Morgunblaðið - 04.12.1994, Side 24
24 SUNNUDAGUR 4. DESEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
KVIKMYNDIR/JÓLAMYND Regnbogans verður ein vinsælasta mynd ársins
vestanhafs; Stargate, ævintýramynd í vísindaskáldsögustíl (í anda Indiana Jones,
Romancing the Stone og Star Wars), með Kurt Russel, James Spader og Jaye
Davidson í aðalhlutverkum.
Geimferðin til
Egyptalands
STARGATE er ævin-
týri um atburði sem
gerast út í geimn-
um, milljónir ljósára
í burtu, nánar tiltekið í heim-
kynnum Forn-Egypta! Um
1920 finna vestrænir fom-
leifafræðingar dularfulla,
flókna og gríðarstóra hring-
laga forngripi í jörðu í
Egyptalandi. Ráðgáta hringj-
anna vefst fyrir fræðingum
sem rannsaka þá leynilega
undir hervemd áratugum
saman og telja helst að þetta
séu einhver annars heims
verkfæri. Takist að greiða
úr flækjunni muni mönnum
opnast stjömuhlið að hrað-
braut sem liggi um óravíddir
annarra sólkerfa til framandi
menningar. Eina vandamálið
er að fræðingamir fínna ekki
réttu leiðina. Víkur þá sög-
unni til vorra daga. Fornleifa-
fræðingurinn ungi Daniel
Jackson (James Spader) er
sérfræðingur í menningu
Egyptalands hins forna.
Hann setur fram fyrir dauf-
um eyrum þá kenningu sína
að pýramídarnir séu miklu
háþróaðra fyrirbæri en svo
að þeir geti verið afkvæmi
fomegypskrar menningar.
Aðeins einn áhorfandi virð-
ist leggja eyrun við fyrirlestri
Daniels; dularfull eldri kona
(Viveca Lindfors), sem víkur
sér að honum og fær hann
til að skreppa með sér í stutta
ferð á háleynilega herstöð.
Þar leiðir hún hann að
hringjunum fomu, sem aðrir
sérfræðingar hafa staðið og
standa enn ráðþrota and-
spænis. Og það bregst ekki
að dr. Daniel Jackson verður
til að ráða áletrunina sem
leysir gátuna. Hringjunum
er snúið að hans fyrirsögn
og leynigöngin út í himin-
geiminn opnast.
Hemaðaryfirvöld hyggjast
nú ýta fræðimönnum til hlið-
ar og senda hersveit í könn-
unarleiðangur út um stjörnu-
hliðið undir stjorn Jack
O’Neill ofursta, fáláts manns
sem lætur sjálfeyðingarhvöt-
ina teyma sig þangað sem
svölunar er helst von.
En vísindamaðurinn Dani-
el er ekki á því að láta hafa
af sér tækifærið til að rann-
saka til hlítar merkasta fom-
leifafund sögunnar og hann
hefur sitt fram og fær að
slást í för með hermönnunum
þegar þeir leggja af stað á
vit hins ókunna.
Hinu megin stjörnuhliðs-
ins, milljónir ljósára í burtu,
hafna þeir á ókunnri plánetu
í menningarheiminum sem
skildi eftir sig píramídana
síðast þegar leiðir hans og
mannfólksins á jörðu lágu
saman. Plánetan er Abydos
og þar heitir höfuðborgin
Nagada.
En dulúðugur leiðtogi
geimveranna, sem heitir Ra
(Jaye Davidson), virðist ekki
á því að eiga friðsamleg sam-
skipti við jarðarbúana. Þegar
hann uppgötvar að þeim hef-
ur tekist að opna stjörnuhlið-
ið fæðist í huga hans skelfileg
og banvæn ráðagerð. Nú eiga
fomleifafræðingurinn og of-
urstinn úr vöndu að ráða og
skammur tími er til stefnu.
Þeir verða að leggja saman
krafta sína og bera sigurorð
af Ra eigi þeim að takast að
bjarga jörðinni og rata heim
aftur.
Stargate hefur slegið í
gegn meðal kvikmyndaáhorf-
enda í Bandaríkjunum og
óvænt hlotið gríðargóða að-
sókn. Hún var frumsýnd um
miðjan október og sló met
og tók inn meiri peninga
fyrstu sýningarhelgina en
nokkur kvikmynd sem frum-
sýnd hefur um hrekkjaviku-
helgina eða um 1.260 millj-
ónir íslenskra króna, og er á
topp tíu lista kvikmynda-
heimsins yfir þær myndir sem
kvikmyndagestir tóku for-
kunnarvel frá upphafi og
hrifning þeirra tók hrifningu
margra gagnrýnenda langt
fram.
Maðurinn á bak við Star-
gate er þýski leikstjórinn
Roland Emmerich, sem skrif-
aði handritið ásamt félaga
sínum Dean Devlin. „Þegar
ég var í kvikmyndaskólanum
gekk yfir bylgja af alls kyns
kenningum um að geimverur
hefðu heimsótt jörðina fyrir
þúsundum ára og bæru
ábyrgð á smíði píramídanna
og svo framvegis. Það var
ekki það að ég tryði þessum
kenningum en mér fannst
alltaf að úr þessari hugmynd
mætti búa til frábæra ævin-
týramynd," segir Emmerich.
Þegar Emmerich fór síðar að
vinna að handritsgerð í sam-
vinnu við leikarann Dean
Devlin, en þeir höfðu kyrinst
við gerð myndar Emmerichs
HÖFUNDAR píramídanna lúta stjórn Ra (Jaye Davidson).
