Morgunblaðið - 06.05.1995, Side 10
10 B LAUGARDAGUR 6. MAÍ 1995
HM I HANDKNATTLEIK
MORGUNBLAÐIÐ
Rúmenar hafa fagnad
fjórum HM-gullum
RÚMENAR eru þeir sem hafa oftast fagnað
heimsmeistaratitli eða fjórum sinnum. Það voru
þeir, undir stjóm þjálfarans snjalla Nicolae Ned-
eff, sem komu með byltingu 1961 — léku mjög
vel skipulagðan leik, sem byggðist upp á hlutverka-
skiptingu á milli leikmanna og skemmtilegum leik-
fléttum; leikaðferð sem færði þeim heimsmeistara-
titilinn 1961,1964,1970 og 1974. Sigmundur
— —
O. Steinarsson riijar upp gang mála í HM.
Fyrsta heimsmeistarakeppnin
innanhúss fór fram í Berlín
1938, þar sem aðeins fjórar þjóðir
sendu lið til keppni — Þýskaland,
Austurríki, Svíþjóð og Danmörk.
Leikið var 2X10 mín. og fór keppn-
in fram um helgi, á laugar- og
sunnudegi 5. og 6. febrúar í Deutsc-
hlandhalle, sem tók 10.000 áhorf-
endur. Það voru Þjóðverjar sem
fögnuðu sigri — unnu alla sína leiki,
Austurríki varð í öðru sæti, 5:4,
Svíþjóð 7:2 og Danmörk 11:3. Mað-
urinn á bak við sigur Þjóðveija var
Otto Kaundynia, sem tveimur árum
seinna lét lífið í innrás Þjóðverja í
Frakkland í seinni heimsstyijöld-
inni.
1954
íslendingar ætluðu að vera með
í HM 1950 í Svíþjóð, en hætta varð
við keppnina, sem átti að vera sú
fyrsta frá seinni heimsstyrjöldinni,
vegna ónógrar þátttöku. Svíar
héldu keppnina síðan 1954, en þá
voru Islendingar ekki með. Ellefu
þjóðir tilkynntu þátttöku, fimm
voru slegnar út í forkeppni — fimm
komust áfram og léku ásamt gest-
gjöfum í tveimur riðlum. Leikið var
í Malmö, Lundi, Kristianstad,
Örebro, Jönköping, Váxjö og
Gautaborg, þar sem 5.000 áhorf-
endur í Másshallen sáu úrslitaleik-
inn á milli Svíþjóðar og V-Þýska-
lands, sem Svíar unnu, 17:14.
Gunnar Brusberg, markvörður
Svía, og Rolf Almqvist (fimm mörk)
áttu stórleik með Svíum. Tékkar,
sem sýndu að handknattleikur væri
á uppleið í A-Evrópu, lögðu Sviss-
lendinga í keppninni um bronsið,
24:11.
1958
íslendingar tóku þátt í HM í
A-Þýskalandi 1958 og komu beint
í fyrsta leikinn gegn Tékkum, eftir
erfiða ferð frá íslandi og tafir í
Kaupmannahöfn. Leikurinn tapað-
ist, 17:27, síðan kom sigurleikur
gegn Rúmeníu, 13:11, ogtapleikur
gegn Ungveijalandi, 16:19, sem
varð tii þess að ísland var úr leik.
Þjóðveijar tefldu fram samein-
uðu liði — leikmönnum og þjálfurum
frá austri og vestri, en náðu ekki
að komast í úrslit, unnu t.d. Luxem-
borg, 46:4! Þjóðveijar unnu Dani,
16:13, í leiknum um bronsið í Wem-
er Seelen-höllinni, sem var þéttsetin
— 6.500 áhorfendur. Svíar, sem
léku sinn kunna taktíska göngu-
handknattleik, svæfðu Tékka og
unnu 22:12 í úrslitaleiknum.
í 25 ára sögu Istaks hefur það verið meginmarkmid
fyrirtækisins að skila hverju verki til verkkaupa á réttum tíma.
Viðbygging Laugardalshallarinnar er nýjasta dæmið
og sýnir glöggt hverju fagleg þekking og reynsla fær
áorkað þegar ná þarf settu marki.
Áfram Island!
ÍSTAK
1961
íslendingar komu skemmtilega á
óvart í HM í V-Þýskalandi, þar sem
Gunnlaugur Hjálmarsson var valinn
í heimsliðið eftir keppnina. íslenska
liðið gerði jafntefli, 15:15, við
Tékka í sögulegum leik í Stuttgart
og voru yfir, 13:9, í leik um fimmta
sætið gegn Dönum í Essen, þar sem
7.000 áhorfendur sáu slæman lo-
kakafla íslendinga og Danir náðu
að tryggja sér sigur, 13:14. Heims-
meistarar Svía komust ekki í úrslit,
þar sem þeir töpuðu gegn Tékkum
— eftir þrettán.leiki í röð í HM frá
1954 án þess að tapa. Þeir fengu
bronsverðlaun með sigri, 17:14, á
Þjóðveijum.
