Morgunblaðið - 15.12.1994, Síða 2
2 FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Geislameðferðar-
tæki á Landspítala
Engin
ábyrgð á
notkun
FYRIRTÆKIÐ, sem framleiðir kób-
aít-geislameðferðartæki sem notað
er á krabbameinsdeiid Landspítalans,
ábyrgist ekki notkun þess næstu 5
ár og segist ekki geta ábyrgst vara-
hluti, auk þess sem komið hafi fram
málmþreyta í tækjum af sömu ár-
gerð. Nýleg rannsókn á íslenska
tækinu hefur ieitt í ljós að engin
sprunga er í því. Þórarinn Sveinsson,
yfírlæknir á krabbameinsdeild, segir
að engin hætta stafi því af tækinu.
26 ára kóbalttæki
Kóbalttækið er 26 ára og hefur
verið ákveðið að hætta notkun þess
á miðju næsta ári. Endurnýja þarf
geislahleðslu tækisins á 5,2 ára fresti
og var það síðast gert 1989.
Þórarinn sagði að þegar taka hefði
þurft afstöðu til hvort kaupa ætti
nýja hleðslu hefði framleiðandinn
veitt þær upplýsingar að það ábyrgð-
ist ekki tækið næstu 5,2 árin vegna
skorts á varahlutum og málmþreytu
sem hefur komið fram í tækjum sömu
árgerðar annars staðar.
„Vegna máimþreytu get'a sprung-
ur komið í tækið og hausinn utan
um geislavirka efnið brotnað frá. Við
létum sérfræðinga hérlendis skoða
tækið í júlí eftir að hafa fengið þess-
ar upplýsingar. Þeir fundu engar
sprungur þannig að það er eins ör-
uggt og það getur verið á þeim tíma,“
sagði Þórarinn.
Krabbameinsdeildin hefur óskað
eftir að nýtt tæki verði keypt en það
kostar 50-60 millj. Þórarinn sagði
að hitt geislameðferðartækið, sem
keypt var til landsins 1989, anni
ekki þörfinni og hætt sé við að bið-
listar eftir meðferð lengist verði nýtt
tæki ekki keypt á næsta ári.
RLR rannsakar grun um
peningaþvætti á Islandi
RANNSÓKNARLÖGREGLA ríkis-
ins hefur undanfarnar vikur verið
að rannsaka grunsemdir um að ís-
lenskar fjármálastofnanir hafi verið
notaðar til að þvætta peninga. Fyr-
irtækið Grimaldi Hoffman & Co. í
Belgíu, sem skráð er í Nassau á
Bahamaeyjum, er grunað um að
hafa reynt að koma illa fengnum
fjármunum í umferð. Búið er að
handtaka einstakling í Belgíu sem
grunaður er um að bera ábyrgð á
svikunum.
Jón H. Snorrason, deildarstjóri
hjá RLR, staðfesti að lögreglan
hefði í nokkrar vikur rannsakað
grunsemdir um að íslenskar fjár-
Tengist umfangsmiklu svikamáli
sem komið hefur upp í Belgíu
málastofnanir hefðu verið notaðar
til peningaþvættis. Hann sagði að
ekki væru uppi grunsemdir um að
íslenskar fjármálastofnanir væru
vitandi vits þátttakendur í ólög-
legri starfsemi.
ísland hefur skuldbundið sig til
að taka þátt í baráttu gegn pen-
ingaþvætti, en einkenni þess er
að reynt er að koma peningum,
sem aflað hefur verið með ólög-
mætum hætti, í umferð og þá
gjarnan í löndum sem eru fjarri
upprunalandinu. Einkenni þessara
mála er að reynt er að flækja til-
færslur á peningum sem mest
þannig að erfiðara sé að rekja
uppruna þeirra.
Veltir nilljörðum
Grimaldi Hoffman & Co. er fyrir-
tæki sem veltir milljörðum ís-
lenskra króna og í ákæru sem gef-
in hefur verið út í Belgíu á forsvars-
mann fyrirtækisins segir að fjár-
málastofnanir á íslandi og í Austur-
ríki, Belgíu og Andorra séu grunað-
ar um að hafa verið notaðar til að
koma peningum fyrirtækisins í
umferð.
Jón sagði að þegar reikningur
hefði verið stofnaður í fjármála-
stofnun á íslandi og miklir pening-
ar hefðu farið að streyma um hann
hefði RLR fengið ábendingu um
málið og rannsókn hefði háfist.
Hann sagði að rannsóknin færi
fram í tengslum við þá alþjóðlegu
rannsókn sem stæði yfir.
