Morgunblaðið - 06.01.1995, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 6. JANÚAR 1995 B 23
PERLAN
Smiðjan
Perlan er merkilegt hús
og fallegt á að horfa,
segir Bjarni Olafsson.
Hún dregur líka að sér
athygli fólks.
ÞEGAR HORFT er til Reykjavíkur
úr fjarlægð ber Perluna hærra en
byggðina við sjóndeildarhring þar
sem hún stendur á Öskjuhlíðinni.
Perlan er merkilegt hús og fallegt
á að horfa, enda dregur það að sér
athygli fólks. Gestum Perlunnar
fjölgar stöðugt, bæði innlendum og
erlendum.
Það er líka mjög „fínt“ að geta
sagt frá því að maður hafí
borðað á efstu hæð í Perlunni, þar
sem gólfið snýst í heilan hring á
105 mínútum, eða einni klst. og
fjörutíu og fimm mínútum. Á næstu
hæð fyrir neðan er ódýrt að borða
og fegurðin blasir við augum allan
hringinn, bæði innanhúss og í gegn-
um gluggana. Fyrir utan fjórðu
hæðina eru líka breiðar svalir hring-
inn í kring um hvolfþakið.
Þar rekur maður sig á einn hönn-
unargalla. Þegar setið er við borð
á fjórðu hæð skyggir útihandrið
svalanna töluvert mikið á útsýnið.
Efri brún handriðsins er þá í augn-
hæð þeirra sem sitja við borð inni.
Þetta hefði mátt varast með því að
hafa gólfið inni svo sem einu þrepi
ofar.
Svo haganlega er glerið gert að
þeir sem ganga úti á svölunum sjá
ekki gestina sem sitja við borð fyr-
ir innan gluggana.
Forsalur
Gengið er inn í Perluna í gegnum
súlnagöng og þegar gesturinn nálg-
ast dyrnar fara snúningshurðir að
hreyfast svo að hann gengur milli
þessara snúningshurða. Ef gest ber
að sem á erfitt um gang, er hnapp-
ur við dyrnar sem veldur því að
hurðirnar snúast hægar ef ýtt er á
hnappinn.
Fyrir innan dyrnar blasir við
augum stór salur. í salnum miðjum
er góður stigi sem ganga má til
þess að komast upp á efri hæðir
hússins. Einnig eru tvær lyftur
gegnt stiganum, fyrir þá sem eiga
erfitt með að ganga stigann. í hálf-
hring umhverfis stigann er gólf
fyrstu hæðar opið. Þar sér niður á
kjallaragólfíð og eitt af undrum
þessa húss sem er gosbrunnur.
Gosbrunnurinn sendir kröftuga
vatnssúlu lóðrétt upp í 15 metra
hæð frá kjallaragólfinu. Það er hið
mesta augnayndi að horfa á þessi
gos, sem minna á gos hinna heitu
hvera landsins. I kjallaranum eru
fatageymslur, salerni og snyrtiað-
staða auk funda- og sýningaað-
stöðu.
Forráðamenn Perlunnar nefna
salinn á fyrstu hæðinni Vetrargarð-
inn. Gólfflötur Vetrargarðsins er
1.000 fermetrar og lofthæðin þar
10 metrar.
Sýningar og tónleikar
Á fyrstu hæðinni, (í Vetrargarð-
inum) er oft komið fyrir sýningum
á ljósmyndum, málverkum, hús-
gögnum og fleiru. Hafa margar
sýningarnar staðið frá föstudegi til
sunnudags.
Veggir þess salar eru eðlilega
bogadregnir innávið, þar eða það
eru sex gríðarstórir vatnstankar
sem mynda salinn.
í bilum á milli tankanna eru háir
gluggar, sem njóta sín best þegar
maður gengur upp eða niður stig-
ana og nýtur þá mismunandi útsýn-
is út um þessa stóru glugga.
í þessum sal hefur verið komið
fyrir trjám og stórvöxnum grænum
plöntum. Trén dafna illa vegna of
lítillar vökvunar, að mér sýnist.
AÐKOMA að Perlunni í desemberveðri.
