Morgunblaðið - 24.06.1995, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 24.06.1995, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ1995 29 AÐSENDAR GREINAR Nokkur orð um sjálfvirkt tilkynningaskyldukerfi Tilkynningaskylda íslenskra skipa EFTIR að fjar- skiptatæki komu til sögunnar kom í ljós að þau voru eitt besta ör- yggistæki hvers skips. I fjölda tilfella skipti það sköpum um björg- un að sjófarendur, sem fyrir óhöppum urðu, gátu komið frá sér hjálparbeiðni þegar óhappið átti sér stað. Tilkynningaskylda íslenskra skipa, sem Slysavarnafélag ís- lands hefur starfrækt frá 1968, hefur tekið við fjarskipta- boðum frá skipum og hún hefur reynst ómetanlegur öryggisþáttur fyrir sjómenn. Samvinna Slysa- varnafélagsins og sjómanna í tengslum við þessa starfsemi hefur alla tíð verið góð, þar hefur ríkt gagnkvæm virðing og trúnaður sem er afar mikilvægt. Slysavarnafélagið hafði frum- kvæði að því á sínum tíma að koma Tilkynningaskyldunni á og sannar- lega er hún einn merkasti liður í starfsemi félagsins frá upphafi. Til- kynningaskyldan er starfrækt sam- kvæmt lögum sem sett voru á Al- þingi og ríkissjóður greiðir kostnað- inn af rekstrinum. Þessi sérstaka þjónusta við sjó- menn hefur vakið verðskuldaða at- hygli erlendis. Islendingar eru brautryðjendur á þessu sviði og fer vel á því, því fáar þjóðir eru ems nátengdar sjómennsku og við ís- lendingar. Sjálfvirk tilkynninga- skylda skipa Á vegum Verkfræðistofnunar Háskóla íslands hófst vinna við þróun sjáifvirks til- kynningaskyldukerfis árið 1983 til þess að geta á þann hátt aukið enn á öryggi sjómanna. „Háskólakerfið“ byggðist upp á notkun metrabylgju og neti landstöðva kringum landið. Langdrægni slíks kerfis er um 60-70 sjómílur frá strönd. Fjær landi er hægt að nota stutt- bylgju og gervitungl- aijarskipti. „Háskólakerfið“ hefur verið í „tilrauna- keyrslu" hjá Tilkynn- ingaskyldunni síðan í nóvember 1990, að miðstöð kerfisins var færð þangað, og má segja að það hafi lofað mjög góðu. Á skjámynd tölv- unnar í Tilkynningaskyldunni eru skipin sýnd sem deplar og nafn, hraði, stefna og aðrar upplýsingar eru skráðar við depilinn. Landstöðv- ar eru þrjár sem tengjast kerfinu: í Bláfjöllum, á Snæfellsnesi og í Vestmannaeyjum. Svið þeirra nær frá Snæfellsnesi og skammt austur fyrir Vestmannaeyjar. Til þess að kerfið komi að fullum notum þurfa að koma til mun fleiri landstöðvar. Þegar hið væntanlega sjálfvirka tilkynningaskyldukerfi kemst á hjá Tilkynningaskyldunni verður lögð rík áherslu á að fá í gegnum það örar tilkynningar frá bátum sem eru í vondu veðri til þess að geta fylgst með þeim og gert viðeigandi ráðstafanir ef með þarf. Mörg hörmuleg sjóslys sem orðið hafa með þeim hætti að slæmt veður hefur skyldilega skollið á eru mönn- um í fersku minni. Sjálfvirka tilkynningaskyldan mun í framtíðinni vera mikilvægur þáttur í leitar- og björgunaraðgerð- um. Slysavarnafélag íslands og Landhelgisgæslan reka báðar sjó- björgunarstjórnstöð vegna leitar- og björgunaraðgerða, hvor á sínu svæði, og annast stjórnstöð Slysa- varnafélagsins aðgerðarstjórn með- fram strönd landsins og á svæði næst henni. Má nefna hér að sjó- flokkur Ingólfs, björgunarsveitar Slysavarnafélagsins í Reykjavík, fær að meðaltali milli. 