Morgunblaðið - 15.12.1994, Síða 4

Morgunblaðið - 15.12.1994, Síða 4
4 FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Ráðherrafundur EFTA í Genf ákveður breytingar á stofnunum samtakanna Dómurum og eftirlitsfulltrúum fækkað í þrjá Þrjú ríki tilkynntu úrsögn sína úr EFTA á ráðherrafundi í Genf í gær. Þau fjögur, sem eftir eru, munu endurskoða og einfalda starfsemi samtakanna. Eftirlitsfulltrúum í Eftirlitsstofnun EFTA verður fækkað í þrjá, eins og dómurum við EFTA-dómstólinn, sem flyzt til Lúxemborgar. Reuter EFNAHAGSMÁLARÁÐHERRA Sviss, Jean-Pascal Delamuraz, á ráðherrafundi EFTA í Genf í gær. Við hlið hans situr Franz Blankart ráðuneytisstjóri. Lítill áhugi á aðild A-Evrópuríkja HÖFUÐSTÓÐVAR EFTA í Genf. Öllu starfsfólki þar hefur nú verið sagt upp vegna endurskipulagningar, en væntanlega verða einhverjir endurráðnir. Norðmenn vilja að sem mest af starfsem- inni flytjist til Brussel þar sem höfuðstöðvar ESB eru. HUGMYNDIR um að EFTA verði eins konar biðsalur Austur-Evr- ópuríkja, sem stefna að aðild að Evrópusambandinu, fengu lítið fylgi á ráðherrafundi EFTA í Genf í gær. Samþykkt var að EFT A-rík- in fjögur, sem verða eftir um ára- mót, myndu gera fríverzlunar- samning við Slóveníu, en svör um hugsanlega aðild eða aukaaðild rikisins voru ekki gefin. A ráðherrafundinum kom fram að gerð fríverzlunarsamnings yrði það, sem Slóvenar yrðu að sætta sig við í.bili. „Við munum taka málið upp að nýju,“ sagði Grethe Knudsen, utanríkisvið- skiptaráðherra Noregs. Hugmyndir hafa verið uppi að undanförnu um að EFTA gæti orðið eins konar biðsalur ríkja, sem vilja ganga í Evrópusam- bandið, og hefur Jacques Delors, fráfarandi forseti framkvæmda- stjórnar ESB, til dæmis sagt að Austur-Evrópuríki gætu byijað á því að gerast aðilar að EES, áður en þau fengju fulla aðild að ESB. Mats Hellström, utanríkisvið- skiptaráðherra Svíþjóðar, sagði í gær að „EFTA-andinn“ í hinum litlu samtökum byggi ríki undir aðild að „Stóru Evrópu". Ríkin, sem eftir eru í EFTA, hafa hins vegar ekki mikinn áhuga á aðild Austiir-Evrópu- ríkja. Embættismenn í Genf sögðu í gær að Norðmenn væru einkum á móti því að fyrrverandi komm- únistaríki, með vanþróuð hag- kerfi sín, kæmu inn í samtökin. Með því myndi eðli EFTA breyt- ast og það yrði hugsanlega erfið- ara fyrir Norðmenn en ella að gera þriðju tilraunina til inn- göngu í Evrópusambandið. Reuters-fréttastofan hefur eft- ir Jóni Baldvin Hannibalssyni ut- anríkisráðherra að ekki sé eftir sérstaklega miklu að slægjast fyr- ir Austur-Evrópuríkin að gerast aðilar að EFTA. „ Við hpfum nú þegar fríverzlunarsamninga við flest Austur- og Mið-Evrópuríkin. Að gerast aðilar myndi ekki bæta neinu sem máli skipti við réttindi þeirra,“ segir Jón Baldvin. Hann segir að önnur ríki en Slóvenía hafi ekki sýnt EFTA áhuga. „Við munum aðeins bregð- ast við ef og þegar okkur berast umsóknir." Astæðan fyrir því að Slóvenía sýnir EFTA áhuga er hins vegar sú að ríkið hefur ekki fengið sömu forgangsmeðferð