Morgunblaðið - 24.06.1995, Blaðsíða 1
72 SÍÐUR LESBÓK C/D
STOFNAÐ 1913
140. TBL. 83. ÁRG.
LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Óeirðir í
Argent-
ínu
ÓEIRÐIR brutust út annan
daginn í röð fyrir utan höfuð-
stöðvar stjórnarflokks rót-
tækra í Cordoba, næst stærstu
borg Argentínu. Ástæðan er
sú að yfirvöld þar hafa ekki
borgað út kaup og eftirlaun í
tvo mánuði.
Tugir manna réðust inn í
höfuðstöðvamar og brutu hús-
gögn og glugga og reyndu að
kveikja í. Ríkisstarfsmenn í
borginni eru nú í „virkri vinnu-
stöðvun", sem felst í því að
þeir mæta til vinnu að morgni
og fara heim klukkan tíu fyrir
hádegi.
Mikil óánægja hefur ríkt
vegna launaleysisins, en stein-
inn tók úr þegar ákveðið var
að setja neyðarlög og greiða
hin vangoldnu laun í ríkis-
skuldabréfum gefnum út af
héraðsstjóminni í Cordoba.
Cordoba er stjómað af póli-
tískum andstæðingum Carlos-
ar Menems, forseta Argentínu,
sem hefur neitað að koma tií
hjálpar.
Næturfundir í
viðskiptadeilu
Genf. Reuter.
SAMNINGAMENN Bandaríkja-
manna og Japana sátu fram á nótt
og reyndu að ná samkomulagi til
að afstýra bandarískum refsiað-
gerðum gegn innflutningi á jap-
önskum bifreiðum.
Bandarískur embættismaður
sagði að viðræðurnar í Genf þokuð-
ust hægt og bítandi í samkomulags-
átt. Bandaríkjamenn hóta refsitoll-
um verði japanskur markaður ekki
opnaður fyrir bandarískum bílum
fyrir næsta miðvikudag.
Lamont í framboð
gegn John Major?
Douglas Hurd utanríkisráðherra boðar afsögn sína
London. The Daily Telegraph.
NORMAN Lamont, fyrrverandi fjármálaráðherra í ríkisstjóm John
Majors, var í gær sagður ákveðinn í að bjóða sig fram gegn Major til
embættis leiðtoga íhaldsflokksins breska. Þá tilkynnti Douglas Hurd,
utanríkisráðherra, að hann hygðist láta af embætti. Áhrifamenn á
hægri væng flokksins sögðu í gær að Lamont myndi leggja til grund-
vallar framboði sínu að ekki komi til greina að gengið verði í mynt-
bandalag Evrópu, og efasemdir um forystuhæfileika forsætisráðherrans.
Reuter
NORMAN Lamont, fyrrverandi fjármálaráðherra og væntanleg-
ur keppinautur John Majors um embætti leiðtoga Ihaldsflokks-
ins, skoðar fyrirsagnir breskra blaða í gær um afsögn Majors.
Gefið hafði verið í skyn að Barry
Field, þingmaður Isle of Wight,
myndi bjóða sig fram í fyrstu
umferð leiðtogakjörsins sem
skálkaskjól þungavigtarmanns
sem ekki vildi fara fram fyrr en
í annarri umferð, en sá orðrómur
var borinn til baka í gær.
Ekki hefnd
Hins vegar þótti ljóst að Lam-
ont myndi fara fram. Sögðu stuðn-
ingsmenn hans að Lamont, sem
Major rak úr embætti fyrir tveim
árum, væri fyrst og fremst um-
hugað um stefnu flokksins, en
hygði ekki á persónulega hefnd.
Þótt búið hefði verið að spá því
að Hurd myndi hverfa úr ríkis-
stjórninni þykir yfirlýsing hans í
gær, degi eftir að Major tilkynnti
afsögn sína sem leiðtogi, benda
til erfiðleika innan stjórnarinnar.
Hurd mun láta af embætti í næsta
mánuði þegar væntanlega verða
gerðar mannabreytingar í ríkis-
stjórninni.
Hurd gagnrýndur
Hann hefur að undanförnu ver-
ið gagnrýndur af mönnum á hægri
væng flokksins fyrir að vera held-
ur hallur undir Evrópusambandið.
Með afsögn sinni mun Hurd
gefa Major tækifæri til að skipa
í embætti utanríkisráðherra mann
sem er ekki jafn eindreginn Evr-
ópusinni, og friða þannig andstæð-
inga Evrópusambandsins í íhalds-
flokknum.
■ Major væntir sigurs/25
■ Forystugrein/26
Frakkar sakaðir um
tvöfeldni í gíslamáli
Sömdum
ekki við
Serba
New York. Reuter.
FRÖNSK stjórnvöld viðurkenndu í
gær að hafa átt leynilegar viðræður
við Bosníu-Serba um að þeir slepptu
gæsluliðunum, sem þeir tóku í gísl-
ingu, en neituðu að hafa samið um
eitt eða neitt við þá. Bandaríska
dagblaðið The New York Times
skýrði frá þessum leynifundum í gær
og sagði, að Frakkar hefðu lofað
Serbum, að ekki yrðu framar gerðar
loftárásir á stöðvar þeirra.
