Morgunblaðið - 30.08.1994, Side 34
34 ÞRIÐJUDAGUR 30. ÁGÚST 1994
MORGUNBLAÐIÐ
ALDARMIIMNING
t
Eiginmaður minn og faðir okkar,
BENEDIKT F. ÞÓRÐARSON
fv. sendibflsstjóri,
Álftamýri 26,
Reykjavik,
andaðist í Landakotsspítala aðfaranótt
sunnudagsins 28. ágúst.
Jarðarförin auglýst síðar.
Guðný Jónsdóttir og börn.
t
Elskulegur eiginmaður minn og bróðir okkar,
BJÖRN EINARSSON,
Kleppsvegi 120,
Reykjavík,
andaöist í Borgarspítalanum laugardaginn 27. ágúst.
Gertrud Einarsson,
Halla Einarsdóttir,
Jónas Einarsson,
Ingimar Einarsson.
t
Ástkær eiginmaður minn,
ÞÓRÐURKÁRASON
fyrrverandi
lögregluvarðstjóri,
Sundlaugavegi 28,
Reykjavík,
andaðist á heimili sínu 29. ágúst.
Elin Gísladóttir.
t
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi,
SIG. GUNNAR SIGURÐSSON
fyrrverandi
varaslökkviliðsstjóri,
andaðist aðfarariótt 29. ágúst.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Guðmundur Sigurðsson, Helga Halldórsdóttir,
Sigurður Ágúst Sigurðsson, Guðrún B. Björnsdóttir
og barnabörn.
t
Móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma,
KRISTÍN ARNGRÍMSDÓTTIR,
sem andaðist á dvalarheimilinu Dalbæ, Dalvík, 23. ágúst, verður
jarðsungin frá Dalvíkurkirkju miðvikudaginn 31. ágúst kl. 14.00.
Sigrún Jónsdóttir, Eiríkur Jónsson,
Ásdis Jónsdóttir,
Gunnþóra Jónsdóttir,
Sveinn Jónsson, Auður Kinberg,
Ingigerður Jónsdóttir, Þorvaldur Baldvinsson,
Arngrímur Jónsson, Gigja Kristbjörnsdóttir,
Gunnar Jónsson, Alice Christensen
og ömmubörn.
Ástkær móðir okkar,
LÁRA JÓHANNSDÓTTIR
frá Laugum,
Karfavogi 36,
lést á hjúkrunarheimilinu Eir mánudag-
inn 29. ágúst.
Ólöf H. Agústsdóttir,
Jóhann Ágústsson,
Halldóra Agústsdóttir,
Andrés M. Ágústsson.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi, langafi og tengdasonur,
SIGURÐUR ÖRN HJÁLMTÝSSON,
Fannafold 10,
Reykjavík,
sem lést í Landspítalanum 20. ágúst
sl., verður jarðsunginn frá Garðakirkju
miðvikudaginn 31. ágúst kl. 14.00.
Þeim, sem vildu minnast hins látna, er
bent á Félag nýrnasjúkra.
Erna Árnadóttir Mathiesen,
Árni Matthfas Sigurðsson, Eygló Hauksdóttir,
Valgerður Sigurðardóttir, Friðbjörn Björnsson,
Hjálmtýr Sigurðsson, Helga G. Guðmundsdóttir,
Hrafnhildur Sigurðardóttir, Lárus Bjarnason,
Svava E. Mathiesen,
barnabörn og barnabarnabörn.
ÞORBJORG AGUSTINA
EGGERTSDÓTTIR
ÞEGAR við minnumst
elskulegrar ömmu okk-
ar, Þorbjargar Ágústínu
Eggertsdóttur, sem
hefði orðið 100 ára í
dag, 30. ágúst, er okkur
efst í huga þakklæti
fyrir umhyggju hennar.
