Morgunblaðið - 15.12.1994, Síða 23

Morgunblaðið - 15.12.1994, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 1994 23 Svíþjóð vill ekki í NATO SVÍAR hyggjast ekki sækja um aðild að Atlantshafsbandalag- inu (NATO) þótt þeir gangi í Evrópusambandið, að sögn Ingvars Carlssonar, forsætis- ráðherra Svía, í ræðu í Helsinki í gær. Hann sagði að ekki væru nein öryggispólitísk rök fyrir aðild Svía að NATO og allir stjórnmálaflokkar Svíþjóð- ar væru sáttir við áframhald- andi hlutleysisstefnu. Vísbendingar um sprengju FUNDIST hafa vísbendingar um að sprengja hafi sprungið í filippeyskri farþegaþotu á leið frá Manila til Tókýó á sunnu- dag, en ekki flugeldar eins og vangaveltur höfðu verið um. Einn maður beið bana í spreng- ingunni. Fundist hafa brot úr brunninni rafhlöðu og klukku sem gætu hafa verið notuð í sprengju. Ovinum íslams spáð óförum ÍSLAMSKUR trúarleiðtogi frá Kúveit, Abdullah al-Mutawa, réð í gær konungum, furstum og forsetum 52 múslimaríkja, sem þinga í Marokkó, frá því að grípa til harðra aðgerða gegn heittrúuðum múslimum til að draga úr ólgu meðal þegnanna. „Hvar eru þeir sem hafa gerst óvinir íslamska mál- staðarins í nútímasögunni? Suma tók Guð (dóu), aðrir voru ráðnir af dögum og sumir end- uðu á öskuhaugum sögunnar," sagði trúarleiðtoginn. Delors g'agnrýndur FRANCOIS Mitterrand, forseti Frakklands, gagnrýndi í gær þá ákvörðun Jacques Delors, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, að bjóða sig ekki fram í frönsku forseta- kosningunum. „Menn hafa gagnrýnt mig fyrir að sitja áfram eftir að hafa verið kjör- inn árið 1981. Þeir eru svo hrifnir af stjórnmáiamönnum sem nema staðar á þröskuldi valdanna... Það að halda sér frá þeim á víst að auðvelda mönnum að láta draumana rætast." Flóttafólk afvopnað 1.800 hermenn á vegum Sam- einuðu þjóðanna réðust í gær inn í búðir flóttamanria í suð- vesturhluta Rúanda til að af- vopna fólk vegna tíðra ofbeld- isverka og morða í búðunum að undanförnu. Allt að 2.000 rúandískir stjómarhermenn tóku þátt í vopnaleitinni. Orange-sýsla í þröng ORANGE-sýsla í Kalifomíu, sem hefur verið ein auðugusta sýsla Bandáríkjanna, hefur neyðst til að óska eftir greiðslu- stöðvun vegna misheppnaðra fjárfestinga í hlutabréfum. Þetta er eitt mesta fjármála- hneyksli í sögu sveitarfélaga Bandaríkjanna. ERLENT Reuter Flugslys í N-Karólínu BJÖRGUNARMENN aðstoða fólk sem komst af er bresksmíð- uð skrúfuþota af gerðinni Jet- stream Super 31 fórst í illviðri í Norður-Karólínu í Bandaríkjun- um á þriðjudagskvöld. 20 manns voru innanborðs og fórust 13. Vélin var í eigu American Eagle- flugfélagsins, hún var á leið frá borginni Greensboro og var að undirbúa lendingu á Raleigh- Durham-alþjóðavellinum. Oljóst er hvað olli slysinu en flugvélin hrapaði um sex kílómetra frá flugbrautinni og brotnaði í tvennt. Talsmaður félagsins sagði það eiga alis 54 vélar af þessari gerð. Réttað í málum marxista í Eþíópíu Keisarinn var kæfður með kodda Addis Ababa. Reuter. HERFORING J ASTJ ÓRN marxistanna sem steyptu Haile Selassie, keisara Eþí- ópíu, fyrir tveim áratugum, létu myrða hann og þús- undir saklausra manna, að sögn vitna en réttað er í málum valdaræningjanna i Addis Ababa, höfuðborg landsins, þessa dagana. Foringi þeirra, Mengistu, settist að á búgarði í Zimbabwe og um 20 aðrir ráðamenn flúðu einnig land, þeir verða því dæmdir fjarverandi. Þrír af nánustu samstarfsmönnum Mengistus hírast í ítalska sendiráðinu og er talið ólík- legt að mennirnir verði framseldir hljóti þeir dauðadóm. Alls hafa 67 manns verið ákærð- ir. Samkvæmt málsskjölum sam- þykkti dergue, eins og herforingja- stjórnin var nefnd, á fundi sínum 23. ágúst 1975 að keisarinn skyldi verða líflátinn vegna þess að hann væri æðsti maður lénsveldis. Se- lassie, sem Var 82 ára gam- all, hafði setið í stofufang- elsi í ár eða frá því að marxistabyltingin var gerð. Sendur var launmorðingi inn í keisarahöllina og kæfði hann gamla manninn með kodda þar sem hann lá í rúmi sínu. Alræmd fyrir pyntirtgar Mengistu var steypt fyrir þrem árum én einræðisstjórn hans var alræmd fyrir pyntingar og hvers kyns hrottaskap, Sovétmenn studdu stjórnina óspart með vopnum í bar- áttu hennar gegn uppreisnarriiönn- um. Um 700.000 smábændur voru fluttir nauðugir af jörðum sínum til að reyna að koma í veg fyrir að uppreisnarmenn kæmust yfir mat. Nær milljón manna fórst í hungurs- neyð 1984 sem átti rætur að rekja tii. borgarastríðsins og samyrkjubú- skapar að skipun stjórnvalda. Ilaile Selassie Vcrðsferá Normansþinur Stærðir: 60-100 cm fer. 1.340 101-125 cm fer. 1.985 126-150 cm fer. 2.685 151-175 cm fer. 3.355 176-200 cm fer. 4.285 Jólatrésseríur 35 ljósa sería fer. 599 50 ljósa sería fer. 770 Jólatréskúlur Verð kr. 395 kassinn m 08 Verð kr. 495 kassinn Jólatréstoppar Mjög mikið úrval . Tiíboð 35 jólasveinasería kr. 499 /w/á/a//'Áx//yyi///' Gott verðl

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.