Jón vildi ekki svara því að hvaða
fjármálafyrirtæki á íslandi rann-
sóknin beindist eða hvort um eitt
eða fleiri fyrirtæki væri að ræða.
Þingsályktunartillaga á Alþingi
Lánskjaravísi-
talan teng’d ECU?
TILLAGA um að tengja lánskjara-
vísitölu við evrópska ECU-gjaldmiðil-
inn hefur verið lögð fram á Alþingi.
Magnús Jónsson veðurstofustjóri
og varaþingmaður Alþýðuflokks hef-
ur lagt fram þingsályktunartillögu
um að ríkisstjóm verði falið að kanna
hvort rétt sé að breyta lánskjaravísi-
tölu þannig að hún verði samsett áð
hálfu úr vísitölu verðlags á íslandi
og að hálfu úr gengisvísitölu ECU.
Magnús segir í greinargerð, að
nú séu vísbendingar um betri tíð og
aukinn kaupmátt. Skuldug heimili
munu ekki njóta góðs af því, vegna
mistaka við breytingu á lánskjara-
vísitölu árið 1989 þegar vísitalan var
tengd Iaunavísitölu.
I ljósi þess að íslenskur fjár-
magnsmarkaður verði opinn um
næstu áramót sé ekki lengur þörf á
sérstakri verndun sparifjár vegna
verðbólgu hérlendis en gríðarlegir
fjármunir séu bundnir Iánskjaravísi-
tölu og því ekki hægt að afnema
hana með einu pennastriki. Því vilji
hann láta kanna hvort ekki sé rétt
að laga grundvöll vísitölunnar að
breyttu efnahagsumhverfi með
tengingu við ECU.
Morgunblaðið/RAX
Mjólk um
borð í bátinn
TVO býli á landinu eru að sögn
Páls Jóhannessonar í Bæjum á
Snæfjallaströnd algerlega háð
bátum með flutning mjólkur í
samlag, er það bú hans og Vigur.
Vegurinn fyrir Kaldalón út á Snæ-
fjallaströnd er ófær mestallan
veturinn og hafa bændurnir alltaf
sent mjólkina sjóieiðina yfir ísa-
fjarðardjúp, í mjólkursamlagið á
Isafirði. Djúpbáturinn Fagranes
kemur við á bæjunum tvisvar í
viku og var myndin tekin þegar
Páll aðstoðaði við að hífa flutn-
ingstankinn um borð í Djúpbát-
inn. Byggð er algerlega að leggj-
ast af á Snæfjallaströnd og býst
Páll, sem orðinn er síðasti bónd-
inn á Ströndinni, við því að flytj-
ast í burtu næsta sumar.
Umframbirgðir
kartafina seldar
til Norðurlanda
í GÆR fór 25 tonna reynslusend-
ing af íslenskum kartöflum til
Svíþjóðar á vegum Ágætis og
Sölufélags garðyrkjumanna.
Ágæti hefur selt um 60 tonn til
Færeyja frá því í október og er
reiknað með að Færeyingar kaupi
um 200 tonn af íslenskum kartöfl-
um í vetur. Milli jóla og nýárs fer
reynslusending frá Ágæti til Nor-
egs og eru vonir bundnar við að
Norðmenn kaupi megnið af um-
frambirgðum af íslenskum kartöfl-
um í vetur, að sögn Matthíasar
Guðmundssonar, framkvæmda-
stjóra Ágætis. Þá hafa verið kann-
aðir sölumöguleikar á kartöflum
til Rússlands, Slóvakíu og Austur-
ríkis.
Um miðjan nóvember voru kart-
öflubirgðir í landinu um 8500 tonn,
að sögn Sigurbjarts Pálssonar,
formanns Landssambands kart-
öflubænda. Reiknað er með að
innanlandsneysla fram að næstu
uppskeru verði um 5000 tonn og
því séu til um 3500 tonna umfram-
birgðir.
Stórir aðilar í Noregi
Að sögn Matthíasar hafa við-
ræður við Norðmenn staðið lengi.
Ef samningar nást er reiknað með
útflutningi frá áramótum og fram
undir vor. „Þetta eru mjög stórir
aðilar og þeir gætu þess vegna
tekið lungann af því sem er aflögu
til útflutnings," sagði Matthías.
Hann sagði miklar vonir bundnar
við að það takist að losna við
umframbirgðirnar úr landi og
sagðist vera bjartsýnn á sölu" til
Noregs. Útflutningur þangað ætti
og að ganga greiðlega vegna EES-
aðildar beggja landanna.
