Morgunblaðið - 24.03.1995, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 24. MARZ1995 B 29
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
AÐALEIGENDUR byggingafyrirtæksisins Eyktar hf., þeir Theódór I. Sólonsson og Pétur Guömundsson, sem
bóóir eru byggingameistarar, standa hér vió grunn byggingarinnor, sem ó aö rísa við Grjóthóls 5. Þegar
er búió aö steypa sökklana og ætlunin aó halda ófram framkvæmdum af krafti í sumar.
Á MEÐAL nýrra stórbygginga, sem Eykt hefur byggt, mó nefna húsiö viö Ármúla 15, sem stendur ó
horni Vegmúla og Ármúla, en það var byggt fyrir Holtabúið hf. Áformoð er að Ijúka við að innrétta húsið
í maí, en það er ó fimm hæðum og um 2.500 ferm. alls.
STARFSMENN Eyktar eru nú að leggja síðustu hönd ó frógang ó 300 ferm. samkomusal í húsakynnum
Ferðofélags íslonds í Mörkinni 6, en Eykt byggði þetta hús, sem er um 2.000 ferm. Þessi salur verður
vígður í byrjun apríl og hann ó m. a. eftir að stórbæta aóstöðu Ferðafélagsins ffyrir myndakvöldin, sem
eru þýðingarmikill þóttur í starfsemi þess.
bakhús. Framhúsið verður þijár
aðalhæðir og hver þeirra um 1.000
ferm., en til viðbótar kemur 200
ferm. þakhýsi. Bakhúsið verður á
tveimur hæðum og gólfflötur þar
rúml. 1.300 ferm. Þegar er búið
að steypa sökklana og ætlunin er
að halda áfram framkvæmdum við
bygginguna af krafti í sumar.
Hönnuðir eru byggingafræðing-
arnir Ásgeir Asgeirsson og
Tryggvi Jakobsson. Hús þetta
byggir Eykt fyrir eigin reikning
til sölu á almennum markaði.
Eykt hf. var stofnuð 1986.
Aðaleigendur fyfirtækisins frá
upphafi eru byggingameistararnir
Pétur Guðmundsson og Theódór
l. Sólonsson. Verkefni fyrirtækis-
ins hafa einkum verið á sviði ný-
bygginga en einnig í viðhaldi og
endurbótum innanhús og þá aðal-
lega fyrir það opinbera. Hjá fyrir-
tækinu starfa nú átján manns, en
auk þess hefur það marga undir-
verktaka á sínum snærum. einkum
á sviði raflagna, múrverks og pípu-
lagna. Eykt hf. hefur nú aðsetur
að Ármúla 21 í Reykjavík.
Borgin að færast
í austur
Miðað við allt það framboð, sem
verið hefur á atvinnuhúsnæði á
undanförnum árum, kann það
vissulega að þykja nokkur dirfska
að byggja svo stórt atvinnuhús-
næði fyrir almennan markað og
þeir félagar hafa byijað smíði á
við Gijótháls. Sú spurning kemur
því strax upp. hvort markaður sé
fyrir þetta húsnæði?
— Við erum bjartsýnir á það,
segir Pétur Guðmundsson. — Við
teljum, að þetta hverfi eigi sér
mikla framtíð og að það henti vel
vaxandi kröfum markaðarins um
betra aðgengi. Verzlun og at-
vinnuhúsnæði eiga eftir að þróast
saman og færast austar í borginni
en nú er. Með Höfðabakkabrúnni
stórbatna samgöngur á þessu
svæði og öll umferð út úr borginni
á eftir að fara framhjá þessum
stað. Hann verður því mjög heppi-
legur fyrir fyrirtæki með margs
konar rekstur. Húsið er hannað
þannig, að mjög auðvelt verður
að stúka það niður í smærri eining-
ar eða þá að selja það í stærri
einingum.
Þetta verður mjög reisuleg
bygging og svipmikil, en framhlið-
in snýr til norðurs að Vesturlands-
vegi. Inngangurinn í framhúsið
verður mjög áberandi. Gluggar eru
hafðir þannig, að birtan sé sem
bezt og þar sem gluggarnir í skrif-
stofurýminu að norðanverðu snúa
undan sólu, ætti sólarljósið ekki
að angra þá, sem þar eiga eftir
að starfa. Mikið útsýni verður frá
húsinu yfir Grafarvoginn og til
Esju, því að ekkert verður byggt
framan við það.
