Morgunblaðið - 15.12.1994, Side 51

Morgunblaðið - 15.12.1994, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 1994 51 oft hefur verið grát.ið úr hlátri yfir jafnvel fáránlegustu hlutum þar. í þessum minningum stendur afi og fylgist með og alveg sérstakt bros, stolt bros, yfir andliti hans. Inni í Langó átti afi sitt sérstaka sæti. Enginn sat þar ef hann var heima, ekki af því að hann vildi það ekki því hann vildi endilega bjóða manni sætið sitt, heldur frekar vegna þess að það var svo notalegt að sitja þarna á móti honum, hann að leggja kapal og rabba við mann. Ég á það til að vera öfgakennd í skoðunum, og ég heyri það fyrir mér þegar ég var búin að láta gamminn geysa og hann var kannski ekki alveg sammála þess- um ofsa, þá glotti hann út í annað og sagði: „Jæja, ekka mín,“ og þá vissi ég að nú ætti ég að fara að stoppa. Aldrei setti hann þó ofan í mann fyrir þetta og ég hafði það jafnvel á tilfinningunni að hann væri bara ánægður með þetta. Hon- um þótti það bara gott að við létum ekkert vaða yfir okkur. Best kynntist ég afa og ömmu þó þegar ég bjó hjá þeim um tíma. Þá vorum við Óli í skóla hér í Reykjavík og pabbi og mamma austur á Reyðarfirði. Ég hafði leigt mér herbergi, en var þó flestum stundum hjá ömmu, afa og Dísu. Afa og ömmu þótti þetta ómögulegt fyrirkomulag og þá breyttu þau bílskúrnum sínum í litla notalega íbúð fyrir okkur Óla. Þetta virtist ekkert mál, var bara gert, en auð- vitað veit ég um allar vinnustund- irnar sem þau lögðu í að gera þetta sem allra notalegast fyrir okkur. Og það tókst svo sannarlega. Þegar við bjuggum þarna vorum við unglingar, með ýmis uppátæki sem þeim aldri fylgir og ég veit að þau hafa oft orðið fyrir ýmiss kon- ar ónæði en aldrei var sett ofan í við okkur, en aftur á móti var okk- ur alltaf hrósað fyrir allt sem hægt var að hrósa fyrir. Amma er líka gædd þeim eiginleikum að skilja unga fólkið sérlega vel og það er nú ekki öllum gefið. Vinir okkar töluðu líka allir um það hvað þau væru einstaklega notaleg og sér- stök. Elsku amma mín, ég vona að guð gefi þér styrk til að halda áfram að vera eins og þú ert. Ég veit að þinn missir er svo mikill og fram- undan er erfiður tími, en ég veit líka að minningarnar um hann afa geta gefið okkur hlýju og birtu í erfiðleikunum og þeim dimma árs- tíma sem framundan er. Elsku afi minn, guð geymi þig. Takk fyrir allt og allt. Katla. Ég var strákhnokki og hljóp upp í faðm þér þegar þú komst heim úr smiðjunni að kvöldi dags. Hend- urnar stórar og sterklegar og skyrt- an þín angaði af olíu og logsuðu- reyk. Ég benti á litlu svörtu bruna- blettina á gleraugunum þínum og þú sagðir að þetta væru freknur alveg eins og framan í mér. Við ókum upp í Kjós þar sem amma fann sitt draumaland. Á leið- inni þóttist þú ætíð gleyma að slökkva á stefnuljósinu. Ég minnti þig á það, fullur af spenningi og Erfidrykkjur Glæsileg kaffi- hlaðborð, fallegir saJir og mjög góð þjónusta. Upplýsingar Í. ^ Í Ó .