40 og 50 útköll á ári vegna báta sem lenda í erfiðleikum. Einnig fá sveitirnar í Grindavík, Sandgerði, Bolungarvík og á fleiri stöðum mörg útköll ár- lega. Verkfræðistofan Hnit er að hanna fyrir Slysavarnafélagið út- kallskerfi björgunarsveita, en félag- ið hefur á að skipa 90 björgunar- sveitum í kringum landið og er í góðri samvinnu við Landsbjörgu sem hefur á að skipa 27 sveitum. í „Hnitarkerfinu" tengjumst við beint lifandi veðurvarpi og fáum því upplýsingar um veður beint frá Veðurstofu Islands sem kemur til með að nýtast okkur vel hjá Til- kynningskyldunni. Björgunarsveit- imar hafa oft á tíðum verið mjög hjálplegar víð að grennslast eftir bátum sem ekki hafa tilkynnt sig, m.a. leitað í höfnum, og einnig ber hér að geta um hafnarverði og lög- reglu, en við þessa aðila höfum við átt sérstaklega gott samstarf og munum vonandi eiga um ókomna tíð. Samkomulag undirritað Þann 14. mai 1994 undirrituðu samgönguráðherra, póst- og síma- málastjóri og forseti Slysavarnafé- lagsins samkomulag þess efnis að Slysavarnafélaginu var falið að annast rekstur sjálfvirku tilkynn- ingaskyldunnar og byggja upp og reka stjórnstöð í þeim tilgangi. Pósti og síma var ætlað að sjá um að Páll Ægir Pétursson framkvæma uppbyggingu nauðsyn- legar landstöðva. Undirritun þessa samkomulags fór fram á landsþingi Slysavarnafélagsins og var eðlilega mjög fagnað af slysavarnafólki enda um að ræða baráttumál fé- lagsins í rúman áratug. Vita- og hafnamálum falin framkvæmd í október 1994 skipaði ég tækni- nefnd til að skilgreina þarfir sjálf- virku tilkynningaskyldunnar og lagði jafnframt á það áherslu við samgönguráðuneytið að málinu yrði flýtt eins og kostur væri. Umrædd nefnd var skipuð þremur mönnum, tveimur frá Slysavarnafélaginu og einum frá Kerfisverkfræðistofu Háskólans. Nefndin starfaði þar til í febrúar síðastliðinn að samgöngu- ráðuneytið fól Vita- og hafnamála- stofnun yfirstjórn þess verkefnis að koma upp sjálfvirku tilkynninga- skyldukerfi hér á landi. Frá þeim tíma hefur sú stofnun verið að viða að sér upplýsingum, enda menn á Sjálfvirk tilkynninga- skylda eykur öryggi sjómanna. PállÆgir Pétursson skrifar um leitar- og björgunar- aðgerðir á sjó. þeim bæ ókunnugir Tilkynninga- skyldunni og þurftu því tíma til þess að átta sig á hlutunum. Há- skólamenn voru búnir að vinna að þróun ákveðins kerfis sem töluverðu fé hafði verið eytt í og að auki hafa þeir mikla reynslu, eru sannar- lega frumkvöðlar í hönnun slíks kerfis hér á landi. Ég hef átt ágæt samskipti við Vita- og hafnamála- stofnun sem hefur leyft mér að fylgjast grannt með gangi mála. Eftirlitskerfi með sjósókn Nú fyrir skömmu var frumvarp, sem felur í sér breytingar á lögum um stjórn fiskveiða, afgreitt frá sjávarútvegsnefnd Alþingis og síð- an samþykkt. Meirihluti nefndar- innar lagði til að sjávarútvegsráð- herra ákvæði með reglugerð að útgerðir fengju að velja sóknardaga en róðrardagakerfi yrði komið á fót þegar tæknilegar og fjarhagslegar forsendur væru fyrir hendi til að hafa