Morgunblaðið - 10.12.1994, Side 6

Morgunblaðið - 10.12.1994, Side 6
6 B LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 1994 MORGUN BLAÐIÐ Morgunblaðið/Árni Sæberg GUDMUNDUR R. Einarsson, Ólafur Stephensen og Tómas R. Einarsson. Píanó, bassi og tromma UT ER kominn geisladiskur með Tríói Ólafs Stephensen, sem heitir einfaldlega Píanó, bassi og tromma. Öll lögin eru útsett af Ólafi. Tríóið skipa tónlistar- mennimir Ólafur Stephensen, slaghörpuleikari, Guðmundur R. Einarsson, slagverksleikari og Tómas R. Einarsson, kontrabassa- leikari og tónsmiður. Skífan gefur diskinn út og í bæklingi hans er teikning eftir Gylfa Gíslason. Ljós- myndir eru teknar af Steph. Á léttu nótunum „Um tríóið okkar sagði Guð- mundur Andri í Andrarímum 1. desember síðastliðinn: „Elegans- inn minnir á marglit borgarljós, og um leið er eins og maður fínni daufa angan af vönduðum raksp- íra í þessari tónlist. Hún er snyrti- leg með úthugsuðu kæruleysi. Hún minnir á tíma sigurvissu og sak- leysis, þegar enn var óhætt að reykja, - og þar með stíll yfir því!“ segir Ólafur og bætir við; „Og til þess að fá rétta mynd af útliti okkar þremenninganna vil ég benda á hina stórskemmtilegu teikningu Gylfa Gíslasonar. Við í tríóinu erum langt frá því að taka hlutina alvarlega. Tilfinn- ingin sem þetta gefur er eins og að taka forskot á góða hluti. Þetta er eins og að sofa frameftir, þegar maður má ekki og vera alltaf að stelast. Mér finnst það skemmti- lega gleymast alltof oft og fólk sífellt vera að leita að grafalvar- legum staðreyndum, í stað þess að draga fram það létta og skemmtilega í daglegu lífi. Til dæmis telst það stórglæpur hjá mörgum að sofa frameftir á morgnana." Spilagleði -Er þá svona gaman að spila djass? „Já, en ekki bara djass. Það er gaman að spila alla tónlist ef hún er góð. Öll góð tónlist getur orðið sígild, hvort sem hún er ættuð frá Afríku eða Vínarborg. Ég lít á það að spila sem gæfu. í fyrsta lagi að spila eingöngu og hafa gaman af því, í öðru lagi að pústa við og við og spila sér til skemmtunar og í þriðja lagi, eins og í mínu til- felli, að vera búinn að skila sínu dagsverki úti í atvir.nulífinu og leyfa sér að sýsla við eitthvað annað skapandi." -Voruð þið hvattir til þessarar útgáfu? Tríó Ólafs Stephensen á geisladisk með djass- tónlist úr ýmsum áttum. Ólafur segir tríóið fyrst og fremst spila fyrir ánægjuna. Við í tríóinu erum langt frá því að taka hlutina alvarlega. Tilfínningin sem þetta gefur er er eins og að taka forskot á góða hluti. Þetta er eins og að sofa frameftir, þegar maður má ekki og vera alltaf að stelast. „Reyndar, já. Útgefandinn kom til okkar og spurði hvort ekki væri kominn tími til að leika inná disk. í reynd hafði það ekki hvarfl- að að okkur í alvöru, því fátt í tríóinu er tekið alvarlega. En við tókum á okkur rögg og sögðum íslenskt, já takk!“ Sífelldur spuni - Hvernig er tónlistin á diskin- um? „Við hvorki sömdum lög né æfðum alvarlega fyrir upptökuna. í síðastliðin tvö til þijú ár höfum við verið að spila saman og í hvert skipti uppgötvað eitthvað nýtt. Þetta eru okkar eiginlegu æfing- ar. Diskurinn er því spegilmynd þeirrar tónlistar sem við leikum í dag.“ - En á morgun? Áttu von á breytingum á tónlistarflutningi ykkar? „Við höfum alltaf spilað í ákveðnum stíl sem bundinn er við sjötta áratuginn. Þetta er djassst- íll oft kenndur við New York. En á hinn bóginn er tónlistin alltaf að breytast innbyrðis, sem er jú eðli þessarar tónlistar, sem er spil- uð af fingrum fram í sífelldum spuna.