Gústa amma fæddist
að Hafurstöðum í Kol-
beinsstaðahreppi. Hún
var fjórða barn í röð
ellefu systkina. Móðir
hennar, Rósa Helga-
dóttir, fæddist að
Glammastöðum í
Svínadal árið 1867 og
faðir hennar, Eggert
Benjamínsson, fæddist 1857 að
Hömrum í Hraunhreppi í Mýrasýslu.
Rósa var mikil búkona, ættfróð með
afbrigðum og vinnusöm. Sagt var
að hún hafi gengið pijónandi frá
Hrófbjörgum að Hafurstað og var
sú vegalengd talin vera fjögurra tíma
röskur gangur. Eggert hafði yndi af
ljóðum og var sjálfur hagmæltur.
Hann orti vísur við ýmis tækifæri
og var bæði fróðleiksfús og sískrif-
andi hugleiðingar og drög að sögum.
Hann orti vísur um börnin sín og í
vísunni um ömmu kemur fram að
Þorbjörg hafi verið þæg og hlýðin
og iðin við að pijóna. Það þarf því
engan að undra að amma skyldi
kenna okkur barna-
börnunum að pijóna.
Handbragð hennar var
allt yfirvegað og var
hún listakona með
pijónana sína. Amma
kenndi okkur einnig
lestur og skrift og að
biðja bænir og þakka
Guði.
Um tvítugt fluttist
amma til Reykjavíkur
og vann ýmis þjónustu-
störf. Áð Uppsölum
starfaði hún við fram-
reiðslustörf og minntist
hún oft með gleði
ýmissa kunningja frá
þeim tíma. Nokkrum árum eftir að
amma fluttist í höfuðborgina fluttust
foreldrar hennar og sumt af frænd-
fólkinu til Hafnarfjarðar. En það kom
oft fyrir að amma lagði á sig að
ganga á milli Reykjavíkur og Hafnar-
fjarðar til þess að njóta áhugamála
sinna þar, en hún hafði yndi af að
spila á spil.
Einn bróðir hennar gerðist at-
vinnubílstjóri og eftir að hann eign-
aðist bifreið fóru þau iðulega sam-
ferða í Fjörðinn og var ævintýrablær
yfir þeim minningum hennar.
Amma og Karl Vilhjálmsson eign-
uðust eina dóttur, Guðnýju Vilhelm-
ínu, árið 1922.
t
Föðurbróðir okkar,
ÓLAFUR BRIEM
fyrrverandi menntaskólakennari,
Laugarvatni,
lést á heimili sínu sunnudaginn 28. ágúst.
Katrin, Ólöf og Brynhildur Briem.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma og langalangamma,
VALGERÐUR GUÐNÝ
ÓLADÓTTIR,
Álftamýri 4,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju
miðvikudaginn 31. ágúst kl. 13.30.
Friða Margrét Guðjónsdóttir, Ólafur Bjarnason,
Garðar Guðjónsson, Guðlaug Haraldsdóttir,
Magnús Guðjónsson,
Hannes Guðnason, Erla Bjarnadóttir,
Friðgeir Guðnason, Kristín Ragnarsdóttir,
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabörn.
+
Innilegar þakkir færum við öllum þeim,
sem sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför eiginkonu minnar, móð-
ur okkar, tengdamóður, ömmu og
langömmu
MARGRÉTAR EYJÓLFSDÓTTUR,
Eystra-íragerði,
Stokkseyri.
Jón Kristinsson,
Ólaffa Kristín Jónsdóttir, Sigurjón Jónsson,
Hafsteinn Jónsson, Erla Karlsdóttir,
Gylfi Jónsson, Dagbjört Gísladóttir,
Ófeigur Jónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug við andlát og útför
ÓSKARSPÁLS
ÁGÚSTSSONAR,
Mánagötu 5,
Reykjavík.
Ágúst Óskarsson, Ragnheiður Guðjónsdóttir,
Guðmundur Óskarsson, Anna Lilja Kjartansdóttir,
Ingibjörg Óskarsdóttir, Geoffrey Shelton
og barnabörn.
