Morgunblaðið - 15.12.1994, Side 32
32 FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
Dagbók
frá Sarajevó
BÓKMENNTIR
Dagbók
DAGBÓK ZLÖTU
eftir Zlötu Filipovic. Helgi Már
Barðason þýddi. Vaka-Helgafell,
1994 - 224 síður. 1.980 kr.
HÖRMUNGAR stríðsins í ríkjum
fyrrverandi Júgósiavíu og þá eink-
um Bosníu eru öllum kunnar. Þrátt
fyrir að fréttir af stríðsátökum þar
séu nánast daglegt brauð er erfitt
að gera sér grein fyrir því hvernig
ástandið raunverulega er. Dagbók
Zlötu dregur lesandann hinsvegar
milliliðalaust inn í hringiðu atburð-
anna í Sarajevó og opnar honum
sýn inn í það hvernig það er að lifa
í skugga stríðsins.
Zlata hefur að rita dagbók sína
í september 1991, þá tæplega ellefu
ára gömul. Enn er allt með kyrrum
kjörum og Zlata er að byija í skól-
anum eftir gott sumarfrí. Zlata er
ósköp venjuleg stelpa. Hún á marg-
ar góðar vinkonur og áhugamálin
eru margvísleg. Hún er að læra á
píanó, elskar að fara á skíði, finnst
gaman að horfa á MTV og dreymir
um að komast í aðdáendaklúbb
Madonnu. í stuttu máli sagt er veru-
leiki hennar í litlu frábrugðinn veru-
leika jafnaldra hennar hér á ís-
landi, en fljótt fer að draga til tíð-
inda. Faðir hennar er kallaður í
varalið lögreglunnar og slæmar
fréttir berast frá Dubrovnik. Á vor-
mánuðum 1992 er stríðið komið til
Sarajevó. Sunnudaginn 5. apríl
skrifar Zlata í dagbókina sína sem
hún kallar Mimmý: Kæra Mimmý.
Égg er að reynaað einbeita mér að
Gunnar sýn-
ir í Safna-
húsinu
Húsavík - Gunnar J. Straumland
opnar málverkasýningu í Safnahús-
inu á Húsavík í dag, fimmtudaginn
15. desember, kl. 17.
Sýnir hann á þriðja tug olíumál-
verka og eru öll verkin á sýning-
unni til sölu. Gunnar nam við Mynd-
listarskólann á Akureyri, Mynd-
lista- og handíðaskóla íslands og
hefur nýlokið framhaldsnámi við
AKI-Instituut voor hoger beeldend
kunstonderwijs í Enschede, Hol-
landi.
Þetta er þriðja einkagýning
Gunnars sem hefur og tekið þátt í
fjölda samsýninga í Hollandi, Eng-
landi og á Islandi.
Sýningunni lýkur 22. desember.
lærdómnum en ég get það bara
ekki. Eitthvað er á seyði í bæn-
um ... Maður finnur bara að eitt-
hvað er í aðsigi, eitthvað mjög
slæmt... Mimmý, ég er hrædd við
STRÍÐ! (51)
Ótti ræður ríkjum í Sarajevó og
ekki að ástæðulausu því stanslausar
skotárásir dynja á borginni og fjöldi
manns lætur lífið eða örkumlast.
Margir flýja og brátt er svo komið
að alir bestu vinir Zlötu hafa yfir-
gefið borgina. Þegar móðir hennar
ákveður að þær mæðgur skuli einn-
ig yfirgefa hina stríðshijáðu borg
er það of seint því öllum leiðum frá
borginni hefur verið lokað.
Dagbókarskrif Zlötu koma því
vel til skila hvernig örvænting henn-
ar eykst eftir því sem tíminn líður
án þess að hilli undir frið í borg-
inni. Vetur í stríðshijáðri borg er
öllum erfíður og Zlata spyr aftur
og aftur hvenær þessu stríði ljúki
og hvort ekki hafi verið færðar
nógar fórnir. Hún reynir að skilja
hvers vegna þetta stríð braust út
og af hveiju það er svona erfitt að
koma á friði. Mig langar svo til að
reyna að skilja hvað stjórnmál eru
því að mér sýnist þau eigi sök á
stríðinu og ástandinu sem nú ríkir
hérna. Stríðið hefurýtt burtu dags-
birtunni og fært okkur hrylling í
staðinn (123). Hún áttar sig á því
að stríðið er vegna átaka milli Kró-
ata, Serba og múslima en skilur
ekki þessi átök. Að hennar mati er
enginn munur á þessum hópum.
Sjálf er Zlata múslimi en meðal
ættingja hennar og vina eru einnig
Króatar og Serbar. Ég vissi aldrei
hverjir voru Serbar, hverjir Króatar
og hverjir múslimar, enda skipti það
engu máli. Nú haf stjórnmálin
ruglað fólk í ríminu (123).
