Morgunblaðið - 15.12.1994, Page 52
52 FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
MIIMIMINGAR
KETILL BERG BJÖRNSSON
kærleika eiginkonu, barna og
tengdabarna, sem vöktu yfir honum
dag og nótt. Ekki má gleyma frá-
bæru hjúkrunarfólki, sem fjölskyld-
an þakkar með hlýju.
En þegar kveðjustundin er kom-
in, rifjast upp ótal minningar. Minn-
ingar frá unglingsárum mínum,
þegar ég fyrst, 11 ára gömul, fór
á vorin strax og skólinn var búinn,
norður á Hólmavík til Löllu og Ket-
ils, sem þá voru nýgift.
Ég hafði eignast nýjan stóra
bróður og vin, sem alltaf var til
staðar, þegar ég þurfti á að halda.
Ég man, ef það kom fyrir á kvöld-
in að ég grét og saknaði hennar
mömmu minnar, sem var mér allt,
því pabbi var dáinn, þá heyrði ég
Ketil segja við Löllu systur: Tökum
hana upp í til okkar, svo henni líði
vel. Og það varð úr, ég fór uppí til
þeirra og þau sögðu mér sögur.
Við hlógum og grétum saman,
þangað til ég sofnaði umvafín ástúð
frá þeim báðum.
Svona leið tíminn og hjá þeim
kynntist ég því fallegasta hjóna-
bandi, sem nokkum getur dreymt
um.
Þegar ég þroskaðist og skildi
meira um lífið, fann ég og allir sem
umgengust þau hjónin, hve fallegt
og ástríkt líf þeirra var. Rómantík-
in réð ríkjum og allt var yndislegt
í kringum þau.
Vinkonur mínar áttu þá ósk heit-
asta, að ef þær giftust, yrði allt
eins og hjá Löllu og Katli.
Seinna þegar þau fluttu til
Reykjavíkur og Ketill fór að læra,
bjuggu þau hjá okkur á Lindargöt-
unni.
Ég átti þijá bræður, sem allir
bjuggu heima og voru við nám, svo
það var ekki mikið rými fyrir ungu
hjónin, sem þá höfðu eignast sitt
fyrsta barn. En allt gekk eins og
best var hægt að hugsa sér og
Ketill var hugljúfi okkar allra. í litla
húsinu á Lindargötunni ríkti mikil
gleði þegar allir voru saman komn-
ir og litla stúlkan þeirra, var auga-
steinninn okkar.
Árin liðu, þau byggðu sér hús,
ég giftist og eignaðist heimili stutt
frá stóru systur og mági mínum.
Samgangur okkar var mikill og
barnahópurinn stór á báðum heimil-
unum. Börnin mín tala svo oft um
hvað það var gott að koma í Langa-
gerðið, sem var þeirra annað heim-
ili og okkur alltaf fagnað. Minning-
arnar þaðan eru óteljandi og litla
fólkinu fannst alltaf vera jól í
Langagerði hjá Löllu og Katli, sem
gáfu sér tíma til að tala við þau
og vera þeim vinir. Sú vinátta hefir
haldist alla tíð.
Þegar ég fór í bíltúr með barna-
börnin mín í heimsókn til þeirra í
sumarbústaðinn, leið ekki löng
stund þar til þau voru öll komin í
fangið á Katli, hann lék við þau og
tók þeim eins og besti afi.
í hugum okkar var aldrei talað
um bara Löllu eða bara Ketil, það
var alltaf Lalla og Ketill, svo sam-
rýnd voru þau.
Elsku Lalla systir og fjölskylda,
minningin um mætan vin mun lifa
meðal okkar, guð styrki ykkur og
varðveiti.
Þegar þú ert sorgmæddur skoðaðu þá aftur
huga þinn og þú munt sjá að þú 'grætur
vegna þess sem var gleði þín.
(K. Gibran)
Elín Guðjónsdóttir.
ATVIN N U A UGL YSINGA R
„Au pair“ óskast
Óska eftir stúlku, ekkí yngri en 18 ára, til
að gæta 1 árs gamals drengs og vinna létt
heimilisverk á reyklaust heimili í Svíþjóð.
Meðmæli óskast.
Allar upplýsingar í síma 98-12057.
Forritari
Óska eftir að ráða forritara sem fyrst, helst
vanan gagnagrunnsforritun.
Tilboð sendist afgreiðslu Morgunblaðsins,
merkt: „Forritari - 16101.“
FJÓROUNGSSJÚKRAHÚSIÐ
A AKUREYRI
Læknaritari
Laus er til umsóknar staða læknaritara á
■ læknaritaramiðstöð FSA. Um er að ræða
100% starf frá 1. janúar 1995 til eins árs.
Umsóknir, með upplýsingum um menntun
og fyrri störf, sendist Þorbjörgu Ingvadóttur,
læknafulltrúa, fyrir 22. desember nk. og
veitir hún jafnframt nánari upplýsingar
í síma 96-30133.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri.
Laus staða
Samkeppnisstofnun óskar eftir að ráða starfs-
mann til að annast útgáfumál og almanna-
tengsl. Reynsla við fjölmiðlun æskileg.
Umsóknir sendist Samkeppnisstofnun, Lauga-
vegi 118, pósthólf 5120, 125 Reykjavík, fyrir
1. janúar 1995.
Samkeppnisstofnun.
Hjúkrunarfræðingar
- sjúkraliðar
Óskum eftir að ráða hjúkrunarfræðing og
sjúkraliða til starfa við hjúkrunar- og dvalar-
heimilið að Kumbaravogi, Stokkseyri.
