Morgunblaðið - 15.12.1994, Page 44
44 FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
„Þetta er bara svona“
Orðið varð hold
í upphafi var Orðið, og Orðið var
hjá Guði, og Orðið var Guð. Hann
var í upphafi hjá Guði. Allir hlutir
urðu fyrir hann, án hans varð ekki
neitt, sem til er. í honum var líf,
og lífið var ljós mannanna. Ljósið
skín í myrkrinu, og myrkrið tók
ekki á móti því.
En öllum, sem tóku við honum,
gaf hann rétt til að verða Guðs
börn, þeim er trúa á nafn hans.
Og Orðið varð hold, hann bjó
* með oss, fullur náðar og sannleika.
(Úr fyrsta kafla Jóhannesarguð-
spjalls.)
Sannleikurinn
Biblían hefur í sér fólgin verð-
mæti, sem enginn maður má vera
án. Hún er fjársjóður, sem þó mun
aldrei verða metinn til fjár.
Orðið segir okkur sannleikann
um okkur sjálf og það sem meira
er þá segir Orðið okkur sannleikann
um Guð föður, skapara okkar.
„Því svo elskaði Guð heiminn,
að hann gaf son sinn eingetinn, til
þess að hver sem á hann trúir glat-
ist ekki, heldur hafi eilíft líf.“
Þessi orð, sem eru að finna í
þriðja kafla Jóhannésarguðspjalls,
kallaði Marteinn Lúter „Litlu Bibl-
Biblían hefur í sér fólgin
verðmæti, segir Sigur-
björn Þorkelsson,
sem enginn maður
má án vera.
íuna“ því hann taldi þau fela í sér
kjarna þess, sem Biblían fjallar um.
Jesús sagði: „Ég er vegurinn
sannleikurinn og lífið. Enginn kem-
ur til föðurins, nema fyrir mig.“
(Jóh. 14:6)
Aukið öryggi fyrir öllu
íbúðarkaup kalla á vel ígrundaða ákvörðun og mikilvægt er að vanda
þartil allra verka. Með tilkomu greiðslumats hafa einstaklingar átt
auðveldara með að átta sig á væntanlegri greiðslubyrði. Nú hefur
Húsnæðisstofnun endurnýjað reglur sínar um greiðslumat og miða
þær að því að gera íbúðarkaup öruggari en áður.
Helstu breytingar eru þessar:
■ Miðað er við að greiðslubyrði allra lána fyrstu 3 árin eftir
íbúðdrkaup, byggingu eða endurbætur, verði ekki hærri en
18% af heildarlaunum.
■ Meira tillit er tekið til sveiflukenndra launa en áður. Áhersla
er lögð á heildarlaun umsækjanda samkvæmt skattskýrslu í
stað mánaðarlauna síðustu þrjá mánuði.
■ Lánafyrirgreiðsla, s.s. skammtímalán banka til kaupanda,
verður að vera formlega staðfest sem ákvörðun.
■ Sala lausajjármuna, t.d. bíls, og aðstoð skyldmenna verður
að hafa farið fram áður en Húsnæðisstofnun samþykkir
kaup á veðskuldabréfi.
Leitið til viðskiptabanka ykkar eða annarra fjármálastofnana eftir
frekari upplýsingum varðandi hinar nýju reglur um greiðslumat.
ö
HUSNÆÐISSTOFNUN RIKISINS
HÚSBRÉFADEILD • SUÐURLANDSBRAÚT 24 • 108 REYKJAVÍK • SÍMI 69 69 00
OPIÐ KL. 8-16 VIRKA DAGA
I
Nýjar reglur um greiðslumat
Andlegnr áttaviti
Mér er afar minnisstæður maður
nokkur, sem eitt sinn kom að máli
við mig, en þennan ágæta mann
hafði ég aldrei séð áður. Hann sagði
mér eftirfarandi: „Ég fékk Nýja
testamentið að gjöf þegar ég var
12 ára gamall. Upp úr því fékk ég
trúaráhuga og ákvað að fylgja
Kristi. Eg fór að sækja fundi í
KFUM, en þangað fannst mér mjög
gott að koma.
Á unglingsárunum fór ég síðan
á sjóinn, þar sem ég var meira eða
minna í nokkur ár. Alltaf hafði ég
Nýja testamentið með mér til sjós.
Það var mér sem einhverskonar
andlegur áttaviti.
Þó gerðist það smám saman að
samfélag mitt við Krist dofnaði.
Þannig var í nokkur ár eða þangað
til ég fór að ala upp mín eigin börn,
en ég á eiginkonu og fimm böm.
Þá fór ég aftur að leita til Nýja testa-
mentisins, sem ég hafði eignast
þama um árið. Styrktist ég nú aftur
vemlega í trúnni á Guð og í samfé-
laginu við hann, við lestur Orðsins.
í dag sæki ég reglulega kirkju
og einnig hef ég í seinni tíð sótt
Biblíulestra, sem boðið hefur verið
upp á fleiri en einni kirkju í Reykja-
vík.
Maður hefur fengið margar góð-
ar gjafír um ævina eins og föt og
fleira, sem gengur úr sér. Hrifning-
in yfir þessum annars ágætu gjöf-
um varir ótrúlega stutt, jafnvel
þótt þær hafi verið gefnar í miklum
kærleika af ástvinum.
En Nýja testamentið, sem ég
fékk að gjöf þegar ég var 12 ára
gamall skóladrengur er dýrmætasta
og varanlegasta gjöf, sem mér hef-
ur verið gefin um ævina, enda var-
ir orð Guðs að eilífu.
