Morgunblaðið - 15.12.1994, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 15. DESFMBER 1994 35
ma í Reykjavík
Rúmenía fimm áram eftir fall einræðisstjómarinnar
shópi
mar
rétt að ABR væri klofið í tvær fylk-
ingar heldur væru mjög margar hug-
myndir á lofti. Þá sagðist hún líta á
hugmynd Guðrúnar Helgadóttur sem
brandara, það væri hvorki Guðrúnar
né kjörnefndar að ákveða framboðs-
listann. „Það ráðstafar enginn sætum
með þessum hætti, hvorki hún né
aðrir,“ sagði hún.
Fullyrt er að Svavar Gestsson
styðji framkomnar hugmyndir um
uppstillingu og hafi beitt sér sérstak-
lega fyrir því að fá Ögmund Jónasson
á listann. Þetta hefur hins vegar leitt
til þess að hann hefur fengið ýmsa
af nánum stuðningsmönnum sínum
sem myndað hafa kjarnann í ABR
upp á móti sér. Viðmælandi úr hópi
stuðningsmanna Svavars sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að hópur fólks
sem staðið hefði þétt með Svavari í
innanflokksdeilum á undanförnum
árum hefði snúist gegn honum í þessu
máli. Þessi harði kjarni, sem stundum
væri kenndur við flokkseigendafélag-
ið, liti svo á að ef Svavar slægi ekki
af og féllist á forval gætu orðið skil
á milli hans og þessa fólks. Meðal
þeirra sem sagðir eru tilheyra þessum
hópi eru Stefanía Traustadóttir, Álf-
heiður Ingadóttur, Garðar Mýrdal,
Guðmundur Þ. Jónsson og Áuður
Sveinsdóttir. Meðal stuðningsmanna
Svavars sem hafa hins vegar fylgt
honum að málum og unnið að sam-
komulagi um uppstillingu eru Ástráð-
ur Haraldsson og Árni Þór Sigurðs-
son formaður kjörnefndarinnar.
Svavar vildi ekki tjá sig um málið í
gær en sagðist ætla að greina frá
afstöðu sinni á fundinum í kvöld.
Ögmundur hefur ekki endanlega
samþykkt að taka sæti á listanum
og mun skv. traustum heimildum
mínum ekki ætla að taka endanlega
ákvörðun fyrr en um áramótin þar
sem hann vilji sjá hvernig að fram-
boðinu verður staðið. Þá hefur hann
ekki í hyggju að ganga í Alþýðu-
bandalagið heldur hefur sett það sem
grundvallarskilyrði af sinni hálfu að
hann tæki aðeins sæti á listanum sem
óháður frambjóðandi, og að boðið
verði fram kosningabandalag undir
merkjunum Alþýðubandalagið og
óháðir.
Þegar fyrir lá í gær að Ögmundur
ætlaði ekki að gefa út yfirlýsingu
um framboð fyrr en um eða eftir
áramót varð ljóst að ekki yrði unnt
að taka afstöðu til þeirra fjögurra
einstaklinga sem rætt hafði verið um
að skipuðu fjögur efstu sæti listans
á fundinum í kvöld. Skv. heimildum
mínum hefur kjörnefndin í smíðum
tillögu fyrir fundinn í kvöld um að
fallið verði frá prófkjöri en jafnframt
verði skýrt frá því að kjörnefnd ætli
að vinna áfram út frá þeirri hugmynd
að Svavar skipi 1. sæti framboðslist-
ans, Bryndís 2. sæti, Ögmundur 3.
sæti og Guðrún Helgadóttir verði í
4. sæti.