HINIR háu gluggar Vetrar-
garðsins auka fegurð og fjöl-
breytni.
ÞEGAR setið er inni skyggir útihandrið svalanna á útsýni. Burðar-
virkið glæðir húsið lífi.
SULNAGÖNGIN framan við
innganginn vekja eftirvænt-
ingu gesta.
Vökvun þeirra gerist með vélvirkum
og sjálfvirkum úðunardælum frá
loftinu. Ég sé ekki betur en að trén
fái alltof litla vökvun, einkum í
moldina og á ræturnar. Margir
gestir Perlunnar munu taka undir
þetta með mér.
Ljósmyndasýning var í þessum
sal í haust. Voru sýndar þar stækk-
aðar andlitsmyndir af íslensku fólki
frá fyrri árum og allt fram til okk-
ar daga. Andlitsmyndir þessar voru
af fólki á mismunandi aldri, börn,
unglingar, ungt fólk, á miðjum aldri
og öldungar. Áhugaverð sýning og
einmitt fyrir það að sjá mátti að
þetta voru íslendingar og eiginlega
voru öll andlitin alvörugefm og fátt
um bros.
Tónleikar eru oft haldnir í þess-
um sal, einkum um helgar. Ég vil
í því sambandi sérstaklega geta um
kóramót sem efnt hefur verið til
þarna. Kirkjukórum hefur t.d. verið
gefinn kostur á að syngja í Vetrar-
garði Perlunnar. Ég tel það lofsvert
framlag af hálfu stjórnenda húss-
ins. Þetta hefur tekist vel og mælst
vel fyrir.
Þá vil ég geta barnakóra sem
boðið hefur verið að syngja í Perl-
unni og mætti svo lengi telja.
Fjórða hæð
Gólf fjórðu hæðarinnar og útsýn-
issvalirnar þar uppi hvíla ofan á
vatnstönkunum sex sem Perluþakið
er byggt yfir. Veitingastaðurinn á
fjórðu hæð Perlunnar er óvenjulega
aðlaðandi. Birta og útsýni er alveg
einstakt þar uppi. Þegar þungbúið
er úti getur verið mikið augnayndi
að virða fyrir sér skýjamyndir á
himninum. Veðrið útifyrir getur
verið þannig að mann fysi ekki að
fara út á svalirnar, en þá gefa snjó-
og klakamyndir breytileg listaverk
á hinum hallandi rúðum hvolfþaks-
ins.
Veitingar sem boðnar eru á
Qórðu hæð eru fjölbreytilegar og
þó í neðri kanti hvað verð snertir,
miðað við sambærilega veitinga-
staði.
Hönnun
Ég hefi leitast við að lýsa hér
nokkrum atriðum sem hafa höfðað
til mín sem gests í Perlunni. Eins
og fram hefur komið í þessum línum
er Perlan veitingastaður, hljóm-
leika- og sýningastaður sem byggð-
ur er ofan á stóra vatnstanka, sex
að tölu.
Ég var ekki mjög hrifínn af þess-
ari byggingu fyrst er ég kom þar
inn, skömmu eftir að húsið var opn-
að fyrir gestum. Því oftar sem ég
kem þar fellur mér betur við húsið
og þykir hönnun þess hafa tekist
vel. Húsið var hannað af Ingimundi
Sveinssyni.
Tankarnir sex gátu verkað þung-.
ir og lokandi. Ekki var mögulegt
að koma fyrir útsýni eða birtugjafa
í gegnum tankana.
Þegar við nálgumst húsið gefur
það tilfinningu fyrir fallegri og heil-
stæðri byggingu. Súlnagöngin
framan við innganginn vekja eftir-
væntingu gesta sem eru á leið inn
og eins og ég hefi tekið fram hér
á undan hefur tekist vel til með
hina háu glugga, sem ná frá gólfi
fyrstu hæðar og alla leið uppundir
svalirnar, eða jafn hátt tönkunum.
Á leið upp stigana sjá gestirnir
nýjar myndir í gegnum þessa
glugga, eftir því hvert glugginn
snýr.
