Morgunblaðið - 15.12.1994, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 1994 49
öll jól í áranna rás. Nú eruð þið sam-
einuð að nýju. Ég tendra kertaljós
fyrir ykkur þessi jól. Amma, ég bið
að heilsa afa.
Guðný Harðardóttir.
Elsku amma Dúný.
Takk fyrir allan þann kærleik,
umhyggju og ástúð sem þú hefur
veitt okkur um ævina. Takk fyrir
minningamar, takk fyrir ánægju-
stundirnar. Takk fyrir að hafa ver-
ið til.
Takk fyrir að vera langamma
okkar. Guð veri með þér.
Sævar, Erla og Maja.
Kveðja frá Thorvaldsens-
félaginu
í dag kveðja félagskonur í Thor-
valdsensfélaginu heiðursfélaga sinn
og kæran vin og kæra vinkonu
Guðnýju G. Albertsson.
Hinn 19. nóvember 1875 var
næðingssamur haustdagur í Reykja-
vík. Þrátt fyrir það var bjart í hugum
Reykvíkinga og íslendinga allra, því
þann dag átti að afhjúpa koparlík-
neski Alberts Thorvaldsens, sem
borgarstjórn Kaupmannahafnar
hafði gefið íslendingum á þúsund
ára afmæli íslandsbyggðar árið
áður, þjóðhátíðarárið 1874. 24 ungar
konur í Reykjavík höfðu tekið sig
saman um að skreyta og prýða Aust-
urvöll með blómsveigum og ljósker-
um í tilefni dagsins. Þessar 24 kon-
ur héldu samstarfínu áfram og
stofnuðu fyrstu kvenfélag í Reykja-
vík, Thorvaldsensfélagið. Stefnumál
félagsins var að vinna að líknar- og
framfaramálum í þágu borgarbúa.
Guðný gekk í félagið árið 1959 og
heiðursfélagi þess varð hún 1977.
Þjóðhátíðaránð 1875 markaði
tímamót í sögu íslands. Með tilkomu
nýrrar stjórnarskrár fékk þjóðin trú
og skilning á menningu sinni, öðlað-
ist sterka þrá til sjálfstæðis og sjálfs-
bjargar. Þessi framfaraspor gerðu
Guðnýju, sem fædd var um aldamót-
in austur á Borgarfirði eystra, 4. í
röð tíu systkina fátækra foreldra,
kleift að bijótast til náms. Guðný
útskrifaðist hjúkrunarkona frá Nor-
egi árið 1926. Það sama ár giftist
hún eiginmanni sínum, Guðmundi
framkvæmdastjóra og útgerðar-
manni. Starfa sinna vegna varð
Guðmundur að hafa búsetu erlendis
um lengri eða skemmri tíma. Ekki
hefur það alltaf verið auðvelt fyrir
Guðnýju að taka sig upp með barna-
hópinn og fylgja manni sínum eftir.
Búandi oft á tíðum við misjafnar
aðstæður. En Guðný var þeirrar
gerðar að hana fékk ekkert bugað.
Alla sína ævi var hún sístarfandi
full af lífsorku og athafnaþrá. Guðný
var greind kona, víðlesin, hafði mörg
tungumál á valdi sínu og snillingur
við alla handavinnu.
Guðný var mikil fjölskyldukona
og móðir. Hún bar ekki einungis hag
sinna eigin barna fyrir brjósti. Öll
börn áttu að njóta ástúðar og að
þeim skyld hlúð. Sérstaka umhyggju
bar hún fyrir aðbúnaði sjúkra barna.
Það var því eitt af hennar hjartans
málum að stuðningur Thorvaldsens-
félagsins við Barnadeild Landakots-
spítala væri sem mestur.
