Morgunblaðið - 24.06.1995, Blaðsíða 22
22 LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
ERLEIMT
I
I
í
Repúblikanar fá samkeppni
Cuomo stjórnar
spjallþætti
MARIO Cuomo, fyrrverandi
ríkisstjóri í New York, hefði
hugsanlega getað orðið forseti
Bandaríkjanna og að minnsta
kosti hæstaréttardómari en
starfíð, sem bíður
hans núna er að
stýra spjallþátturh í
útvarpi. Það er þó
engin ástæða til að
gera lítið úr þessum
þáttum því að þeir
eru oft hápólitískir
og á þessum vett-
vangi hafa hægri-
sinnaðir repúblikan-
ar verið næstum
einráðir að undan-
fömu. Vonast demó-
kratar til, að Cuomo
geti vegið nokkuð
upp á móti því.
I fyrsta þætti sín-
Mario Cuomo
um lét Cuomo gamminn geisa
um hin ólíklegustu efni, um heil-
sugæslu, skáldskap, Bítlana og
Bill Clinton, um eþíópska gyð-
inga, rakarann sinn og Iroquois-
indíána, Hitler og Atla Húnakon-
ung. Hann minnti sjálfur á, að
þegar hann hefði hafíð afskipti
af stjórnmálum, hefði hann þótt
einstaklega leiðinlegur og lang-
orður en Cuomo þykir annars
mikill mælskumaður.
Demókratar vona, að Cuomo
og fijálslyndar skoðanir hans nái
eyrum sem flestra þótt þeir búist
ekki við, að hann muni ógna
hægrimanninum Rush Lim-
baugh, sem er með þætti á 660
útvarpsstöðvum. Skoðanabræð-
ur hans, þeir G.
Gordon Liddy og
Oliver L. North, eru
með 260 og 109
stöðvar en sjálfur
fer Cuomo af stað
með þætti á 20
stöðvum.
Demókratar
fengu óþyrmilega
að kenna á því í
kosningum sl. haust
hvaða áhrif hægriá-
róðurinn í spjall-
þáttunum hafði haft
á kjósendur og eru
því famir að þreifa
fyrir sér um gagn-
sókn á þessum vettvangi. Það
fer heldur ekki á milli mála, að
mestu hægrimennimir hafa
misst mikinn byr úr seglunum
eftir sprengutilræðið í Oklahoma
og þungamiðjan hefur færst nær
miðjunni.
Cuomo leggur áherslu á, að
hann muni ekki verða talsmaður
neins eins flokks í þáttum sínum
og segir, að hann muni vafa-
laust læra meira af viðmælend-
um sínum en þeir af honum.
Lögreg’lufor-
ingja stungið inn
Róm. Reuter.
YFIRMAÐUR sérsveitar í ítölsku
lögreglunni er rannsakar stuld á
listaverkum var handtekinn í vik-
unni, sakaður um ósannindi í lög-
regluskýrslu. Við sögu kemur helgur
munur, kjálkabein úr heilögum Anto-
níusi frá Padúa. Þrír grímuklæddir
og vopnaðir menn stálu beininu úr
kirkju í október 1991 en lögreglan
endurheimti beinið tveim mánuðum
síðar og var því skilað með mikilli
viðhöfn.
Beinið er geymt í silfurkaleik sem
skreyttur er gullplötum, rúbínum og
safírsteinum; kaleikurinn er varð-
veittur í kirkju Antoníusar.
Lögreglumaðurinn heitir Roberto
Conforti og er höfuðsmaður að tign.
Sakargiftir eru þær að Conforti og
menn hans, sem náð hafa góðum
árangri í starfi sínu undanfarin ár,
eru sagðir hafa logið um fundarstað-
inn í skýrslu sem þeir gerðu um fund
beinsins á sínum tíma.
Ljóst er nú að gripurinn fannst
við sorpgám skammt frá Padua og
uppljóstrari vísaði á hann. Mun Conf-
orti hafa talið nauðsynlegt að
skrökva til að vernda uppljóstrara.
Flest bendir til að þar sé átt við
Felice I^Ianiero, dæmdan afbrota-
mann sem varð landsfrægur er hann
strauk úr öryggisfangelsi í Padua í
júní í fyrra. Maniero náðist fimm
mánuðum síðar og hefur verið sam-
vinnuþýður í yfirheyrslum.