hjá ESB og önn- ur Austur-Evrópuríki, sem eru jafnvel skemmra á veg komin efnahagslega. Þar er einkurn af- stöðu ítala um að kenna, en þeir vilja leysa gömul deilumál frá því þeir þurftu að afsala sér land- svæðum til Slóveníu í lok seinna stríðs. Anton Bebler, sendiherra Sló- veníu í Genf, sagði í gær er niður- staða EFTA-fundarins lá fyrir-að hann byggist við að fríverzlunar- samningur við EFTA yrði undir- ritaður í marz. „Þá sjáum við hvað setur,“ sagði hann. Byggt á Reuter og DPA SVÍÞJÓÐ, Finnland og Aust- urríki tilkynntu í gær formlega úrsögn sína úr Fríverzlunarsamtökum Evrópu (EFTA) á ráðherráfundi samtakanna í Genf, en þessi ríki ganga væntanlega í Evrópusam- bandið um áramót. Eftir verða ís- land, Noregur, Sviss og Liechten- stein. Fulltrúar ríkjanna, sem eftir verða, lýstu því yfir að samstarfinu yrði haldið áfram, en það einfaldað nokkuð. Vinnuhópur hefur verið settur á stofn til að ganga frá skipu- lagsmálum vegna brejdtrar aðildar og á hann að ljúka störfum um áramót. Á ráðherrafundinum, sem hald- inn var undir forsæti Jóns Baldvins Hannibalssonar utanríkisráðherra, kom fram að ekki væri nauðsynlegt að gera breytingar á sjálfum samn- ingnum um Evrópskt efnahags- svæði þótt þijú EFTA-ríki gengju í Evrópusambandið. Noregur og Island hafa hins vegar gengið frá nauðsynlegum breytingum á samn- ingnum um Eftirlitsstofnun EFTA og EFTA-dómstólinn, en þar er gert ráð fyrir að dómurum og eftir- litsfulltrúum fækki úr sjö í þijá. Með öðrum orðum verður einn norskur fulltrúi í hvorri stofnun, einn íslenzkur og jafnframt er gert ráð fyrir að Liechtenstein muni eiga þar fulltrúa. Furstadæmið hefur nú gengið frá breytingum á tolla- bandalagi sínu við Sviss til þess að geta gerzt aðildarríki EES sem fyrst á nýja árinu. í lokayfirlýsingu ráðherrafundarins er væntanlegri aðild Liechtenstein fagnaö. Dómstóllinn flytur en deilt er um aðra starfsemi Gert er ráð fyrir að EFTA-dóm- stóllinn flytjist til Lúxemborgar, þar sem Evrópudómstóllinn hefur að- setur. í fréttaskeyti Reuíers-fréttastof- unnar kemur fram að Grethe Knudsen, utanríkisviðskiptaráð- herra Noregs, hafi á blaðamanna- fundi lagt áherzlu á að starfsemi EFTA flyttist í sem mestum mæli til Brussel, enda myndi hún að mestu leyti snúast um viðhald EES- samningsins. Eftirlitsstofnun EFTA starfar nú þegar í Brussel og hluti af skrifstofuhaldi samtakanna hef- ur sömuleiðis verið fluttur þangað. Efnahagsmálaráðherra Sviss, Je- an-Pascal Delamuraz, sagði hins vegar að höfuðstöðvar EFTA ættu að verða áfram í Genf. Jón Baldvin Hannibalsson sagði að endanlegar tillögur um staðsetningu starfsem- innar yrðu lagðar fyrir ráðherra- fund EFTA 15. janúar. Þá yrðijafn- framt ákveðið hvernig skipting kostnaðar milli aðildarríkjanna fjögurra yrði. Reynt að viðhalda núverandi fríverzlun I Iokayfirlýsingu fundarins í Genf fagna ráðherrar EFTA-ríkjanna þeirri viðleitni af hálfu EFTA og ESB-ríkjanna að tryggja einsleitni reglna á Evrópska efnahagssvæð- inu með