Morgunblaðið - 24.06.1995, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 24.06.1995, Blaðsíða 14
14 LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 1995 LANDIÐ MORGUNBLAÐIÐ Sundlaug- in loksins opnuðá Þórshöfn Þórshöfn - Þeir sem búa við það að hafa opna sundlaug all- an ársins hring gera sér ekki grein fyrir því hversu heppnir þeir eru. Hér á Þórshöfn er útisundlaug sem aðeins er opin yfir sumartímann þar sem afar dýrt er að hita vatnið. Opnun laugarinnar er því merki um það að sumarið er komið. Sund er bæði holi og skemmtileg íþrótt og hin mesta heilsubót. Þetta eru staðreyndir sem Guðbjörgu hótelstýru á Hótel Jórvík er vel kunnugt um. „Ég er búin að bíða í allan vetur eftir því að sundlaugin verði opnuð. Ég fer alitaf í sund klukkan átta á morgnana og syndi 600 til 1.000 metra. Þó að sjálfur Bretaprins kæmi á hótelið til mín yrði hann að bíða á meðan ég færi í sund,“ sagði Guðbjörg í Jórvík og lauk við að synda 600 metrana. Sundlaugin er opnuð klukk- an sjö á morgnana og eru oft- ast fastagestir í lauginni frá þeim tíma og til níu. Bömin sækja hana vel og einnig hefur ferðafólk nýtt sér aðstöðuna. Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir GUÐBJÖRG Guðmanns- dóttir, hótelstýra á Hótel Jórvík og félagar í heita pottinum við Þórshafnar- sundlaug. Eitthundrað ára afmælis verslunar á Hvammstanga minnst Morgunblaðið/Karl Sigurgeirsson GUÐMUNDUR Guðmundsson sveitar- sljóri býður gesti velkomna. KAUPMAÐURINN er við búðarborðið og sýnir bændafólkinu góssið. EDDA Hrönn Gunnarsdóttir, Kolbrún Karlsdóttir og Björn Þ. Sigurðsson. Sungið fyrir Póst og síma KRAKKARNIR sem eru á leikja- námskeiði í Grindavík komu starfsfólki Pósts og síma á óvart þegar þeir birtust óvænt og sungu fyrir það lag „Göngum á ljósi guðs“. Söngurinn var Iiður í ratleik sem krakkarnir voru í og lyfti brúninni á starfsfólkinu og var kærkomin tilbreyting frá ,ja ha já...“ laglínu P&S sem það hefur heyrt að undanförnu. Hvammstanga - Á þessu ári eru 100 ár síðan Hvammstangahöfn fékk löggildingu sem verslunar- höfn, en bréf til staðfestu þess var gefið út þann 13. desember 1895. Var þá lagður grunnur að byggð á Hvammstanga, en áður var Borðeyri helsti verslunarstaður fyrir vesturhluta Húnavatnssýslu. Fyrstu húsin risu þó ekki á Tang- anum, fyrr en árið 1900. Sveitarstjórn Hvammstanga- hrepps leitaði eftir samstarfi við Kaupfélagið, kaupmenn, verka- lýðsfélagið og fleiri og var skipuð framkvæmdanefnd, til að und- irbúa hátíðarhöld í tilefni afmæl- isins. Formaður nefndarinnar er Edda Hrönn Gunnarsdóttir. Af- mælishátíðin verður þann 8. júlí og verður margt á dagskrá. Krambúð sett upp Eitt af verkefnum nefndarinnar var að koma upp verslunarminja- sýningu, sem sýndi gamla verslun- arhætti. Var verkefnið unnið í samstarfi við Gallerí Bardúsa. V erslunarminj asýning í gömlu pakkhúsi Sýningin er í gömlu pakkhúsi, sem hefur fengið nýtt útlit og nokkrar endurbætur. Sett hefur verið upp krambúð, sem að mestu er með vörum úr Verslun Sigurðar Dav- íðssonar, en Sigurður verslaði í kjallara Þinghússins um áratugi. Einnig komu munir og innrétting- ar frá Kaupfélagi Vestur-Hún- vetninga, Verslun Sigurðar Páls- sonar o.fl. Á lofti Pakkhússins er sýning, sem byggir á verslunarsögu stað- arins. Þar eru ljósmyndir, bæði frá verslunarrekstri og fólki, sem honum tengdist. Þar eru einnig mörg líkön af gömlum húsum sem öll eru nú horfin. Þessi líkön eru eftir Egil Ólaf Guðmundsson. Þá er einnig margt muna, bæði inn- réttingar og búnaður. Sveitarstjórinn, Guðmundur Guðmundsson, og Karen Blöndal, sem var verslunarmaður á Hvammstanga lengst af sinni starfsævi, opnuðu sýninguna þann 17. júní. Helgi S. Ólafsson lék á tæplega 100 ára gamalt orgel og sviðsett var atriði úr „daglegu lífi kaupmannsins", en þar tók kaup- maðurinn á móti hjónum af Vatns- nesi, sem komu í kaupstaðinn á Farmalnum. Pakkhúsið er eitt sér hið áhuga- verðasta. Það mun vera flutt til Hvammstanga frá Skagaströnd og reist á núverandi stað á 1. áratug aldarinnar við víkina skammt frá bryggjunni. Lengst af var það í eigu Sigurðar Pálssonar kaup- manns, en þar áður í eigu Kaupfé- lagsins. Núverandi eigandi er Me- leyri hf. sem lánar húsið til þessa sérstæða hlutverks. Húsið er í mjög góðu ástandi og hafa sjálf- boðaliðar málað það