Morgunblaðið - 04.12.1994, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 04.12.1994, Blaðsíða 44
44 SUNNUDAGUR 4. DESEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ ItSJinKuniiiainiWWjlllBam ieD>niiini<iiiiiUi«iiWiiw ininwiiiiiiajiiiu VH'inaa HHK cir wlCIII iti fflaWIIC wiaimil [QKiignUin ---mniuni mHDKnna rat»iirigmB s «Bgj Stórskemmtileg gamanmynd með vafasömu ívafi með LARA FLYNN BOYLE, STEPHEN BALDWIN og JOSH CHARLES í aðal- hlutverkum. , Stuart er hrifinn af Alex, Alex þráir Eddy og Eddy er ekki með kynhvatir sínar á alveg á hreinu. „Gatsafengin og lostafull, með kynlif á heilanum. Andrew Fleming lætur allar óskir unga fólksins um kynlif rætast á hvíta tjaldinu og hrifur okkur með sér. Samleikur þríeykisins er frábær." David Ansen, NEWSWEEK Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Bönnuð innan 12 ára. STJÖRNUBÍÓLÍNAN SÍMI 991065 Taktu þátt í spennandi kvikmyndagetraun. Verðlaun: Boðsmiðar á myndir í Stjörnubíói og 67 12" pizzur m/þremur áleggjum á . Verð kr. 39,90 mín. SÍMI671515 L00K Whöí TALKING Kr ÞAÐ GÆTI HENT ÞIG „IT COULD HAPPEN TO YOU“ Sýnd kl. 7 og 9. FLEIRI POTTORMAR Sýnd kl. 3. Sýnd kl. 3. Kr. 800 fyrir fullorðna. Kr. 500 fyrir börn yngri en 12 ára. Sýnd kl. 5. FLÓTTINN FRÁ ABSALON Sýnd kl. 11. B. i,16 Sýnt í íslensku óperunni. Vegna gíf urlegrar aðsóknar bætum við aðeins þessum sýningum við: Fim. 8/12 kl. 20. Fös. 9/12 kl. 24. Lau. 10/12 kl. 24. Bjóðum fyrirtækjum, skólum og stærri hópum ofslótt. Ósóttar pantanir eru seldar 3 dögum fyrir sýningu. Mióopantanir í símum 1 1475 og 1 1476. Ath. mióasalan opin virka daga fró kl. 10-21 og um helgar fró kl. 13-20. Ath. miðasala lokuð ó sunnudag. Kornflex og kanaúlpur BROT úr myndinni „The Pagemaster". MacAuley Culkin er alltaf jafn vinsæll. Goldberg stelur senunni MACAULEY Culkin fer með aðal- hlutverk í myndinni „The Page- master“, sem frumsýnd var fyrir skömmu í Bandaríkjunum. Þar leikur hann strák sem hefur viðað að sér og fyllt herbergið sitt af ýmsum öryggisbúnaði og er auk þess með öll meðaltöl og kúrfur í sambandi við slysatíðni á hreinu. Þrátt fyrir óumdeilda hæfíleika Culkins er það þó leikkonan Whoopi Goldberg sem stelur sen- unni, þrátt fyrir að eina framlag hennar til myndarinnar sé að tala inn á fyrir eina teiknimyndaper- sónu. Auk þeirra tveggja leggja síðan Christopher Lloyd, Leonard Nimoy og Patrick Stewart sinn skerf af mörkum til myndarinnar. Þjóðar- átak stúdenta ÞAÐ vakti athygli við opnun Þjóð- arbókhlöðu íslendinga að Skúli Helgason, framkvæmdastjóri Þjóðarátaks stúdenta fyrir þjóð- bókasafni, afhenti fyrir hönd Stúdentaráðs Háskóia íslands framlög og gjafir sem safnast höfðu í átakinu og námu að and- virði um tuttugu og tveimur og hálfri miiijón króna. Skúli Heigason segir í samtali við Morgunblaðið að átakinu sé þó ekki lokið, því nokkrir fjármun- ir og gjafir eigi enn eftir að skila sér. „Sem dæmi má nefna að Vin- áttufélag íslands og Japan hefur tekið að sér að safna fjármunum Morgunblaðið/RAX SKULI Helgason flytur stutt ávarp um leið og hann afhendir það sem safnast hefur í Þjóðarátaki stúdenta fyrir Þjóðbóka- safni. Með honum standa fulltrúar Stúdentaráðs. meðal félaga sinna. Þeim verður síðan varið til kaupa á bókmennt- um sem eiga að kynna íslending- um menningarheim Japana.“ Söfnunin hefur gengið fram úr vonum, en í upphafi einsetti Stúd- entaráð sér að safnatuttugu millj- ónum. „Til gamans má geta þess,“ segir Skúli, „ð okkur barst beiðni frá íslendingafélaginu í Belgíu um nokkur hundruð skólaþrennur til að selja á 1. des.