virkt eftirlit með sjósókn bát- anna. Þetta þýðir með öðrum orðum að nú er brýn þörf fyrir sjálfvirkt tilkynningaskyldukerfi, ekki vegna öryggis, heldur vegna eftirlits með sjósókn báta. Ef öryggið hefði verið sett á oddinn með líkum. hætti í upphafí væri slíkt kerfi þegar fyrir hendi. Öryggisþátturinn má ekki gleymast Við megum aldrei sofna á verðin- um hvað öryggismál varðar og finnst mér að þegar tengt er saman flotaeftirlits- og öryggiskerfi megi öryggisþátturinn ekki hverfa í skuggann heldur þvert á móti, hann á að vera aðalatriði. Við undirbún- ing þessa máls á að nýta þá miklu reynslu og þekkingu sem starfs- menn Tilkynningskyldunnar búa óneitanlega yfir á þessu sviði. Nauðsynlegt er að starfsmenn Tilkynningaskyldu íslenskra skipa geti í slíku kerfi kallað á tilkynn- ingar frá bátum eftir þörfum til þess að fyllsta öryggis sé gætt miðað við veðurlag o.s.frv. Einnig er mikilvægt að þjónustan verði það ódýr að jafnvel minnstu trillur geti nýtt sér hana, þar er þörfin brýnust. Sjálfvirk tilkynningaskylda á að auka öryggi sjómanna til muna og gera eftirlit Slysavamafélagsins með bátum virkara og öruggara. Sjómenn hafa treyst á Tilkynninga- skylduna og átt við hana góð sam- skipti í tæplega þijátíu ár og bind- um við hjá Slysavarnafélagi Islands vonir við að kerfið verði hannað fyrst og fremst sem öryggiskerfi eins og upphaflega var áætlað. Höfundur er deildarstjóri björgvnardeildar Slysavarnafélags íslands. Sjálfstæðir atvinnurekendur, skattheimtumenn og lífeyrismál SAMKVÆMT ís- lenskum lögum er öll- um launamönnum og þeim sem stunda at- vinnurekstur eða sjálf- stæða starfsemi, rétt og skylt að eiga aðild að lífeyrissjóði viðkom- andi starfsstéttar eða starfshóps. Iðgjald í lífeyrissjóði skal vera að minnsta kosti 10% af viðurkenndum stofni iðgjalda. At- vinnurekendum er skylt að halda eftir af launum starfsmanna sinna iðgjaldahluta þeirra og standa við- komandi lífeyrissjóði skil ásamt mótframlagi sínu skiptist iðgjaldið þannig að 4% eru greidd af launum starfsmanns en mótframlag atvinnurekandans er 6%. Sum stéttarfélög og einstaka launamenn hafa þó samið um hærra mótframlag atvinnurekandans. I grein þessari er ætlunin að vekja athygli á því hvernig mótframlag atvinnurekanda fær mismunandi skattalega meðferð eftir því hvort um er að ræða sjálfstæða atvinnu- rekendur eða önnur rekstrarform eins og t.d. hlutafélög. Lífeyrissjóðsframlag sjálf- stæðs atvinnurekanda Sjálfstæðum atvinnurekanda ber að telja fram ákveðin laun sem kölluð eru reiknað endurgjald. Það myndar stofn þess iðgjalds sem framlag atvinnurekandans í lífeyr- Sigurður Atli Jónsson á honum . Yfirleitt issjóð reiknast af. Ið- gjaldsgreiðslan skiptist í tvennt, iðgjalds- greiðslu launamanns- ins (4%) og mótframlag atvinnurekandans (6%). Þar sem hér er um einyrkja að ræða eru atvinnurekandinn og launamaðurinn sami aðilinn. Það breytir þó ekki því hvernig þessar greiðsl- ur skiptast formlega. Hin reiknuðu laun koma til frádráttar frá rekstrartekjum ei- nyrkjans, rétt eins og launakostnaður fyrir- tækja sem tilheyra öðrum rekstrar- formum, eins og t.d. hlutafélögum eða