utan í skemmtilegum litum. Að innan er húsið nánast óbreytt frá upphaf- legri gerð. Hagleiksmaðurinn Björn Þ. Sigurðsson hefur unnið mikið við þetta verkefni, ásamt fjölda sjálfboðaliða. Gallerí Bardúsa, sem er sölubúð handverksfólks í héraðinu, flutti starfsemi sína einnig í Pakkhúsið og mun annast sýninguna. Sýning- in verður opin í allt sumar, einnig um helgar. Fyrir framan Pakkhúsið er eitt af skemmtilegum svæðum á Hvammstanga, en þar er líflegt kríuvarp. Krían fór að verpa við höfnina um 1965. Þurfti hún að beijast fyrir tilveru sinni um nokk- ur ár, vegna framkvæmda sem þá voru í gangi. Nú er kríuvarpið eitt af vorboðum á Hvammstanga og aðdráttarafl fyrir ferðamenn. Safnað fyrir flygli í Isafjarðarkirkju STOFNAÐUR hefur verið sjóður til kaupa á konsertflygli í hina nýju ísafjarðarkirkju og er hann í vörslu sóknarprests, organista og eins full- trúa sóknarnefndar. Aðalhvatamaður að stofnun sjóðs- ins er Ingvar Jónasson víóluleikari frá ísafirði. Búið er einnig fyrir nokkru að ganga frá kaupum á org- eli fyrir kirkjuna og verður það sett upp í nóvember og vígt við upphaf nýs kirkjuárs. Ingvar Jónasson víóluleikari kvaðst hafa fengið þessa hugmynd þegar hann lék á hljóðfæri sitt við vígslu kirkjunnar á uppstigningar- dag. Segir hann hljómburð í kirkj- unni afar góðan og með því að kaupa í hana vandaðan konsertflygil megi ýta'undir öflugt tónlistarlíf í kirkj- unni. Stofnframlag sjóðsins er þókn- un sem Ingvari var ætluð fyrir þátt- töku hans í vígslunni og kvaðst hann vona að ísfirðingar og aðrir velunn- arar kirkjunnar og tónlistarlífs á fsafírði gætu lagt sinn skerf í sjóð- inn. Hægt er að leggja framlög á reikning nr. 550075 í íslandsbanka á fsafírði. Eins og fyrr segir hefur verið gengið frá kaupum á orgeli fyrir kirkjuna og er það nú í smíðum hjá orgelsmiðju Bruhns á Jótlandi í Dan- mörku og er að mestu búið að ljár- magna kaupin. Er orgelið með 21 rödd og er gert ráð fyrir að setja það upp í kirkjunni í nóvember og að það verði vígt í lok mánaðarins. Morgunblaðið/Silli Ingimar F. Jóhannsson, skrásetjari og hjónin Elísabet Bjarna- dóttir og Aðalgeir Egilsson. Fleiru safnað á Mánárbakka en veðurupplýsingum Morgunblaðið/Frímann Ólafsson Húsavík - Mánárbakki heyrist oft nefndur í útvarpi dag hvem vegna veðurfars, sem hjónin á Mánárbakka, Aðalgeir Egilsson og Elísabet Bjarnadóttir, skrá en þau hafa fleiru safnað saman um dagana en veður- upplýsingum, því söfnunaráráttan hefur verið þeim í blóð borin frá barnæsku. Aðalgeir hóf ungur söfnun og safnaði meðal annars eldspýtna- stokkum og myndum, sem eina tíð fylgdu sígarettupökkum, þar á meðal á hann myndir af 50 íslenskum tog- urum. Elísabet segir að upphaf sinn- ar söfnunar hafa verið að fóstur- amma hennar hafi, þá hún var barn, ánafnað henni rokknum sínum og ýmsum gömlum munum frá Hofi á Flateyjardal og beðið hana „að varð- veita nú þá hluti vel“. Með árunum jókst svo söfnunarár- áttan og í kjallara íbúðar þeirra var allt orðið fulit af gömlum húsmunum og áhöldum, sem aðrir töldu ekki mikils virði en þeim þóttu dýrmæt. Þegar allt var orðið meira en fullt í kjallaranum fóru hjónin að hugsa til stærra húsnæðis fyrir safn sitt. Þegar þau heyrðu að gamalt hús á Húsavík, Þórshamar, væri auglýst, annað hvort til niðurrifs eða flutn- ings, hugleiddu þau hvort þau gætu ekki fengið húsið og flutt það að Mánárbakka, þó um 25 km leið væri að ræða. Endirinn varð sá, að þau fengu húsið fyrir tæpu ári og vel gekk að flytja það. Þar er margt gamalla húsmuna að líta, bæði stórra og smárra. Herbergi eru uppbúin eins og þau voru um eina tíð og með þeim gögn- um og gæðum, sem eldri tíma til- heyrði, þvottaskál, koppur undir rúmi og spýtubakki er í horni fordyris. Þeir sem eru fyrir kaffisopann, gætu haft gaman af því að sjá í einu safni 50 kaffikönnur. Mánárbakki er í þjóðbraut, nyrsti bærinn á Tjörnesi, skammt íyrir norðan náttúruundrið Hallbjarnar- staðarkamb og í Jeiðinni að Ásbyrgi og Dettifossi. Við uppsetningu og skráningu safnsins hefur Ingimar F. Jóhannsson aðstoðað hjónin. Þórshamar, safn þeirra Mánár- bakkahjóna, verður opið almenningi í sumar, alla daga frá kl. 10 til 18 og á öðrum tímum eftir samkomulagi. % I í € 1 f I « f t í 1 t: i: f ( I I f í (L

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.