-fagnaði þar í landi daginn áður en hann átti að fara fram. Við hlupum auðvitað upp til handa og fóta og náðum að senda þær með flugi til Belgíu." Að lokum segist Skúli vilja þakka öilum þeim sem lögðu sitt af mörkum til átaksins og minna á að fyrirtæki geta enn slegist í hópinn. er á seyði í bílskúrum bæjarins. Það sem vekur mesta athygli við fyrstu hlustun er hvað það er mikið, því að sögn útgefanda eru þau íjórtán lög sem á plötunni eru bara sýnis- hom, því margar sveitir þurftu frá að hverfa. Mikið ber á frægustu rokksveit Keflavíkur, Deep Jimi and the Zep Creams, sem meðal annars var í eina tíð á samningi í Bandaríkjun- um. Þeir félagar eiga tvö lög með hljómsveit sinni, en að auki koma þeir mjög við sögu í þremur lögum öðrum; með Spena frænda og Sifj- aspellunum, Hinum guðdómlegur Neanderdalsmönnum og Felus Cat- us. Að vera í öðrum hljómsveitum veitir þeim greinilega eitthvað frelsi, því ekki bara leika þeir á önnur hljóðfæri en jafnan, heldur er tónlistin all frábmgðin rokki að hætti Deep Jimi and the Zep Cre- ams. Þó örli á prýðilegum hug- myndum í þessum lögum, er þó það besta sem þeir leggja hönd á á þessari plötu upphafslag hennar; fjölskrúðugt og gott rokklag. Annað er síðra og yfirleitt ekki nógu vel unnið. Önnur keflvísk hljómsveit sem borið hefur á undanfarið er Kol- rassa krókríðandi, en lag sveitar- innar hljómar eins og hljóðvers- spuni, því þó þar séu góðir sprettir vantar nokkuð á í byggingu lags- ins. Þusl á lag sem er prýðileg unn- ið, en nær einhvern veginn ekki að lifna, þó textinn sé sérkennilega súrrealískur. Texas Jesú á forvitni- legt lag, sem hefði líklega verið öllu skemmtilegra ef ekki spillti þunnur enskur texti. Reyndar er það áberandi hver margar sveit- anna syngja á ensku; skiljanlegt með Deep Jimi og félaga, enda lög- in tekin upp ytra fyrir erlendan markað, en önnur tilfelli er erfiðara að skilja, sérstaklega þar sem margir textanna eru á klúsuðu máli; eins konar sjónvarpsmál- lýsku. Gott dæmi um það er texti við lagið I Never Knew með Grun- uðum um tóniist; þokkalegt reggí- lag og ágætlega sungið, en með hreint vonlausum texta. Rokk og rafg- ítara virðast lifa góðu lífi í Kefla- vík, því ekki er nema eitt reif- kennt lag á diskn- um, Illuminate með Sub Contra, skemmtilegt lag á köflum, en full- langt miðað við innblásturinn. Rúnar Júlíusson, Nestor keflvískra rokkara, á síðan lokaorðið á þessari safnplötu, Fögur fyrirheit, rólegan og prýðilegan mansöng. Árni Matthíasson TÖNLIST KEFLVÍSK INNRÁS Innrás, kornflex og kanaúlpur, safn keflvískra rokksveita og tónlistar- manna. Lög á plötunni eiga Deep Jimi and the Zep Creams, Texas Jesú, Kolrassa krókríðandi, Guð- mundur J. Guðmundsson, Speni frændi og Sifjaspellamir, Þusl, Hinir guðdómlegu Neanderdalsmenn, Fel- us Catus, Pile, Stulli & Hlynur, Grun- aðir um tónlist, Sub Contra og Rún- ar Júlíusson. Framleiðendur og upp- tökusljórar eru þeir Rúnar Júlíusson og Júlíus Guðmundsson. Geimsteinn gefur út. 57,18 mín. 1.999 kr. í UPPHAFI íslenskrar rokksögu var Keflavík >Mekka rokksins og þar virtist óþijótandi upp- spretta rokk- sveita og hæfí- leikamanna í tón- list. Rokkið, eða það afbrigði sem þróaðist í Bret- landi og dró ekki síst dám af bandarískri sál- artónlist, var gjarnan kallað „Merseybít", enda stendur þá- verandi rokkhöf- uðborg ' Breta, Liverpool, á bökkum árinnar Mersey. Suður með sjó þróaðist álíka tónlist, enda áttu allir straum- ar greiða leið til ungmenna þar sem hlustuðu helst á kanaútvarpið og námu áhrif ofan af velli. í ljósi sögunnar er vel til þess fundið að gefa út safnplötu kefl- viskra sveita, þar sem reynt er að gefa hugmynd um það hvað helst

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.