Morgunblaðið - 04.12.1994, Síða 2
2 SUNNUDAGUR 4. DESEMBER 1994
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Heimsókn Davíðs Oddssonar til Kína að ljúka
Samskiptin við Kina
munu aukast og batna
Benedikt Davíðsson
Slæmt inn-
legg í kom-
andi kjara-
viðræður
BENEDIKT Davíðsson, forseti Al-
þýðusambands íslands, segir fyrir-
hugað holræsagjald í Reykjavík
mjög slæmt innlegg í þá umræðu
sem nú er að fara í gang um nýja
kjarasamninga.
Benedikt segir að þótt ASÍ beiti
sér fyrst og fremst fyrir því sem
skiptir alla máli og þurfi í því sam-
bandi mest að eiga við ríkisvaldið
þá sé það gífurlega þýðingarmikið
þegar svo stórt bæjarfélag eins og
Reykjavík ríði á vaðið í nýrri skatt-
lagningu meðan vitað er að kjör séu
enn að versna hjá öllu fólki.
Fólk hefur síður en svo
úr meiru áð spila
„Það er ekki eins og búið hafi
verið að gera einhveija nýja kjara-
samninga sem gefi tilefni til að
ætla að fólk hafi úr meiru að spila,
síður en svo,“ segir Benedikt.
„Þetta er þess vegna mjög slæmt
innlegg í þá umræðu sem nú er að
fara í gang um kjarasamninga."
Benedikt segir allar líkur á því
að gjaldið bitni á nánast öllum,
þótt það sé lagt á fasteignaeigendur
eingöngu. „Þetta tiltekna gjald er
víst búið að vera lengi við lýði í
sveitarfélögunum í kring og í mörg-
um sveitarfélögum vítt og breitt um
landið. Reykjavík er því ekki að búa
til nýtt form og hefur auðvitað tek-
ið einhver gjöld í öðru formi. Hins
vegar er þetta ný þynging og þess
vegna mjög slæmur hlutur.“
Bensíngjaldið torveldar
einnig samskiptin
„Þetta er álíka og þjófstartið hjá
fjármálaráðherra í sambandi við
bensíngjaldið, þegar hann hleypur
til og hækkar það langt umfram
það sem forsætisráðherra var áður
búinn að tilkynna að verða myndi
um þessa skatta. Það torveldar líka
það sem framundan er í samskipt-
unum. Ég tel að þetta sé hið versta
mál,“ segir Benedikt.
DAVÍÐ Oddsson, fprsætisráðherra,
telur að samskipti íslands og Kina
muni aukast og batna í kjölfar opin-
berrar heimsóknar hans til Kína.
Forsætisráðherra fer frá Kína í dag,
en ferð hans hefur vakið mikla at-
hygli þar í landi og verið gerð dag-
leg og góð skil í öllum helstu fjöl-
miðlum landsins. „Þessi mikla við-
höfn og athygli sem þeir hafa sýnt
okkur hér er jákvæður boðskapur
fyrir okkur um að hér getum við átt
innhlaup um viðskipti og samskipti
sem við eigum að rækta og megum
alls ekki missa af,“ sagði Davíð
Oddsson í samtali við Morgunblaðið
1 gær. „Sú ákvörðun okkar að opna
hér sendiráð, sem eru ákveðin tíma-
mót, hefur mælst vel fyrir og einnig
almennur áhugi okkar á þeirra mál-
efnum."
;;Hér er sagt að mörgum erlendum
sendiráðum hafi komið á óvart
hversu góð skil þessari ferð hefur
jafnan verið gerð í fjölmiðlum hér
og það er út af fyrir sig athyglis-
vert,“ sagði forsætisráðherra, sem í
sjö daga ferð sinni átti viðræður við
forseta, forsætisráðherra og utan-
ríkisráðherra landsins.
Umfangsmiklar viðræður
„Mér finnst merkilegt hvað þessar
viðræður hafa verið umfangsmiklar
og menn hafa gefið sér rúman og
góðan tíma til þeirra. „Við höfum
getað komið á framfæri okkar sjón-
armiðum sem vestræns ríkis, þótt
lítið sé, og það tel ég mikilvægt,"
sagði forsætisráðherra.
Hann sagði að í viðræðunum
hefðu verið ofarlega á baugi mál sem
vörðuðu íslendinga miklu, svo sem
viðskiptamál, umhverfísmál, afstaða
Kínveija á úthafsveiðiráðstefnunni,
mannréttindamál, kjarnorkumál,
„og öll þessi mál sem alla menn
snerta,“ sagði Davíð Oddsson.