í fréttinni í The New York Times
sagði, að Bemard Janvier hershöfð-
ingi, franskur yfirmaður alls
gæsluliðs SÞ í gömlu Júgóslavíu,
hefði átt tvo leynilega fundi með
Ratko Mladic, yfirmanni Serbahers-
ins, meðan gæsluliðarnir voru í
haldi. Hefði sá fyrri verið í Zvornik
4. júní og sá síðari þann 17. í höfuð-
stöðvum Serba í Pale. Auk þess
hefði Bertrand de Lapresle, fyrrver-
andi yfirmaður SÞ-liðsins, verið
sendur til viðræðna við leiðtoga
Serba.
Meðan þessu fór fram voru Frakk-
ar opinberlega í hópi þeirra ríkja, sem
lýstu því yfír, að engir einkasamning-
ar yrðu gerðir við Serba. Haft er
eftir embættismanni á Vesturlönd-
um, að hvað sem því líði hafí þessar
viðræður Frakka og Serba tryggt
lausn gíslanna.
The New York Times segir, að
þótt viðræðurnar hafí verið leynileg-
ar, hafí Bretinn Rupert Smith, sem
er yfirmaður gæsluliðsins í Bosníu,
vitað af þeim og verið þeim andvíg-
ur. Sagði blaðið, að vaxandi spenna
væri á milli höfuðstöðva Smiths í
Sarajevo og Janviers í Zagreb.
Yves Doutriaux, talsmaður
franska utanríkisráðuneytisins, stað-
festi í gær, að fundimir hefðu verið
haldnir en fullyrti, að engir samning-
ar hefðu átt sér stað.
Rússar og Tsjetsjenar
nálgast samkomulag
Grosnf, Moskvu. Reuter.
VIÐRÆÐUM fulltrúa Rússa og
Tsjetsjena í Grosní, höfuðborg
Tsjetsjníu, lauk í gær án þess að
niðurstaða fengist, nema um það
að þeim yrði haldið áfram um
óákveðinn tíma. Um leið var fram-
lengt þriggja daga vopnahlé til að
auðvelda viðræðurnar. Þingið ákvað
að ganga ekki til atkvæða um
traustsyfirlýsingu við ríkisstjóm
Viktors Tsjemomyrdíns forsætis-
ráðherra fyrr en 1. júlí.
Viðræðuaðilum í Grosní kom
saman um að hittast á ný á þriðju-
dag, en á meðan munu sérfræðing-
ar funda.
Þátttakendur í viðræðunum, sem
hófust á mánudag, lýstu yfir
ánægju með gang þeirra á hinu
pólitíska sviði.
Mikið var um það rætt í Moskvu,
eftir að þingið frestaði atkvæða-
greiðslu um traustsyfirlýsingu um
viku, hvernig afstýra mætti stjórn-
arkreppu í Rússlandi. Þessi frestur
veitir Boris Jeltsín forseta tíma til
að stokka upp stjómina og er sagt
að þrír ráðherrar og Sergei Stepasj-
ín, yfirmaður öryggislögreglunnar,
geti farið að örvænta um stóla sína.
Viðbúnaður áhyggjuefni
Fréttir um að fjögur þúsund fall-
hlífarhermenn séu nú í Moskvu til
að vera á verði gagnvart hryðju-
verkum hafa valdið áhyggjum með-
al þingmanna. Þessir hermenn eru
hluti af 15 þúsund manna liði, sem
á að skoða skilríki grunsamlegra
manna á götum höfuðborgarinnar.
„Fallhlífarhermenn eru ekki
þekktir fyrir að vera sérfræðingar
í að fara yfir skilríki,“ sagði ónefnd-
ur aðstoðarmaður á þinginu. „Þeir
eru hins vegar hollasti hluti hers-
ins. Því eru ýmsir farnir að leiða
að því getum að verði Dúman [rúss-
neska þingið] leyst upp verði ekki
haldnar kosningar aftur.“
Ekki eru allir þeirrar hyggju að
Jeltsín hyggist beita hervaldi. Haft
var eftir embættismönnum að
Tsjernomyrdín hefði viljað vinna
óáreittur að stefnumálum sínum og
því krafist þess að þingið fjallaði
um trauststillögu hið fyrsta.
Verði tillagan felld verður að
víkja stjórninni frá eða leysa upp
þing innan sjö daga og búast ýmsir
við því að þá verði gengið til þing-
kosninga snemma í október í stað
desembers eins og ráð hafði verið
gert fyrir. í þeirri stöðu væru
Tsjernomyrdín og stuðningsmenn
hans mun betur undirbúnir en
stjórnarandstaðan.
Reuter
Eldflaugaárás á ísrael
BANDARÍKJAMENN reyndu í
gær að afstýra missætti milli
Sýrlendinga og ísraela eftir að
Hizbollah- skæruliðar í Líbanon
skutu eldflaugum á ferða-
mannaþorp í Israel. Franskur
kokkur lét lífið og átta manns
særðust. ísraelski flugherinn
svaraði með loftárás á bæki-
stöðvar skæruliða múhameðs-
trúarmanna í suðurhluta Líban-
ons. Ferðamenn í þorpinu voru
þegar fluttir á braut og var
myndin tekin er þeir lögðu á
flótta. Ráðgert er að ísraelar
og Sýrlendingar hefji viðræður
í Washington á þriðjudag. ísra-
elar hafa varað Sýrlendinga,
sem eru einn helsti áhrifavald-
urinn í Líbanon, við og sagt að
frekari árásir gætu eitrað and-
rúmsloftið við samningaborðið.