Flestir viðmælendur mínir voru á
þeirri skoðun að mestar líkur væru á
því að meirihluti kjördæmisráðs myndi
styðja tillögu kjörnefndar og eru litlar
líkur sagðar á einhverskonar mála-
miðlun. Talið er víst að allir fulltrúar
Birtingar og Framsýnar eða 20 alls
samþykki að hætta við prófkjör og
er reiknað með að um helmingur fé-
laga í ABR sé sama sinnis. Hins veg-
________ ar er talið að Sósíalistafé-
'ihluti lafrið sé eindregið fylgjandi
... prófkjöri en óvíst er hvern-
... 'a ig fulltrúar æskulýðsfylk-
rOOUn ingarinnar skiptast.
Staðan er sögð mjög
viðkvæm. „Ef það samkomulag sem
náðst hefur á bak við tjöldin heldur
ekki, þá telja menn sig fullkomlega
óbundna af öllu. Ef farið verður í
prófkjör verður kosið um öll sæti,
fyrsta sætið líka, það er alveg ljóst,“
sagði einn viðmælenda minna.
-J—
># f # Morgunblaðið/Ásgeir Sverrisson
CASII Republicn, „Lýðveldishúsið“ nefnist þessi risastóra bygging sem Nicolae Ceausescu lét reisa í nýjum „kjarna“ í miðborg Búkarest.
Gamlar merkar byggingar og kirkjur voru jafnaðar við jörðu til að rýma fyrir risa-byggingum sem hýsa áttu forréttindastéttina, forystu
kommúnistaflokks Rúmeníu. Rúmenar halda því fram að „Lýðveldishúsið“ sé stærsta bygging í heimi hér en líklega er Pentagon, bygging
varnarmálaráðuneytis Bandaríkjanna, stærri. Nú hefur verið ákveðið að nýta þessa risastóru byggingu undir opinbera stjórnsýslu og þing
en áður voru uppi hugmyndir um að koma þar upp ráðstefnusölum og hóteli eða s->Dii til minningar um ógnarsljórnina.
L
YKTIN er það fyrsta sem
ferðamaðurinn veitir eftir-
tekt - þessi einkennilega
blanda tóbaksreyks, kolaf-
nyks og hlandstækju. Þetta er hin
raunsanna lykt alræðis hinna alls-
lausu - fnykur sem er óðum að
hverfa annars staðar í Austur-Evr-
ópu. I Rúmeníu er þessi lykt enn
jafn allsráðandi og hún var fyrir fimm
árum þegar landsmenn fögnuðu því
að einræðisherranum Nicolae Ceau-
sescu og eiginkonu hans, Elenu, hafði
verið steypt af stóli. Rúmenía árið
1994 minnir að flestu leyti á þetta
myrkvaða land árið 1989 nema hvað
nú er bjartsýnisbylgjan, sem reis við
fall einræðisstjórnarinnar, hnigin.
Það er að sönnu dapurleg lífs-
reynsla að ferðast með lestinni frá
Timisoara, vöggu byltingarinnar, til
höfuðborgarinnar Búkarest. Hund-
ruð manna biðu þolinmóðir í röð eft-
ir að fá að kaupa miða með nætur-
lestinni til höfuðborgarinnar. Það
virtist að jafnaði taka tíu mínútur
að afgreiða hvern mar.n. Brautar-
stöðin var skítug, nánast óupplýst
og rakafnykurinn allsráðandi.
Nokkrar sjoppur voru opnar og þar
mátti fá keypt kex, brauð og viður-
styggilega hamborgara.
Fólkið var skelfilega illa til haft -
konurnar klæddust gömlum, ljótum
kápum og höfðu slæðu á höfði. Menn-
irnir klæddust gjarnan alltof litlum
leðurjökkum og báru risastórar loð-
húfur. Þetta fólk var verr klætt en
íbúar þeirrar frægu borgar Sarajevo.
Margir líktust helst tötralega klædd-
um umrenningum.
Lestin var troðfull. Hún rann af
brautarstöðinni með tilheyrandi iskri
og skruðningum og stansaði síðan.