Meðvitaðir ráðamenn
Hann sagði að m.a. hefðu verið
ræddar hugsanlegar neikvæðar af-
leiðingar hinnar öru efnahagsþró-
unar í landinu,. Gróðurhúsaáhrif
gætu aukist vegna iðnvæðingarinnar
og gríðarlegum kolaforða landsins
fylgdi mikil mengunarhætta. „Ég
held að kínverskir ráðamenn séu sér
mjög meðvitaðir um þetta og það
að opnari samskipti og aukin við-
skipti geta aldrei staðið ein og sér
til lengdar án þess að sjónarmið í
almennum mannréttindamálum
breytist og fylgi í kjölfarið," sagði
Davíð Oddsson. „Maður skynjar að
fólk hér er komið á bragðið varð-
andi aukið vöruúrval, aukinn kaup-
mátt og kynni af því sem önnur
veröld hefur upp á að bjóða. Allt
þetta ýtir undir auknar kröfur um
slökun og opnun á öðrum sviðum
en hinum efnahagslegu."
Ekki aftur suúið
Verulegum hluta ferðar sinnar
varði forsætisráðherra til að kynna
sér þá hröðu uppbyggingu og þróun
sem átt hefur sér stað í efnahags-
og atvinnulífi á tveimur öflugustu
vaxtarsvæðum Kína, Sjanghæ og
Shaanxi-héraði. Hann sagði að flest-
um bæri saman um að ekki yrði
aftur snúið á braut þeirrar miklu
opnunar sem átt hefði sér stað í
efnahagslífinu. „Það lokar enginn
augunum fyrir því að ef svo fer fram
sem horfir þá verður Kína orðið efna-
hagslegt stórveldi innan tiltölulega
fárra ára,“ sagði Davíð.
Davíð Oddsson sagði mjög athygl-
isvert að fá tækifæri til þess að
kynnast viðhorfum í Kína og koma
jafnframt sjónarmiðum íslendinga á
framfæri; ýta undir að íslenskir aðil-
ar geti tekið þátt í slíku starfi og
stuðla að því að íslenskar vörur fái
aðgang inn á þá markaði sem hér
eru að opnast. „Ég held að slíkar
ferðir séu vel til þess fallnar að
styrkja okkar möguleika og leggja
grunn að auknum viðskiptum og
samskiptum. Það held ég að sé mjög
þýðingarmikið og ég er mjög ánægð-
ur með hvemig til hefur tekist,"
sagði forsætisráðherra.
Þroskahjálp á alþjóðadegi fatlaðra
Krafist kjarasamn-
inga á vemduðum
vinnustöðum
ALÞJÓÐADAGUR fatlaðra er 3.
desember ár hvert samkvæmt
ályktun sem gerð var á allsheijar-
þingi Sameinuðu þjóðanna fyrir
tveimur árum. Landssamtökin
Þroskahjálp vekja athygli á at-
vinnuréttindum og húsnæðismálum
fatlaðra á þessum degi.
í fréttatilkynningu sem Þroska-
hjálp sendi frá sér á alþjóðadegi
fatlaðra segir að margir fatlaðir
vinni á almennum vinnumarkaði og
njóti samfélagið krafta þeírra þar.
Starfsmenn njóti
fyllstu réttinda
„Aðrir vinna á vemduðum vinnu-
stöðum. Þeir sem þar starfa búa
við óþolandi ástand: Enginn kjara-
samningur er gerður við þá, þeir
eru ekki í verkalýðsfélagi og eiga
ekki aðild að lífeyrissjóði. Greitt
tímakaup á þessum stöðum er
stundum smánarlega lágt og oft er
ekki skilgreint hvenær þeir em að
störfum og hvenær í endurhæfingu.
Þroskahjálp krefst þess að þegar í
stað verði gerðir kjarasamningar á
vemduðum vinnustöðum þannig að
starfsmenn þar njóti fyllstu rétt-
inda,“ segir í tilkynningunni.
Á þriðja hundrað bíða
eftir húsnæði.
Þá segir að milli 200 og 300
fatlaðir séu á biðlistum eftir hús-
næði, þar af séu Jiroskaheftir
stærsti hópurinn. Átak, félag
þroskaheftra, var stofnað fyrir
rúmu ári. Markmið félagsins í hús-
næðismálum em að þroskaheftir fái
að búa þar sem þeir vilja og að
þeir fái að ráða með hveijum þeir
búa.
Á þessu ári verður væntanlega
lokið við að búa öllum fyrrverandi
heimilismönnum Sólborgar á Ak-
ureyri samastað í íbúðum og sam-
býlum úti í samfélaginu. Að mati
Þroskahjálpar er því rétt að þegar
í stað verði staðið við áætlanir um
hvernig íbúum Kópavogshælis verði
búnar sambærilegar aðstæður eins
og heilbrigðisyfirvöld hafí lofað.
Þingmenn o g
borgarfull-
trúar funda
ÞINGMENN og borgarfulltrú-
ar Reykvíkinga leiða öðru
hveiju saman hesta sína á
fundum sem haldnir eru með
nokkru millibili, og var slíkur
fundur haldinn í húsnæði Rúg-
brauðsgerðinnar á föstudag.
