Morgunblaðið - 06.05.1995, Side 9
8 B LAUGARDAGUR 6. MAÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 6. MAÍ 1995 B 9
HM I HANDKNATTLEIK
HM I HANDKNATTLEIK
Bangt Johansson, þjálfarl Svía, fagn-
ar helntsmeistaratitlinum í Tékkó-
slóvakíu 1990.
Sjálfstraustið
kom með
heimsmeist-
aratitlinum
EFTIR HM í Sviss gerðu Svíar mark-
vissa áætlun sem miðaði að því að Svi-
þjóð yrði heimsmeistari 1990 og það
gekk eftir. Staffan Olsson sagði að þessi
kaflaskipti hefðu haft mikið að segja
fyrir sænska landsliðið.
„Heimsmeistaratitillinn veitti okkur
aukið sjálfstraust sem er nauðsynlegt í
þessari stöðu og eftir að hafa náð á topp-
inn hefur okkur reynst auðveldara að
halda okkur þar en vissulega verðum
við að leggja meira á okkur en áður.
Hins vegar vitum við hvað þarf og það
er allt auðveldara fyrir vikið.“
Staffan sagði að Sænska handknatt-
leikssambandið hefði alltaf unnið sam-
kvæmt skipulagðri áætlun. „Áætlun er
eitt en heppni er nauðsynleg til að dæm-
ið gangi upp, leikmennimir þurfa að ná
vel saman og ekki síst verða hæfíleikam-
ir að vera fyrir hendi. Hjá okkur kom
upp samhentur, samstiga og hæfiieika-
ríkur hópur leikmanna á sama tíma sem
hefur ráðið úrslitum. Okkur hefur liðið
vel á toppnum en við höfum líka fengið
að finna fyrir því að önnur lið leggja allt
í sölumar til að sigra okkur og við vitum
það. Þess vegna verðum við stöðugt að
bæta við, leggja meira á okkur, og það
höfum við gert. Þess vegna höfum við
ekki þurft að vera Iengi saman í æfinga-
búðum, við æfum vel með félagsliðum
okkar, höfum leikið lengi saman og ski\j-
um veí hvem annan en ég held að marg-
ir í hópnum hætti eftir Ólympíuleikana
t Atlanta 1996, jafnvel ég, þó ég hafi
ekki ákveðið það ennþá.“
Hvað gerist þá varðandi sænska lands-
liðið?
„Þegar em komnir nokkrir yngri
menn inn I hópinn og fleiri bætast að
sjálfsögðu við en ég vona að þeir haldi
merkinu áfram á lofti."
Staffan sagði að alþjóða handboltinn
hefði tekið miklum breytingum síðan
hann byrjaði með landsliðinu. „Nú eiga
miklu fleiri leikmenn en áður möguleika
á því að leika sem atvinnumenn. Iþróttin
er tæknilegri og ég vona að hún haldi
áfram á þeirri braut Eins er mikilvægt
að hún haldi vinsældum hjá stórþjóðum
eins og Þýskalandi og Frakklandi vegna
þess að þar em peningamir, mun öfiugri
styrktaraðilar og fyrirtæki en I minni
löndum eins og Svíþjóð og íslandi þar
sem fjármagn er ekki fyrir hendi til að
gera það sem æskilegt er að gera. Hins
vegar er ánægjulegt að stöðugt bætast
fleiri handboltaþjóðir I hópinn og ég
held að handbolti eigi eftir að ná meiri
vinsældum í enn fleiri löndum."
ÞJÓÐIRNAR í D-RIÐLI $
Staffan, sem er 31s árs síðan
í mars, var valinn í sænska
landsliðið eftir Heimsmeistara-
keppnina í Sviss 1986 og hefur
verið sterkur hlekkur í nær
óijúfanlegri keðju æ síðan. Allir
handboltaunnendur þekkja hæfni
hans inni á vellinum en hvernig
stóð á því að handbolti varð fyrir
valinu hjá honum sem íþróttagrein
og síðar lifibrauð, hvernig hefur
ferillinn þróast úr einföldum leik
á skólalóð í hinn harða heim at-
vinnumennskunnar?