Þetta var aðeins fyrsta óútskýrða
bilunin, þær áttu eftir að verða miklu
fleiri. Á fyrri helmingi leiðarinnar
ríkti hitabeltisloftslag inni í járn-
brautarklefanum og það var sama
hvað reynt var, ógerlegt var með
öllu að minnka hitann. Sökum stækj-
unnar sem barst frá salern- ________
inu við hliðina var fljótlega
horfið frá því ao hafa
gluggann opinn til að
hleypa lofti inn í vagninn.
Síðan hvarf hitinn skyndi-
lega og við tók nístandi ———
kuldi þannig að ómögulegt var með
öllu að festa svefn.
Á eftir tímanum
Meðfram brautarteinunum mátti
hvarvetna sjá járnbrautir, smíðaðar
í Rúmeníu sjálfri í samræmi við brjál-
semislegar áætlanir Ceausescus um
að gera Rúmena öldungis óháða öðr-
um ríkjum á sviði iðnframleiðslu. Þær
stóðu hreyfingarlausar, ryðhaugar á
ónýtum teinum. Ferðin var alls um
480 kílómetra löng og hún tók heilar
ellefu klukkustundir enda eru rúm-
Fnykur
deyjandi
drauma
A jóladag 1989 var Nicolae Ceausescu, ein-
ræðisherra í Rúmeníu, tekinn af lífi ásamt
eiginkonu sinni. Mikil bylgja bjartsýni reis er
ógnarstjóm kommúnista hafði verið steypt.
Fimm ámm síðar er ástandið óbreytt eins og
Patrick Bishop, blaðamaður The Daily Tele-
graph, komst að er hann tók sér fyrir hendur
lestarferð frá Timisoara til Búkarest.
Sömu dótabíl-
arnir skrölta
enn um göt-
urnar
enskar járnbrautarlestir hálfri öld á
eftir tímanum. Á það jafnt við í eigin-
legri og yfirfærðri merkingu.
Götukrakkarnir eru það fyrsta sem
ferðamaðurinn tekur eftir við kom-
una á aðalbrautarstöðina í Búkarest.
Þetta er í raun sérstakur þjóðflokkur
og þarna halda börnin til, hringa sig
saman og sofa líkt og snákar á hita-
pípunum. Þegar upp er komið taka
-------- eldri- betlarar við, gamlir
menn á tréfótum og aldr-
aðar konur sem vart geta
hreyft sig sökum örbirgð-
ar. Undrunin yfir því að
fá 200 krónur í lófann er
sönn.
rúmensk-smíðuðu dótabíl-
göturnar og
Sömu
arnir skrölta
áður. Aftan úr þeim streymir sama
mengunarskýið. Verslanir eru að
sönnu skárri en fyrir fimm árum.
Enn er þó ekki að finna McDonald’s-
skyndibitastað eða Benetton-búð í
Búkarest en annars staðar í Mið- og
Austur-Evrópu hafa þessi nöfn verið
táknræn fyrir umskiptin í átt til vest-
ræns markaðshagkerfis.
íbúarnir, sem almennt og yfirieitt
eru bæði þolinmóðir og kurteisir,
þreytast seint á að útskýra fyrir
ferðamanninum að í þessu liggi rót
vandans. Rúmenar njóta að sönnu
pólitísks frelsis. í efnahagslegu til-
liti ríkir hins vegar sama stöðnunin
og miðstýringin og á tímum Ceau-
sescus og hinnar hötuðu eiginkona
hans. Og hver er ástæðan fyrir
þessu? Kommúnistarnir, segja inn-
fæddir, eru enn við völd. Nánast
strax í upphafi „byltingarinnar" í
desember 1989 varð ljóst ________
að um raunverulega bylt-
ingu var ekki að ræða.
