Morgunblaðið - 15.12.1994, Síða 1

Morgunblaðið - 15.12.1994, Síða 1
96 SIÐUR B/C/D 287. TBL. 82. ÁRG. FIMMTUDAGUR15. DESEMBER1994 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Tsjetsjenar skjóta niður rússneska herþyrlu Hóta langvinnum skæruhemaði Grosni, Moskvu. Reuter. TSJETSJENAR skutu í gær niður rússneska herþyrlu og með henni tvo menn eftir að forseti héraðsins, Dzhokhar Dúdajev, hvatti þjóð sína til þess að ráðast af hörku gegn rússnesku herliði í Tsjetsjníu. Um sama leyti gekk samninganefnd Tsjetsjena út af fundi með Rússum í Vladikavkaz í norður- hlutanum. Bendir allt til þess að þrátt fyrir hernaðaryfirburði Rússa, eigi þeir fyrir höndum langvinnt stríð við Dúdajev var þreytulegur er hann hvatti þjóð sína í sjónvarpsávarpi til þess að beijast gegn Rússum þar til þeir héldu á brott. Áður hafði hann hótað Rússum skæruhernaði þar til rússneskir hermenn myndu „deyja úr ótta og hryllingi". Talið er að um 10.000 rússnesk- ir hermenn séu í Tsjetsjníu. Rúss- neska stjórnin hótaði Tsjetsjenum því í gær, að legðu þeir ekki frá sér vopn í dag, fimmtudag, myndi öllum tiltækum ráðum verða beitt til að koma á lögum og reglu í héraðinu. Skömmu eftir ávarp Dúdajevs tsjetsjenska skæruliða. skutu tsjetsjenskir aðskilnaðarsinn- ar að tveimur MI-8 herþyrlum með hríðskotarifflum, um 45 km frá Grosní. Önnur þyrlan hrapaði til jarðar og voru tveir af þremur í áhöfn skotnir er þeir reyndu að flýja en sá þriðji gafst upp. Van den Broek krefst skýringa Allt var með kyrrum kjörum í Grosní í gær. Segjast borgarbúar reiðubúnir að verjast, ráðist Rússar á borgina, þrátt fyrir yfirlýsingar þeirra um að þeir hyggist aðeins umkringja hana. Vjatsjeslav Nikorov, formaður nefndar rússneska þingsins um ut- anríkis- og öryggismál, fullyrti í gær í Strassbourg, að Rússland væri ekki sama stórveldið og forð- um, og að nágrannar þess hefðu enga ástæðu til að óttast afskipti þeirra í Tsjetsjníu. Hans van den Broek, sem fer með samskipti Evrópusambandsins við ríki utan þess, var ekki sáttur við þessa yfirlýsingu Rússa. Vildi hann fá svör við því hvers vegna þeir hefðu beitt hervaldi í Tsjetsjníu og sagðist telja aðgerðir þeirra í héraðinu allt of umfangsmiklar, ef ætlunin væri að koma á ró í land- inu. Bar hann aðgerðirnar saman við Bosníu, þar sem reynt væri að ná pólitísku samkomulagi og Rúss- ar stæðu í vegi fyrir auknu vopna- valdi, jafnvel til að vernda griða- svæðin. Reuter TSJETSJENSKUR aðskilnaðarsinni hleypur á brott með feng sinn úr rússneskri herþyrlu, sem skotin var niður skammt frá Grosní í gær. Tveir af þremur úr áhöfn þyrlunnar voru skotnir er þeir reyndu að flýja af slysstað en sá þriðji var tekinn höndum. * Italía Sljórnin í andar- slitrum? Róm. Reuter. NORÐURSAMBANDIÐ, einn þriggja stjórnarflokka á Ítalíu, greiddi í gær atkvæði með tillögu stjórnarandstöðunnar í neðri deild þingsins um að sett yrði á fót nefnd til að rannsaka rekstur sjónvarps- stöðva landsins. Talið er að með þessu sé flokkurinn í reynd að undir- rita dauðadóm samsteypustjórnar Silvios Berlusconis forsætisráðherra sem á öflugasta fjölmiðlaveldi Ítalíu og sætir yfirheyrslum vegna meintra mútugjafa til embættismanna. Berlusconi verst enn af hörku og segir að ásakanir á hendur sér séu tilhæfulausar, þær séu hluti „sam- særis gegn mér og stjórn