Morgunblaðið - 15.12.1994, Blaðsíða 56
56 FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
Grettir
Tommi og Jenni
Ferdinand
Smáfólk
'i'es, ma'am..my U)ET MAlR
15 DRIPPINé ON TUEDE5K,
ANP THE WATER 5EEM5TO BE
RUNNIN6 POWN THE Al5LE.„
N0,MA'AM,IT'5THE KID5 BEHINP
ME WHO ARE MAKIN6 THE
LITTLE PAPER 5AIL80ATS..
■
Já, kennari, ég gekk
skólann í rigningunni...
Já, kennari... það lekur úr hárinu
á mér ofan á borðið, og vatnið
virðist vera að renna eftir gang-
inum...
Nei, kennari, það eru krakkarnir
fyrir aftan mig sem eru að búa
til þessa litlu seglbáta...
BREF
HL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 691100 • Símbréf 691329
FRÁ umræddum maraþondansi.
Maraþondans í Kolaportinu
inni Guömundssyni: þykir allt sem tengist ást og kynlífi
nýtt og forvitnilegt og eru því mjöd
EM var Morgunblaðmu ^t^ilegir til að meðtaka fræðslu
kti athygh mína og vakti um alnæm\ j
ngar frá þeim tjma, Þegar Fræðslan er auðvitað mjög nauðl
ghngur og sendisyemn bjá gvnle(r á bessum tímum,
semvið lif-
UMRÆTT bréf.
Lombin svara
Frá unglingum í
Félagsmiðstöðinni Árseli:
EFTIR að hafa lesið grein í Morg-
unblaðinu eftir Jóhann Guðmundsson
9. desember sl. um alnæmisdans í
Kolaportinu aðfaranótt 1. desember
getum við ekki látið hjá líða að svara.
Þegar svona neikvæð grein birtist
um jafn jákvæðan málstað er ekki
hægt að sitja aðgerðalaus.
I greininni spyr Jóhann: „Hvað
finnst uppeldisráðgjöfum, sálfræð-
ingum, félagsráðgjöfum, skólastjór-
um og kennurum?" Af hveiju spurði
hann ekki um skoðanir okkar ung-
linganna? Hann líkir okkur við vilja-
laus lömb sem eru leidd til slátrun-
ar. Við gerðum þetta sjálfviljug og
með samþykki foreldra okkar. Þó að
við séum móttækileg fyrir ýmsu sem
okkur er sagt, erum við einstaklingar
með sjálfstæðar hugsanir og skoðan-
ir, við vitum muninn á réttu og röngu.
Það er greinilegt að Jóhann hefur
ekki kynnt sér átakið nógu vel. Átak-
ið var allt mjög vel skipulagt. Al-
næmisfræðsla hófst fyrir þá sem
vildu strax í október og var mikil
og fjölbreytt. Þegar okkur var svo
boðið að taka þátt í maraþondansin-
um komust færri að en vildu. Allir
sem tóku þátt vissu alveg út í hvað
þeir voru að fara. Við vissum hvem-
ig skipulag dansins var, að það yrðu
pijónaðir smokkar og að húsinu yrði
lokað. Það var gert svo að starfs-
menn félagsmiðstöðvanna gætu
fylgst með okkur, því að við vorum
á þeirra ábyrgð.
Kunningi Jóhanns furðaði sig' á
því að meðlimir Alnæmissamtakanna
dönsuðu ekki sjálfir þessa nótt. Þetta
finnst okkur fáranlegur hugsunar-
háttur, því þjóðin er vön að styrkja
ýmis málefni án þess að krefjast
neins af þiggjendum.
Ekki er hægt að neita því að ungl-
ingar á aldrinum 13-15 ára eru sum-
ir farnir að stunda kynlíf og er ekki
betra fyrir þá að vita um hætturnar
sem tengjast því, heldur en að prófa
sig áfram í algjörri blindni?
í grein sinni hneykslast Jóhann á
því að birst hafi myndir af stækk-
uðum kynfærum og nöktu fólki í
faðmlögum, þegar sýnt var frá al-
næmisdansinum í sjónvarpinu. Okk-
ur fannst ekkert athugavert við þess-
ar myndir, við höfum séð þær gróf-
ari, nánar tiltekið í kynfræðslu í skól-
anum. Þetta er ekkert feimnismál.
Voru aðstæður fullnægjandi?
Að okkar mati var aðstaðan í alla
staði mjög góð. Á staðnum var lækn-
ir og hjúkrunarfræðingur og öll að-
staða bæði varðandi hreinlæti og
loftræstingu var til fyrirmyndar. Við
erum stoltar af okkur og öllum þeim
sem tóku þátt í þessu átaki. Við vilj-
um koma á framfæri þakklæti til
þeirra starfsmanna sem voru á staðn-
um og þá sérstaklega starfsmanna
Ársels.
Að lokum viljum við enda grein
okkar eins og Jóhann á því að vitna
í Biblíuna: „Elskið óvini yðar og biðj-
ið fyrir þeim sem ofsækja yður.“
Matt. 5,44. Jóhann, við biðjum fyrir
þér.
ÁRNÝ, BERGLIND, KRISTÍN,
MAGNEA, MARGRÉT, SANDRA,
SIGURHANNA,
SÓLVEIG OG ÞORBJÖRG.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt (
upplýsingasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu það-
an, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu
efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.