því að flýta upptöku nýrra reglna Evrópusambandsins í EES- samninginn og að bæta framkvæmd EES-reglna. Ráðherrarnir sögðu :EFTA-ríkin áfram myndu taka þátt í mótun og töku ákvarðana á vett- vangi Evrópusambandsins. Ráðherrarnir lýstu því yfir að þeir myndu áfram vinna að aukinni samrunaþróun í Evrópu og sam- þykktu „að láta einskis ófreistað til að viðhalda núverandi fríverzlun milli núverandi EFTA-ríkja eftir að löndin, sem nú ganga úr samtökun- um, gerast aðilar að Evrópusam- bandinu." Þarna er átt við að gerð- ir verði samningar við íslendinga og Norðmenn um að viðhaldið verði lágum tollum á ýmsar fisk- og land- búnaðarafurðir, einkum síld, sem seld er til Svíþjóðar og Finnlands. Uppsagnir og endurráðningar Öllu starfsfólki EFTA, um 250 manns sem starfa bæði í Genf og Brussel, hefur verið sagt upp störf- um vegna endurskipulagningar samtakanna. Af þeim starfa 130 fyrir EFTA-skrifstofurnar í báðum borgum, 93 hjá Eftirlitsstofnuninni og 20 hjá EFTA-dómstólnum. Gert er ráð fyrir að einhveijir verði ráðn- ir aftur, en þau mál verða í athug- un næstu vikurnar. Ráðherrarnir létu í ljós þakklæti til starfsfólksins í lokayfirlýsingunni. Slys í hálku o g við þrif MJÖG mikið var að gera á slysa- deild Borgarspítalans á þriðjudag, enda gerði þá asahláku og rok á höfuðborgarsvæðinu. Hálkuslysin eru þó ekki þau einu, sem slysa- deildin þarf að sinna, því í desem- ber verða alltaf allmörg slys við jólahreingerningar í heimahúsum. Þá setja umferðarslys svip sinn á mánuðinn. Vilhjálmur Arason, læknir á slysadeild, sagði í samtali við Morg- unblaðið að hálkuslys hefðu ekki verið algeng það sem af væri vetri, en þriðjudagurinn hefði verið áber- andi verstur hingað til. „Hálkuslys eru alltaf mörg þegar gerir asa- hláku og rok,“ sagði Vilhjálmur. „Eldra fólk slasast oftar en yngra og við höfum fengist við handleggs- brot, ökklabrot, tognanir og mar.“ Fá aðsvif Vilhjálmur sagði að slysin í des- ember væru þó ekki bundin við hálkuna. „í jólamánuðinum fjölgar mjög þeim sem koma til okkar eftir slys, sem verða við hreingern- ingar í heimahúsum. Eldri konur fá til dæmis oft aðsvif þegar þær klifra upp á stóla og teygja sig upp.“ Vilhjálmur sagði að jólaumferð- in tæki líka sinn toll. „Umferðar- slys hafa verið allmörg, enda er meiri hraði og stress í jólamánuðin- um en endranær." Morgunblaðið/Kristinn Konfekt, já takk! RÁÐHERRAR, þingmenn og forvígismenn samtaka at- vinnulífsins heimsóttu innlenda sælgætisgerð í gær á veg- um átaksins íslenskt, já takk sem staðið hefur yfir frá nóvemberbyrjun víða um land. Tilgangur heimsóknarinnar var að minna á mikilvægi íslenskrar framleiðslu og hér sjást Jóhanna Sigurðardóttir alþingismaður, Steingrímur J. Sigfússon varaformaður Alþýðubandalagsins og Bene- dikt Davíðsson forseti Alþýðusambands íslands bera sig fagmannlega að í húsakynnum Nóa og Siríusar hf. við Hestháls í gær en heimsóknin hófst klukkan tíu árdegis. I l > \

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.