Dagbók Zlötu er áhrifamikil lesn-
ing og minnir óþyrmilega á að það
eru oftast þeir sem minnst mega
sín sem þjást hvað mest í stríði.
Zlata er mjög kjarnyrt í skrifum
og hefur oft þroskaða sýn á atburð-
ina þrátt fyrir að hún þrái ekkert
frekar en að fá að vera lítil stelpa
í friði en stríðið hefur rænt hana
bemskunni og það á hún erfitt með
að sætta sig við. Síðasta dagbókar-
færsla Zlötu er gerð fyrir rúmu ári
og því miður er ljóst að enn er langt
í frá að friður ríki í Bosníu. í ágúst
1993 skrifar hún þessi orð í dagbók-
ina sína: Sumir líkja mér við Önnu
Frank. Það skelfir mig, Mimmý.
Ég vil ekki að örlög mín verði þau
sömu og hennar (192). Ekkert er
getið um afdrif Zlötu á þessu ári
sem liðið er og er það miður en
vonandi getur hún enn fundið hugg-
un í dagbókarskrifum sínum.
Guðrún Þóra Gunnarsdóttir
Vinaminni
TONLIST
Illjómdiskar
KIRKJUKÓR AKRANESS
Vinaminni. Kirkjukór Akraness.
Stjórnandi Haukur Guðiaugsson.
Undirleikur: Katalin Lörincz
(orgel) og Anna Snæbjömsdóttir
(píanó).
Einsöngvarar: Guðrún Ellertsdótt-
ir, Ragnhildur Theódórsdóttir,
Ragna Kristmundsdóttir, Helga
Aðalsteinsdóttir, Dröfn Gunnars-
dóttir, Unnur H. Arnardóttir, Krist-
ján Elís Jónasson.
Kirkjukór Akraness, Safnaðar-
heimilinu Vinaminni, Skólabraut
13, 300 Akranes.
MÉR þykja kirkjukórar orðnir
meira en lítið góðir (a.m.k. surnir),
vítt og breitt um landið. Kirkjukór
Akraness hefur reyndar verið það
lengi (stofnaður 1942), enda komið
fram í útvarpi og sjónvarpi og gefíð
út hljómplötu (Heyrirðu ei) árið 1981
undir stjórn Hauks Guðlaugssonar.
Hann stjómar einig söngnum á þess-
um hljómdiski og upptöku, sem gerð
var fyrir ári af starfsmönnum Ríkis-
útvarpsins (sem bregðast ekki frekar
en fyrri daginn).
Aðalsmerki kórsins er fallegur
flutningur og innilegur, en því er
heldur ekki að neita að kórsöngur
(yfírleitt) getur virkað dálítið ein-
hæft efni á heilum hljómdiski nema
hann sé sérstakur og efnið sérstakt
LISTIR
Árnesingakórinn
Nýjar bækur
Undarlegt ferða-
lag Jóns Oskars
ÚT ER KOMIN ný
bók eftir Jón Óskar.
Hún kailast Undar-
legt ferðalag og má
líta á hana sem eins-
konar lokahnút á
þeim skáldlegu ævi-
minningum sem Jón
Óskar gaf út m.a. um
Hernámsáraskáld og
Kynslóð kalda stríðs-
ins, eins og segir í
kynningu útgefanda.
Ennfremur segir:
„Hann kemst sjálfur
að þeirri niðurstöðu,
að það sé þráin eftir
friði sem hafí borið sig
Jón Óskar
áfram í lífínu. En ekki horfír vel í
þeim efnum. Meðan hann er að
skrifa þessa bók um frið-
arhugsjónir sínar, dynja
yfír fréttir af Persaflóa-
stríði, Sómalíustríðinu,
Bosníustríðinu og hruni
Berlínarmúrsins og ryðj-
ast inn á stofugólf okkar
með sjónvarpinu. Hvar-
vetna fara fram mann-
dráp og þjóðarmorð. Inn
á milli fréttanna ræðir
Jón um ofbeldi heimsins
og hvemig ætti að sam-
eina alla krafta gegn öll-
um stríðshryllingi. Þetta
er fögur bók, ákall um
frið á jörðu.“
Útgefandi er Fjölvi.
Undarlegt ferðalag er 220 bls. Verð
kr. 2.680 krónur.
Upphaf Evrópus-
amvinnu Islands
NÝLEGA er komin út bók þar sem
upphaf Evrópusamvinnu íslands er
rakið. Aðalhöfundur bókarinnar er
Einar Benediktsson sendiherra.
Upphaf Evrópusamvinnu ís-
lands fjallar um haftatímann frá
1945-60. Fyrsti hlutinn byggist
að verulegu leyti á reynslu Einars
Benediktssonar sendiherra sem
starfaði sem fulltrúi hjá OEEC í
París árin 1956-60. „Einar rekur
framvindu samvinnunnar sem
leiddi til afnáms þeirra viðskipta-
girðinga er einangruðu öll ríki
Evrópu eftir heimsstyijöldina síð-
ari. I skrifum Einars má glöggt
sjá, að upphaf Evrópusamstarfsins
á áðurnefndu tímabili er mun
tengdara síðari tímum en margur
myndi ætla,“ segir í kynningu út-
gefanda.