Reyndi allt
„Þegar ég var 10 ára var skipu-
lögð bekkjakeppni í skólanum og
ég var með eins og hinir strákarn-
ir. Á þessum tíma skar ég mig á
engan hátt úr hópnum nema hvað
ég var örvhentur sem var langt
því frá að vera algengt. Næstu
ár reyndi ég allt, var í tennis, fót-
bolta, íshokkí en svo fór að ég
fann mig best í handboltanum.
Eg byijaði að leika með Skánela
en þegar ég var 15 ára stækkaði
ég ört og skipti yfir í 'Cliff í Stokk-
hólmi sem var með mjög gott lið
í mínum aldursflokki. Þar efldist
ég og styrktist en 1989 flutti ég
til Þýskalands og lék með Hútten-
berg í tvö ár. Þá meiddist ég á
hné og var frá í átta mánuði en
fór síðan aftur til Cliff þar sem
ég var í nokkra mánuði. Eftir
Ólympíuleikana í Barcelona 1992
gerði ég samning við þýska félag-
ið Niederwúrzbach og hef verið
þar síðan.“
Hann bætti við að tilviljun hefði
ráðið hvernig veður hefðu skipast
á lofti. „Draumurinn var auðvitað
að vera atvinnumaður í hand-
boltanum en ég átti ekki von á
að hann yrði að veruleika.“
Börnin „þýsk“
Eitt af einkennum atvinnu-
mennsku í íþróttum er löng fjar-
vera frá fjölskyldunni en Staffan
segir þetta ekkert vandamál því
góður tími gefíst inni á milli til
að vera með fjölskyldunni.
Hann er kvæntur Marie og eiga
þau tvö börn — Hanna er fjögurra
og hálfs árs og Henrik eins og
hálfs árs.
„Marie vissi að hveiju hún gekk
fyrir 13 árum. Hún skilur þetta
vel og stendur heils hugar á bak
við mig.
Meðan við vorum tvö ein í kot-
inu var þetta í raun ekkert mál
en aðstæður breyttust þegar
dóttirin kom í heiminn.
Vissulega hef ég ekki mikinn
tíma með fjölskyldunni en ég hefði
ekki meiri tíma ef ég væri í öðru
starfí. Ef ég væri ekki í handbolt-
anum yrði ég að vinna átta til 10
tíma í dag þannig að þegar öllu
er á botninn hvolft hef ég ekki
aðeins meiri tíma með fjölskyld-
unni heldur örugglega meiri pen-
inga. Ég get leyft mér að gera
það sem ég vil og það er ánægju-
legt að geta unnið við það sem
ég er bestur í og leikið mér að
spila tennis með hægri þó ég sé
langt því frá að vera góður í þeirri
grein.“
Hann sagði samt að þó gott
væri að vera í Þýskalandi væru
tvær hliðar á málinu. „Dóttirin var
aðeins eins árs þegar við fluttum
og því hefur hún að mestu alist
upp í þýsku umhverfí en strákur-
inn fæddist í Þýskalandi. Þó
sænska sé okkar mál á heimilinu
talar hún þýsku óaðfinnanlega og
í raun eru börnin „þýsk“ en ég
STAFFAN Olsson er öilum íslensk-
um handknattleiksunnendum
kunnur. Þessi síðhærði, örvhenti
Svíi hefur hvað eftir annað gert
íslenska landsliðinu lífið leitt og
lengi vel var honum illa tekið af
íslenskum áhorfendum en hann
svaraði ávallt að bragði með snilld-
arleik. Fyrir vikið hefur hann unn-
ið áhorfendur frekar á sitt band
eins og glöggt mátti sjá og heyra
á Opna Reykjavíkurmótinu fyrr í
vetur. Það kann hann vel að meta
eins og kemur fram í viðtali við
Steinþór Guðbjartsson en Staff-
Morgunblaðið/Steinþór Guðbjartsson
Á leiðinni
ÍSLAND og Svíþjóð mættust á alþjóðamótinu í Danmörku í
liðinnl viku og að sjálfsögðu var Staffan Olsson í sænska
llðlnu. Rútuferðin frá hótell lelkmanna að lelkstað tók vel á
aðra klukkustund og nýttl kappinn tímann til að sinna mikll-
vægi símtall við samstarfsmann hjá Rehband.
