ek. ,
aöeins 10 þ. km., rafm. í rúðum o.fl.
V. 2.250 þús. Sk. ód.
MMC Lancer GLXi hlaðbakur '91, rauð-
ur, sjálfsk., ek. 71 þ. km., rafm. í öllu o.fl.
V. 990 þús.
MMC Colt GL '90, 5 g., ek. 80 þ. km., v
V. 650 þús. Einnig MMC Colt GLX '89, T
ek. 94 þ. km., rafm. í rúðum o.fl.
V. 590 þús.
MMC Galant GLXi Super salon hlaðbak-
ur '92, sjólfsk., ek. 32 þ. km. Einn m/öllu.
V. 1.590 þús., sk. ód.
MMC Lancer GLXi hlaðbakur '92, grá-
sans, sjólfsk., ek. aöeins 13 þ. km., rafm.
i öllu o.fl. V. 1180 þús.
Nissan Sunny 2000 GTI '92, 5 g., ek. 40
þ. km., sóllúga, rafm. í öllu, ABS o.fl.
Peugout 106 XR '92, 5 g., ek. 46 þ. km.
V. 680 þús.
Peugout 205 GTi 1.9 '89, 5 g., ek. 90 þ.
km., sóllúga, rafm. í öllu, álfelgur o.fl.
V. 850 þús.
Peugout 205 Junior '91, dyra, ek. 35 þ.
km. V. 490 þús.
Subaru XT Coupó Turbo 4x4 '86, 2ja
dyra, sjálfsk., ek. 100 þ. km. V. 650 þús.
Subaru Justy J-10, '88, 5 g., ek. 78 þús.
km. V. 420 þús. stgr.
Subaru Station '87, blár, 5 g., ek. 109
þ. km. Toppeintak. V. 680 þús.
Fjöldi bfla á skrá
og á staðnum.
Gylfi Gröndal.