„Englasmetti“
vildi semja
Maniero gengur undir gælunafn-
inu „Englasmetti" vegna þess hve
fríður, brosmildur og sviphreinn hann
er. Hann segist hafa skipulagt þjófn-
aðinn til að geta notað kjálkabeinið
sem skiptimynt í samningum við lög-
regluna um að hann slyppi við að
vera undir ströngu eftirliti.
Drottniner í Færeyium
M—ikKfn M_Ö
Þórshöfn. Morgunblaðið.
AHYGGJUR af Faroe Seafood eða
Föroya Fiskasölu', skuldum og at-
vinnuleysi hafa vikið um stund vegna
heimsóknar Margrétar Danadrottn-
ingar til Færeyja. Kom hún til Þórs-
hafnar á fimmtudag og heimsótti
Lögþingið og Listaskálann.
Færeyingar biðu þess með nokk-
urri eftirvæntingu hveijir fengju
riddarakrossinn frá drottningu að
þessu sinni og sérstaklega vegna
þess, að Axel Hansen, fyrrverandi
fiskvinnsluforstjóri og útgerðarmað-
ur, skilaði nýlega krossinum sínum
til að mótmæla framkomu Dana í
bankamálinu.
Þeir, sem voru síðan krossaðir á
fímmtudag, voru Edmund Joensen
lögmaður; Lisbeth L. Petersen, for-
seti bæjarstjómar Þórshafnar; Jóg-
van við Keldu, forseti bæjarstjómar
í Klakksvík; Sámal Petur á Grund,
ferðamála- og samgönguráðherra,
og Eiler Jacobsen útgerðarmaður.
Ekki er vitað hveijir eða hve marg-
ir báðust undan krossinum.
Átök demókrata og repúblikana i Bandaríkjunum um forsetaembættið
Reuter
Vill stjórna
orrustu-
flugvél
ALICE Miller, 23 ára gömul kona
í Israel, hefur höfðað mál gegn
flughernum til að fá að verða
orrustuflugmaður. Flugherinn
meinar konum að gerast herflug-
menn og vísar til þess að þjálfun-
in sé svo dýr að ekki sé verjandi
að þungun geti truflað hana.
Miller, sem er fædd í Suður-Afr-
íku og þjálfaður flugmaður, telur
að um mismunun vegna kynferð-
is sé að ræða og lögfræðingur
hennar bendir á að kona hafi
flogið flutningavél fyrir flugher-
inn í styijöldunum við arabaríkin
1956 og 1967. Ezer Weizman,
núverandi forseti, var eitt sinn
yfirmaður flughersins og hann
útskýrði stefnuna fyrir nokkrum
árum með eftirfarandi orðum:
Bestu mennina í flugmannsþjálf-
un, bestu konurnar handa flug-
mönnunum.
Clinton hefur
baráttuna
Little Roek, Washington. Reuter.
BILL Clinton Bandaríkjaforsetii hóf
í reynd Kosningabaráttuna fyrir for-
setakjörið á næsta ári á fjáröflunar-
fundi í New Jersey á fimmtudags-
kvöld. Formlegrar yfírlýsingar Clint-
ons um að hann sækist eftir endur-
kjöri er ekki að vænta fyrr en síðar
á árinu.
Forsetinn flutti ræðu og gagn-
rýndi harðlega repúblikana í öld-
ungadeildinni fyrir að neita að sam-
þykkja skipan Henrys Fosters í emb-
ætti landlæknis. Að nafninu til er
ástæða andstöðunnar við Foster
einkum sú að hann hefur viðurkennt
að hafa eytt fóstri 39 sinnum á ferli
sínum en meðal kjósenda repúblik-
ana er öflug andstaða við að leyfa
þær.
Þingmaðurinn og forsetafram-
bjóðándinn Phil Gramm reyndi ákaft
að vinna sig á í álit hjá andstæðing-
um fóstureyðinga með því að beijast
gegn útnefningu Fosters með mál-
þófi. Bob Dole, leiðtogi repúblikana-
meirihlutans í þingdeildinni, keppir
einnig að því að verða forsetafram-
bjóðandi repúblikana og Pete Wil-
son, ríkisstjóri Kalifomíu, skýrði frá
framboði sínu á fímmtudag.