Störf Guðnýjar fyrir Thorvald-
sensfélagið voru mikil og margvís-
leg. Hún var meðal annars áratugum
saman gjaldkeri Barnauppeldissjóðs
félagsins. Á vegum sjóðsins eru ár-
lega gefin út jólamerki. Við útgáfu
jólamerkjanna naut þekking og list-
fengi Guðnýjar sín vel. í nóvember
og desembermánuði ár hvert var
heimili Guðnýjar oftast undirlagt af
jólamerkjum og bréfum frá söfnur-
um og viðskiptavinum víðs vegar að
úr heiminum. Af skrifum bréfritara
mátti sjá að margir voru orðnir góð-
ir vinir, sem leituðu til Guðnýjar
vegna hennar miklu þekkingar bæði
á jólamerkjum og frímerkjum.
Guðný vann einnig mikið starf í
verslun félagsins, Thorvaldsensbas-
arnum. Gaman var að fylgjast með
þessari glæsilegu konu þegar hún
var að afgreiða útlendinga og fræða
þá um land og þjóð á þeirra eigin
tungu. Persónulega eigum við Thor-
valdsensfélagskonur Ijúfar fallegar
minningar um Guðnýju bæði í leik
og starfi. Guðný var óvenju falleg
og skemmtileg kona með sterka
persónulega útgeislun. Þegar Guðný
var mætt með sitt kankvísa bros
hurfu allar áhyggjur, allt varð svo
leikandi létt og auðvelt í návist
Guðnýjar.
Með lífi sínu hefur Guðný G. Al-
bertsson verið merkisberi þeirra
væntinga sem bjuggu í bijóstum
íslendinga þjóðhátíðarárið 1874. Og
með starfi sínu í Thorvaldsensfélag-
inu hefur hún stutt og eflt hugsjón-
ir þeira ungu kvenna sem á köldum
nóvemberdegi árið 1875 ákváðu að
með sameiginlegu átaki mætti fegra
og bæta mannlíf á íslandi.
Félagskonur í Thorvaldsensfélag-
inu þakka Guðnýju fyrir störf henn-
ar í þágu félagsins og allar samveru-
stundir. Börnum hennar og ættingj-
um sendum við innilegar samúðar-
kveðjur.
Ingibjörg Magnúsdóttir.
GUNNAR EIRÍKSSON
+ Gunnar Eiríks-
son var fæddur
í Vestmannaeyjum
9. september 1916.
Hann lést á dvalar-
heimili aldraðra,
Hraunbúðum, í
Vestmannaeyjum 7.
desember 1994.
Foreldrar hans
voru Eiríkur Og-
mundsson verk-
stjóri og kona hans
Júlía Sigurðardótt-
ir. Gunnar var næ-
stelstur af sex
systkinum, og að
auki voru tveir hálfbræður,
sem Júlía átti með fyrri manni
sínum, Sigfinni Árnasyni, en
hann drukknaði er drengirnir
voru á barnsaldri. Af þessum
átta systkina hópi eru nú fjög-
ur á lífi, Sigurtinna, Margrét,
Þórarinn og Oskar. Utför
Gunnars fer fram frá Landa-
kirkju í dag.
HANN Gunnar er dáinn. Þessi
fregn hefði ekki átt að koma á
óvart, aldurinn orðinn nokkuð hár,
og heilsan farin að bila. En það
er eins og maðurinn með ljáinn
komi alltaf á óvart, ekki síst þegar
það gerist snögglega og án veru-
legs aðdraganda. Svo fór með
Gunnar, hann reis upp frá matar-
borðinu, en hneig svo niður og var
allur. Hljóðlátt og án alls um-
stangs, en þannig var líf Gunnars,
hann var ekki mikið fyrir að láta
hafa fyrir sér.
