Morgunblaðið - 04.12.1994, Page 46
46 SUNNUDAGUR 4. DESEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
KORFUKNATTLEIKUR
PETAR Jelic körfuknattleiks-
þjálfari hætti á dögunum sem
þjálfari úrvalsdeiidarliðs Hauka,
en féiagið hafði gert tæplega
þriggja ára samning við hann í
ágúst á þessu ári og hugmyndin
var að byggja upp frá grunni lið
sem eftir tvö til þrjú ár yrði
sterkt úrvalsdeildarlið. Jelic
segist hafa verið rekinn en hann
ætlar engu að síður að vera hér
á landi í vetur og eftir áramótin
hyggst hann setjast á skóiabekk
og læra íslensku. Petar er vin-
gjarnlegur maður sem virðist í
góðu jafnvægi. Hann talar hægt
og yfirvegað og virðist helst
ekki segja neitt nema að vel
íhuguðu máli. Hann er 49 ára
gamall og lék körfuknattleik í
24 ár, þar af í 12 ár í 1. deildinni
í Júgóslavíu, með Zadar og Ci-
bona Zagreb. Hann er Króati,
hefur fjórum sinnum leikið í
Evrópukeppninni íkörfubolta
og á að baki 19 landsleiki. Hann
er kvæntur og á 22 ára dóttur
og 12 ára gamlan son. Fjöl-
skylda hans dvaldi hjá honum á
Sauðárkróki í tvo mánuði á síð-
asta ári en kemur ekki á þessu
ári.
Sumir í Haukum vildu stefna að
því að vera á meðal átta efstu
liða og ég taldi strax að það yrði
frábær árangur enda
liði mjög ungt. En
Skúli Unnar eftir nokkrar æfing-
Sveinsson ar £g ag raunhæf-
sknlar . , , -
ara væn að stefna
að því að vera í hópi tíu bestu lið-
anna, það yrði góður árangur, enda
liðið mikið breytt frá fyrra ári og
aðeins þrir leikmenn eftir í hópnum.
Allir leikmenn eru ungir og höfðu
aðeins leikið í nokkrar mínútur í úr-
fcfcvalsdeildinni, nema þessir þrír, og
þvi raunhæft að gefa þeim tíma. Þú
hoppar ekkert inn í úrvalsdeildarlið
og ferð að spila eins vel og þú hefur
gert í yngri flokkunum. Ákveðið var
að vera ekki með erlendan leikmann
og ég held það sé skynsamlegt því
það eru margir ungir og efnilegir
strákar í Haukum sem verða að fá
að spila,“ segir Jelic þegar hann rifj-
ar upp fyrstu dagana hjá Haukum.
Tap er líka lærdómur
„Æfingarnar urðu að vera meira
og minna grunnæfingar, bæði í vöm
og sókn, alveg eins og í drengja-
flokki og 10. flokki og það var þung-
amiðjan í þá fjóra mánuði sem ég
var hjá Haukum. Ég vissi að við
myndum tapa mörgum leikjum og
eftir leikina í Reykjanessmótinu vissi
ég að íslandsmótið yrði erfitt. En
þegar maður tapar á maður að nýta
sér það og læra af því. Sigur er lær-
dómur og tap er líka lærdómur.
Haukum var spáð í tíunda sætið fyr-
ir mótið og ég held að liðið hafi stað-
ið sig vel. Eftir fyrstu tólf umferðim-
ar höfðum við unnið ÍR-inga, sem
eru með mjög sterkt lið, Akraness,
sem var í undanúrslitum í fyrra,
Borgnesinga, Snæfell og Tindastól.
Hinir ungu leikmenn Hauka sýndu
að þeir voru á réttri leið. Jón Amar
er orðinn frábær leikmaður og leið-
togi líka, og því má ekki gleyma.
Sigfús er einn besti leikmaður á land-
inu, sérstaklega í vöminni og Pétur
lék vel, bæði í vörn og sókn.
Þrátt fyrir þessi úrslit held ég að
það besta hafi verið hvemig ungu
strákamir léku. Óskar Pétursson er
sterkur sóknarmaður og Baldvin
Johnsen er góður vamarmaður og
má nefna sem dæmi að honum gekk
mjög vel að gæta þeirra erlendu leik-
manna sem hann var settur á. Einn-
ig var ég mjög ánægður með Þór
Haraldsson, Sigurbjöm Bjömsson og
Björgvin Jónsson. Síðan voru teknir
tveir ungir strákar úr drengjaflokki
til að æfa og leika með meistara-
" flokki og hugmyndin var að bæta
alla hluti hjá félaginu, ekki bara leik
liðsins, heldur einnig allt í kringum
hann, eins og til dæmis samskipti
við áhorfendur, fjölmiðla og önnur
lið.