Ám* Ant FLUGLEIDIR MINNINGAR þú sannfærðir mig um að án mín gætir þú ekki ekið. Amma kom auga á holt, þar sem tvær vatnslitl- ar ár mætast og þú stöðvaðir bílinn og sagðir að hér skyldum við reisa henni höll. Við byggingu sumarbústaðarins var varla sú fjöl söguð eða saumur negldur án þess að þú spyrðir mig hvort ekki væri rétt að farið. Þú tylltir nöglunum í þakið og ég kom á eftir og rak þá í kaf. Þegar kvöld- aði settumst við á mæninn og horfð- um á sólina setjast bak við fjöllin og á ömmu pæla í kartöflubeði. Þér vöknaði um augun og ég hváði áhyggjufullur, en þú brostir bara og tókst þéttingsfast um öxl mér. Þegar ég eltist, fækkaði sam- verustundum okkar. Ég var, eins og ungu fólki er lagið, upptekinn af því að sigra heiminn og þú fylgd- ist með og hvattir mig áfram. Þökk sé þér, afi minn, að enn trúi ég að ég muni bera sigur úr býtum. Nú hefur þú kvatt þennan heim, en í huga mínum geymi ég ljós, er lifir um ókomna tíð. Ketill Berg Magnússon. Það er erfitt fyrir afastelpu eins og mig að kveðja með fáum orðum afa minn sem ég var svo lánsöm að fá að alast upp hjá, í hlýju skjóli hans og ömmu. Saman áttum við fjögur, ég, mamma, afi og amma, ástríkt heimili í 15 ár og þau gáfu mér hamingjuríka æsku sem er og verður mér ómetanleg. Þess vegna er því svo farið að litlu hlutirnir í daglegu lífi okkar saman verða svo stórir og fylla hugann. Lítil stelpa að skríða upp í hlýja afaholu þegar afi var farinn í vinnuna á laugar- dögum. Máltíðirnar í eldhúsinu í Langó. Afi að dansa við Skottu sína sem var svo lítil að hún varð að standa uppi á sófaborði. Og öll jól- in. Þegar allt í einu var ekki bara eitt barn í húsinu heldur tvö, sem voru mjög samhent í samsærinu til að fá að opna pakka áður en klukk- an yrði sex. Nú verða fyrstu jólin í mínu lífi sem ég eyði ekki með honum. En í söknuðinum get ég þó glaðst yfir ógrynni minninga minna og því að þjáningum hans er nú lokið. Orð fá ekki tjáð þakklæti mitt fyrir þá 22 ára samveru sem ég fékk að njóta. Heilræði hans og ást fylgja niér alls staðar og alltaf. Elskuleg- um afa mínum sendi ég alla mína ást og óska honum góðrar ferðar. Þess óskar Skottan hans afa. Ragnheiður Katla. Elskulegur afi okkar er dáinn. Hann er kominn til guðs, í ljósið sem við vildum að birti upp líf hans þí svo erfiðar voru honum síðustu vikurnar. Það er samt svo skrýtið að hugsa um það að við sjáum hann ekki um sinn því hann var höfuð ættarinnar ásamt ömmu og svo margt miðast við þau. Það er okkur huggun að hafa fengið að kveðja hann og hvísla að honum orðum sem skipta máli. Afi hafði óskaplega þægilega nærveru, rólegur og yfirvegaður en harðduglegur var hann og óvæginn við sjálfan sig. Minnisvert er hvað úr augum hans skein mikill kærleikur. Amma og afi voru mjög náin og það er svo gott að hugsa til þess að þau hafi fengið öll þessi ár sam- an og unnast svo heitt. Það var auðvelt að sjá hversu heitar tilfínn- ingar þau báru ætíð hvort til annars. Afi var mjög glettinn og sló allt- af á létta strengi í hvert sinn er við hittum hann. Hann vildi