Morgunblaðið - 15.12.1994, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 15.12.1994, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ i FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 1994 41 AÐSENDAR GREIIMAR Forsætisráðherra á villigötum í VIÐTALI í Morgunblaðinu sunnudaginn 11. desember setur forsætisráðherra, Davíð Oddsson, fram nokkrar alvarlegar ásakanir varðandi kennarasamtökin og störf forystumanna jjeirra. Þessar ásak- anir eru með þeim hætti að ekki er hægt að láta hjá líða að gera athugasemdir við þær. Forsætisráð- herra nefndi þjóðarsáttina og þann stöðugleika sem náðist með henni. En út á hvað gengur þjóðarsáttin og stöðugleikinn? Jú, þjóðarsáttin er um það að þeir lægst launuðu, opinberir starfsmenn og taxtafólk á almenna vinnumarkaðnum, standi í stað en þeir sem hærri hafa laun- in mjaka sér áfram eða hagræða sköttunum sínum. Stöðugleikinn er sá að ef þeir sem lægst launin hafa fájneira en 1.200-1.500 krónur í launahækkun þá hrynur allt. Þetta er ekki stöðugleiki heldur lýðskrum. Kennarasamtökin hafa nú í nokkra mánuði undirbúið kröfugerð fyrir kjaraviðræður við ríkið, kynnt hana félagsmönnum og borið undir þá. Kröfugerðin var síðan lögð fram í nóvember svo takast mætti að ljúka samningum fyrir áramót. Svör samninganefndar ríkisins voru mjög á einn veg, það stæði ekki til að semja við okkur fyrr en búið væri að semja við aðra, m.ö.o. sarhningsréttur okkar ekki virtur frekar en undanfarin ár. Við þurf- um ekki 30-40 fundi til að skilja svör samninganefndarinnar. Hins vegar er verkfallshótun það eina sem ríkið skilur þegar í hlut eiga þeir sem lægstu launin hafa. Hvað varðar tímasetningu hugs- anlegra verkfallsaðgerða þá er eðli- legt að miða þær við þann tíma sem þing starfar, þó ekki væri nema vegna hættunnar sem stafar af bráðabirgðalögum sem stjórnvöld á hinum ýmsu tímum hafa notað af fullkomnu ábyrgðarleysi. Forsætisráðherra verður tíðrætt um 25% kröfu kénnara. Þessi pró- sentutala segir ekkert um græðgi, ábyrgðarleysi eða kröfuhörku kenn- ara. Hún segir aftur á móti allt sem segja þarf um hversu lág launin eru. En hveijar eru kröfur kennara. Þær eru m.a. þær að byijandi hækki í útborguðum launum úr 61.000 tæp 70.000 og að kennari eftir 15 ára starf hækki í útborguðum laun- um úr um 68.000 í tæp 80.000. Ef forsætisráðherra telur þessar tölur of háar þá er rétt að hann geri það opinbert hvað honum finnst eðlilegt að kennari, eftir 3-4 ára náskólanám, hafi í laun. Ef hann treystir sér ekki til að lýsa því yfir þá er lítið mark takandi á honum í umræðunni um kjarasamninga. Ósvífnin verður hvað mest þegar hann reynir að gera for- ystu kennarasamtak- anna tortryggilega á þeim forsendum að hún sé að nota samtökin í flokkspólitískum til- gangi. Þessar fullyrð- ingar lýsa honum best sjálfum, þetta er greini- lega vinnulag sem hann þekkir. Ég vil hins veg- ar fullyrða að það sem vakir fyrir forystu kennarasamtakanna er að gera félagsmönnum kleift að sjá fyrir sér án þess að lifa á yfir- vinnu, aukavinnu eða Hannes Þorsteinsson eiga fyrirvinnu. Síðastliðin fjögur ár hefur menntamálaráð- herra, Ólafur G. Einars- son, oft talað um nauð- syn þess að _ lagfæra kjör kennara. Á þessum tíma hefur hann ekkert gert til að hjálpa okkur og nú eru kennarar orðnir þreyttir á að bíða. í haust hef ég farið í yfir 20 skóla í Reykja- vík til að funda með kennurum um hugsan- legan flutning grunn- skólans til sveitarfélag- Verkfallshótun er það eina sem ríkið skilur, segir Hannes Þor- steinsson, þegar í hlut eiga þeir sem lægstu launin hafa. anna og stöðuna í kjaramálum. Það sem ég hef sagt við kennara er að kröfur okkar séu svo hógværar að ekki eigi að þurfa að fylgja þeim eftir með aðgerðum. Ég hef líka sagt þeim að ef tónninn hjá ríkinu verði líkur þeim sem forsætisráð- herra hefur nú gefið þá eigum við ekki nema eitt vopn og það er verk- fallsvopnið. Forsætisráðherra fann að því að ‘ kennarasamtökin ættu stóran verk- fallssjóð. Það er rétt, kennarar í Kennarasambandi Islands eiga rúmar 400.000.000 í verkfallssjóð sem við höfum safnað í nær ára- tug. Þar höfum við sýnt fyrirhyggju sem stjórnmálamenn geta lært af. Kennarar í Kennarasambandi ís- lands hafa aldrei beitt verkfalls- vopninu þau átta ár sem þeir hafa haft sjálfstæðan samningsrétt. Við vonum að við verðum ekki neydd til þess nú. Höfundur er formaður Kennarafélags Reykjavikur og á sæti í samninganefnd Kennarasambands Islands. m. Falleg og vönduð vínglös á fæti 6 glös í pakka á kr. 990,-. .... Mikið úrval lampa og skerma Pottar með Teflon-húð. Verð frá kr. 650,-. Einnig kaffikönnur og ýmis notadrjúg eldhúsáhöld. Glæsilegt úrval af húsgögnum, leirvöru, glösum, kertastjökum, myndarömmum, skálum og fleira til heimilisnota. Púðar í f jölmörgum litum. Verð frá kr. 1.450,-. Tilbúnar gardínur, rúmföt, rúmteppi, sloppar, náttföt, handklæði og rnottur í úrvali. L—J yfi......) MUNA1.AN Habitat-húsið • Laugavegi 13 • Sími (91) 625870 i
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.