Rúmenar urðu heimsmeistarar
eftir baráttuleik gegn Tékkum, sem
varð að tvíframlengja fyrir framan
14.000 áhorfendur í Westfalenhalle
í Dortmund. Staðan var 7:7 eftir
venjulegan leiktíma og einnig eftir
fýrri framlengingu. Eftir aðra fram-
lengingu stóðu Rúmenar uppi sem
sigurvegarar 9:8. Sigurmarkið
skoraði Mircea Costache, sem varð
seinna landsliðsþjálfari Portúgals.
Bestu leikmenn liðsins voru mark-
vörðurinn Redl og skytturnar Ion
Moser og Petre Ivansscu, seinna
þjálfari Alfreðs Gíslasonar hjá Ess-
en og v-þýska landsliðsins. Þess
má geta að Tékkar unnu Rúmena,
12:8, í riðlakeppninni.
1964
Rúmenar vörðu heimsmeistara-
titil sinn með því að leggja Svía að
velli, 16:15, fýrir framan 18.000
áhorfendur í Sportovni Hala í Prag.
Lykilmaður Rúmena var Ion Moser,
sem var lengi vel besti handknatt-
leiksmaður heims, en ungur lærl-
ingur í liðinu var Gruia, sem varð
besti leikmaður heims í kringum
1970. Tékkar fengnj bronsverðlaun
með sigri á V-íjóðveijum, 22:15.
Heppnin var ekki með íslandi í
riðlakeppninni, því að íslenska liðið
varð úr leik á lélegri markatölu en
Svíar og Ungveijar. íslenska liðið
vann sögufrægan sigur, 12:10,
gegn Svíum og mátti síðan tapa
fyrir Ungverjum með fimm marka
mun til að komast áfram í milliriðil
ásamt Svíum með stigin tvö sem
unnust gegn þeim. íslensku leik-
mennirnir stóðust ekki álagið og
töpuðu með níu marka mun, 12:21.
Svíar fóru þá áfram með tvö stig
og komust íúrslitaleikinn.
íslendingar komust ekki til Svi-
þjóðar 1967, þar sem þeir báru
lægri hlut í forkeppni gegn Dönum
og Pólveijum. Danir komu síðan
skemmtilega á óvart og komust
alla leið í úrslitaleik gegn Tékkum
eftir að hafa lagt Sovétmenn, 17:12,
í undanúrslitum. Hetja Dana var
markvörðurinn Erik Holst, sem fór
á kostum. Hann varð að játa sig
sigraðan í úrslitaleiknum, sem
Tékkar unnu, 14:11, fyrir framan
3.500 áhorfendur í Vesterás. Mark-
vörður Tékka, Arnost, varði mjög
vel og þá réð Holst ekki við skyttur
Tékka, Duda og Bruna og þá Hav-
lik og Mares.
Rúmenar, sem töpuðu síðan
fyrsta leik í HM frá 1961 í undanúr-
slitum gegn Tékkum, 19:19, unnu
Sovétmenn í leiknum um bronsið,
21:19.
1970
Rúmenar fögnuðu aftur heims-
meistaratitli í Frakklandi eftir tví-
framlengdan úrslitaleik — nú 13:12
gegn A-Þýskalandi, eftir að staðan
hafði verið 10:10 eftir venjulegan
leiktíma og 11:11 eftir fyrri fram-
lengingu. Markvörðurinn Penu,
leikstjórnandinn Gatu og skyttan
Gruia léku lykilhlutverk hjá heims-
meisturunum. Júgóslavar, sem voru
að koma upp, kafsigldu Dani í leik
um þriðja sætið, 29:12.
Islenska liðið olli vonbrigðum og
hafnaði í tólfta sæti, eftir sigur
gegn Frökkum, 19:17. Áður höfðu
þeir unnið Pólveija í riðlakeppn-
inni, 21:18, en tapað fyrir Ungveij-
um og Dönum, einnig Sovétríkjun-
um og Japan í keppninni um 9.-13.
sæti.
1974
Heimsmeistarakeppnin í A-
Þýskalandi var sorgarsaga fyrir ís-
lenska liðið, sem var geysilega
sterkt — eitt af öflugustu liðum
íslands. Flensa stakk sér niður í
herbúðir íslands, þannig að nær
allir leikmenn liðsins fengu háan
hita og gátu sumir ekki leikið —
voru rúmfastir.
Rúmenar, sem léku mjög grófan
handknattleik, fögnuðu sínum
GUNIMLAUGUR Hjálmars-
son og Ingólfur Óskarsson
fagna slgrlnum, 12:10,
gegn Svíum 1964.
TRAUSTUR VERKTAKI