Morgunblaðið - 04.12.1994, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 04.12.1994, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. DESEMBER 1994 19 Margar virðingargerðir „Þessi hús eru frá dögum einok- unarverslunarinnar,“ segir Hjör- leifur. „Þegar verslunin skipti um eigendur voru eignimar seldar. Matsmennirnir skrifuðu allt upp og lýstu í smáatriðum, gerð var grein fyrir viðhaldi og allt var þetta metið til verðs. Margar þess- ar virðingargerðir eru til, bæði frá 1742, 1754, 1764 og 1774, svo nokkur dæmi séu nefnd. Eins voru allar viðgerðir færðar til bókar, þeim lýst og hvað þær kostuðu. Við lok einokunar 1787 vom eign- imar í Neðstakaupstað seldar á uppboði og uppboðslýsingin er til.“ Morgunblaðið/Hrafn Snorrason GERÐABÓK verslunarfé- lagsins Bush & Paus kom í leitimar í Danmörku og er nýlega komin til Isafjarðar. Hjörleifur segir að það hafí hvarfl- að að sér hvort þessar nákvæmu lýsingar hafí eitthvað haft með tryggingar að gera. Þótt menn væm ekki farnir að tryggja hér á landi á þessum tíma var það ekki óalgengt í útlöndum. Við lok einokunar komst verslunin á ísafirði í hendur De Altoaiske Handels-Intressentskab í Altona. Eignir félagsins vom auglýstar á uppboði 1794 og gekk félagið að tilboði Jens Larsen Bush, annars eigenda Paus & Bush. Þeir félagar áttu verslunina til 1824. „Gerðabók þeirra Paus & Bush hjálpar okkur sérstaklega við við- gerð Tjörahússins, en hún er nú á lokastigi," segir Hjörleifur. Áður var álitið að Tjömhúsið væri elst húsa í Neðstakaupstað, en líklega er það yngra en Faktorshúsið, sem var byggt 1765. Krambúðin var byggð 1757 og Tumhúsið 1784. Þótt nú hilli undir að viðgerð á Tjömhúsinu ljúki segir Hjörleifur að viðhald húsanna taki aldrei enda. Nú em að verða 20 ár frá því hafist var handa við að gera upp húsin í Neðstakaupstað og því tímabært að fara að huga að þeim húsum sem fýrst var gert við. Týnt virki Mestu tíðindi fyrir sögu ísa- íjarðar er lýsing í gerðabókinni á virki, eða Skansi, við Neðstakaup- stað, sem hvergi sér stað í dag og virðist það hafa fallið í gleymsku. Leifar af Skansinum á Isafírði vom til 1795 og árið 1804 var virkið endurbyggt. Samkvæmt lýsingunni í gerðabókinni voru 11 fallbyssur í virkinu. Virkisveggur- inn var hlaðinn úr torfí og fyllt upp með möl og mold. Yfír þetta var svo tyrft. Á virkisveggnum var skrautlegt grindverk úr tré, fána- stengur. Málaðir bekkir voru í fjór- um homum virkisins, þar sem menn gátu tyllt sér. Upp á virkis- vegginn lágu skrautlegar trétröppur með útskomu handriði og undir’þeim stúkuð af geymsla. Hjörleifur minnist þess ekki að hafa áður heyrt minnst á þetta mannvirki. eykur orku og úthald Fæst í apótekum VIRKA Jólaföndur - jólagjafir Mikið afhugmyndum fyrir skemmtilegar jólagjafir og jólaskraut. Föndurlímið vinscela í túpum og dósum ásamt polyestervatti og troði o.fl., o.fl. Opið mánudaga til föstudaga frá kl. 9-18, á iaugardögum frá 1. sept. til 1. júnífrá kl. 10-14. VIRKA MÖRKINNI 3, SÍMI 687477 (við Suðurlandsbraut). SYND KL. 3 - 5 - 7 - 9 - 11 ^Vcoias Joti Dana CAGE LOVITZ CARVEY TRAPPED IN PARADISE Splunkuný grínmynd sem lyftir jólastemmingunni á æðra plan! DFCMOAniMKI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.