Að sjálfsögðu keypti ég mér síðan
Biblíu fyrir mörgum ámm og einnig
eiga bömin sérstaka barna Biblíu,
sem við höfum notað mikið með
þeim.
Ég fullyrði að enginn hlutur eða
manneskja hefur haft meiri og já-
kvæðari áhrif á líf mitt en þetta
gamla og slitla bláa Nýja testa-
menti, sem mér var gefið þegar ég
var drengur. Ég get ekki skýrt þetta
frekar, þetta er bara svona.“
Svo mörg vom orð þessa ágæta
samtíma manns, sem mér verður oft
hugsað til. Við hans orð er fáu að
bæta.
Jesús sagði
Jesús sagði: „Sá sem varðveitir
mitt orð, skal aldrei að eilífu deyja.“
(Jóh. 8:51)
Get ég annað
Ég hef ásett mér að vita ekkert
annað öðru fremra manna á meðal
í ræðu eða riti, en Jesú Krist og
hann krossfestan og upprisinn frels-
ara manna og eilífan lífgjafa. Því
ég fyrirverð mig ekki fyrir fagnað-
arerindið. Það er kraftur Guðs til
hjálpræðis hveijum þeim sem trúir.
Því get ég ekki annað en talað það,
sem ég hef séð og heyrt.
Höfundur er framkvæmdastjórí
Gídeonfélagsins á Islandi.
Prófkjörið á Norð-
urlandi vestra
PRÓFKJÖR Sjálf-
stæðisflokksins í Norð-
urlandskjördæmi
vestra er nú lokið. Þetta
þrófkjör var sérstætt
og sögulegt að því leyti
að hér var í fyrsta sinn
í kosningum m.a. tekist
á um stefnu og áherslur
í Evrópumálunum.
Tveir miklir hæfileika-
menn gáfu kost á sér í
fyrsta sætið og þar með
í forystu fyrir sjálf-
stæðismenn í kjördæm-
inu, þetta voru þeir
Hjálmar Jónsson og
Vilhjálmur Egilsson.
Vilhjálmur Egilsson
hefur markað sér sérstöðu í íslensk-
um stjórnmálum á undanförnum
misserum með því að taka þátt í að
opna hér umræðuna um afstöðuna
til Evrópusambandsins. Hann hefur
verið hreinskiptinn og heiðarlegur
varðandi afstöðu sína til þessara
mála og verið trúr sínum skoðunum
og komið þar fram eins og hann er
klæddur, eins og hann nefnir það
sjálfur. Hitt er svo annað mál hvort
menn eru sammála honum eða ekki.
Ég held þó að við getum öll verið
sammála um að við þurfum að hafa
fleiri slíka menn á þingi, þ.e. menn
sem við vitum hvar við höfum og
vitum hvaða skoðanir og stefnur
þeir hafa.
í þessu prófkjöri var því ekki að-
eins tekist á um menn, heldur var
tekist á um stefnu í Evrópumálunum
og voru þau mál málanna í prófkjör-
inu. Hvar sem við hinir þátttakend-
umir í prófkjörinu komum, var ein
fyrsta spumingin alltaf sú sama, og
það sem mönnum lék einna mest
forvitni á að vita, var hver afstaða
okkar væri í Evrópumálunum. Það
voru þessi mál sem réðu úrslitum
um niðurstöður prófkjörsins.
Það er ljóst að ef Vilhjálmur Egils-
son hefði verið valinn til forystu
sjálfstæðismanna í Norðurlandskjör-
dæmi vestra, þar sem í fyrsta skipti
er í raun tekist á um afstöðuna til
Evrópusambandsins í kosningum,
þ.e. hvort menn eigi að láta reyna
á samningaleiðina eða ekki, og Vil-
hjálmur hefði orðið ofaná, þá hefði
Sjálfstæðisflokkurinn ekki getað
skorast undan því að taka tillit til
þessarar niðurstöðu,
og fara yfir þessi mál
að nýju.
Það varð glæsileg
þátttaka í prófkjörinu
sjálfu og í prófkjörs-
baráttunni unnu menn
allir innan þess ramma
sem settur var. Ég held
að allir geti verið
ánægðir með hvernig
að undirbúningi og
framkvæmd prófkjörs-
ins var staðið og enn á
ný var sýnt og sannað
að Sjálfstæðisflokkur-
inn er sterkasta stjórn-
málaaflið í landinu þar
sem fjöldi fólks vinnur
óeigingjarnt starf í þágu flokksins
með markmið sjálfstæðistefnunnar
að leiðarljósi.
Framundan er síðan kosningabar-
áttan og undirbúningur kosninganna
Sýnt var og sannað,
segir Friðrik H. Guð-
• mundsson, að Sjálf-
stæðisflokkurinn er
sterkasta stjórnmála-
aflið í landinu.
í vor og það liggur Ijóst fyrir að þar
mun Hjálmar Jónsson leiða flokkinn
í þeirri baráttu. Við höfum einnig
fengið skýrar Iínur hver afstaða
manna til Evrópumálanna er, og
með þetta veganesti eigum við að
fara í kosningaundirbúninginn.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur meðbyr
í kjördæminu og með sameiginlegu
átaki egum við að geta unnið okkar
stærsta sigur í kosningunum í vor.
Ég vil að lokum þakka þeim sem
tóku þátt í þessu prófkjöri og studdu
mig þar. Einnig öllum þeim fjöl-
mörgu sem ég hitti og ræddi við,
og að lokum við ég nota þetta tæki-
færi til að óska öllum íbúum kjör-
dæmisins árs og friðar.
Höfundur tók þátt íprófkjöri
Sjálfstæðisflokksins í
Norðurlandskjördæmi vestra.
Friðrik Hansen
Guðmundsson.