Góð vinnuaðstaða.
40 mín. akstur frá höfuðborgarsvæðinu.
íbúð á staðnum á vægum kjörum.
Frekari upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri
í símum 98-31310 og 98-31003.
SVÆÐISSKRIFSTOFA
MÁLEFNA FATLAÐRA,
REYKJAVÍK
Laus staða
Forstöðumaður óskast á nýjan vinnu- og
dagvistarstað fyrir fatlaða í Reykjavík, sem
taka mun til starfa síðla vetrar.
Menntun og reynsla í störfum með fatlaða
er skilyrði. Væntanlegum forstöðumanni er
ætlað að taka þátt í mótun og uppbyggingu
á starfseminni og fer ráðning eftir nánara
samkomulagi.
Staðurinn verður rekinn í samvinnu Málefna
einhverfra, Styrktarfélags vangefinna og
Svæðisskrifstofu Reykjavíkur.
Umsóknarfrestur er til 9. janúar nk.
Upplýsingar gefur framkvæmdastjóri Svæð-
isskrifstofu í síma 621388.
Umsóknir berist til Svæðisskrifstofu málefna
fatlaðra, Nóatúni 17, 105 Reykjavík, á eyðu-
blöðum sem þar fást.
RAFMAGNSEFTIRLIT RÍKISINS
Verkfræðingar
- tæknif ræðingar
Rafmagnseftirlit ríkisins óskar eftir verkfræð-
ingi eða tæknifræðingi, með menntun og
reynslu á raforkusviði, til starfa hjá stofnun-
inni. Kjör samkvæmt gildandi kjarasamning-
um við fjármálaráðuneytið.
Umsækjendur skulu hafa góða þekkingu í
íslensku, ensku og a.m.k. einu Norðurlanda-
málanna. Þeir skulu vera liprir í umgengni
og vera vanir tölvuvinnu.
Umsóknarfrestur er til nk. áramóta og ber
að skila umsóknum til Rafmagnseftirlits ríkis-
ins, Síðumúla 13, 108 Reykjavík.
Staðari er nú þegar laus.
Rafmagnseftirlit ríkisins.
HAWÞAUGL YSINGAR
Hver vill gefa af
sjálfum sér?
Einstæð móðir óskar eftir stuðningsfjöl-
skyldu fyrir átta ára barn. Barnið er vel af
guði gert á allan hátt, en ekki er hjartarúm
hjá ættingjum þess.
Helstu upplýsingar sendist afgreiðslu Mbl.
fyrir 22. des., merktar: „Umhyggja - 5347“.
Matsveinafélag íslands
Aðalfundur
Aðalfundur Matsveinafélags íslands verður
haldinn í Goðheimum, Sigtúni 3, fimmtudag-
inn 22. desember 1994 kl. 16.00.
Dagskrá:
Aðalfundarstörf.
Önnur mál.
Stjórnin.
Til leigu
Verslunarhúsnæði við Bankastræti í Reykja-
vík, 43,2 fm að stærð, er til leigu.
Nánari upplýsingar eru veittar í síma 688640.
ouglýsingar
St. St. 5994121519 VII
I.O.O.F. 11 = 17612158’/2 = J.V.
I.O.O.F. 5 = 1761215872 = Jv.
Hvítasunnukirkjan
Völvufelli
Almenn samkoma kl. 20.30.
Allir hjartanlega velkomnir.
VEGURINN
rr " n
Krístið samfélag
Smiðjuvegi 5, Kópavogi
Almenn samkoma kl. 20.00 í
kvöld. Beðið fyrir sjúkum.
Allir hjartanlega velkomnir.
Orð lífsins,
Grensásvegi 8
Almenn samkoma kl. 20.30.
Allir velkomnir!
Hjálpræóis-
herinn
Kirkjustræti 2
Ljósvaka
í umsjón unga fólksins kl. 20.30.
Erlingur Níelsson talar.
Happdrætti og veitingar.
Allir velkomnir.
Góðtemplarahúsið,
Hafnarfirði
Félagsvist í kvöld, fimmtudaginn
15. desember. Byrjum að spila
kl. 20.30 stundvíslega.
Allir velkomnir.
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 SÍMI 682533
Tunglvaka Ferðafélagsins
og Allsnægtaklúbbsins
laugardagskvöldið 17. des.
Fyrst verður opið hús í Feröa-
félagshúsinu, Mörkinni 6 (mið-
byggingu), kl. 18.30-19.30 með
léttum kaffiveitingum o.fl. Kl. 20
veröur brottför úr bænum.
Gengið á vit ævintýranna á dul-
magnaðan stað þar sem ýmsar
vættir eru á sveimi. Heimkoma
fyrir miðnætti. Óvæntar uppá-
komur. Mætið hlýlega klædd.
Skráið ykkur á skrifstofunni fyrir
hádegi föstudaginn 16. desem-
ber. Þetta er ef til vill upphafiö
af árvissum viðburði; verið þv(
með frá byrjun. Verð 1.000 kr.
(Innifaliö: Veitingar, fargjald, blys
o.fl.).
Minnum einnig á Esju um vetr-
arsólstöður kl. 10.30 á sunnu-
daginn og áramótaferðina í
Þórsmörk 30/12-2/1.
Eignist árbókina góðu, Ystu
strandir norðan Djúps, en hún
hefur, sem kunnugt er, verið
tilnefnd til íslensku bókmennta-
verðlaunanna. Gerist félagar í
Ferðafélaginu og fáið bókina
innbundna fyrir kr. 3.600, en
óinnbundna bók fyrir 3.100 kr.
Ferðafélag Islands.