minni sem er svo víðfeðmt og offorsið svo mik- ið að jaðrar við valdarán" eins og hann orðaði það í blaðaviðtali í gær. Biondi gagnrýndur Hinir stjómarflokkarnir tveir sök- uðu Norðursambandið um svik og ráðherra samstarfs stjórnar og þings sagði að þingsályktunartillaga, sem gagnrýnir harkalega störf Alfredos Biondis dómsmálaráðherra, jafngildi vantrausti á stjómina hljóti hún sam- þykki. í tillögunni er ráðherrann sakaður um stjórnarskrárbrot, sagt að hann hafi valdið ringulreið í dómskerfinu og átt sök á því að Antonio Di Pi- etro, rannsóknardómari í Mílanó, sagði af sér fyrir nokkru. Biondi lét nýlega hefja rannsókn á störfum vinnuhóps Di Pietros auk þess sem starfssvið hópsins var skert mjög. Ólympíuskákmótið í Moskvu haldið í alræmdu glæpahverfi BESTU skákmt.m heims, sem keppa nú á Ólympíuskákmótinu í Moskvu, eiga elnnig í baráttu við glæpalýð borgarinnar. Hafa nokkrir skákmenn verið rændir, á þá ráðist og þeim hótað. Makedóníumenn hafa orðið verst úti, en um 9.500 dölum hefur verið rænt af þeim. Mótið er hald- ið á Cosmos-hótelinu sem er í alræmdu glæpahverfi. Andri Hrólfsson, annar fararstjóra ís- lenska skákliðsins, segir íslend- ingana ekki hafa lent í neinu misjöfnu, enda gæti þeir þess að vera ekki einir á ferð og að vera ekki seint á ferli. í fyrra skiptið sem Makedóníu- menn lentu í klóm glæpalýðs, töp- uðu þeir 7.000 dölum, að sögn San Francisco Cronicle. Þeir voru að skipta gjaldeyri er grímuklædd- ir menn réðust að þeim og hrifs- uðu alla peningana. Nokkrum dögum síðar var Lazar Jancev, Skák- menn rændir fararstjóri liðsins, sleginn í rot og 2.500 dölum rænt af honum fyrir utan hótelið sem hann dvelur á. Bæði tilvikin voru kærð til lög- reglu en enginn árásarmannanna hefur fundist. Skákmanninum Garrí Kasparov og Andrej Mak- arov, formanni Rússneska skák- sambandsins, rann til rifja ólán Makedóníumanna og buðust þeir til að bæta þeim skaðann. Þá hefur bandaríska skákliðið lent í klóm ræningja. Alexander Jermonlinskíj mátti sjá á bak 700 dölum og myndavél var stolið úr herbergi annars skákmanns. Öðr- um liðsmönnum hafa borist síma- hótanir á öllum tímum sólar- hringsins auk þess sem barið hefur verið .á hóteldyr þeirra um hánótt. Andri segist hafa heyrt af fjór- um ránum og að þá hafí skák- mennirnir verið einir á þvælingi að kvöldlagi. Slíkt teljist tæpast skynsamleg hegðun. Hvað varði ónæði á hótelinu, segir Andri að fjöldi varða gæti skákmannanna. Hins vegar sé símkerfið í borg- inni í ólestri, engin símaskrá til og líklegt að fólk hringi í tíma og ótíma einhveija vitleysu. Þá hafi þær sögur gengið af Rússum í gegnum tíðina, að nóttina fyrir keppni sé gjarnan hringt í and- stæðinga þeirra til að tryggja að þeir mæti illa sofnir til képpni. A flótta undan Palestínu- mönnum ALBLÓÐUGUR ísiaelskur her- maður reynir að komast á bíl sínum frá markaði í Ramallali á Vesturbakkanum eftir að Pal- estínumenn höfðu grýtt hann. Nokkur tími leið áður en ísra- elskir hermenn komu mannin- um til bjargar og fluttu liann á sjúkrahús. Hann var ekki inikið slasaður. Ráðist var á þrjá aðra ísraelska hermenn í gær, sprengja sprakk í bíl tveggja hermanna og einn var stunginn. í gær voru sjö ár liðin frá stofn- un palestínsku hermdarverka- samtakanna Hamas.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.