Morgunblaðið - 30.08.1994, Blaðsíða 46
46 ÞRIÐJUDAGUR 30. ÁGÚST 1994
MORGUNBLAÐIÐ
Grínsmellur sumarsins
GULLÆÐIÐ
(City Slickers II)
Hvað gerir maður þegar hálffúið og hundgamalt
fjársjóðskort dettur út úr hatti gamals leiðinda-
skarfs sem liggur grafinn einhvers staðar úti í
óbyggðum?
Auðvitað byrjar maður að grafa! Það gera félag-
arnir Billy Crystal, Jon Lovitz og Daniel Stern í
þessari líka eiturhressu gamanmynd sem alls
staðar fær mikla aðsókn og góða dóma.
Sýnd kl. 4.50, 6.55, 9 og 11.05.
STJÖRNUBÍÓLÍNAN Sími 991065,Verð kr. 39,90 mínútan.
Taktu þátt í spennandi kvikmyndagetraun.
Verðlaun: Bíómiðar, City Slickers-bolir, hattar og klútar.
AMANDA
VERÐLAUNIN
1994
BESTA MYND
NORÐUR-
LANDA
MUNIÐ EFTIR BARNA-
LEIK BlÓDAGA -
Á SÖLUSTÖÐUM
PEPSI UM LAND ALLT!
SÝND I A-SAL
KL. 5 og 7.
B-SAL kl. 9 og 11.
í l < »G\rI»U 0
AKUREYRI
'rJason
’man
NVIi
FJÖGUR BRÚÐKAUP OG JARÐARFÖR
BLÓRABÖGGULLINN
KIKA
Guðdómlegur gleðileikur með Hugh Grant,
Andie McDowell og Rowan Atkinson.
Vinsælasta mynd Breta fyrr og síðar.
Sýnd kl. 4.45, 6.50, 9 og 11.15.
„Stórfyndin og vel gerð mynd, þrjár
stjörnur" Ó.H.T. Rás 2.
Sýnd kl. 9 og 11.15.
Ný fersk, heit og ögrandi mynd frá
Almodóvar (Konur á barmi taugaáfalls, Bittu
mig, elskaðu mig og Háir hælar.) B. i. 16 ára.
Sýnd kl. 4.50, 6.50, 9 og 11.10.
STEINALDARMENNIRNIR
FRONSK KVIKMYNDAVIKA
NÆRMYND: ALAIN ROBBE-GRILLET
í kvöld kl. 9.10, L'lmmortale frá 1963. Dularfull mynd um mann
sem reynir aö nálgast unga konu sem
reynist ekki vera af sama heimi og hann.
16 mm enskur texti.
H^hreyfimynda-
ílagiö
Arnold Schwarzenegger, Jamie Lee Curtis og Tom Arnold
koma hér í mögnuðustu spennu- og hasarmynd ársins. James
<" .......~,,s>
HÁSKOLABÍÓ
SÍMI 22140
Háskólabíó
STÆRSTA BÍOIÐ. I
ALLIR SALIR ERU I
FYRSTA FLOKKS. I
0 I CICAll>íí a
AKUREYRI
Sjáðu Sannar lygar i DTS Digital
^ J/' our Weddings
and a Funeral .
Cameron magnaðasti spennumyndaleikstjóri okkar tíma.
Sýnd kl. 4.50, 6.20, 8.50 og 11.15. B. i. 14 ára.
Hafró bar sigur úr býtum
►HIÐ árlega knattspyrnumót rannsóknastofnana atvinnu-
veganna var haldið að Tungubökkum í Mosfellsbæ hinn
átjánda ágúst síðastliðinn. Fjórar stofnanir sendu lið í
keppnina: Rannsóknastofnun landbúnaðarins, Rannsókna-
stofnun byggingariðnaðarins, Rannsóknastofnun fiskiðnað-
arins og Hafrannsóknastofnun. Skemmst er frá því að
segja að Hafrannsóknastofnun sýndi góða takta, skoraði
alls ellefu mörk en fékk aðeins á sig eitt og sigraði með
yfirburðum. Liðsmenn Hafrannsóknastofnunar voru f.v.:
Þorsteinn Guðnason, Magnús Ólafsson, Björn Gunnarsson,
Höskuldur Bjarnason, Kristján Kristinsson, Agnar Stein-
arsson, Tómas Gísiason fyrirliði, Jón Sólmundsson og síð-
ast en ekki síst markakóngurinn Guðjón Ingi Eggertsson.