fylgjast með okkur barnabörnunum og spurði jafnan um hagi okkar. Við vildum geta skrifað þær fal- legustu línur um Ketil afa en oft er svo erfitt að leysa orðin úr læð- ingi á sorgarstundu. í bænum okkar biðjum við algóð- an guð að senda yndislegustu ömmu okkar englavakt á hveijum degi svo hún viti að það er haldið verndar- hendi yfir henni. Elsku amma okkar, þú sem ert svo sterk og góð, guð veiti þér allan þann styrk sem þú þarft. Elsku mamma og pabbi, Kolla, Birna, Dísa, Bjössi og fjölskyldur ykkar sem og aðrir nánir aðstand- endur, guð gefi ykkur að finna ætíð ljósið í myrkrinu. Elsku afi okkar, hafðu ástarinnar þökk fyrir allt og allt. Skoðaðu hug þinn vel þegar þú ert glaður og þú munt sjá að aðeins það sem valdið hefur hryggð þinni gerir þig glaðan. Þegar þú ert sorgmæddur, skoðaðu þá aftur huga • þinn og þú munt sjá að þú grætur vegna þess sem var gleði þín. (Kahlil Gibran) Arnar, Ragnheiður Katla og Jón Kristinn Laufdal Ólafsbörn. Fregnin um andlát vinar míns og mágs, Ketils Bjömssonar, kom mér ekki á óvart. Hann var búinn að vera mikið veikur og lá á Land- spítalanum. Hann var umvafinn SJÁ NÆSTU SÍÐU t Móðir okkar og tengdamóðir, GUÐNÝ G. ALBERTSSON, Hringbraut 50, áður Miðtúni 4, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í dag, fimmtudaginn 15. desember, kl. 15.00. Atli Helgason, SifJohnsen, Guðrún G.Bannen, Hörður G. Albertsson, Þórdís Ásgeirsdóttir, Auður Guðmundsdóttir, Guöjón Lárusson, barnabörn og barnabarnabörn. t Ástkær móðir okkar, tengamóðir, sambýliskona, amma og lang- amma, SÓLVEIG SIGURÐARDÓTTIR, Brekastíg 23, Vestmannaeyjum, verður jarðsungin frá Landakirkju föstudaginn 16. desember kl. 14.00. Fyrir hönd vandamanna, Erla Óskarsdóttir, Adolf Ásgrímsson, Sigurbjörg Óskarsdóttir, Sigurður Óskarsson, Þórhildur Óskarsdóttir, Jónas Bergsteinsson, Dagmar Óskarsdóttir, Hafdís Óskarsdóttir, Sigurjón Kristinsson, Ólafur Óskarsson, Inga Jóna Jónsdóttir, Óskar Óskarsson, Bergþóra Jónsdóttir, Þráinn Óskarsson, Guðný Júlfana Garðarsdóttir, Páll Guðmundsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Ástkær faðir minn og afi, GUÐNI JÓNSSON, fyrrv. yfirverkstjóri, Kársnesbraut 66, lést í Landspítalanum þriðjudaginn 13. desember. Guðrún Guðnadóttir, Bergljót Steinsdóttir. t Ástkær systir okkar og frænka, ÞÓREY S. ÞÓRARINSDÓTTIR, Eiríksgötu 9, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 16. desember kl. 15.00. Ásgeir Þ< Kristfn Þ Jóseffna t Elskuleg móðir okkar, MARKÚSÍNA JÓNSDÓTTIR, Egilsstöðum, Ölfusi, verður jarðsungin frá Kotstrandarkirkju, Ölfusi, laugardaginn 17. desember kl. 13.30. Jónína Guðmundsdóttir, Steindór Guðmundsson, Guðrún Guðmundsdóttir, tengdasynir, barnabörn og barnabarnabörn. Yörulistinn er kominn Komdu við á Snorrabrautinni og fáðu eintak eða hringdu og við sendum þér hann heim. Úrvalið er fjölbreyttara en nokkru sinni fyrr. Gæði og gott verð í fyrirrúmi. SKfiKAK FWMHK Snorrabraut 60 • Sími 56 1 2045

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.