Morgunblaðið - 04.12.1994, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 4. DESEMBER 1994 13
LISTIR
Innsetning í bláu
MYNPPST
Mcnningarmiöstööin
Gcröubcrgi
HLJÓÐMYND
Erla Þórarinsdóttir og Andrew Mark
McKenzie. Opið mánud.-fimmtud. kl.
10-21 og föstud.-sunnud. kl. 13-17
til 11. desember. Aðgangur ókeypis
SAMTENGING listmiðla hefur
löngum heillað skapandi listamenn,
og verið beitt til þess að búa til
heildir, sem einstakir miðlar hafa
ekki verið færir um; þannig hefur
verið hægt að höfða til skynjunar
mannsins á fleiri sviðum en t.d.
málverk, höggmynd eða hljóð er
fært um hvert í sínu lagi.
í þessu sambandi er skemmst
að minnast yfirlitssýningar á verk-
um Magnúsar Pálssonar, sem hef-
ur m.a. lengi unnið með möguleika
hljóðsins; fyrr á öldinni þekkja
flestir til dadaista og fútúrista í
Evrópu, sem vöktu mikla athygli
á sinni tíð með sviðsetningu ljóða-
kvölda. Leiklistin er auðvitað hinn
endanlegi vettvangur samþætting-
ar af þessu tagi, en myndlistar-
menn hafa einnig tekist á við hana
undir ýmsum formerkjum.
Á þessari sýningu leiða saman
krafta sína myndlistarkona og
listamaður, sem einkum hefur unn-
ið á sviði hljóðverka, og m.a. kennt
þá iðju að einhveiju leyti við Mynd-
lista- og handíðaskólann. Saman
hafa þau unnið innsetningu í sýn-
ingarými Gerðubergs, sem þau
kalla hljóðverk, þar sem stjarn-
fræðin og sérstakur blár litur (raf-
blár?) ráða ríkjum.
Erla Þórarinsdóttir hefur áður
sýnt áhuga sinn á möguleikum
segulsviðsins, fjarlægum himin-
tunglum og þeim merkingum, sem
þau geta með ýmsum hætti haft
fyrir tilveru mannanna. Þessa sá
þegar merki á sýningum hennar í
Norræna húsinu og Gallerí Sævars
Karls 1991, en hugmyndin að þess-
ari sýningu mun hafa fæðst í
tengslum við hina síðarnefndu.
Einkasýning Erlu í Nýlistasafninu
fyrr á þessu ári tengdist einnig
táknmyndum á þessu sviði, svo hér
er um eðlilegt framhald að ræða.
Á sýningunni er áherslan á
þekkt stjörnumerki, og þau lögmál
sem þau lúta; allt er þetta himin-
hvolf reyrt saman af aðdráttarafli
stjamanna, sem er hér táknað með
lituðu salti, sem bindur formið hér
líkt og aðdráttaraflið. Á einn vegg
er raðað upp steyptum saltstjörn-
um í merki Karlsvagnsins, og á
öðrum eru sett upp skorin spegil-
brot (ljósbrot) sem tákn Pólstjörn-
unnar. Samtenging þessara
tveggja þátta er sterk og verður
enn betur ljós af sýningarskránni.
Yfir þessu lýsir blá birta, og
með fylgir ákveðin hljóðbylgja,
sem mun samsvara þeirri mældu
tíðni útvarpsbylgja, sem berast um
tómarúm himingeymsins (þar sem
þær geta hins vegar ekki myndað
hljóð af augljósum ástæðum). Að
setja inn hljóð þar sem ekkert er
í alheiminum eykur vissulega
skynjun okkar á honum.
Þessir þættir vinna þannig vel
saman til að mynda ákveðna heild,
en hins vegar er ekki jafnljóst
hvaða hlutverki það salt gegnir,
sem dreift er á gólf helsta sýning-
arsvæðisins; þama vantar skýrari
tilvísanir.
Þessi innsetning er einföld út-
færsla á undrun mannsins yfir
himingeimnum, þar sem allt virðist
óendanlegt og óútskýranlega í yfir-
þyrmandi stærð sinni. Sú hógværð
sem henni fylgir er vel við hæfi,
enda verða tilraunir mannsins til
að lýsa þessum furðum ætíð fátæk-
legar í samanburði við viðfangs-
efnið, sem mun um ókomnar aldir
vera mönnum tilefni til bollalegg-
inga um lífið og tilveruna.
Eiríkur Þorláksson
Kvöldsögiir
BOKMENNTIR
Barnabók
KVÖLDSÖGUR
eftir Þorgrim Þráinsson. Halla Sól-
veig Þorgeirsdóttir myndskreytti.
Fróði, 1994 - 26 síður.
ÞORGRÍMUR Þráinsson hefur
verið ótrúlega afkastamikill höf-
undur og sendi frá sér tvær bækur
í fyrra og tvær eru komnar út í
ár en auk þess hefur hann átt
metsölubækur allt frá því að hann
byrjaði að skrifa fyrir börn og
unglinga. Það eru miklar kröfur
gerðar til slíkra manna
bæði af forlagi þeirra
sem hlýtur að krefja
þá um æ meiri fram-
legð og það hlýtur að
vera freisting fyrir
höfund að skrifa sem
mest á meðan hann er
á hátindi ferils síns —
en það má ekki gleyma
því að lesendur og
kaupendur bókanna
vilja líka geta gert
kröfur.