NVJA
KEFLAVÍK SÍMI 11170
Allar upplýsingar fást í síma 11170
III llll IIIIIMIII lllll IIIIIIIIIIIII =
Don Quixote í leikstjórn
Orson Welles frumsýnd
KVIKMYND eftir Orson Wel-
les sem legið hefur í van-
rækslu í kjallörum og geymsl-
um í mörg ár hefur loks verið
frumsýnd fjórum áratugum
eftir að leikstjór-
inn frægi byijaði
að vinna að
henni. Kvik-
myndin nefnist
„Don Quixote“ og
er gerð eftir sögu
Miguels Cervant-
es frá sautjándu
öld. Hún var gerð
á kostnað Welles
á fímmtán ára
tímabili og fékk
mjög góðar und-
irtektir frá hátíð-
argestum á hinni
árlegu Edin-
burgh-kvikm-
yndahátíð. Ófull-
gerð mynd eftir
Welles um flóra
menn á fleka í
Brasilíu sem
nefnist It’s all
true, var einnig
frumsýnd í Edin-
burgh I síðustu
viku;
„Ég er mjög
ánægður með að við skyldum
velja Edinburgh fyrir frum-
sýninguna. Áhorfendur voru
mjög þakklátir og sumir grétu
jafnvel í anddyrinu eftir sýn-
inguna,“ sagði Juan Amal-
bert, sem er ábyrgur fyrir
dreifingu Don Quixote. „Þetta
er kannski ein áhrifamesta
mynd sem Welles hefur gert
og almenningur verðskuldar
að sjá og njóta hennar.“
Eins og í sögu Cervantes
ræðst Don Quixote til atlögu
við vindmyllur sem hann
ruglar saman við risa og ræðst
á fjárhóp eins og um fjand-
samlegan her sé að ræða. En
Welles stillir hinum hugumpr-
úða riddara einnig upp á Spáni
sjöunda áratugarins þar sem
hann mætir stúlkum á mótor-
hjólum og umferðarlögreglu,
á meðan Sancho lendir í
nautaati og horfir á einræð-
isherrann Franco í sjónvarp-
inu. Welles bregð-
ur sjálfum fyrir í
myndinni þegar
hann ræður Sanc-
ho í aukahlutverk
í kvikmynd sem
hann er að gera
og nefnist Don
Quixote. Með
þessu leggur hann
bæði áherslu á
skáldskaparlegt
eðli sögunnar og
tímaleysi hennar.
í myndinni kall-
ar Welles riddar-
ann hugumprúða
„fullkomnasta
herramann sem
uppi hefur verið“,
því hann neitar að
segja skilið við
hugsjónir sínar,
þótt heimurinn
hendi gaman að
honum. „Við lifum
á öld tæknib-
rellna, kynlífs og
ofbeldis á hvíta
tjaldinu, en kvikmynd Weiles
er skáldleg ferð brjálseminnar
í svarthvítu,“ sagði Amalbert.
Kvikmyndin verður frumsýnd
í New York í október, en þá
eru liðin níu ár síðan ieikstjór-
inn hugumprúði, Orson Wel-
les, lést.
ORSON Welles sló í gegn með myndinni Citizen
Kane, aðeins tuttugu og fimm ára gamall.
Franken-
stein á
hvíta tjaldið
►Kenneth Branagh vinnur
um þessar mundir að gerð
kvikmyndar um Franken-
stein og byggir hann mynd-
ina á hinni sígildu sögu Mary
Shelley. Francis Ford Copp-
ola er framleiðandi myndar-
innar, en sjálfur fer Bra-
nagh með hlutverk vísinda-
mannsins Dr. Victors Fran-
kensteins. Robert De Niro
leikur „ófreskjuna“ sem
snýst gegn húsbónda sínum
þegar hann hefur hafnað
sköpunarverki sínu, en Hel-
ena Bonham Carter leikur
eiginkonu Frankensteins.
Myndinni er ætlað að slá á
rómantíska strengi áhorf-
enda, en sköpunarverk
Frankensteins er í myndinni
gætt bæði miklum gáfum og
ríkum tilfinningum.