Þokkalegt verð
í viðræðunum við Norðmenn
hefur verið rætt um svipað verð
og þeir kaupa kartöflur á í Bret-
landi og öðrum Evrópulöndum.
Matthías vildi ekki tjá sig u'm verð-
ið en sagði það „þokkalega viðun-
andi“ miðað við það sem boðið
hefur verið hér innanlands í vetur.
Samkvæmt heimildum blaðsins
mun verðið vera nálægt 30 krónum
fyrir kílóið. Seljendur þurfa að
greiða flutningskostnað og til
Norðurlanda mun hann vera ná-
lægt 20% af söluverðinu. Enginn
tollur er á kartöflum til Noregs og
lítilsháttar tollur til Færeyja, að
sögn Matthíasar. Reiknað er með
að tollur komi á kartöflur til Sví-
þjóðar eftir að landið gengur í ESB.
Alvarlegur vandi
Sigurbjartur Pálsson sagðist
vona að útflutningurinn hjálpi til
við að koma jafnvægi á innan-
landsmarkaðinn. Hann segir
ástandið meðal kartöflubænda
háalvarlegt, það hafí verið erfitt
undanfarin ár en nú keyri um
þverbak. Það líti út fyrir að tölu-
verður hópur kartöflubænda geti
orðið gjaldþrota, ef ekki rætist úr.
Frumvarp um breytingar á mannanafnalögum gerir ráð fyrir, veigamiklum breytingnm
Nöfn viðurkennd
falli þau að málinu
Útlendingum heimilt að halda nöfnum s.ínum
óbreyttum og gefa bömum sínum erlend nöfn
FRUMVARP til breytinga á mannanafna-
lögunum frá 1991 hefur verið kynnt í þing-
flokkum og ríkisstjórn. Samkvæmt upplýs-
ingum Morgunblaðsins er þar kveðið á um
veigamiklar breytingar, sem gerðar eru
vegna gagnrýni á fyrri lög.
Útlendingar mega aftur fá fyrra nafn
Fyrsta og veigamesta breytingin er sú að
í stað þess að krafa verði gerð til þess að
eiginnafn skuli „vera íslenzkt og hafa unn-
ið sér hefð í íslenzku máli“ eins og segir í
núverandi lögum, verði leyft að gefa bami
nafn, sem falli að málinu, þ.e. geti tekið
íslenzka eignarfallsendingu þótt útlent sé.
Þetta getur átt við um nafn á borð við
Belinda, sem mannanafnanefnd hefur ekki
viljað leyfa, en ekki um t.d. nafnið Siv.
Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins
liggja listar yfir nöfn, sem leyfð yrðu sam-
kvæmt þessu, ekki fyrir.
Önnur breyting er sú að erlendum ríkis-
borgurum, sem öðlast íslenzkt ríkisfang, er
ekki lengur gert að taka upp íslenzkt eigin-
nafn ásamt nafni, sem hann ber fyrir.
Samþykki Alþingi frumVarpið mega út-
lendingar halda nafni sínu þótt þeir fái
íslenzkan borgararétt. Erlendir menn, sem
áður hafa verið skyldaðir til að taka sér ís-
lenzk nöfn eða fella niður erlend, geta sótt
um að fá nafni sínu breytt til fyrra horfs.
Börn erlendra ríkisborgara geta einnig
haldið nöfnum sínum. í þeim tilfellum þar
sem annað foreldri bams er íslenzkt en hitt
erlent, má nefna barnið einu erlendu nafni,
jafnvel þótt það falli ekki að íslenzku beyg-
ingakerfi. Öll börn verða hins vegar að
hafa a.m.k. eitt nafn sem fellur að málinu.
Þriðja breytingin, sem Morgunblaðinu er
kunnugt um að frumvarpið felur í sér, er
sú að millinöfn verði leyfð.
Stuðlað að ættarnöfnum sem
millinöfnum
Stuðlað verði að því að ættarnöfn verði
borin sem millinöfn fremur en kenninöfn.
Hins vegar verði þeim, sem þegar bera
ættarnöfn, heimilt að halda þeim og sama
eigi v*ð um afkomendur þeirra. Hins vegar
mega íslenzkir ríkisborgarar.ekki taka upp
ættarnafn maka síns sem kenninafn. Þeir
geta tekið það upp sem millinafn.
Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins
vildi nefnd sú, sem samdi frumvarpið, upp-
haflega að stefnt yrði að því að ættarnöfn
aflegðust smám saman sem kenninöfn og
yrðu öll millinöfn, með því að börn fengju
aðeins að taka upp ættarnafn foreldra sem
millinafn. Vegna andstöðu, sem sú hugmynd
mætti, var hins vegar horfið frá henni.