í þetta sinn sendir
Þorgrímur frá sér litla
bók sem ber nafnið
Kvöldsögur. Þetta eru
fjórar litlar sögur sem
eflaust eru hugsaðar
sem góð kvöldlesning fyrir lítil
börn. Efnið er sótt í hversdagslega
hluti en út frá þeim spunnið ævin-
týri. Fyrsta sagan fjallar um gaml-
an bangsa sem er gleymdur upp á
háalofti en síðan kemur töfradís
með lausn sem þó tekur mörg ár
að virka. Næsta saga er um snjó-
karl sem safnar gjöfum handa illa
stöddum börnum í fjarlægu landi
og í þeirri þriðju fær lítil stúlka
sem er ein heima að bíða eftir jól-
unum heilan blómálfaskara til að
hjálpa sér við jólatiltekt og skreyt-
ingar. í síðustu sögunni er jóla-
sveinninn búinn að týna lyklunum
sínum og Tómas fer fljúgandi á
grenitré upp í jólasveinaland til að
bjóða fram hjálp sína.
Sögurnar eru allar mjög hráar
og engu líkara en höfundurinn
hafi ekkert unnið þær eftir að
fyrsta hugmyndin var fædd. Mér
dettur helst í hug að höfundurinn
hafi sest niður með lítið barn í
.kjöltu sinni, sett á segulband, tek-
ið sögurnar upp og þær farið síðan
beint í prentun. Þær eru flatar og
tilgerðarlegar og oft á tíðum
sundurlausar. Allar söguhetjurnar
gráta, jafnt bangsinn
og jólasveinninn, en
svo glaðnar yfir mann-
skapnum. Málfarið er
sumsstaðar stirt og á
einum stað er ótrúleg
málvilla þar sem
stendur „Gleði hans
breyttist í grátur" (s.
14). Ekki er heldur
hægt annað en undr-
ast þá smekkleysu að
láta Hermann skilja
eftir stígvélin sín hjá
fótalausa barninu.
Myndir Höllu Sól-
veigar eru glaðlegar
og litríkar. Sumar eru
mjög skemmtilegar en
sumar eru hjákátleg-
ar. Til dæmis er töfradísin beinlín-
is ófríð og kettirnir í sögunni eru
ekki sérlega kattarlegir á stundum
og líkast fremur útflöttu skinni.
Ég þurfti líka lengi að horfa á
myndina af Áslaugu og bangsan-
um til að átta mig á hvað var í
jólapakkanum. Litlu myndirnar
sem skreyta kápuna að innan og
koma fyrir í textanum eru bestar.
Sigrún Klara Hannesdóttir
Þorgrímur
Þráinsson
Nýjar bækur
• „í Þú tnisskilur mig fjallar
bandaríska málvísindakonan De-
borah Tannen á einstaklega
skemmtilegan og fræðandi hátt um
hvers vegna svo oft gætir misskiln-
ings þegar kona og karl ræða sam-
an,“ segir í fréttatilkynningu frá
Almenna bókafélaginu hf.
Tannen leggur áherslu á að til
þess að kynin geti umgengist far-
sællega þurfi bæði konan og karl-
maðurinn að vera sér þess meðvit-
andi að hugsanagangurinn og tján-
ingarmátinn er ekki hinn sami hjá
báðum kynjum. Efni bókarinnar er
sett fram á aðgengilegan hátt,
kryddað lifandi dæmum úr hinu •
daglega lífi og stuttum frásögnum
af eigin reynslu höfundar og ann-
arra. Höfundurinn, sem er prófessor
í málvísindum, byggir bók sína á
eigin rannsóknum og vitnar auk
þess í rannsóknir fjölda annarra
fræðimanna á sama sviði.
Bókin er innbundin og er 336
blaðsíður. Almenna bókafélagið
gefur bókina út og Prentsmiðjan
Oddi hf. sá um prentun. Verð bókar-
innar er 3.390 kr.
• DAGBÓK Zlötu er dagbók
stúlku í Sarajevo. Zlata Filipovic,
sem líkt hefur verið við Önnu Frank,
veitir með dagbók sinni innsýn í
átökin á Balkanskaga eins og þau
líta út í augum barns.
í kynningu útgefanda segir m.a.:
„Dagbók Zlötu færir okkur inn að
kviku stríðsins í ríkjum fyrrverandi
Júgóslavíu. Hún sýnir hvernig
áhyggjulaust líf stúlku tekur algjör-
um stakkaskiptum og einkennist
sífellt meira af því ofbeldi sem geis-
ar i kringum hana.“
Zlata Filipovic fæddist 3. desem-
ber 1980 í Sarajevo í Bosníu. Hún
telst til múslíma en meðal forfeðra
hennar eru einnig Serbar og Króat-
ar og uppruni hennar því blandaður
eins og flestra íbúa Sarajevó.