Svíar unnu Spánverja
síðast fyrir 37 árum
- SVIÞJOÐ
Ár Úrsl
HM1958 Spánn - Svíþjóð 11:2
HM1974 Spánn - Svíþjóð 15:1
HM1982 Spánn - Svíþjóð 23:2
„Þýskir“ Svíar
Morgunblaðið/Sverrir
SÆNSKU landsliðsmennirnir hafa ekki aðeins verið sigursælir með lands-
liðinu heldur hafa margir þeirra fagnað glæstum sigrum með félagsliðum
sínum. Magnus Wislander varð Þýskalandsmeistari með Kiel og Staffan
Olsson fagnaði Evrópumeistaratitli með Niederwiirzbach í borgarkeppni
Evrópu en hér leggja Staffan og Magnus á ráðin.
boltann. Hann segir að öll mennt-
un sé góð og hann hafí lært mikið
vegna starfs síns sem atvinnumað-
ur í handbolta.
„Ég hef kynnst siðum annarra
þjóða, lært að lifa í erlendu landi.
Eg hef fengið tækifæri til að kynn-
ast fólki af öðru þjóðerni og ekki
síst fólki utan handboltans, hugs-
un þess og lífsháttum. Ég hef eign-
ast marga nýja vini og allt er þetta
mjög mikilvægt, uppbyggjandi.
Það eykur víðsýnina og hjálpar við
að skilja aðra betur. Eins hef ég
lært þýskuna og hún kemur mér
að góðum notum þegar ég sný
aftur heim til Svíþjóðar. Með spila-
mennskunni hef ég verið að selja
vörur fyrir Rehband og kem til
með að halda því áfram. Þá þarf
ég að vera í stöðugu sambandi við
menn í Þýskalandi og þá nýtist
þýskan vel.“
Atvinnumennskan kom óvænt
Staffan á tvo bræður. Sá eldri
er 38 ára og hefur ekki verið í
íþróttum en sá yngri, Niklaus, sem
.er 27 ára, er rétthentur línumaður
hjá 2. deildar liði Skánela þar sem
ferill skyttunnar hófst. Niklaus
fékk tækifæri með landsliðinu fyr-
ir tveimur árum „en þá var ekki
teflt fram sterkasta liði,“ sagði
Staffan.
Hann sagði að atvinnumennsk-
an hefði borið óvænt að og aldrei
hefði verið um neinn þrýsting að
ræða heiman frá enda enginn sér-
stakur íþróttaáhugi í fjölskyld-
unni. „Pabbi var reyndar að gutla
í marki í fótbolta í 5. eða 6. deild
og mamma var aðeins í handbolt-
anum á sínum yngri árum en það
verður varla sagt að þau hafi ver-
ið sérstaklega íþróttalega sinnuð.“
Sem fyrr sagði byijaði Staffan
að leika í Þýskalandi 1989, „ein-
faldlega vegna þess að ég fékk
bestu tilboðin þaðan. Tækni leik-
manna er ekki eins mikil í Þýska-
landi og í Svíþjóð en baráttan er
meiri sem hefur kennt mér að
beijast fyrir hlutunum. Eins er
andrúmsloftið í höllunum annað
og skemmtilegra, það er alltaf
fullt hús í Þýskalandi."
