Morgunblaðið - 15.12.1994, Síða 8

Morgunblaðið - 15.12.1994, Síða 8
8 FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Sjúkralibar segja fjármálarábherra bera ábyrgb á því ástandi sem skapast hefur á sjúkrastofnunum: Friðrik frosinn r víðar en á olnboga Við verðum að reyna að skella honum í hitakassa systir. Það er að myndast jökull á toppstykkinu. . . Sveinbjörn Björnsson rektor Háskóla Islands Ekki hagkvæmt að loka tannlæknadeild SVEINBJÖRN Björnsson, rektor Háskóla íslands, segir að samkvæmt nýlegri athugun hagfræðistofnunar Háskóla íslands sé ekki þjóðhags- lega hagkvæmt að leggja niður tann- læknanám í Háskólanum, eins og komu fram hugmyndir um á Alþingi við aðra umræðu um fjárlög í fyrra- dag. Ennfremur telji háskólinn sig ekki hafa lagaheimildir til að leggja niður nám í einstökum greinum og hann varpar þeirri hugmynd fram hvort einkavæða eigi tannlækna- námið. Forseti tannlæknadeildar segir hugmyndir um að hætta tann- læknanámi glapræði og formaður nemendafélags tannlæknanema er andvígur þessum hugmyndum. Sveinbjörn sagði að háskólinn hefði lagt fram tillögur um laga- breytingar en samstaða ekki tekist um þær í rikisstjórn. Ef loka ætti einhverri deild háskólans eins og tannlæknadeild þyrfti það að eiga sér langan aðdraganda þar sem skól- inn hefði skyldur við þá nemendur sem þegar hefðu hafið nám og tann- læknanámið væri sex ára nám. Hann sagði að hugmyndin um að leggja af tannlæknanámið væri ekki ný. Hún hefði síðast komið upp í ársbyrj- un 1993 og þá hefði Hagfræðistofn- un háskólans verið falið að gera úttekt á þjóðhagslegri hagkvæmni tannlæknanámsins. Komið hefði í ljós að kostnaður við að mennta hvern tannlækni væri að minnsta kosti tvöfalt hærri í öðrum löndum sem við bærum okkur saman við en hann væri hér á landi. Ef námið væri lagt niður, leitað eftir samning- um við önnur lönd um að taka að sér námið og við þyrftum einungis að borga þann kostnaðarauka sem af því hlytist fyrir þessi lönd að taka að sér nýja nemendur mætti áætla að kostnaður á nemenda yrði 700 þúsund á mann. Kostnaðurinn hér væri 900 þúsund krónur á nemenda. Til viðbótar kæmi að þeir sem fengju þjónustu í tannlæknadeildinni væru efnalitlir, vistmenn á stofnunum og sjúklingar, sem borguðu einungis 20% af töxtum tannlækna, og mætti áætla að útgjöld Tryggingastofnun- ar myndu aukast um 17 milljónir ef þessi þjónusta væri ekki fyrir hendi. Að öllu samanlögðu hefði það því ekki reynst þjóðhagslega hag- kvæmt að leggja námið niður og ekki mætti heldur gleyma því að ýmist hagræði væri því samfara að hafa tannlæknanám hér. Þar ygeru stundaðar rannsóknir og endur- menntun tannlækna auk annars. Sveinbjörn sagði að ef námið yrði lagt niður yrði það ekki endurreist svo auðveldlega aftur, auk þess sem óvíst væri hvaða verði við þyrftum að kaupa þjónustu erlendra háskóla- stofnana í framtíðinni vegna náms tannlækna. Hann varpaði fram þeirri hugmynd hvort ekki mætti alveg eins einkavæða tannlæknanámið og gera tannlæknadeild að sjálfseignar- stofnun. Þetta nám hérlendis hefði gott orð á sér erlendis og það mætti alveg hugsa sér að erlendir náms- menn gætu menntað sig hér, auk þess sem stofnunin hefði með hönd- um, auk tannlæknanámsins, endur- menntun og annað sem tengdist tannheilsu. Hvergi eins ódýrt Sigfús Þór Elíasson,_forseti tann- iæknadeildar Háskóla íslands, segir hugmyndir um að