Morgunblaðið - 15.12.1994, Blaðsíða 12
12 FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðíð/Árni Sæberg
Rauði Kross
*
Islands 7 0 ára
Aukinn kvóti
og* skipakostur til
Tálknafjarðar
Tálknaflrði. Morgunblaðið.
Frumvarp
um tækni-
frjóvgun
DÓMSMÁLARÁÐHERRA hef-
ur kynnt í ríkisstjórn drög að
frumvarpi til laga um tækni-
frjóvgun og er það til umfjöllun-
ar í þingflokkum stjómarflokk-
anna. í því er ekki tekin endan-
leg afstaða til þess hvort heim-
iit eigi að vera að gefa eggfrum-
ur á sama hátt og sæði.
Frumvarpið er samið af
nefnd dómsmálaráðherra sem
starfað hefur frá árinu 1986.
Skilar hún tveimur drögum og
er meginmunur þeirra hvort
heimila eigi konum að gefa egg
eða ekki. Er ætlast til þess að
stjórnmálamenn taki endanlega
afstöðu til þeirrar spurningar.
Engin löggjöf er um tækni-
fijóvgun hér á landi og er gert
ráð fyrir að með lögum sem
byggjast á þessu frumvarpi fá-
ist heildarlöggjöf á þessu sviði.
Kísiliðja-
Austaraselsheiði
Ljósaland
bauð lægst
UÓSALAND hf., Vopnafirði,
var með lægst tilboð í gerð veg-
arkaflans frá Kísiliðju að
Austaraselsheiði. Tilboð Ljósa-
lands hljóðaði. upp á tæpiega
19,8 milljónir króna, sem er
49,9% af kostnaðaráætlun.
Alls buðu 10 verktakafyrir-
tæki í gerð vegarkaflans sem
er hluti af Norðurlandsvegi.
Næstlægsta tilboðið var frá
Vélási hf. á Egilsstöðum, tæp-
lega 22 milljónir króna, og
þriðja lægsta tilboðið var. frá
Átaki hf. á Þórshöfn, 22,8 millj-
ónir króna. Hæsta tilboðið var
frá Héraðsverki hf. á Egilsstöð-
um og hijóðaði það upp á lið-
lega 35,2 milljónir króna.
Reykjavík
Fleiri gjald-
dagar fast-
eignagjalda
BORGARRÁÐ hefur vísað til
borgarstjórnar tillögu um að
greiðendur fasteignagjalda í
Reykjavík geti greitt gjöld
næsta árs með sex jöfnum
greiðslum í stað þriggja.
Tillagan gerir ráð fyrir að
hægt verði að skipta afborgun-
um í sex staði, með gjalddaga
1. febrúar, 1. mars, 1. apríl,
1. maí, 1. júní og 1. ágúst.
70 ÁRA afmælis Rauða Kross
Islands var minnst með fjöl-
breyttum hátíðarhöldum viða
um Iand síðastliðinn laugardag.
I Reykjavík var haldin fjöl-
skylduskemmtun á Ingólfstorgi
og úti á landsbyggðinni buðu
margar deildir í opið hús, sýndu
sjúkrabíla sína eða minntu á
starfemi sína með öðrum hætti.
Afmælisins var formlega
minnst með hátíðarfundi stjórn-
ar Rauða kross Islands sem
haldinn var í Kaupþingssal Eim-
skipafélagshússins, og er mynd-
in tekin við það tækifæri. Þar
var félagið stofnað 10. desem-
LAGANEMAR við Háskóla íslands
hafa mótmælt hugmyndum um að
gengið verði á lestraraðstöðu
þeirra í Lögbergi til þess að hægt
verði að hýsa Norræna sakfræðir-
áðið næstu þijú árin. Stúdentar
hyggjast leggja fram tillögu á
deildarfundi í lagadeild í dag um
að slíku verði hafnað. Háskólarekt-
or segir þetta hins vegar aðeins
eina af þeim hugmyndum sem
uppi séu um það hvernig hýsa
megi stofnunina.