Uppi á veitingastöðunum er víð-
sýnt og birta góð.
Sperrur, bitar og sprossar gæða
húsið lífi og eru um leið styrkur
hússins og hitagjafi, af því að vatn
er leitt eftir þessum köntuðu stál-
rörum.
F a ste ig n a s a la n
KJÖRBÝLI
NÝBÝLAVEGUR 14
- 200 KÓPAVOGUR blMI 641400
IFAX 43307
Símatími laugard. kl. 11-13.
4ra herb. og stærra
2ja herb.
Lækjarfit - Gbæ. - 2ja.
Glæsil. nýuppg. 75 fm íb. é götu-
hseö meö sérinng. Áhv. 3,7 millj.
V. 5,3-6,5 m.
Kjarrhólmi - Kóp. - 4ra.
Sérl. falleg 90 fm ib. á 2. hæð.
Parket. Glæsil. útsýnl. Þvottah. í
íb. Ahv. 3,6 m. V. 7,3 m.
Álfhólsvegur 4a - sérhæð. Séri.
falleg 120 fm íb. á tveimur hæðum ásamt
bílsk. Suðurgarður. V. 9,8 m.
Digranesvegur - Kóp. - sérh.
Sérl. falleg 140 fm íb. á 1. hæð í þríb.
ásamt 27 fm bílsk. V. 10,7 m.
Vallargerði - sérhæð. Falleg 106
fm efri hæð ásamt bílsk. V. 9,9 m.
Reynihvammur - Kóp. 167 fm
neðri hæð ásamt 32 fm bílsk. V. 9,9 m.
Raðhús - parhús
Hlfðarhvammur - Kóp. -
einb. - laust. Skemmtil. 130
fm eldra hús á tveimur hæðum
ásamt bílsk. Stór suðurgarður m.
gróðurh. Miklir mögul. V. 9,8 m.
Skólagerði - Kóp.
Fannborg - 2ja - laus. Séri. faiieg
49 fm íb. á 3. hæð. Vesturútsýni. Stutt (
alla þjón. Sameign nýstandsett. V. 5,1 m.
Hamraborg 22 - 2ja. Mjög falleg
46 fm íb. á 1. hæð. Ákv. sala. V. 4,7 m.
Furugrund - 2ja. Glæsil. 58 fm ib.
á 3. hæð (efstu) í litlu fjölb. Áhv. 3,5
millj. Bsj. V. 5,7 m.
Hamraborg - 2ja. Sérl. faiieg 53 fm
íb. á 3. hæð. Parket. V. 5,1 m.
Hamraborg 32 - 2ja - laus. 52
fm íb. á 2. hæð. V. 4,9 m.
3ja herb.
Englhjalli - Kóp. - 3ja.
Glæsil. 79 fm ib. á 5. hæð. Suðvest-
ursv. Útsýnl. Parket, flísar. V. 6,3 m.
Engihjalli 7 - lítið fjölb. Sérl. falleg
4ra-5 herb. ib. á 2. hæð (efstu). Ákv.
sala. V. 7,6 m.
Lundarbrekka - 5 herb. Faileg 110
fm íb. á 3. hæð, þar af eitt forstofuherb.
Þvottah. á hæð. Inng. af svölum. V. 7,9 m.
Kóngsbakki 7 - 4ra. Falieg 90 fm
ib. á 3. hæð. Áhv. 4,2 m. V. 6,8 m.
Furugrund 68 - 4ra + bílskýli -
laus. Sérl. falleg 85 fm íb. á 4. hæð í
lyftuh. Áhv. 3,1 m. V. 7,5 m.
Brekkuhjalli - Kóp. - sérh. Góð
118 fm íb. í eldra húsi. Stór lóð. V. 6,6 m.
Digranesvegur 4ra + bílskúr.
Glæsil. 97 fm íb. á efstu hæð í fjórb.
ásamt 28 fm bílskúr. Parket. Fráb. út-
sýni. Ákv. sala.
Álfatún - 4ra + bílsk. Glæsil. 100
fm íb. á 2. hæð ásamt bílskúr. V. 10,7 m.