15 borgarfulltrúar og 18 þing-
menn eru boðaðir á hvern fund
en mæting fer eftir aðstæðum
hveiju sinni. Geir G. Haarde,
formaður þingflokks Sjálf-
stæðisflokksins, stýrði fundi
að þessu sinni, en fulltrúar
þingmanna og borgarfulltrúa
skiptast á að stýra fundunum.
Geir segir að þessir fundir
beri svip af samráðsfundum
og sé að jafnaði fjallað um mál
er varði báða aðila. Á föstudag
hafi t.d. verið fjallað um vega-
mál í Reykjavík og hafi borgar-
stjóri ásamt embættismönnum
Reykjavíkurborgar sýnt hug-
myndir og tillögur um framtíð-
arskipulag vegamála á höfuð-
borgarsvæðinu öllu. Einnig var
rætt um fjármálaleg samskipti
ríkis og borgar og hugmyndir
um að gera Reykjavík að
menningarborg Evrópu árið
2000 o.fl.
Frumvarp um
virðisaukaskatt
Alag vegna
vanskila
lækkar
FJÁRMÁLARÁÐHERRA hefur
lagt fram lagafrumvarp á Alþingi
um breytingar á virðisaukaskatts-
lögum þar sem meðal annars er
lagt til að lækka álag vegna van-
skila á virðisaukaskatti.
Samkvæmt frumvarpinu verður
álag vegna vangreiðslu virðisauka-
skatts lækkað úr 2% í 1% fyrir
hvern dag og hámarksálag verði
10%. Fjármálaráðuneytið segir að
í breytingunni felist ekki að van-
skil á virðisaukaskatti verði ekki
litin jafn alvarlegum augum og
áður heldur endurspegli hún breytt-
ar aðstæður þar sem verðbólga sé
nú miklum mun lægri en þegar
núgildandi regla var sett.
Erlend fyrirtæki
fá endurgreitt
í frumvarpinu er einnig lagt til
að rýmka verulega heimildarákvæði
um endurgreiðslu á virðisaukaskatti
til erlendra fyrirtækja sem hafa
ekki með höndum skattskyld við-
skipti hér á landi, en kaupi hér þjón-
ustu eða vöru með virðisaukaskatti.
Merkin skapa mann-
inn
►Lausleg könnun Morgunblaðsins
leiddi í ljós að verð á karlmannaföt-
um var lægra í Reykjavík en í
London, en hærra á kvenfatnaði.
Þegar tekið hefur tillit virðisauka-
skatts verður útkoman önnur./lO
Vilja njóta góðs af
Borja litla
►Heimaborg Jeltsíns Rússlands-
forseta ætlar að koma upp safni
um æskuárs og eru helstu safn-
gripir tvær ljósmyndir og áritaðar
endurminningar rússneska forset-
ans./12
IMeðstikaupstaður í
nýju Ijósi
►Gömul gerðabók varpar nýju
ljósi á sögu elstu húsaþyrpingar-
innar á ísafirði./18
Heimssöngkonan í út-
skerinu
►Kafli úr nýrri bók Ómars Ragn-
arssonar, Fólk og fímindi./20
Kertaljós í tilverunni
►í Vestmannaeyjum er vemdaður
vinnustaður, Kertaverksmiðjan
Heimaey. Þar vinna 21 starfsmað-
ur, þar af 17 fatlaðir./22
B
► 1-32
Viðskiptalífið á að fá
að vera í f riði
►Brot úr viðtali við Harald
Sveinsson úr bókinni Áhrifamenn
eftir Jónínu Michaelsdóttur. /1,2,5
Nýtt bítlaæði
►Ný hljómplata með áður óþekktu
efni bresku hljómsveitarinnar The
Beatles vekur upp nýtt bítlaæði./8
Hvergi óhult
►Saga móður í ótrúlegri eldraun
á vígvöllum íraks og Kúrdistan.
/10
Oamalt og nýtt
► Bak við Aðalstræti 4 eru tvö af
elstu húsum bæjarins, gömul fisk-
verkunarhús. Anna Tryggvadóttir
kom heim frá Ameríku til að gera
húsin upp og annast viðgerðir á
þeim./16
CÍ BÍLAR
► 1-4
NýrVWPolo
► Sagt frá verðlaunagripnum VW
Polo sem er nýkominn til lands-
ins./l
Eldsneytisinnspraut-
un
► Hvað er eldsneytisinnsprautun
og hvemig virkar hún?/3
FASTIR ÞÆTTIR
Fréttir 1/2/4/8/bak
Leiðari 26
Helgispjall 26
Reykjavíkurbréf 26
Minningar 28
Myndasögur 36
Brids 36
Stjörnuspá 36
Skák 36
Bréf til blaðsins 36
Idag 38
Fólk í fréttum 40
Bíó/dans 42
íþróttir 46
Otvarp/sjónvarp 48
Dagbók/veður 50
Mannlifsstr. 6b
Gárur 6b
Kvikmyndir 9b
Dægurtónlist 14b
INNLENDAR FRÉTTIR-
2-4-8-BAK '
ERLENDAR FRÉTTIR-
1-6