Morgunblaðið - 04.12.1994, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 04.12.1994, Blaðsíða 4
4 SUNNUDAGUR 4. DESEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ VIKAN 27/11-3/12 ► Þrír aðaleigendur kana- díska olíufyrirtækisins Ir- ving Oil komu tii landsins tii að undirbúa rekstur hér á landi. Þeir töluðu við ráða- menn og könnuðu meðal annars möguleika á bygg- ingu olíubirgðastöðvar og 6 til 8 bensínstöðva á höfuð- borgarsvæðinu. ► Bankastjórn Seðlabanka ákvað í miðvikudag að hækka vexti sem gilda í við- skiptum hans við innláns- stofnanir frá og með 1. des- ember sl. Vextir á útlána- hlið bankans hækka um 0,2-0,3 prósentustig en á inniánahlið um 0,4-0,8 pró- sentustig. ► A föstudag voru níu heilaskaðaðir sjúklingar fluttir af vist- og lögheimili sínu Laugaskjóli á hjúkrun- arheimilið Skjól. Gripið var til þessa ráðs vegna þess að ekki var hægt að veita þá umönnun sem þurfti vegna verkfalls sjúkraliða. ► Bensín hækkaði á mið- nætti á fimmtudag um 2,5%-2,6% og stafar hækk- unin af 5,7% hækkun bens- íngjalds sem ákveðið var að flýta, en gjaldið átti að hækka 1. janúar og 1. júní nk. Gert er ráð fyrir að olíu- gjald hækki um tæp 4% um áramót. Hækkunin nú veld- ur 0,12% hækkun á fram- færsluvisitölu og 0,04% hækkun á lánskjaravísitölu. ► Ólympíuleikarnir í eðlis- fræði verða haldnir hér 1998. Von er á um 300 kepp- endum og 120 fararstjórum frá 60 löndum. Þjóðarbókhlaðan opnuð FULLVELDISDAGINN 1. desember var haldin opnunarhátíð Þjóðarbók- hlöðunnar, sem hýsir Landsbókasafn - Háskólabókasafn. Þennan dag voru 38 ár liðin frá því að sameiningu safnanna bar fyret á góma. Fyrir 20 árum færði þjóðin Þjóðarbókhlöðu sér að gjöf í til- efni 1100 ára afmælis íslandsbyggðar. Liðin eru 16 ár frá því að fyrsta skóflu- stunga var tekin. Húsið er 13.000 fer- metrar og geymir yfír 900 þúsund bindi. Lessæti eru 800 og reiknað er með að starfsmenn verði 116. Háskóla- stúdentar stóðu fyrir söfnun til kaupa á bókum og tímaritum og söfnuðust yfir 22,5 milljónir króna. Athugasemdir við einkavæðingu RÍKISENDURSKOÐUN gerði athuga- semdir við sölu á 39% hlut ríkisins i íslenskri endurtryggingu hf. í nýrri skýrslu sinni um sölu á fyrirtækjum í eigu rikisins 1991-1994. Stofnunin sagði m.a. að útreikningar bentu til að líklegt upplausnarverð hefði verið 144 milljónum króna lægra í árslok 1992 en söluverðið sem var 162 milljón- ir. Samráð um viðræður ÍSLENSK og norsk stjómvöld ákváðu í vikunni að hafa samráð áður en farið verður í formlegar viðræður við Evr- ópusambandið um tollamál vegna inn- göngu annarra EFTA-ríkja í ESB. Um er að ræða viðræður um þau viðskipta- kjör sem íslendingar og Norðmenn glata í Svíþjóð, Finnlandi og Austurríki þegar þessi lönd ganga í ESB um ára- mótin. Gro Harlem Brundtland Norðmenn felldu aðild að ESB NORÐMENN höfnuðu aðild að Evr- ópusambandinu, ESB, í þjóðarat- kvæðagreiðslu síðastliðinn mánudag með 52,5% atkvæða á móti 47,5%. Kom niðurstaðan ekki á óvart miðað við skoðanakannanir en var mikið áfall fyrir stjóm V erkamannaflokks- ins og Gro Harlem Bmndtland forsæt- isráðherra. Olli hún einnig miklum von- brigðum' meðal frammámanna i Svíþjóð, Finnlandi og Danmörku, sem höfðu vonast til, að Noregur fyllti nor- ræna hópinn innan ESB. Talsmenn stjómvalda í flestum ESB-ríkjunum hörmuðu einnig úrslit- in en lögðu áherslu á, að Norðmenn væm velkomnir þegar þeir vildu. Norska stjómin leggur nú mesta áherslu á, að samningurinn um Evr- ópska efnahagssvæðið, EES, haldi