Guðný var ömmu sannkallaður
sólageisli og var mjög kært á milli
þeirra alla tíð. Guðný giftist Ágústi
Óskari Sæmundssyni, rafvirkja-
meistara, og eignuðust þau börnin
Álfrúnu Eddu, Daða, Gústaf Þór,
Hrönn, Barða, Auði Björk og Hörð.
Amma hélt verndarhendi yfir barna-
hópnum og hlúði vel að öllum enda
gjöful og ástrík að eðlisfari. Hún bjó
að Skólabraut 1 á Seltjarnarnesi, að
heimili foreldra okkar. Á sjötta ára-
tugnum opnuðu dóttir hennar og
tengdasonur matvöruverslun á jarð-
hæðinni. Mæðgurnar sáu um rekstur
og afgreiðslu og vildi amma hafa röð
og reglu á öllum hlutum. Hún vann
öll sín störf vel og hljóðlega. Hún
hafði alveg sérstakt lag á börnum
og ef hún gat ekki breytt gráti í
gleði með sinni Ijúfu lund, þá gat
það enginn.
Hún tók á móti mörgum börnum
í fjölskyldu sinni og vakti yfir þeim
fyrstu stundimar í lffi þeirra og hefðu
ljósmóðurstörf eflaust hentað henni
vel. Amma hafði yndi af blómum og
var natin við þau eins og börnin.
Hún tók ríkan þátt í uppeldi okkar
og hafði mótandi áhrif á viðhorf og
skoðanir okkar barnabarnanna.
Margs er að minnast frá þessum
ámm, bæði frá leikjum og fjölbreytt-
um störfum. Það var t.d. stór dagur
í lífi okkar þegar farið var með þvott
í Þvottalaugarnar og nesti tekið með
því að staðið var allan daginn við
þvotta. Einnig voru eftirminnilegir
dagar þegar farið var með Laxfossi
í Borgames og haldið að Lækjarkoti
þar sem frændfólk ömmu bjó.
Amma er okkur ógleymanleg,
einkum fyrir það hve kvik hún var
í hreyfingum, létt í lund, elskuleg
og gjöful -kona sem bar höfuðið hátt
fram á elliár, fríð og fínleg. Hún var
draumspök og glúrin að ráða eigin
drauma og annarra. Hana dreymdi
að hún næði ekki áttræðisaldri og
var búin að undirbúa jarðarför sína
þegar kallið kom. Hún vildi fá að
sofna svefninum langa heima og
varð henni að ósk sinni en hún fékk
hvíldina í örmum elsta bamabarns
síns, sem hún tók á móti í þennan
heim þijátíu árum áður.
Gústa amma sótti styrk og kraft
í trúna og var lífinu þakklát fyrir allt
og fór reglulega í Dómkirkjuna. í til-
veru hennar voru Passíusálmarnir
fastur punktur og las hún þá sjálf
meðan á upplestri úr hljóðvarpi stóð.
Biblían var henni kær og drógum við
bamabömin svokallaða gimsteina,
þ.e. texta á litlum spjöldum og las
hún fyrir okkur og útskýrði boðskap
þeirra. Hún trúði að hin hvítu öfl
myndu sigra að lokum og á kvæði
Snorra Hjartasonar, um ungu móður-
ina, því vel við hugmyndir ömmu um
von og trú en það er svona:
Fegurð og góðvild
þetta tvennt og eitt
hvað er umkomulausara
í rangsnúnum heimi
Og þó mest af öllu
og mun lifa allt
Við minnumst ömmu og þökkum
henni það sem hún kenndi okkur og
fyrir þá trú og ástríki sem hún inn-
rætti okkur.
Guð blessi minningu elskulegrar
ömmu.
Barnabörn.
Blömastofa
Friöfinns
Suðuriandsbraut 10
108 Reykjavík. Sími 31099
Opiööllkvöld
til kl. 22,- einnig um helgar.