Morgunblaðið - 06.05.1995, Síða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
fHffrgttitliIsiMfc
1995
LAUGARDAGUR 6. MAI
BLAD
HM I HANDKNATTLEIK
Morgunblaðið/RAX
Kátt í Höllinni
OPNUNARHÁTIÐ Helmsmelstarakeppnlnnar í handknattlelk verður í Laugardalshöll klukkan 19 á morgun og
bygglst hún fyrst og fremst á fjörugrl hreyfingu um 400 barna úr íþróttafélögunum á Stór-Reykjavíkursvæð-
Inu. Krakkarnir æfðu atrlðin í gær og var þá kátt ( Hölllnni en á morgun verður dagskráln örlítið alvarlegri
með stuttum ávörpum áður en Erwln Lanc, forsetl Alþjóða handknattleikssambandsins, setur mótið.
Sigurður
tekurvið HK
SIGURÐUR Sveinsson, landsliðsmaður í hánd-
knattleik, hefur gengið frá þriggja ára samningi
sem leikmaður og þjálfari 2. deildarliðs HK í
Kópavogi. Sigurður, sem lék með Víkingum í
vetur, og er nú sem kunnugt er í landsliðshópn-
um sem tekur þátt í heimsmeistarakeppninni.
„Við eigum mjög efnilega stráka — þijá í
unglingalandsliði 21 árs og yngri, og lika menn
í yngri landsliðunum. Nú ætlum við að byggja
á ungu strákunum okkar, og auðvitað líka þeim
reynslumönnum sem eru í liðinu. Þeir verða
áfram,“ sagði Rögnvaldur Guðmundsson, for-
maður handknattleiksdeildar HK við Morgun-
blaðið í gærkvöldi.
Sigurður Falur
Falur fer aftur
til Keflavíkur
FALUR Harðarson gekk í gær frá félagaskiptum
úr KR í Keflavík þar sem hann lék áður en hann
var rúmt ár í herbúðum körfuknattleiksdeildar
KR. „Mér líst nijög vel á Keflavíkurliðið en fannst
vanta meiri ógnun frá bakvörðunum í fyrra og
ég get vonandi bætt eitthvað við hana,“ sagði
Falur við Morgunblaðið. Hann hefur búið í Kefla-
vík frá því hann kom frá námi í Bandaríkjunum
en stundar vinnu í Reykjavík og segir að það
muni verða minni bið eftir æfingum. „Ég lék
síðast með Keflavík 1991 og var með félaginu í
öllum yngri flokkunum. Ég er og verð Keflvík-
ingur og það hefur alltaf verið mitt félag. Hins
vegar fannst mér rétt að reyna eitthvað nýtt
þegar ég skipti yfir í KR og ég hef kunnað ágæt-
lega við mig hjá félaginu." Sófus Guðjónsson,
formaður körfuknattleiksdeildar KR, sagði að
KR hefði viljað hafa Fal áfram. „Hann er frábær
leikmaður og góður félagi,“ sagði Sófus.
Svíþjóð og Finnland
leika til úrslita á HM
Svíar sem hafa sex sinnum orðið heimsmeistarar
í íshokkí eiga nú möguleika á því að krækja
í titilinn í sjöunda skipti og í fyrsta skipti á heima-
velli. Þeir lögðu Kanadamenn 3:2 í undanúrslitum
í gær. Daniel Anderson skoraði sigurmark Svía í
framlengingu, en leikurinn var jafn og hörkuspenn-
andi og minnti um margt á úrslitaleik þessara þjóða
um gullið á Ólympíuleikunum í fyrra, en þá sigruðu
Sviar einnig. Mótheijar Svía í úrslitunum verða
Finnar sem sigruðu lið Tékklands 3:0 í hinum leik
undanúrslitanna.
Frá og með 1. leik HM 95 bjóðum við öllum sem ekki geta
mætt í höllina og notið veitinaa okkar þar,
meiriháttar pizzatílboð.
ÞU KAUPIR PIZZU MEÐ ALEGGI
OG FÆRÐ AÐRA EINS FRÍTT
PIZZAHÚSIÐ
Tilboð þetta gildir í Taktana heim og FáSana heim, á meðan HM 95 stendur yfir,