Útgefandi er Vaka-Helgafell. Bókin
er 224 bls. Helgi MárBarðason
þýddi. Bókin kostar 1.980 kr.
Lesið úr jólabókunum
í Leikhúskjallaranum
DAGSKRÁ Listaklúbbsins í desem-
ber verður einvörðungu helguð út-
gáfu á nýjum jólabókum og geisla-
diskum og munu höfundar og tón-
listarmenn flytja úr verkum sínum.
Alls verða dagskrárnar ijórar tals-
ins, mánudaginn 5. desember, mið-
vikudaginn 7. desember, mánudag-
inn 12. desember og miðvikudaginn
14. desember og hefjast þær kl.
20.30.
Nk. mánudag verður lesið úr
ljóðabókunum Isfrétt eftir Gerði
Kristný, Þrisvar sinnum þrettán
eftir Geirlaug Magnússon og Guð
og mamma hans eftir Jóhönnu
Sveinsdóttur, skáldsögunum Amo
Amas, bamabók eftir Þorgrím Þrá-
insson, 1 luktum heimi eftir Fríðu
Sigurðardóttur, Tvílýsi eftir Thor
Vilhjálmsson, Ævinlega eftir Guð-
berg Bergsson, Játningar land-
nemadóttur eftir Laura Goodman
Salverson og Draugar eftir Paul
Auster í þýðingu Snæbjörns Arn-
grímssonar. Þórarinn Eldjárn les
úr minningabók sinni Ég man og
Silja Aðalsteinsdóttir úr bók sinni
Skáldið sem sólin kyssti, ævisögu
Guðmundar Böðvarssonar skálds.
Einnig mun Örn Magnússon,
píanóleikari leika verk eftir Jón
Leifs af nýútkomnum geisladiski
sínum Jón Leifs - píanótónlist.
Aðgangur er ókeypis.
Jólatónleikar í Árbæj-
ar- og Hjallakirkju
JÓLATÓNLEIKAR verða haldnir
6. desember í Árbæjarkirkju og
8. desember í Hjallakirkju kl.
20.30.
Kórar kirknanna flytja fjöl-
breytta og skemmtilega jólatónl-
ist. Mótettu eftir Dittersdorf, In
duke jubilo eftir Buxtehnde og
fleira. Auk þess verða einsöngur,
dúettar og tríó. Sólistar eru: Sig-
ríður Gröndal, Halla Jónasdóttir,
Fríður Sigurðardóttir, Aðalheiður
Magnúsdóttir og Garðar Thor
Cortes. Undirleik annast Laufey
Sigurðardóttir, Bryndís Pálsdóttir
og Bryndís Bergljótsdóttir ásamt
kórstjórunum Oddnýju Þorsteins-
dóttur og Sigrúnu Steingrímsdótt-
ur.
Aðgangseyrir kr. 500. Frítt fyr-
ir börn innan fermingar.
Boðið verður upp á kaffi og
smákökur eftir tónleika.
Sjábu
hlutina
í víbara
samhengi!
- kjarni málsins!
Róðstefna um tengsl
skóla og atvinnulífs
í Rúgbrauðsgerðinni föstudaginn 9. desember kl. 13-17
Setning:
Hafsteinn Þ. Stefánsson, skólameistari.
ftirarp rádstefwustjórq,
Eggerts Eggertssonar, kennslustjóra lyfjatæknibrautar.
Karl Kristjánsson, deildarsérfræöingur í .
menntamálaráðuneyti:
Jón Torfi Jónasson: Starfsnám í framhaldsskóla.
Hvers virði er bað? Er bað endastöð í námi?
■5
Þórarinn V. Þórarinsson, framkvæmdastjóri:
Hvaða kröfur á atvinnulífið að gera til skóla?
Margrét S. Björnsdóttir, aðstoðarmaður
iðnaðar- og viðskiptaráðherra:
Hvernig geta skólar þjónað atvinnulífi í landinu?
Söivi Sveinsson: Fjölbrautaskólinn við Ármúla
— staða og stefna. Nýjar menntunarleiðir.
Gerður G. Óskarsdóttir, kennslustjóri:
Er þörf fyrir meiri menntun í atvinnulífinu?
Pallborðsumrœður:
Sigríður Anna Þórðardóttir, formaður menntamálanefndar.
Anna Sveinsdóttir, lyfjatæknir.
Þórarinn V. Þórarinsson, framkvæmdastjóri Vinnuveitendasambands Islands.
Margrét Björnsdóttir, aðstoðarmaður iðnaðar- og viðskiptaráðherra.
Jón Torfi Jónasson, lektor.
Karl Kristjánsson, deildarsérfræðingur.
Gerður G. Óskarsdóttir, kennslustjóri.
Þeir sem hafa hug á að
sækja ráðstefnuna eru
beðnir að skrá sig eigi
síðar en á hádegi
fimmtudaginn 8.
desember á skrifstofu
skólans, s. 814022.