Dole nýtur stuðnings flestra repú-
blikanaþingmanna og segja stjórn-
málaskýrendur að þeir hafi ákveðið
að fella Foster til að koma í veg
fyrir að Gramm gæti notfært sér
málið og fullyrt að Dole hefði enga
stjórn á þingflokknum ef Foster hlyti
samþykki. Andstaðan í öldunga-
deildinni við Foster hafí því aðallega
verið vegna væntanlegrar prófkjörs-
baráttu en ekki snúist um afstöðuna
til fóstureyðinga.
Reuter
CLINTON Bandarikjaforseti (fyrir miðju) á fundinum í New Jersey. Með honum eru þau A1 Gore
varaforseti og eiginkonurnar, Hillary Rodham Clinton og Tipper Gore.
Hyggur Idi Amin á valdarán?
MARGT bendir til þess að
fyrrum einvaldur í Uganda,
harðstjórinn Idi Amin, sé í
hópi manna sem hyggi á
innrás í landið með það að
markmiði að steypa Yoweri
Museveni forseta af stóli.
Museveni var leiðtogi
skæruliða sem náðu höfuð-
borginni Kampala árið
1986.
Að sögn Aftenposten ber
Amin
fjölmörgum heimildum saman um
ráðagerðir hins blóðþyrsta Amins.
Hann sat á forsetastóli frá 1971 -
1979, og lét drepa og pynta þús-
undir landsmanna. Honum var
steypt af stóli árið 1979
og flýði þá til Líbýu og síð-
ar Saudi-Arabíu.
Kahinda Otafiire, örygg-
ismálaráðherra Úganda, er
einn þeirra sem óttast að
Amin hyggi á valdarán.
Vísar hann til þess að fyrr-
verandi ráðherra í ríkis-
stjóm Amins, Juma Oris
ofursti, og fyrrverandi of-
ursti í her Amins, Abdillat-
í Morobo í Súdan og að markmið
þeirra sé að koma Amin aftur til
valda.
Annað markmið WNBF ér sagt
vera að aðstoða Súdani við að út-
breiða íslam í Úganda. Er fullyrt
að Amin, sem er múslimi, gegni
þar lykilhlutverki.
Aðstoð frá Súdan
if, hafa að undanfömu hvatt ung-
menni til að ganga í skæruliða-
hreyfingu sem kölluð er Vestur-
Nílar fylkingin (WNBF). Fullyrðir
Otafire að skæruliðamir fái þjálfun
Ekki eru nema tveir mánuðir frá
því að skæruliðahreyfingin var
fyrst nefnd á nafn, en það var for-
ingi í her Musevenis, Ronald Kaw-
uma, sem það gerði. Hann gekk
andstæðingum stjómarinnar í Úg-
anda á hönd, og stofnaði ný skæru-
liðasamtök sem hann sagði starfa
m.a. með WNBF.
Amin er af Kakawa-ættbálknum
sem ræður ríkjum í norðvesturhluta
Úganda og hafa borist fréttir um
að liðsmenn WNBF hafi fengið
aðstoð manna úr ættbálknum til
að fá fólk til liðs við skæruliða-
hreyfínguna og beijast gegn stjóm-
inni í Kampala. Er fullyrt að leið-
togar hreyfíngarinnar standi í nán-
um tengslum við Amin, enda séu
nær eingöngu fyrrverandi liðsmenn
hans í WNBF, en þeir hafa verið
í útlegð í Súdan og Zaire. Telja
margir að skæruliðamir njóti ijár-
stuðnings súdönsku stjómarinnar.
Dehaene
áfram við völd
Brussel. Reuter.
NÝ ríkisstjóm var mynduð í Belgíu
í gær og verður kristilegi demó-
kratinn Jean-Luc Dehaene áfram
forsætisráðherra.
Fjórir mið- og vinstriflokkar
standa að stjórninni og að þessu
sinni tók aðeins 32 daga að koma
henni á koppinn en 100 daga eftir
síðustu kosningar.
Ráðherraskipan er að mestu
óbreytt frá fyrri stjórn, flæmski
sósíalistinn Erik Derycke er áfram
utanríkisráðherra. Verið er að und-
irbúa mikinn niðurskurð á fjárlög-
um en skuldir ríkisins eru einhveij-
ar hinar mestu í Evrópu miðað við
þjóðarframleiðslu.
I
I
>
>
>