“ S.A. 99 EIN UMFANGSMESTA KYNNING Á ÍSLENSKRI SAMTÍMAUÓDLIST ERLENDIS Breidd, dýpt og gseði FYRIR fáeinum dögum kom út haust- og vetrarhefti finnlands-sænska tímaritsins Horísont. Ritið er á annað hund- ruð síður að lengd og er að þessu sinni tileinkað íslenskri sam- tímaljóðlist. Ritið hefur að geyma liðlega 90 ljóð eftir 16 höfunda, fædda á árunum 1932-1970, auk almenns inn- gangs og kynninga á einstökum höfundum. Þetta mun vera ein umfangsmesta kynning á ís- lenskri ljóðagerð hin seinustu ár, að minnsta kosti á Norður- löndum, ef ekki víðar. Gestaritstjórar tímaritsins að þessu sinni eru rithöfundarnir Lárus Már Bjömsson og Martin Enckell. Þeir önnuðust jafn- framt þýðingu ljóðanna og ritun kynningartexta. Hugmynd sem vatt upp á sig Aðspurðir um tildrög þessarar viðamiklu kynningar á íslenskri samtímaljóðlist segir Lárus Már að forsöguna megi rekja til sum- arsins 1991. Hann var þá stadd- ur á heimili skáldsins Gösta Ágren uppi í Austurbotni í Finnlandi, en Ágren hefur getið sér frægarorðs hin síðari ár, jafnt innan Finnlands sem utan. „Ég var að kynna honum þýðingar mínar á ljóðum hans sem ári síðar komu út í ljóða- safninu Voröldum. Ég orðaði það við hann að ég hefði hug á að kynna verk Baldurs Óskarsson- ar í Finnlandi, en Baldur er öndvegishöfundur sem hefur haldið sig utan pólitískra væringa á heimavelli og því ekki verið hampað sem skyldi. Ágren benti mér á Mariu Sandin, ungan og áhugasaman ritstjóra tímarits- ins Horísont, en það tímarit hef- ur góða útbreiðslu í Finnlandi og Svíþjóð, auk hinna Norður- landanna. Ýmsar annir ollu því að ég hafði ekki samband við Mariu fyrr en tveimur árum síð- ar. Hún tók hugmyndinni for- kunnar vel, en lét í ljós óskir um víðtækari kynningu á ís- lenskri samtímaljóðlist." Verðugir en ólíkir fulltrúar Martin Enckell kveðst lengi hafa verið þess fýsandi að heim- sækja ísland. „Snemma árs 1993 fékk ég ferðastyrk úr Menningarsjóði íslands og Finn- lands með því fororði að ég legði eitthvað af mörkum til kynning- ar á íslenskum bókmenntum. Ég vatt bráðan bug að því að skrifa Lárusi, sem hefur þýtt verk eftir mig á íslensku og gefíð út í safninu Veröldum. Við höfum hist nokkrum sinnum áður og hann stakk upp á sam- starfi. Á betra varð ekki kosið.“ Lárus segist upphaflega hafa valið 8 höfunda. „Ég hafði að leiðarljósi að þeir væru spenn- andi og verðugir fulltrúar ís- lensks samtíma en jafnframt innbyrðis ólíkir. Þessir höfundar eru, auk Baldurs Óskarssonar; Jóhann Hjálmarsson, sem hefur gert flestum höfundum betur í kynningu á erlendum samtíma- bókmenntum auk þess sem verk hans sjálfs endurspegla margt það besta sem hefur verið að hrærast með evrópskum þjóðum sl. 35 ár; Árni Ibsen, sem er afkastalítið skáld en mjög vand- virkt og fágað; Elísabet Jökuls- dóttir, frumlegt og djarft skáld sem oft nær einstaklega hrein- um tóni; Linda Vilhjálmsdóttir, en hún sameinar frumlega nálg- un og þjóðlega hefð; Bragi Ólafsson, sem er heimspekilegt skáld, oft skemmtilega kald- hæðið og markvisst; Kristín Ómarsdóttir, en naivisminn og ósvífnin í verkum hennar er með því frumlegra í norrænum sam- tímabókmenntum nú um stund- ir, og Sindri Freysson, yngstur þeirra sem við völdum en ein- staklega efnilegur höfundur. Þessa átta völdum við í byijun, en brátt kom í ljós að fyrir vel- vilja Mariu Sandin og með þrot- lausri vinnu sumarið 1994 áttum við þess kost að breikka verkefn- ið til muna.