hætta tannlækna- kennslu hér á landi glapræði. Hann segir að þó tannlæknanám sé hlut- failslega dýrt miðað við margt annað nám, sé það þó hvergi jafn ódýrt og hérlendis svo hann viti til og þegar upp verði staðið verði enginn sparnaður af því að hætta að kenna tannlækningar hér og senda nem- endur til að læra fagið í háskólum erlendis. Hann benti á að auk kennslunnar væru stundaðar nauðsynlegar rann- sóknir á tannlæknadeildinni, sem myndu falla niður ef kennslu yrði hætt og þar færi einnig fram endur- menntun tannlækna, menntun að- stoðarfólks þeirra og kennsla tann- smiða. Ef deildinni yrði lokað myndi glatast þekking og reynsla og það yrði mjög erfitt ef ekki óvinnandi vegur að koma kennslu og rannsókn- um á fót aftur. Þá væri tannlækna- starfið í mjög örri þróun og það væri mikil þörf fyrir endurmenntun tannlækna sem ekki yrði hægt að sinna hér á landi ef námið legðist af. Andvígur Matthías Sigurðsson, formaður nemendafélags tannlæknanema, segist andvígur hugmyndum um að leggja námið niður og segir að þetta mál hafi ekki verið hugsað út í hörg- ul. Nemendur á hvetju ári í náminu eru sex og um er að ræða sex ára nám og sagði hann að mörgum spurningum í þessum efnum væri ósvarað. Ætti að loka deildinni strax eða ætti að fækka smám saman þangað til allir sem hefðu hafið nám væru útskrifaðir? Hvert ætti að senda nýja nemendur og hver ætti að borga þann aukakostnað sem af því hlytist? Það yrði að hugsa þetta mál mjög vel og líta til framtíðarinn- ar áður en ákvarðanir yrðu teknar. Matthías sagði að það væri alls staðar dýrt að mennta tannlækna og alls ekki dýrara hér en erlendis þótt deildin væri ekki fjölmenn. Námið hér væri þó alveg sambæri- legt við það sem gerðist á Norður- löndum og þar væru miklar kröfur gerðar til þessa náms. Þá benti hann á að helmingur af rekstrarkostnaði deildarinnar kæmi til baka í formi skatta og vinnan og neyslan flyttist úr landi ef ákvörðun yrði tekin um að Ieggja námið niður. Umferdarfræðsla Oskandi að fræðslan stuðli að færri slysum ÞANN 1. ágúst sl. réð Reykjavíkur- borg Ingu Karls- dóttur ken ara til þess að gegna starfi svæðis- fulltrúa í umferðar- fræðslu við grunnskóla borgarinnar. Um er að ræða hálft starf, sem tryggingafélagið Sjóvá- Almennar styrkir. Nú er þetta í fyrsta sinn sem svæðisfuUtrúi í um- ferðarfræðslu starfar í Reykjavík. Hvernig hefur þessum málum verið hátt- að annars staðar? „í fræðsluumdæmi Austurlands, Vesturlands og Norðurlands eystra hafa verið starfandi svæð- isfulltrúar og það er Ijóst að þar hefur verið unnið gott starf og staða um- ferðarfræðslu í skólum á viðkomandi svæðum hefur styrkst mjög við ráðningu svæðisfulltrúa í þessum námsþætti." Hvert er markmiðið með um- ferðarfræðslunni, er þetta lang- tímaverkefni eða átaksverkefni og hvert er starfssviðið? „Markmiðið er að sjálfsögðu að tryggja umferðaröryggi barna sem best og fækka slysum. Von- andi verður framhald á starfi svæðisfulltrúa og einnig að ákveðnum kennslustundafjölda verði varið til fræðslunnar. Á síð- ustu árum hefur í vaxandi mæli verið gerð formleg krafa til skóla um að sinna umferðarfræðslu. Þessum þætti þarf að gera skil og varðar miklu að gott skipulag sé fyrir hendi, ásamt góðri sam- vinnu við aðila utan skóla sem geta stutt námið og að hægt sé að fylgja því eftir svo sem stað- hættir og aðstæður leyfa. Starfssviðið er. breitt, til dæmis að vera tengiliður við aðila sem starfa að umferðarmálum, svo sem Umferðarráð, lögreglu, um- ferðarnefnd og fleiri, skipuleggja fundi með tengiliðum í skólum og fulltrúum foreldrafélaganna. Þá þarf að safna upplýsingum um staðbundin vandamál í nágrenni skóla og koma á framfæri við rétta aðila, aðstoða við sérstök verk- efni, stuðla að framkvæmd kann- ana og svo mætti áfram telja.