Svíar urðu í fjórða sæti á
Heimsmeistarakeppninni í Sviss
1986 og eftir keppnina urðu
an, eins og aðrir lykilmenn í
sænska landsliðinu sem kemur til landsins
í dag, íhugar að hætta eftir Ólympíuleik-
ana í Atlanta síðsumars 1996.
AKUREYRI
vona að þau verði sænsk á endan-
um.“
Mlkilvægur lærdómur
Staffan lauk öðrum bekk í
menntó en fór síðan á fullt í hand-
Síðhærður
ísextán ár
Ár Úrslit
HM1964 Svíþjóð - Egyptaland 26:11
H M 1993 Spánn - Egyptaland 17:14
Hvíta-Rússland
tekur þátt í sinni
fyrstu HM
Brasilía lék síðast
fyrir 37 árum, 1958
í A-Þýskalandi
Kúveit lék síðast
fyrir13árum, 1982
í V-Þýskalandi
nokkrar breytingar á hópnum og
þá kom Staffan m.a. inn. „Ég
hafði leikið með yngri landsliðun-
um og sá fljótt að til að komast
í landsliðið varð ég að leggja mik-
ið á mig og ég gerði það. Það hjálp-
aði mér að vera örvhentur því að
því leyti var engin samkeppni. En
jafnframt voru strax gerðar miklar
kröfur til mín og minna löngu
arma. Stundum gerði ég einfalda
hluti flókna en landsliðsþjálfararn-
ir, fyrst Roger Carlsson og svo
Bengt Johansson, hafa ávallt stað-
ið vel við bakið á mér og varið
mig, sagt mér að leika eins og ég
væri vanur.“
Síðhærður í 16ár
Það er auðvelt að þekkja Staff-
an úr hópi manna. Hann er hávax-
inn og sennilega síðhærðasti
landsliðsmaður heims í handbolta
um árabii.
„Ég hef verið svona síðan ég
var 15 ára. Ég veit ekki af hveiju.
Örugglega ekki til að vekja at-
hygli eða til að njóta vinsælda en
sennilega er það vegna þess að
mér líkar það vel.“
Hann bætti við að síða hárið
hefði hvergi vakið athygli nema á
íslandi og aðeins þar hefði hann
verið kallaður „Faxi“. „Ég hef lit-
ið svo á að þetta uppnefni væri
meint í niðrandi merkingu en það
hefur engin áhrif á mig, truflar
mig ekki, og reyndar þegar ég var
á Islandi í vetur fann ég fyrir
meiri vinsemd en áður.“
í fótspor Hansa
Schmidt
RÚSSINN Talant Dujshebaev, sem leikur með
Teka á Spáni, hefur fetað í fótspor Rúmenans
Hans-Gunther „Hansa“ Schmidt, með því að
gerast ríkisborgari í öðru landi, eftir að hann
varð heimsmeistari. Dujshebaev, sem var leik-
sijórnandi Rússa í HM1993 í Svíþjóð — fagnaði
þar heimsmeistaratitli sem fyrirliði, hefur gerst
spænskur ríkisborgari og leikur með Spánveij-
um hér á landi. Hansi Schmidt, sem er af þýsku
bergi brotinn, var í heimsmeistarahópi Rúmena
í HM 1961 i V-Þýskalandi — gerðist síðan flótta-
maður og þýskur rikisborgari og lék með lands-
liði V- Þýskalands.
TVEIR HM-GETRAUNASEÐLAR
SEÐILL 1: LAUGARDAGUR 6. MAÍ KL. 20:20
SEÐILL 2: LAUGARDAGUR 13. MAÍ KL. 13:55
NOTIÐ NÝJU SEÐLANA
ÞEIR GEFA KOST A 14 LEIKJUM
(Einnig er hægt að nota Eurotips seðla)
MUNiÐ AÐ MERKJA í AUKASEÐIL
^ ^
o JHV ^
;yi
LJ
iX!
i
{
(