í öðrum hluta bókarinnar, Skjölin
í Flórens, rekur Ketill Siguijónsson
lögfræðingur mikilvægi OEEC við
lausn fiskveiðideilna Breta og Is-
lendinga.
í þriðja og síðasta hluta bókar-
innar fjallar Sturla Pálsson hag-
fræðingur um eðli viðskiptahafta
og afleiðingar þeirra.
Alþjóðamálastofnun Háskóla ís-
lands gefur bókina út. Verð 2.850
krónur.
Árnesingakórinn og
kór Kvennaskólans
Jólatón-
leikar í
Seljakirkju
ÁRNESINGAKÓRINN í Reykja-
vík og kór Kvennaskólans í
Reykjavík halda jólatónleika í
Seljakirkju í dag, fimmtudaginn
15. desember, kl. 20.30.
Einsöngvarar á tónleikunum
verða: Jóhanna Linnett, Ingveld-
ur Ólafsdóttir og Sigurður
Bragason. Undirleik annast Jó-
hannes Andreasen. Stjórnandi er
Sigurður Bragason. Miðaverð
800 krónur.
----» ♦ <—--
Ljósmynda-
sýning í
Ráðhúsinu
NÚ stendur yfir í Tjarnarsal Ráð-
húss Reykjavíkur ljósmyndasýnigin
Forseti íslands - Tákn frelsis og
þjóðareiningar. Það er Ljósmynda-
safn Reykjavíkur sem hefur haft
veg og vanda að undirbúningi og
uppsetningu sýningarinnar.
Sýningin fjallar um forsetaemb-
ættið, hlutverk forseta og þá menn
sem embættinu hafa gegnt í 50 ár.
Birtar eru svipmyndir úr opinberum
heimsóknum forseta íslands erlend-
is og opinberum heimsóknum er-
lendra þjóðhöfðingja til íslands
ásamt svipmyndum frá þeim mörgu
embættisverkum og skyldum sem
forsetaembættið stendur fyrir.
Sýningin stendur til 22. desem-
ber.
----» ♦ ♦---
Wnaminní
Kirkjukór Akrariess
Slpifihiiuli Hnukur Liin)lMig>\o!)
— og samstætt. Hér er um að ræða
sitt lítið af hverju (eins og oftast
er), andleg og veraldleg lög eftir
innlenda og erlenda höfunda. Söng-
skráin mun áreiðanlega höfða til
margra — sem og flutningurinn
sjálfur. Ég hefði getað hugsað mér
meiri ferskleika og snerpu (jafnvel
léttleika og fögnuð) í sumum lag-
anna — jafnvel þótt „við skundum
með reikulum skrefum" ... (Bach)
og auðmýktin sé fyrir hendi. Kórinn
virðist allstór, sem getur eftir atvik-
um verið kostur og galli og þó
kannski meiri galli í „prógrammi"
sem þessu.
Engu að síður er þetta fallegur
og að fíestu leyti vandaður flutning-
ur (hjá einsöngvurum líka), þar sem
sönggleði ríkir og virðing fyrir verk-
efninu.
Enda þótt hljóðritun sé góð má
e.t.v. deila um sjálfan hljómburðinn,
sem að vísu er hljómfallegur en
e.t.v. óþarflega „mikill“. Meiri sund-
urgreining og tærleiki hefði ekki
skaðað að mínu mati. Kannski buðu
aðstæður ekki upp á annað — þær
eru a.m.k. „kirkjulegar“.
Flutningur og hljóðritun er m.ö.o.
ekki' „gerilsneydd“ og munu margir
vera ánægðir með það. Og kannski
er það kostur í þessu tilviki og allt
með ráðnum hug ...
Oddur Björnsson.
Aðventu- og
jólasöngvar í
Hafnarfjarð-
arkirkju
AÐVENTU- og jólasöngvar verða
í Hafnarfjarðarkirkju á föstudags-
kvöld kl. 22. Fram koma Gunnar
Gunnarsson flautuleikari, Barnakór
kirkjunnar undir stjórn Brynhildar
Auðbjargardóttur og Kór Hafnar-
fjarðarkirkju undir stjórn Helga
Bragasonar.
Yfirskrift tónleikanna er „Frá
ljósanna hásal" og er tilgangur
þeirra að opna huga og hjarta fyrir
komu jólahátíðarinnar, segir í kynn-
ingu.
Aðgangseyrir er 300 krónur fyrir
fullorðinn og aldrei meira en 500
krónur fyrir hveija íjölskyldu. Tón-
leikarnir taka um eina klukkustund.