JACK O’Neill ofursti (Kurt Russel) og hermenn hans eiga í höggi við tækniv-
ædda fomegypta í öðra sólkerfi.
Moon 44, barst þessi hug-
mynd í tal. Félagarnir gengu
með hana og leyfðu henni að
geijast allt þar til þeir höfðu
lokið við gerð hasarmyndar-
innar Universal Soldier með
Van Damme í aðalhlutverki.
Þá helltu þeir sér í slaginn,
kláruðu handritið og báru það
undir Bandaríkjaútibú
Canal+, kvikmyndadeild
frönsku áskriftarsjónvarps-
stöðvarinnar. Þar á bæ voru
menn vanir að fást við stór
verkefni á borð við Cliffhan-
ger, Terminator 2 og Basic
Instinct og þeir ákváðu að
láta til leiðast. Mario Kassar,
eigandi Carolco, var fenginn
til að stýra framleiðslunni,
eins og jafnan þegar mikið
ligggur við á þeim bæ.
55 miljónir dala, 4,1 millj-
JARÐNESKIR sendimenn líta höfuðborgina
Nagada á plánetunni Abydos.
arðar króna, voru lagðar í
verkið. Tökur fóru að veru-
legu leyti fram í eyðimörkinni
í Arizona og þangað mættu
allt að 2.000 áukaleikarar til
að leika geimegypta í fjölda-
atriðum.
í aðalhlutverkin voru
fengnir Kurt Russel, sem er
aðeins 43 ára gamall en hef-
ur verið kvikmyndastjarna í
34 ár og gerði það slðast
gott í hlutverki Wyatts Earp
I Tombstone.
James Spader sneri sér að
því að leika fornleifafræðing-
inn strax og tökum á Wolf,
þar sem hann lék á móti Jack
Nicholson og Michelle Pfeif-
fer, var lokið. Höfuðandstæð-
ingurinn Ra er svo enginn
annar en Jaye Davidson, sá
sem öðrum fremur dró millj-
ónir manna um heim allan
til að sjá Crying Game á síð-
astá ári og hlaut þar óskars-
verðlaunatilnefningu fyrir. í
helstu kvenhlutverkum eru
svo sænska leikkonan Viveca
Lindfors og sú ísraelska, Mili
Avital, sem leikur kærustu
fomleifafræðingsins í öðru
sólkerfi.
Eins og umfjöllunarefni
Stargate ber með sér var um
kostnaðarsamt ævintýri að
ræða og einkum reyndi mikið
á sviðsmyndarsmiði og alla
þá tæknibrellumeistara sem
voru til kvaddir að sjá um
að umbúnaður myndarinnar
og tæknibrellur vektu athygli
kvikmyndagesta sem eru
ýmsu vanir og láta ekki svo
auðveldlega heillast. Af-
raksturinn varð troðfull
kvikmyndahús í Bandaríkj-
unum.
Fer mjög
sj aldan í bíó
JAMES Spader er
ekki sérstaklega
mikið fyrir það gef-
inn að fara í bíó,
alla vega ekki til þess að
sjá þær myndir sem hann
sjálfur hefur leikið í. Hann
hefur annan smekk. „Eg
hefði sennilega bara farið
að sjá Wolf og Bob Ro-
berts þótt svo ég hefði
ekki leikið í þeim sjálfur,"
sagði hann í viðtali nýlega.
Hann nefndi ekki einu
sinni mynd Stevens Soder-
berghs, „Sex, lies and
videotape", myndina sem
gerði hann að stjörnu árið
1989 og færði honum verð-
laun besta leikara á kvik-
myndahátíðinni í Cannes.
James Spader er 34 ára
gamall, frá Massachusetts.
Foreldrar hans sendu hann
í fínan heimavistarskóla en
17 ára gamall gaf pilturinn
FORNLEIFAFRÆÐINGURINN Daniel Jackson, (Ja-
mes Spader) ráfar um eyðimerkur annars sólkerfis
á baki dýrs sem líkist úlfalda.
formlega skólagöngu upp
á bátinn og fór til New
Nork. Þar fluttist hann inn
á systur sína og fór að
sækja leiklistamámskeið.
Hann hafði í sig og á í
fyrstu með því að kenna
jóga en þá list hafði hann
lært af bókum og náð svo
góð tök á að aðrir vildu
greiða fyrir að njóta til-
sagnar hans.
Fljótlega fóru honum að
bjóðast smáhlutverk í
kvikmyndum, hann lék
ungan snobbhana í Pretty
in Pink, kókaínsala í Less
than Zero og gírugan lög-
fræðing í Wall Street.
En það var Steven Sod-
erbergh sem breytti öllu
fyrir strákinn þegar hann
bauð honum aðalhlutverk-
ið í „Sex, lies and vide-
otape“ þar sem Spader var
sérstaklega eftirminnileg-
ur í hlutverki manns sem
safnar einkalífi sínu og
vina sinna á myndbönd.
Síðan hefur leikarinn haft
nóg að gera og leikið stór
hlutverk í myndunum
True Colors, White
Palace, Storyville, Bob
Roberts, The Music of
Chance og Dream Lover
og nú síðast í Wolf ásamt
Jaek Nicholson og Mich-
elle Pfeiffer.
James Spader er kvænt-
ur og á 5 og 2 ára syni.
Konan hans heitir Victoria
og þau hafa verið saman
síðan þau voru unglingar.