Þetta verður jafnframt mjög
vandað hús að allri gerð og m. a.
einangrað og klætt að utan og
ætti því að þurfa á mjög litlu við-
haldi að halda í framtíðinni.
Klæðningin utan á húsinu verður
varanleg og mjög höggþolin á
neðri hluta hússins að framan-
verðu, þannig að hún láti ekki á
sjá, ef hún yrði fyrir hnjaski.
Verzlunarhæðimar verða á 1.
og 2. hæð og samtengdar við bak-
húsið, þannig að þar verður mjög
góða aðstaða fyrir lager. Lofthæð-
in á fyrstu hæðinni verður 4,20
m. og gegnumkeyrsla í gegnum
húsið. — Þá geta flutningabílar
ekið þar inn og losað vörur sínar,
segir Pétur. — Flutningabílarnir
eru alltaf að verða hærri og hærri
til þess að geta flutt meira og
meira. Af þeim sokum teljum við,
að mörg atvinnuhús henti ekki
lengur fyrir flutningabíla vegna
lélegrar aðkomu, enda þótt þau
kunni að hafa gert það áður og
það rýrir að sjálfsögðu gildi þeirra.
Sveigjanlegt húsnæði
Pétur kveðst álíta, að oft hafi
húsin ekki verið höfð nógu
sveigjanleg, svo að unnt sé að
aðlaga þau að mismunandi starf-
semi. Mjög lítið hafi verið byggt
af góðu atvinnuhúsnæði sl. 3-4
ár og gott atvinnuhúsnæði með
góðri aðkomu og góðu athafna-
svæði fyrir utan, er nú vandfund-
ið. — Það er mikið af atvinnuhús-
næði til sölu nú, sem er á annarri
eða þriðju hæð á stöðum, þar sem
aðkoman er mjög þröng, segir
hann. — Víða er skortur á bíla-
stæðum og erfitt um vik með að
komast að húsunum.
Húsið við Gijótháls verður að
mestu súlulaust. — Við smíði á
atvinnuhúsnæði verður að hafa í
huga að hafa eins lítið af súlum
og hægt er, segir Pétur. — Þar
sem aðgengi og innkeyrslur eru
inn á aðra hæð, hafa margir flask-
að á því að hafa ekki nægilegt
burðarþol í gólfi með þeim afleið-
ingum, að ekki er hægt að koma
ar fyrir hvaða starfsemi sem er.
húsinu okkar við Gijótháls er
gert ráð fyrir 1500 kg burðarþoli
á fermetra. Það þýðir, að unnt
væri m. a. að setja þar upp prent-
smiðju með pappírslager, sem er
einn þyngsti lager, sem hægt er
að hugsa sér.
Á meðal nýrra stórbygginga,
sem Eykt hefur byggt, má nefna
húsið við Ármúla 15, á horni
Vegmúla og Ármúla^ sem reist var
fyrir Holtabúið hf. Áformað er að
ljúka við að innrétta húsið í maí,
en það er á fimm hæðum og um
2.500 ferm. alls. Þar verður End-
urskoðun hf. á þremur hæðum,
en fyrstu hæðinni er óráðstafað
að hluta.
Af öðrum stórbyggingum, sem
Eykt hefur byggt, má nefna hús
Á.T.V.R. að Stuðlahálsi 2, en það
er um 3.000 ferm hús á fjórum
hæðum. Enn má nefna hús Ferða-
félags íslands í Mörkinni 6, sem
starfsmenn Eyktar steyptu upp
og innréttuðu að að mestu leyti.
Þetta hús er um 2.000 ferm. Á
næstunni mun Ferðafélagið taka
þar í notkun mjög glæsilegan 300
fermetra samkomusal og eru
starfsmenn Eyktar nú að leggja
síðustu hönd á innréttingar þar.
Þessi salur verður vígður í byijun
apríl og hann á m. a. eftir að stór-
bæta aðstöðu Ferðafélagsins fyrir
myndakvöldin, sem eru þýðingar-
mikill þáttur í starfsemi þess.