Sveinbjörn Björnsson, rektor
Háskóla íslands, sagði í samtali
við Morgunblaðið að fyrir hálfu
öðru ári hefði verið falazt eftir því
að skrifstofur Sakfræðiráðsins
yrðu hýstar í Háskóla íslands um
þriggja ára skeið. Ráðið þyrfti á
tveimur vinnuherbergjum að
halda, samtals 30 fermetrum að
flatarmáli.
Hugmyndir vegna flutnings
í Þjóðarbókhlöðu
Rektor sagði að Sakfræðiráðið
hefði helzt viljað vera í sambýli við
lagadeild og þeirri fyrirspurn hefði
verið beint til deildarinnar hvort
hægt væri að hýsa stofnunina í
Lögbergi. „Þá komu upp spurning-
ar um bókasafnið í Lögbergi, les-
stofur og annað húsnæði, sem er
kannski að rýmast í Lögbergi
vegna flutnings Háskólabóka-
safnsins í Þjóðarbókhlöðuna,"
sagði Sveinbjöm.
Hann benti á að lestraraðstaða
stúdenta á 2. hæð í Lögbergi væri
ber 1924, og var fyrsti formaður
þess kjörinn Sveinn Björnsson
hæstaréttarlögmaður og síðar
fyrsti forseti Islands. Á hátíðar-
fundinum á laugardaginn var
stofnaður Minningarsjóður
Sveins Björnssonar, og er sjóðn-
um ætlað að stuðla að frekari
rannsóknum og þróun á sviði
mannréttinda og mannúðar-
mála. Þá var á afmælisfundinum
afgreidd formlega tveggja millj-
óna króna gjöf til Sjálfsbjargar
til minningar um Jóhann Pétur
Sveinsson, og jafnframt var Al-
mannavömum fært öflugt land-
upplýsingakerfi fyrir tölvur.
um 200 fermetrar og kæmi aldrei
til þess að hún yrði öll tekin undir
skrifstofur. Jafnframt væri les-
stofa á þriðju hæð og líklegra
væri að gengið yrði á hana, ef
Sakfræðiráðið yrði hýst í Lögbergi.
Rektor tók fram að þetta væru
enn aðeins hugmyndir, en Sak-
fræðiráðið yrði að fá svör fljótlega,
þar sem starfsemi þess ætti að
hefjast um áramótin. Jafnframt
hefði verið skoðað hvort hýsa
mætti það í sambýli við Alþjóða-
skrifstofu Háskólans eða í Tækni-
garði.
NYTT skip kom í vikunni til Tálkna-
fjarðar, Sigurvon ÍS «00, sem Út-
gerðarfélagið Kópavík hf. keypti frá
Suðureyri. Útgerðarfélagið Kópavík
hf. sem er í eigu Þórsbergs hf. á
Tálknafírði, fískvinnslufyrirtækisins
í Nausti hf. á Bíldudal og Tálkna-
fjarðarhrepps, festi einnig nýlega
kaup á vélbátr um Stapa BA, sem
gerður var út frá Bíldudal en var í
eigu Byggðastofnunar. Með honum
fylgdi 400 tonna þorskígildiskvóti.
Útgerðarfélagið Kópavík hf. var
stofnað fyrir rúmlega ári og var
upphaflega í eigu Þórsbergs hf. og
í Nausti hf. Hefur félagið gert út
Lóminn BA frá Talknafirði en aflinn
hefur ýmist farið til vinnslu á
Tálknafirði eða Bíldudal. Tálkna-
ERU stjórnmálamenn ekki í sam-
bandi við almenning í landinu? spyr
Rafiðnaðarsamband íslands í álykt-
un miðstjórnar um launastefnu og
skattastefnu ríkis og sveitarfélaga.
Þess er krafist að stjórnlausri eyðslu
stjórnvalda og sjálfstöku í skatt-
heimtu linni því almenningur sé að
niðurlotum kominn.