“ Kom margt á óvart Að sögn Martins var vinnulag þeirra með þeim hætti að vor ogfyrri hluta sumars 1991 sendi Martin Enckell Lárus Már Björns Efftir aö hafa feróast um auón- ir Reykjanes- skagans, meó ströndum ffram um Hvalf jöró og Borgarfjöró og ekki sist hiö dul- úóuga Snæffells- nes kemur mér þessi nálægó náttúrunnar ekki lengur á óvart. Lárus honum „grófþýðingar“ á verkunum. „Þær urðu til þess að ég fékk glögga mynd af breiddinni í íslenskri samtíma- ljóðlist," segir hann. „Breidd, dýpt og gæði íslenskrar ljóðlistar komu mér stórlega á óvart. Ekki síður hversu mikið er til af góðu efni.“ Sjálf nákvæmnis- vinnan hafi hins vegar farið fram í nánu samstarfí í Reykja- vík og á Snæfellsnesi í ágúst og september. Hann segir einnig hafa komið sér á óvart hversu nálæg náttúran, landið, er í verkum íslenskra samtíma- skálda. Þessu sé ólíkt farið með finnska kollega þeirra. „Eftir að hafa ferðast um auðnir Reykja- nesskagans, með ströndum fram um Hvalfjörð og Borgarfjörð og ekki síst hið dulúðuga Snæfells- nes kemur mér þessi nálægð náttúrunnar ekki lengur á óvart. Hún hlýtur að vera óhjákvæmi- leg; svo yfírþyrmandi er máttur hennar og töfrar. Við hittum flesta höfundana, unnum í samráði við þá og átt- um með þeim ánægjulegar stundir. Næturnar urðu stund- um langar og kaffidrykkjan næsta hóflaus. Birdy, hvíti páfagaukurinn hans Lárusar, sætti færis að éta þýðingarnar, eða pappírinn öllu heldur, um leið og þær skriðu saman. Ljóð- rænni fugl hef ég ekki hitt í annan tíma. Ekki varð hjá því komist að kanna lítillega nætur- líf Reykjavíkurborgar, allt frá þungarokksbúllum upp í bráð- snotrar eftirlíkingar af klass- ískum Vínarkrám." Lárus Már segir að gönguferð með Baldri Óskarssyni, um útbrunnin eldfjalla- svæði á Reykjanesi, sé ekki síður áleitin minn- ing. Að lokum urðu höf- undarnir 16 talsins, en við upphaflegt val bætt- ust; Ingimar Erlendur Sigurðsson, Steinunn Sigurðardóttir, Pjetur Hafstein Lárusson, Vig- dís Grímsdóttir, Lárus Már Björnsson, Sigfús Bjartmarsson, Gyrðir Pálsson og Sjón. „Þessir höfundar auka enn á breiddina og fjölbreyti- leikann sem við höfðum að leiðarljósi frá önd- verðu,“ segir Lárus Már. „Ég valdi sjö þeirra, en Martin valdi mig í lokin. Hann varð nú að fá að ráða einhveiju, blessað- ur, eftir alla fyrirhöfnina!“ Frekari landvinningar fyrirhugaðir Martin segir tímann hafa sett verkinu nokkrar skorður. „Við lásum saman fjölda annarra höfunda, sem sannarlega verð- skulda einnig kynningu erlendis, en sú kynning verður að bíða betri tíma.“ Myndlistarmaðurinn Ásgeir Kr. Lárusson sá um myndrænan þátt tímaritsins og leyfði birtingu á 18 nýjum verk- um sínum. Lárus Már kveðst telja eina ánægjulegustu hlið verkefnisins þá að þeir höfðu algjörlega fijálsar hendur. „Engin forlög eða hagsmunaað- ilar höfðu hönd í bagga við val á höfundum og úrvinnslu efnis. Þýðingarnar standa því og falla með okkar eigin getu og hæfni, ásamt útsjónarsemi og innsæi höfundanna við túlkun eigin verka.“ Þeir telja líklegt að framhald verði á þessu kynningarstarfi. „Bæði finnskir og sænskir aðilar hafa sýnt áhuga á efninu og ekki er loku fyrir það skotið að til frekari útgáfu muni koma í tímaritum, eða jafnvel í bókar- formi,“ segir Lárus Már. „Einn- ig hefur Martin kynnt einstaka höfunda og verk þeirra á ljóða- kvöldum í Helsinki, þannig að góðar líkur eru á að þessi út- gáfa marki aðeins upphaf að frekari landvinningum.“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.