Eykt hefur einnig verið stórtæk
í viðhaldi og endurbótum innanhús
fyrir það opinbera og hafa starfs-
menn fyrirtækisins nýlokið breyt-
ingum á húsnæði Lyíjaverzlunar
íslands að Borgartúni 6. Þetta var
verkefni upp á um 60 millj. kr.
og stóð yfir um eitt ár. Fram-
leiðsludeild fyrirtækisins var fyrir
löngu orðin úr sér gengin og þurfti
því mikillar endurnýjunar við. Allt
það gamla var hreinsað út og sett-
ir inn nýir milliveggir, ný gólfefni
og raflagnir.
Að auki hefur Eykt byggt tals-
vert af íbúðum og nú er í undirbún-
ingi bygging fjölbýlishúss við
Funalind á nýja byggingasvæðinu
austan Reykjanesbrautar í Kópa-
vogi og á öðru fjölbýlishúsi í
Borgahverfinu nýja í Grafarvogi.
Hefja rekstur á steypustöð
í maí
Eykt hf. er einn af eigandum
Steinsteypunnar hf., sem á sínum
tíma keypti steypustöðina fyrir
sunnan Ilafnarfjörð, er áður var
í eigu Landsvirkjunnar, en á með-
al annarra'tiluthafa eru verktaka-
fyrirtækið Háfell, byggingafyrir-
tækið Harald og Sigurður, efnis-
salar o. fl. í maímánuði hyggst
Eykt hf. í samvinnu við aðra hlut-
hafa hefja starfrækslu þessarar
steypustöðvar á ný, en afkasta-
geta hennar er um 50 rúmmetrar
af steypu á klukkustund.
— Aðdragandinn að þessari
starfsemi hefur verið all langur,
því að mikill seinagangur hefur '
verið af hálfu bæjaryfirvalda í
Hafnarfirði á að láta okkur í té
nauðsynleg aðstöðu. Þannig er
rétt nýlokið við gatnagerð við
Steypustöðina og sömuleiðis við
fráveitulagnir frá henni, segir Pét-
ur. — Af sömu ástæðum hefur
ekki heldur verið hægt að ganga
þar frá rafmagni og hita.
En það er tvímælalaust markað-
ur fyrir steypu frá þessari stöð og
fyrirspurnar eru þegar farnar að
berast frá mörgum aðilum, sem
vilja kaupa af okkur steypu. Ætlun
okkar er að stuðla að því, að allir
sitji við sama borð í steypukaup-
um, þannig að minni verktakar
°g byggingaraðilar og einstakir
húsbyggjendur fái steypu á svip-
uðu verði o g stærri verktakar hafa
fengið hana hingað til. Við teljum,
að á þetta hafí skort, eftir að
Hraun hf. hætti starfsemi steypu-
stöðvar sinnar í Garðabæ.
Að mati Péturs verður ástandið
í byggingastarfsemi á höfuð-
borgarsvæðinu mjög svipað því
sem verið hefur næstu 1-2 árin,
en eftir það fari fari ástandið aft-
ur batnandi og umsvif í greininni
vaxandi á ný. Hann bendir á, að
staða margra fyrirtækja virðist
vera að batna og þau farin að
skila arði. Þá komi að því, að þau
fari að færá út kvíarnar og huga
að fjárfestingum á ný.
— Ég tel líka, að átakið „Kaup-
um íslenzkt" eigi eftir að skila
miklum árangri, segir Pétur. —
Fólk er farið að huga miklu meira
en áður að því að kaupa heldur
íslenzka vöru en erlenda og það á
eftir að auka eftirspurn eftir inn-
lendri framleiðslu til muna og
skapa þannig fleiri störf.
— Þrátt fyrir samdráttinn í
byggingariðnaðinum undanfarin
ár, teljum við okkur hjá Eykt hf.
mega vel við una, hvað varðar
okkar hag, segir Pétur Guðmunds-
son að lokum. — Fyrirtækið skilaði
hagnaði í fyrra og eiginfjárstaða
þess er mjög góð. Verkefnastaðan
er einnig góð, en okkur mun ekki
veita af því að helga stórbyggingu
okkar við Gijótháls miklu af kröft-
um okkar á næstu árum.