Almenningur reis að sönnu
upp og bylgjan barst frá
Timisoara til Cluj og þaðan
til Sibiu og Búkarest. En ———
hópur andstæðinga Ceausescus inn-
an rúmenska kommúnistaflokksins
„rændi“ byltingunni þegar á upp-
hafsstigum hennar. Þessir menn
höfðu lagt á ráðin um valdarán öðru
hvoru í heilan áratug en þá skorti
jafnan hugrekki til að láta til skarar
skríða gegn Ceausescu. Fyrir sam-
særismönnunum fór Ion Iliescu, sem
nú hefur verið kjörinn forseti Rúm-
eníu tvívegis, en hann var þá fyrrum
leiðtogi ungliðahreyfingar konnnún-
istaflokksins. Hann hafði fallið í
ónáð hjá Ceausescu og stjórnaði
ríkisreknu útgáfufyrirtæki þegar
tækifærið til valdaráns gafst.
Valdafíkn og einkavæðing
Þegar haft er í huga að annars
staðar í ríkjum þeim sem lutu einræð-
isstjórn kommúnista, ríkir nú einhug-
ur um að koma á markaðshagkerfi,
hlýtur að koma á óvart hversu tregir
rúmensku samsærismennirnir eru til
þess. Einkavæðing á sviði iðnfram-
leiðslu er í raun ekki hafin og mjög
hefur vafist fyrir stjórnvöldum að
færa jarðir aftur í hendur smábænda.
Við nánari umhugsun þarf þessi
þróun í raun ekki að koma svo á
óvart. Með því að halda landbúnaðin-
um og úreltum fýrirtækjum í þunga-
iðnaði gangandi gefst ráðamönnum
tækifæri til að treysta völd sín. Með
þessu móti er unnt að fá keypt at-
kvæði verkamanna sem hræðast
óvissu hins framandi heims fjár-
magnsins. Og leiðtogarnir geta einn-
ig keypt hollustu og þagmælsku
þeirra sem báru ábyrgð á að gamla
stjórnkerfíð héldist gangandi. Illþýð-
ið sem tryggði völd ógnarstjórnarinn-
ar hefur einnig reynst hafa furðulega
aðlögunarhæfni. Fcrrréttindastéttin
smáa, sem orðið hefur moldrík á
þeim litlu breytingum sem þó hafa
átt sér stað á efnahagssviðinu, sam-
anstendur m.a. af fyrrum liðsmönn-
um öryggislögreglunnar, Securitate.
Herforinginn sem bar ábyrgð á morð-
unum í Timisoara í upphafi byltingar-
innar er nú einn auðugasti kaupsýslu-
maður Rúmeníu.
Talsmenn stjórnarandstöðunnar
segja að engin von sé til þess að lífs-
kjörin batni í Rúmeníu fyrr en fram
fari raunveruleg einkavæðing í land-
inu. Á meðan núverandi ríkisstjórn
er við völd og ríkir í skjóli bandalags
kommúnista, einangrunarsinna ög
gyðingahatara, er lítil von um að þau
umskipti verði. Klofningur í röðum
stjórnarandstöðunnar verður síðan til
að treysta enn frekar stöðu stjórn-
arinnar. Skortinn á samstöðu má
--------- hins vegar rekja til þess
hve ógnarstjórn kommún-
ista var vægðarlaus í þá
rúmu fjóra áratugi sem
hún var við völd. Ólíkt því
sem gerðist í Tékkóslóvak-
íu og Ungverjalandi rann
aldrei upp slökunarskeið í Rúmeníu.
Borgarastéttin nýfædda í Rúmeníu
mænir vonaraugum til vesturs og fer
með galdraþuluna um frelsunannátt
erlendrar fjárfestingar. Þeir fjármun-
ir sem veitt er til Balkanskaga
streyma framhjá Rúmeníu og fara
ofan í hítina sem nefnist aðstoð Sam-
einuðu þjóðanna við Bosníu. Eftir
sitja hinir óheppnu Rúmenar, áfram
halda þjáningar þessarar þjóðar og
biðin eftir því að úr rætist á eftir að
reynast löng.
Kommúnist-
arnir, segja
innfæddir, eru
enn við völd