Morgunblaðið - 15.12.1994, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ
NEYTENDUR
PIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 1994 19
. ■
Búið að loka fyrir
sveppainnflutning
BÚIÐ er að loka fyrir sveppainn-
flutning því að sögn Sveinbjörns
Eyjólfssonar hjá Landbúnaðarráðu-
neytinu anna íslenskir framleiðend-
ur eftirspurn og mikið er til af ís-
lenskum sveppum í augnablikinu.
Ekki er ijóst hvenær aftur verður
opnað fyrir innflutning, það veltur
á framboði hérlendis.
í gær voru til íslenskir sveppir
hjá Hagkaup og kostaði kílóið 597
krónur. í Bónus var kílóið af erlend-
um og íslenskum sveppum á 497
krónur.
Jón Ásgeir Jóhannesson hjá Bón-
us segist hafa áhyggjur af því að
verið sé að loka fyrir sveppainn-
flutning rétt fyrir jólin. Hann segir
framboð geta orðið lítið og telur að
verð muni án efa hækka á næstu
vikum.
Hefði Jón Ásgeir pantað erlenda
sveppi fyrir næstu viku hefði kílóið
verið á 397 krónur. Hann segir að
nú verði að koma í ljós hvað ís-
lensku sveppirnir komi til með að
kosta fyrir jólin. Erlendir sveppir
klárast fyrir helgi í Bónus.
Bónus með
nokkrar bækur
á 30% afslætti
Tíu söluhæstu bækurnar fyrir jólin
samkvæmt lista DV verða seldar
í Bónus með 15% afslætti. Auk
þess verður alltaf sérstakt tilboð í
gangi á þremur bókum fram til
jóla og er misjafnt um hvaða bæk-
ur er að ræða en 30% afsláttur er
veittur af þeim. Þar mun þó alltaf
um eina metsölubók vera að ræða,
eina barnabók og eina sem ekki
er á vinsældalista DV. í gær voru
á 30% afslætti metsölubókin Um
fjöll og firnindi, barnabókin Dekur-
drengur á dreifbýlisbomsum og
Bankabókin, sú bók sem ekki var
á vinsældalista DV.
Hagkaup býður ekki lengur 25%
afslátt af bókum heldur eru þær
seldar á fullu verði og hjá Kaupfé-
lagi Árnesinga á Selfossi eru bæk-
urnar einnig seldar á fullu verði
en voru um síðustu helgi seldar
með 25% afslætti.
Hveitið vantaði
í smákökurnar
ÞEGAR húsmæður á Sigiufirði
gáfu sína uppáhaldsuppskrift af
smákökum í jólamatarblað Morg-
unblaðsins fórst fyrir að geta um
hveitimagn í einni þeirra. Þegar
var birt leiðrétting en líklega hefur
hún farið framhjá mörgum því
daglega hringja í okkur aðilar sem
eru að baka og sjá að eitthvað er
að.
Það vantar semsagt hveiti í upp-
skriftina. Þetta eru Hnetu-döðlu-
súkkulaðikökur. Uppskriftin
svona.
%b smiörlíki
úöu
1 bolli púoursykur
27
egg
2 bollar hveiti
2 tsk. lyftiduft
1 tsk. kanill
'Atsk. salt
______?4b saxaðar valhnetur_____
________74b saxaðar döðlur______
100-150 g saxað súkkuloði
Smjörlíki og púðursykur þeytt vel
saman, síðan eggjum hrært út í
og þurrefnum blandað við ásamt
hnetum, döðlum og súkkulaði og
hrært samanvið. Sett á plötu með
teskeið og bakað við 200 °C í 10
mínútur.
Innflutningshöftum aflétt á
nýju ári
Við gildistöku Gatt samningsins
á næsta ári verður öllum innflutn-
ingshöftum aflétt og þá verður leyfi-
legt að flytja til landsins alia mat-
vöru svo framarlega sem heilbrigð-
iskröfur hamla ekki innflutningi.
í stað þess að koma í veg fyrir
innflutning með banni eða tæknileg-
um verslunarhindrunum verða tekn-
ir upp vemdartollar sem í einhvetj-
um tilfellum geta orðið mjög háir.
Verndartollarnir eiga að brúa bil-
ið milli heimsmarkaðsverðs og verði
á innlendri framleiðslu og þeir eiga
þannig að gefa íslenskum framleið-
endum sinn aðlögunartíma.Gert er
ráð fyrir að vemdartollamir lækki
á næstu sex ámm.
Umboð fyrir
„Stafford-
shire“
GJAFAVÖRUVERSLUNIN EBAS,
Snorrabraut 29, hefur tekið að sér
að selja matar-, kaffi- og tesett frá
hinu þekkta fyrirtæki „Staffords-
hire“ í Englandi. Varan hefur fengið
orð á sig fyrir gæði, en um leið við-
ráðandi verð. Sem dæmi má geta.
þess að sex manna kaffisett kostar
8.900 krónur. Fjögurra manna mat-
ar- og kaffisett er á 8.200 kr. og sex
manna matar- og kaffisett er á
12.300 kr., en í því er að finna 30
stykki. Stellið má setja í örbygljuofn,
uppþvottavél og sömuleiðis er það
frostþolið.
er
Herra- og dömufatnaður í Kringlunni
Stakir herrajakkar frá kr. 5.995
Herrabuxur. ullarblanda frá kr. 3.995
Herraskyrfur. köflóttar frá kr. 2.495
Silkibindi frá kr. 989
Skór kr. 2.995
Kjólar frá kr. 2.995
Dömubolir frá kr. 989
Hattarfrá kr. 1.395
Skór kr. 2.995
Jakkaföt frá kr. 9.895
Melka skvrtur frá kr. 3.495
Silkibindi frá kr. 989
Skór kr. 2.995
Dömuiakkar frá kr. 3.995
Dömubuxur frá kr. 3.495
Dömublússur. síðar frá kr. 2.495
Dömuvesti frá kr. 2.295
Skór kr. 3.995
Siður herrajakki Sfones kr. 9.895
Herrarúllukraeabolir frá kr. 789
Herrapriónavesti frá kr. 1.995
Herraflauelsbuxur frá kr. 2.495
Skór kr. 3.995
Dömujakkar frá kr. 3.995
Dömupils frá kr. 2.695
Dömublússur frá kr. 1.495
Skór kr. 2.995
HAGKAUP
fyrir fjölskylduna