sér óbreyttur að öðm leyti en því, að stofnanaþátturinn verði einfaldaður. Um það mál eru þó nokkuð skiptar skoðanir innan ESB en að honum standa aðeins auk ESB ísland og Noregur og líklega Liechtenstein inn- an tíðar. NATO stækkað í austur UTANRÍKISRÁÐHERRA Atlants- hafsbandalagsins ákváðu á fundi í Bmssel á fímmtudag að kannað yrði í eitt ár hvemig best yrði staðið að stækkun bandalagsins í austur. Rúss- ar krefjast hins vegar nánari skýringa á þessum fyrirætlunum og Andrei Kozyrev, utanríkisráðherra Rúss- lands, frestaði af þeim sökum að undirrita samning Rússa og NATO um samstarf í þágu friðar. Mikill ágreiningur hefur verið innan banda- lagsins um málefni Bosníu en ráð- herramir voru sammála um, að það væri of mikilvægt til að láta þá deilu grafa undan því. ► DEILA sljómarinnar i Grosní, höfuðborg rúss- neska sjálfstjórnarlýðveld- isins Tsjetsjníu, og Moskvu- stjórnarinnar, hefur harðn- að mjög að undanförnu. Hafa Rússar lagt uppreisn- armönnum í landinu lið, til dæmis með nærri daglegum loftárásum á Grosní. Sinnti stjórn Tsjetsjníu í engu fresti, sem Borís Jeltsín, forseti Rússlands, gaf henni til að leggja niður vopn en viðræður eiga sér nú stað. ► ELDUR kom upp í ítalska farþegaskipinu Achille Lauro undan Sómalíuströnd sl. miðvikudag og fómst tveir af tæplega 1.000 manns um borð. Reyna átti að draga það til hafnar og var búið að koma í það taug þegar það sökk alelda á föstudag. ► BÁÐAR deildir Banda- ríkjaþings sarnþykktu GATT-samningana í vik- unni og er því fagnað sem „sigri hinnar heilbrigðu skynsemi". Hafa þá 40 ríki staðfest hann, meðal annars Japan, en Evrópusambands- ríkin ætla að ljúka því fyrir áramót. GATT-samningur- inn er umfangsmesti við- skiptasamningur, sem gerð- ur hefur verið, og áætlað er, að hann muni auka heim- sviðskiptin um 30.000 millj- arða kr. árlega. ► SILVIO Berlusconi, for- sætisráðherra Italíu, hefur náð samkomulagi við verka- lýðsfélögin í landinu um að lífeyrisréttindi verði skert minna en fyrirhugað var í fjárlagafrumvarpi. Aflýstu þau þá eins dags allsherjar- verkfalli.s sl. föstudag. Hef- ur þetta styrkt stöðu Ber- lusconis en hann stendur höllum fæti vegna rann- sóknar á mútugreiðslum fyrirtækis hans. FRETTIR Þjóðvegir á höfuðborgarsvæðinu Tillaga um 6 milljarða nýframkvæmdir 1995-98 SVEITARFÉLÖGIN á höfuðborg- arsvæðinu hafa gert tillögur að nýrri vegaáætlun fyrir árin 1995-98. Þessi tillaga tekur til framkvæmda við þjóðvegi á höfuð- borgarsvæðinu og nemur kostnaður við nýframkvæmdir tæpum 6 millj- örðum króna. í sameiginlegri bókun forsvarsmanna sveitarfélaganna er tekið fram „að í tillögunum er ekki gert ráð fyrir frestun neinna þjóð- vegaverkefna, sem þegar eru til- greind í samþykktri vegaáætlun“. Tillögumar verða sendar til sam- gönguráðherra, samgöngunefndar Alþingis og þingmanna Reykjavík- ur- og Reykjanesskjördæma. í bókuninni kemur fram að þótt tillögumar taki í heild til fram- kvæmda sem kosta samanlagt meira fé en líklegt er að fáist á þessu tímabili, myndi þær engu að síður góðan gmndvöll til ákvarðana um forgangsröð framkvæmda. Arðsamar framkvæmdir Með tillögunum fylgja meðal annars gögn um umferðarálag á gatnakerfi höfuðborgarsvæðisins nú og spá um hið sama 1998, mat á álagi miðað við flutningsgetu 1994 og 1998, upplýsingar um stofnkostnað og mat á áhrifum framkvæmdanna á kostnað sem,' hlýst af slysum og óhöppum. Niður-; stöður arðsemisreikninga vegnaj þessara framkvæmda em mjög há-! ar í flestum tilvikum. Lagt er til að byijað verði á framj kvæmdum við Vesturlandsveg/ Höfðabakka og eru þær raunar þegar hafnar. Búið er að meta umhverfisáhrif þeirra og er verifj að vinna umhverfismat á þeim *seni næst koma í röðinni. Auk tillagna sem gerðar eru unl framkvæmdir á næstu íjórum árum er einnig lagt mat á hvaða fram- kvæmdir þurfa að fylgja næstu 8 ár þar á eftir. Bessastaða hreppur Tillögur að vegaáætlun 1995-1998 og \ 4QOO_ Ofíf\ O ** Mislæg gatnamót 1S I9W4UUO = .