Leggjum rækt við þá bestu
, Mikilvægasta aðferðin til að
byggja upp lið er að velja þá stráka
sem eiga mesta framtíð fyrir sér í
Rekinn en veit
ekki hvers vegna
- segir Króatinn Petar Jelic sem þjálfaði úrvalsdeildarlið Hauka
íþróttinni og reyna að gera þá betri
með því að byggja æfingamar í
kringum þá. Sumir sögðu að ég tæki
bara þá bestu og vildi gera þá að
stjömum, en hugsaði ekkert um aðra.
Ég er ekki sammála þessu því ég
þjálfaði alla leikmenn en það er hins
vegar rétt að ég bar ef til vill meiri
umhyggju fyrir þeim sem ég taldi
að væru mestu efnin. Ef til vill voru
þetta mistök hjá mér, en allir, bæði
þjálfarar og leikmenn, geta gert mi-
stök. Þannig er lífið," segir Jelic og
segist sjá eftir að fá ekki að halda
áfram að vinna með ungu strákun-
um. „Ég óska félaginu alls hins besta
og er viss um að Haukar eiga eftir
að verða með mjög sterkt lið á ný.“
Jelic þjálfaði Tindastól á Sauðár-
króki á síðasta leikári og sagðist
ánægður með dvölina þar og gaman
ísland út á við með íþróttum. íslensk-
ir íþróttamenn hafa sýnt að margir
þeirra eru tilbúnir að vera framarlega
í heiminum, snókerspilararnir eru
ágæt dæmi þar um.
Best að nota íslendinga
Körfuboltinn er í framför hér á
landi, um það held ég að allir séu
sammála og framtíðin er björt ef
rétt verður á spilunum haldið. Miðað
við það sem ég hef séð hér þessi tvö
ár þá held ég að best væri að byggja
körfuknattleikinn upp á íslenskum
leikmönnum. Hins vegar vil ég taka
fram að þegar íslensk lið fara í Evr-
ópukeppnina, og þangað verða þau
að fara, held ég að rétt sé að nota
þann fjölda útlendinga sem heimilt
er til að eiga einhvetja raunhæfa
möguleika og þá verður kynningin á
króatíska kvennalandsliðið, sendi
mér fax um daginn og sagðist geta
komið hingað til lands með liðið og
íslendingar þyrftu bara að sjá um
uppihald og skoðunarferðir. Þetta er
aðeins eitt dæmi og ég held til dæm-
is að Lazlo Nemeth og Kolbeinn
Pálsson gætu útvegað leiki vegna
þeirra sambanda sem þeir hafa. Þetta
kostar einhverja vinnu, en hana verð-
ur að vinna.“
Ég elska að búa á íslandi
Nú hefur heyrst að þú sért á leið
til Króatíu þar sem þú sért að fara
að þjálfa. Hvaða lið ertu að fara að
þjálfa?
„Ekkert. Ég er ekkert að fara.
Ég ætla að vera hér í vetur og eftir
áramótin ætla ég í Háskólann og
læra íslensku fyrir útlendinga. Það
■„Ungir strákar verða að
fá að leika sé ætlast til
að þeir verði góðir og
þeir geta aðeins orðið
góðir með því að leika
20-40 mínútur í hverjum
leik, ekki með þvi að sitja
á bekknum og horfa á.“
■„Ég er enn þeirrar skoð-
unar, og í raun alveg viss
um, að besta aðferðin til
að ná árangri er að leggja
rækt við þá leikmenn sem
eiga björtustu framtíðina
fyrir sér.“
■„Sjáðu handboltann, þar
eru íslendingar hátt
skrifaðir í Evrópu og allir
vita af því. Sama er að
segja af Skagamönnum í
fótboltanum. IA er þekkt
lið í Evrópuboltanum, en
menn setja upp spumar-
svip þegar talað er um
körfubolta á íslandi."