Sérl. skemmtil 143 fm parh. ásamt 43
fm bílsk. Ákv. sala. V. 10,8 m.
Arnartangi 41 - Mosbæ. Fallegt
94 fm endaraðh. ásamt 30 fm bílsk.
Áhv. 4,8 m. V. aðeins 8.950 þ. Laust.
Álfhólsvegur - Kóp. - raðh.
Fallegt 120 fm raðh. á 2. hæð
ásamt 32 fm bílsk. V. 10,6 m.
Laufbrekka - raðh.
Efstihjalli — 3ja. Sérlega falleg 80 fm
(b. á 1. hæð. Parket. Flísar. V. 6,9 m.
Hamraborg 32 - 3ja. Falleg 70 fm
íb. á 3. hæð í lyftuh. V. aðeins 5,9 m.
Ástún - Kóp. - 3ja. Sérl. falleg 80
fm íþ. á 4. hæð. Áhv. 2,6 m. V. 6,9 m.
Ásbraut - Kóp. - 3ja. Sérl. falleg
82 fm ib. á 3. hæð. Áhv. 4,2. V. 6,6 m.
Lyngbrekka - sérhæð. Fai-
leg 111 fm 4ra herb. sérhæð á
jaröhæð i þríb. Eign i góðu standi.
V. 7,8 m.
Fagrabrekka 31 - einb. Séri. fai-
legt 185 fm einb. á tveimur hæðum með
innb. bilsk. Fráb. útsýni. Mögul. að taka
góða eign uppí. V. 13,3 m.
Melgerði - Kóp. - einb.
Skemmtil. tvíl. 160 fm hús ásamt 41 fm
bílsk. Suðurgarður m. gróðurhúsi. V.
13,5 m.
Hvannhólmi - einb. Fallegttvíi. 227
fm hús ásamt 35 fm bílsk. Skipti mögu-
leg. Ákv. sala. V, 15,8 m.
Borgarholtsbraut - Kóp. Mjög
gott 230 fm einb. ásamt 60 fm bílsk.
(mögul. á tveimur íb.). Endurn. að utan
og innan. V. 16,8 m.
I smíðum
Vesturás 10 og 16. Giæsil. 137 fm
endaraðh. ásamt 28 fm bílsk. Húsin selj.
fullb. að utan og máluð, fokh. að innan.
V. 9,2 m.
Sjávargrund - Alviðra. 153 fm íb.
ásamt 21 fm bílsk. V. 10,5 m.
Lindarsmári 41-47. Giæsil. 107 fm
íb. á neðri hæð og 152 fm íb. á tveimur
hæðum í tvíbýlisenda meö sérinng. V.
8,1 m. og 8,9 m.
Sérhæðir
Glæsil. 192 fm raðh. á tveimur hæðum.
Skálagt parket. Fallegar innr. Áhv. 5,7
m. V. 12 m.
Eyrarholt 14 - Hfj. i60fm fb.
á tveimur hæðum í littu fjölb. Afh.
tilb. u. trév. og fullfrág. að utan.
Frábært útsýni. Góð greiðslukj.
Seljandi ESSO Oliufélagið hf. V.
8,9 m.
Nýbýlavegur - Kóp. Faileg
12Ó fm neðri hæð ásamt 33 fm
bilsk. 4 svefnherb. Áhv. 3,9 m. V.
9,2 m.
Einbýli
Hjallabrekka - Kóp. Fallegt
210 fm einb. ásamt 31 fm bilsk.
Glæsil. útsýni. Ákv. sala. V. I3,9m.
Fagrihjalli 54 - parh. Góð greiðslukj.
Lindarsmári - fjölb. 2ja, 3ja og 4ra
herb. íb. tilb. til innr. V. 5,2-7,9 m.
Gullsmári - ib. fyrir aldraða. 2ja
og 3ja herb. íb. í lyftuhúsi. V. frá 6,1 m.
Kristjana Jónsdóttir, sölustjóri.
Rafn H. Skúlason, lögfr., lögg. fast.sali.
Guðlaug Þorsteinsdóttir, ritarl.