ÆAir„«n„1QQC QR Hafnarfjörður gatnamót 1995-98 ndirgöng 1995-98 * Mislæg gatnamót 1999-2003 Morgunblaðið/Jón Sigurðsson SKÚLI Þórðarson bæjarstjórí á Blönduósi ávarpar gesti við vígslu brimvarnargarðsins á Blönduósi. Brimvarnargarðurinn á Blönduósi Framkvæmdum lokið Blönduósi. Morg'unbladit). „Kotið“ fékk 1. verðlaun INGÓLFUR Guðmundsson prent- smiður á Morgunblaðinu sigraði ný- lega í myndasamkeppninni „Liturinn er galdurinn", sem haldin var á veg- um umboðsaðila Hewlett-Packard á íslandi. Úrslitin voru kunngjörð á Listasýningu fjöl- skyldunnar í List- húsinu í Laugar- dal. Myndin fékk þá umsögn að hún væri frumleg og vel hönnuð og gæfí góða hug- mynd um mögu- leika litaprentun- ar með Hewlett- Ingólfur Guð- Packard litprent- mundsson urum prentsmiður Ingólfur er áhugaljósmyndari og hefur um tveggja ára skeið unnið við myndvinnslu í tölvu. Hann fann sér myndefni í Skammadal, tók þar mynd af litlu húsi og ungum pilti, Þórólfi Hersi Vilhjálmssyni. Bjó til himin og sól Þessar myndir vann Ingólfur áfram í tölvuforritinu Photoshop. Til að skreyta myndina bjó hann til heið- bláan himin og skærgula sól í bak- grunn. Ingólfur segir að það hafí tekið sig tvö kvöld að tölvuvinna myndina áður en hann gat farið í Tæknival þar sem myndin var keyrð út á HP-prentara. Um 170 myndir bárust í keppnina og þóttu 156 þeirra eiga erindi á sýninguna. 2. verðlaun hlaut Hlynur Olafsson og 3. verðlaun Oddur Sig- urðsson. Þar að auki voru veitt sjö aukaverðlaun. ■ Verðlaunamyndin Kotið/27 FRAMKVÆMDUM við brimvarn- argarðinn á Blönduósi lauk 17. nóv- ember síðastliðinn. Það var fyrir- tækið V. Brynjólfsson á Skaga- strönd sem vann verkið fyrir 116 milljónir króna. Framkvæmdir hóf- ust síðla vetrar 1993 og hafa geng- ið slysalaust og samkvæmt áætlun. Það var formaður hafnarnefndar, Kári Snorrason, sem formlega vígði garðinn við hátíðlega athöfn 1. des- ember sl. með því að tendra ljós á brimvamargarðinum. Að sögn Guðbjartar Ólafssonar bæjartæknifræðings á Blönduósi hafa farið um 100 þúsund rúmmetr- ar af grjóti í brimvarnargarðinn. Grjót þetta er annarsvegar fengið í námu við bæinn Uppsali og hins- vegar við bæinn Enni. Það kom fram hjá Guðbjarti að samtals hefðu verið eknir um 350 þúsund km með gijótið en það samsvarar 11.000 vömbílsförmum. Garðurinn er 310 metrar að lengd og er mesta dýpt við hann um 7 metrar. Guðbjartur Ólafsson sagði að þó framkvæmdf um við garðinn væri lokið væri enri ! eftir að ganga frá viðlegukanti i norðan við bryggju og koma fyrir þremur stálkerum við hafnarmynn- ið til að verjast vestan- og suðvest- anáttum. Við þessi verklok sást fyrir endann á áratuga baráttii Blönduósinga fyrir bættri hafnarað/ stöðu að sögn Péturs A. Pétursson- ar forseta bæjarstjórnar. Sagðj hann þessa framkvæmd mikilvægá ) viðleitni til að mæta samdrættinuni i sem hefði orðið í landbúnaðinum á undangengnum árum. Hönnuður I brimvamargarðsins á Blönduósi er Gísli Viggósson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.