“ Hvaða verkefnum hefur legið brýnast við að sinna? „Því er erfitt að svara og eflaust mismunandi eftir landssvæðum, en sem svæðisfulltrúi við grunn- skóla Reykjavíkur hef ég reynt eftir megni að aðstoða kennara, foreldra og aðra þá sem koma að umferðarfræðslu í skólum. Þetta geri ég í góðri og gefandi sam- vini.u við Guðmund “ Þorsteinsson, námsstjóra í um- ferðarfræðslu. Undanfarið hef ég til dæmis unnið að gerð verkefna sem samþætta ýmsar greinar, svo sem ritun, stærðfræði, mynd- mennt og umferðarfræðslu." Inga bendir á að umhverfi skól- anna sé mismunandi og hætturnar aðrar fyrir barn sem gengur til dæmis í Fossvogsskóla heldur en barn sem sækir Melaskóla. „Því hef ég látið útbúa glærur með myndum af öllum helstu gatna- mótum í nágrenni hvers skóla í Reykjavík," segir hún. „Þannig ' geta allir nemendur skoðað á mynd nánasta umhverfi síns skóla Inga Karlsdóttir ►inga Karlsdóttir fæddist í Reykjavík þann 21. ágúst árið 1954. Hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Hamrahlíð árið 1976, BA prófi í íslensku og uppeldisfræði frá Háskóla íslands árið 1983 og prófi til kennsluréttinda sama ár. Einnig stundaði hún nám í hagnýtri fjölmiðlafræði við há- skólann veturinn 1991-1992. Veturinn 1983 hóf hún kennslu við Snælandsskóla í Kópavogi og 1987 við Menntaskólann í Kópavogi, þar sem hún kennir nú íslensku og tjáningu. Inga er gift Gunnari Jónssyni og eiga þau tvö börn. Hættur í um- ferðinni eru misjafnar eftir hverfum og lært með aðstoð lögreglunnar og kennaranna að forðast hætt- urnar. Lögregluþjónarnir Margrét Sigurbjörnsdóttir og Þorbjörn Guðmundsson annast, af hálfu lögreglunnar í Reykjavík, umferð- arfræðslu í skólum. Starf þeirra er ómetanlegt og þessa dagana erum við að skipuleggja árlega heimsókna 12 ára nemenda á lög- reglustöð Reykjavíkur. Stjórnar- menn nokkurra foreldrafélaga hafa einnig lýst yfir áhuga sínum og vilja til þess vinna að bæta umferðaröryggi barna, sömuleiðis hafa kennarar og skólastjórnend- ur verið mjög áhugasamir og margir hverjir unnið mjög gott starf. Það er virkilega ánægjulegt að vinna að þessum málaflokki og óskandi að aukin fræðsla skili sér í færri slysum.“ Er gert ráð fyrír ákveðnum stundafjölda til umferðarfræðslu I grunnskólunum og er fræðslan í öllum bekkj- um hans? „Umferðarfræðsla er því miður ekki á stundaskrá skólanna og það er mjög misjafnt eftir skólum hvaða áherslu þeir leggja á slíka fræðslu. Sumir þeirra gera henni hátt undir höfði, en aðrir síður. Áherslan á umferð- arfræðslu er mest í yngstu bekkj- unum, en hún minnkar yfirleitt eftir því sem ofar dregur. Þó eru dæmi þess að skólar bjóði umferð- arfræðslu sem valgrein í efstu bekkjunum, sem nýtist þá sem undirbúningur að bílprófi. Draum- urinn er auðvitað að umferðar- fræðsla öðlist fastan sess á stundaskrá skólanna, enda eru börnin það dýrmætasta sem við eigum,“ segir Inga Karlsdóttir, svæðisfulltrúi í umferðarfræðslu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.