sameignarfélögum, sem eru sjálfstæðir skattaaðilar. Þegar hins vegar kemur að því að taka tillit til mótframlags atvinnurekandans í lífeyrissjóð launamannsins er gert upp á milli þessara ólíku rekstrar- forma. Samkvæmt túlkun skattayf- irvalda á lögum um tekju- og eign- arskatt er mótframlag atvinnurek- andans ekki frádráttarbært frá skattskyldum tekjum í sjálfstæðum atvinnurekstri einstaklinga. Ef hins vegar um er að ræða önnur rekstr- arform er þessi frádráttur heimill og því ljóst að ólíkum rekstrarform- um er mismunað að þessu leyti. Tilgangur laga og túlkun þeirra Það hlýtur að teljast ólíklegt að löggjafanum hafi gengið það til, með lagasetningum sínum, að koma á skattalegu misrétti ólíkra rekstr- arforma vegna lífeyrissjóðsiðgjalda. Með núverandi túlkun skattayfir- valda á lögunum eru einstaklingar sem stunda atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi þó misrétti beittir. Þeim er ekki gefinn kostur á því að draga skyldubundið mót- framlag atvinnurekanda í lífeyris- sjóð frá tekjum, auk þess sem hag- kvæmni þess að greiða viðbótarið- gjald í séreignarlífeyrissjóð fyrir launamanninn er minni en hjá öðr- um rekstrarformum. Um viðbótar- iðgjöld gildir að slík framlög eru frádráttarbær rétt eins og hið skyldubundna mótframlag. Fyrirboði breytinga? í kjölfar kjarasamninga fyrr á þessu ári beittu stjórnvöld sér fyrir Ólíklegt telst að löggjaf- inn hafí ætlað, segir Sigurður Atli Jónsson, að koma á skattalegu misrétti ólíkra rekstrar- forma vegna lífeyris- sjóðsiðgjalda. því að afnema í áföngum tekju- skattslagningu á 4% iðgjaldafram- lag launamannsins. Ekki virðist ætlunin að gera upp á milli ólíkra þjóðfélagshópa við þessa aðgerð, því einyrkjar munu geta dregið hluta 4% Íífeyrissjóðsiðgjalds síns sem launamenn frá skatti. Hér er því samræmi í reglum sem gilda um almenna launamenn og sjálf- stætt starfandi einstaklinga. Ef til vill er þetta fyrirboði þess að skatta- yfirvöld hyggist taka upp þá al- mennu reglu að um einyrkja gildi sömu reglur og fyrir aðra hvað varðar skattalega meðferð iðgjalds- greiðslna í lífeyrissjóði. Úrbætur eru mikilvægar Lífeyrissjóðsmál einstaklinganna skipta þá sjálfa að sjálfsögðu gríð- arlega miklu máli. Mikilvægi þessa málaflokks fyrir þjóðina í heild er þó einnig verulegt. Þetta stafar ein- faldlega af því að sá lífeyrir sem fólk sparar sér til þess tíma er starf- sævi -þeirra lýkur er að öllu jöfnu síst of mikill og sýnt er að útgjöld ríkisins vegna lífeyris- og öldrunar- mála munu aukast verulega í fram- tíðinni vegna breyttrar aldurssam- setningar þjóðarinnar. Það er því skynsamlegt af stjórnvöldum að hvetja þegnana, fremur en letja, til að leggja fyrir til efri áranna til þess að álögur á skattgreiðendur þess tíma keyri ekki úr hófi fram. Mikilvæg skref í þessa átt voru stig- in með afnámi tekjuskattsálagning- ar á iðgjöld launamanna. Vonandi gefa þau fyrirheit um að von sé á fleiri úrbótum í þessum málaflokki, t.d. afnámi þess misréttis sem lýst hefur verið í þessari grein. Höfundur er hagfræðingur lyá Landsbréfum hf. - kjarni málsins!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.