í ályktuninni er bent á að oft
hafi verið lítið samhengi milli yfir-
lýsinga og framkvæmda stjórn-
málamanna en á þessu ári hafi tek-
„Skrifstofa Sakfræðiráðsins er
hins vegar mikilvæg og mun kalla
hingað gesti, námstefnur og annað
og veita styrki til samstarfs. Hug-
myndin með því að hún yrði í sam-
býli við lagadeild er meðal annars
sú að deildinni gæfíst þannig færi
á alþjóðlegum tengslum," sagði
Sveinbjörn.
Nýta verður húsakostinn vel
Fulltrúar stúdenta hafa skrifað
rektor bréf vegna málsins og geng-
ið á fund hans. Laganemar telja
lestraraðstöðu í Þjóðarbókhlöðunni
fjarðarhreppur gerðist hluthafi fyrir
10 milljónir fyrir skömmu til þess
að Útgerðarfélagið gæti fest kaup
á Stapanum. Kaupverðið var rúm-
lega 120 milljónir króna.
Sigurvon ÍS var keypt kvótalaus
og ætlunin er að úrelda Lóminn og
Stapann og færa kvótann, alls um
600 tonn, yfir á Sigurvonina.
Sigurvon er 197 tonna skip,
byggt í Noregi 1964 en endurbyggt
1986. Lómurinn er 147 tonna skip,
smíðað 1970. Ætlunin er að setja
beitingarvél, sem fylgdi með Stap-
anum, í Sigurvonina og gera skipið
út á línuveiðar. Skipið verður gert
út frá Tálknafirði en aflinn fer
ýmist til vinnslu til eigendanna á
Bíldudal eða Tálknafirði.
ið steininn úr. Stjórnvöld hafi hækk-
að laun hópa háskólamenntaðra um
vel á annan tug prósenta þrátt fyr-
■ir yfirlýsingar um að leggja beri
áherslu á hækkun lægstu launa og
eflingu starfsmenntunar. Dyrum
fjármálaráðuneytis sé hins vegar
læst á þá sem lægstu launin hafa.
Einnig er bent á hækkun bensín-
verðs, hækkun fasteignagjalda
Reykvíkinga um 10-30 þúsund á
hvert heimili og áform nokkurra
sveitarfélaga um hækkun útsvars.
ófullnægjandi. Bókhlaðan sé opin
stutt á degi hverjum og þar sé ekki
aðstaða til að geyma á borðum t.d.
lagasafn, stjórnartíðindi og annað,
sem laganemar noti við nám sitt.
Sveinbjörn sagðist viðurkenna
þessi sjónarmið stúdenta. Hins
vegar væri verið að skoða hvernig
nýta mætti lestraraðstöðu í húsum
Háskólans með öðrum hætti vegna
flutningsins í Þjóðarbókhlöðuna.
„Eina almenna reglan sem ég sé
hvað það varðar, er að þeir, sem
eru lengra komnir í námi og þurfa
að vera nær kennurum sínum,
ættu að hafa forgang að lestrarað-
stöðu í þeim byggingum, þar sem
kennarar stunda rannsóknir, en
yngri nemendur væru meira úti í
Bókhlöðu,“ sagði hann.
Nýta verður húsakostinn vel
Rektor benti á að húsnæði, sem
áður hefði verið nýtt af Háskóla-
bókasafni og sem lestraraðstaða,
væri um 3.700 fermetrar. „Ný-
býggingarandvirði þessa rýmis er
æðimikið, eða um 100.000 krónur
á fermetra. Það verður að gæta
þess að allt þetta húsnæði sé vel
nýtt, en það er heldur snemmt að
fara í eitthvert hanaat út af þess-
um tillögum," sagði Sveinbjörn
Björnsson.
Kristín Edwald, formaður Orat-
ors, félags laganema, sagðist telja
að einhugur yrði á deildarfundin-
um í dag um að Sakfræðiráðið
yrði ekki hýst í Lögbergi á kostnað
lestraraðstöðu laganema.
Húsnæðismál Norræna sakfræðiráðsins
Laganemar andmæla skerð-
ingu lestraraðstöðu
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
ÞÉTTSETINN lestrarsalur laganema í Lögbergi.
Rafiðnaðarsamband íslands
Sjálftöku skatta linni