Gunnar var Vestmanneyingur,
fæddur þar og uppalinn, á eyjunni
fögru þar sem allt snýst um hafið
og það sem það gefur af sér. Það
var ekki um sérlega margt að velja
fyrir efnalitla unga menn á fyrri
hluta þessarar aldar, nema að
koma sér á brott, upp á fastaland-
ið eða snúa sér að sjónum. Og það
var það sem Gunnar gerði, sjó-
ERFIDRYKKJUR
P E R L A N sími 620200
mennska varð hans
aðal ævistarf. Hann
stundaði sjóinn á fiski-
skipum, smáum og
stórum, frá Eyjum og
frá Reykjavík. Gunnar
var frábær sjómaður,
skyldurækinn og harð-
duglegur, enda eftir-
sóttur í skiprúm. í landi
átti hann lengst af ör-
uggt og gott heimili í
litla húsinu, sem for-
eldrar hans áttu við
Heimagötu, Dverga-
steini. En örlög þessa
sögufræga húss urðu,
eins og svo margra annarra húsa
í Eyjum, að grafast undir tugi
metra þykku hraunlagi.
Eftir hamfarirnar miklu í Eyjum
1973 fluttist Gunnar til Reykjavík-
ur. Hann hætti til sjós, og gerðist
starfsmaður hjá Hampiðjunni og
vann þar meðan heilsa hans leyfði.
Síðustu árin dvaldist hann á
Dvalarheimili aldraðra, Hraunbúð-
um, í Eyjum, og undi þar vel hag
sínum.
Gunnar var ekki mikið fyrir að
láta á sér bera, eða trana sér fram.
Honum gast betur að því að sitja
rólegur og hlusta, en væri hann
spurður álits, var yfirleitt ekki
komið að tómum kofunum þar. Ég
held að hans bestu stundir hafi
verið er hann gat komið.sér vel
fyrir í ró og næði með góða bók,
en hann hafði mikið yndi af lestri
góðra bóka.
Og nú er hann horfinn, horfinn
yfir í annan, betri og bjartari heim,
þar sem honum hefur örugglega
verið vel tekið og þar sem hann
nú mun ganga inn í hina dýrðleg-
ustu jólahátíð.
Vertu sæll, kæri mágur. Hafðu
þakkir fyrir viðkynninguna. Þú
varst sannarlega það sem allir
menn gjarnan vilja vera - drengur
góður.
Óskar Steindórsson.
1 I _ I Krossar
TTT á leiiii
. I viSarlit og málaðir.
Mismunandi mynshjr, vönduð vinna.
Siiwi 91-35929 og 35735
OftÐSENDfNG TtL TÚKKAREIKNINGSEtGENDA QG VIÐTAKENDA TÉKKA
Um nðErS>tu árairiot fðllði
öll Bankakort úr gildi
Eins og fram kom í kynningu á Debetkortum fyrr á þessu ári var ákveðið að tékkaábyrgð Bankakorta félli
úr gildi um þessi áramót. Jafnframt verður ekki hægt að nota Bankakort í Hraðbönkum frá sama tíma.
Debetkortin taka við hlutverki Bankakortanna um áramótin og verða þau framvegis hin nýju
tékkaábyrgðarkort og hraðbankakort. Þetta á einnig við um viðskiptavini íslandsbanka, þó hann hafi ekki
gefið út Bankakort áður. Nauðsynlegt er að framvísa Debetkorti við greiðslu með tékka til að tékkaábyrgð
banka og sparisjóða gildi, en hún er nú allt að f 0.000 kr.
Nú þegar hefur stór hluti tékkareikningseigenda, eða um 85 þúsund einstaklingar, fengið Debetkort.
Sölu- og þjónustuaðilar hér á landi, sem taka við Debetkortum, eru um 2.500.
Mundu að hafa Debetkortið ávallt meðferðis þegar þú greiðir með tékka.
debet
eikort
FJÖGUR KORT í EINU
BUNAÐARBANKI
ÍSLANDS
ÍSLAN DSBAN Kl
L
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna
SPARISJÓÐIRNIR
! Bráðumkoma
I blessuðjólin...
VELJUM ÍSLENSKT!