■„Nokkrir erlendir leik-
menn sem hér leika eru
góðir og hafa hjálpað að
byggja upp áhuga al-
mennings, en margir eru
Morgunblaðið/Kristinn
I eldhúskytrunni
PETAR Jelic segir íslenskan körfuknattleik á réttri leið að vissu marki, en telur að ungir og efnilegir körfuknattleiksstrákar þurfi að
fá að leika meira til að öðlast reynslu. Hann segir einnig að íslensk lið verði að leika fleiri leiki við erlend lið, þó ekki værl nema til
að kynna ísland og íslenskan körfuknattleik í Evrópu, en hérlendur körfuknattlefkur sé ekki þekktur þar.
væri að sjá hvemig ungu leikmenn-
irnir spjöruðu sig. Hann hafði verið
ráðinn þar til áframhaldandi starfa
en þegar ný stjórn tók við var honum
sagt upp og þá réð hann sig hjá
Haukum. Hann þekkir því talsvert
til körfuboltans hér á landi. Hvemig
er karfan hér á landi?
Er leikinn körfubolti á íslandi?
„Þegar ég kom fyrst til íslands
vissi ég ekkert um íslenskan körfu-
bolta og ég held almennt viti fólk í
Evrópu ansi lítið um íslenskan körfu-
bolta. Ég vissi reyndar að körfubolti
var leikinn hér því Cibona, mitt lið
í Króatíu, hafði leikið við Keflavík
og Njarðvík. Ég held að það hái
dálítið körfunni hér að íslensk lið
leika allt of lítið við erlend lið og það
sama má raunar segja um landsliðið.
íslendingar verða að leika erlendis
til að öðlast reynslu og til að komast
einhvern tíma úr C-riðlinum og upp
í B. Auðvitað snýst þetta mikið um
peninga eins og annað en ég held
að það sé mjög mikilvægt að kynna
íslenskum körfuknattleik betri.“
Hefur þróunin erlendis verið hrað-
ari en hér á landi þannig að við séum
hugsanlega alltaf að dragast aftur
úr þrátt fyrir framfarir?
„Ég veit það ekki. Það er alltaf
erfitt að bera þróun á tveimur stöðum
saman, en maður hefur heyrt þetta.
íslendingar eru fámenn þjóð og við
það verðið þið að lifa. Það er ekki
sama framboð af til dæmis hávöxn-
um leikmönnum og víðast hvar er-
lendis. En á sama tíma er lífsstíll
íslendinga á mun hærra stigi en víð-
ast hvar í Evrópu og því held ég að
það hljóti að vera hægt að finna fé
til að koma körfuknattleiknum á
skrið, svipað og er að gerast, eða
hefur gerst hjá öðrum þjóðum. Til
að verða góður í körfubolta þarf
þolinmæði, bæði hjá einstaklingum,
félagsliðum og landsliðinu. Og
landsliðið verður að komast eitthvert
til að leika við aðrar þjóðir.
Ég trúi því ekki að það sé ekki
hægt að fá landsleiki, eða leiki við
félagslið. Vinur minn, sem sér um
eru mér mikil vonbrigði að vera ekki
að þjálfa Hauka, en sem atvinnu-
þjálfari má maður alltaf búast við
einhverjum breytingum. Ég verð ekki
að þjálfa í vetur, nema auðvitað að
ég fái tilboð, en það er ljóst að ég
verð hér á landi í vetur.
Island er einstaklega fallegt og
áhugavert land og ég elska að búa
hér,“ segir Jelic og leggur áherslu á
að hann elski að búa hér. „Ef ég
gæti verið þjálfari hér á landi og ef
til vill selt eitthvað af fiski heim til
Króatíu væri það draumurinn. Þá
gæti ég líka lagt mitt af mörkum til
að auka samvinnu Króatíu og ís-
lands, á sviði viðskipta, íþrótta og
annarra mála. Þið eigið gott kjöt
hérna en íslenski fiskurinn er ein-
stakur enda er hann heimsfrægur.
Skreiðin ykkar er algjört lostæti,"
segir Jelic.
En hver vegna fórstu frá Haukum?
„Haukar ráku mig, og ég veit
ekki ástæðuna fyrir því og get því
ekki rætt það mál frekar,“ sagði
Petar Jelic.
alls ekki góðir leikmenn
og hafa ekki gert neitt
fyrir íslenskan körfu-
bolta. Því held ég að betra
væri að nota unga ís-
lenska leikmenn því þeir
verða ekki góðir á meðan
þeir sitja á bekknum fyrir
misgóða erlenda leik-
menn sem taka stöðu
þeirra á vellinum.“
■„Fjölskyldan átti að
koma hingað á föstudag-
inn var og ég var búinn
að kaupa flugmiðana, en
nú er ég hættur við það
í bili. Ég get ekki boðið
fjölskyldu minni hingað i
þessa íbúð,“ segir Jelic
og lítur í kringum sig í
litlu kjallaraíbúðinni sem
hann hefur til afnota í
gamla bænum í Hafnar-
firði.